DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5916.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

City Ranger

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 246-7
DROPS Design: Mynstur ne-377
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
600-650-750-800-900-950 g litur 8906, skógur

DROPS TALA NR 630: 5 st í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5916.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur.
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið A.2 yfir næstu 3 lykkjur.
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 yfir næstu 3 lykkjur, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið 1 lykkju slétt fram hjá merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt.
Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir 5 hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. – ATH: Það er fallegast að fella af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í einni einingu með 2 lykkjur brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Neðsta hnappagatið er staðsett ca 5 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið er staðsett ca 25-27-29-30-31-32 cm frá öxl og niður. Neðstu 3 hnappagötin eru staðsett jafnt yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið og bakstykkið og framstykkin er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp þar sem ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli / kantur að framan í kringum allt opið á peysunni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 192-208-224-240-264-280 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Nepal.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 30-34-38-38-46-46 lykkjur jafnt yfir = 162-174-186-202-218-234 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Setjið 1 merkiþráð 41-44-47-51-55-59 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 80-86-92-100-108-116 lykkjur á bakstykki á milli merkiþráða). Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu, merkiþræðirnir merkja hliðar á fram- og bakstykki og eru notaðir þegar fella á af fyrir handvegi. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Þegar stykkið mælist 38-38-38-39-40-41 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli eru lykkjur felldar af fyrir handveg og hvort stykki er prjónað fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. Lestu V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 38-38-38-39-40-41 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA.
Fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 4 sinnum í öllum stærðum.
Síðan er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 4. hverja umferð alls 3-3-4-4-5-5 sinnum.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið eins og áður þar til 2-3-4-4-4-5 lykkjur eru eftir á undan fyrri merkiþræði í hlið, fellið af 4-6-8-8-8-10 lykkjur fyrir handvegi, prjónið eins og áður þar til eftir eru 2-3-4-4-4-5 lykkjur á undan seinni merkiþræði, fellið af 4-6-8-8-8-10 lykkjur fyrir handvegi og prjónið eins og áður út umferðina.
Framstykkin og bakstykkið er núna prjónað áfram hvert fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handvegi þannig:

HANDVEGUR:
Í byrjun á næstu umferð frá réttu er fækkað um 1-1-1-2-2-2 lykkjur, síðan er fækkað um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 0-0-0-1-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA.
Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handveg eru 27-29-30-32-33-36 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig:

HANDVEGUR:
Í lok næstu umferðar frá réttu er fækkað um 1-1-1-2-2-2 lykkjur, síðan er fækkað um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 0-0-0-1-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA.
Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handveg eru 27-29-30-32-33-36 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm.

BAKSTYKKI:
= 76-80-84-92-100-106 lykkjur.
Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig:
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1-1-1-2-2-2 lykkjur í hvorri hlið á stykki, síðan er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 0-0-0-1-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 74-78-82-86-90-96 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm, fellið af miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli (28-30-31-33-34-37 lykkjur eftir á hvorri öxl).
Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli = 27-29-30-32-33-36 lykkjur.
Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 48-48-52-52-56-56 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Nepal. Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-6-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-44-46-46 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt undir ermi).
Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu – það á að nota hann síðar þegar auka á út mitt undir ermi.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 12-12-9-11-9-12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4-4-3-3-2½ cm millibili alls 10-11-12-13-14-15 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur.
Þegar ermin mælist 55-55-55-51-50-50 cm, prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 2-3-4-4-4-5 lykkjum á undan merkiþræði, fellið af 4-6-8-8-8-10 lykkjur, prjónið sléttprjón út umferðina = 56-58-60-62-66-66 lykkjur. Síðan er ermakúpan prjónuð þannig:
Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig:
Fellið af 9-9-10-5-4-4 lykkjur alls 2-2-2-5-6-6 sinnum í hvorri hlið = 20-22-20-12-18-18 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist ca 57-57-57-56-56-56 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju meðfram handvegi.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka á bakstykki, prjónamerkið er notað þegar helmingur af lykkjum í kanti að framan er talinn. Kantur að framan er prjónaður upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Byrjið neðst niðri á hægra framstykki frá réttu og prjónið upp ca 131-135-139-143-149-153 lykkjur meðfram öllum kanti að framan upp að prjónamerki í hnakka, á hringprjón 4 – látið prjónamerkið sitja hér. Haldið áfram að prjóna upp ca 131-135-139-143-149-153 lykkjur meðfram öllum kanti að framan niður að kanti á vinstra framstykki, alls á lykkjufjöldinn að vera deilanlegur með 4 + 2 = ca 262-270-278-286-298-306 lykkjur.
Það er mikilvægt að stroffið verði ekki of laust með of mörgum lykkjum, en stroffið á heldur ekki að dragast saman með of fáum lykkjum.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 2 cm fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af aðeins laust.

Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = prjónið 3 lykkjur brugðið saman
symbols = prjónið frá röngu: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B

diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Elke Behrend wrote:

Guten Tag, ich habe eine Frage zum Stricken der Blende des V-Ausschnitt es. Wie bekomme ich eine schöne Rundung hin am Knick von den geraden Stücken (Knopflöcher und Knöpfe) der Vorderteile zum Beginn des V-Ausschnittes? Bei mir gibt es immer eine *Delle". Vielen Dank für Ihre Hilfe!!! Und herzliche Grüße vom Bodensee Elke

11.02.2024 - 22:16

DROPS Design answered:

Liebe Elke, meinen Sie, dass sich die Blende am Übergang zum V-Ausschnitt etwas wellt? Dann sind an dieser Stelle möglicherweise zu viele Maschen vorhanden, vielleicht versuchen Sie, an diesem "Knick" etwas weniger Maschen aufzufassen. Sollte sich das Problem dadurch verschlimmern, müssen Sie mehr Maschen auffassen - vielleicht liegt die "Delle" auch daran, dass es zu wenige Maschen sind - das lässt sich leider per "Ferndiagnose" schlecht sagen... Gutes Gelingen weiterhin!

12.02.2024 - 19:20

country flag Mina Bello wrote:

é corrett CORPO: ... Continuare queste coste in piano per 4 cm. Lavorare 1 ferro diritto dal diritto del lavoro e diminuire 30 ?

09.01.2024 - 11:52

DROPS Design answered:

Buonasera Mirna, si, il numero di maglie da diminuire è corretto. Buon lavoro!

09.01.2024 - 16:20

country flag Mina Bello wrote:

Buongiorno dopo aver lavorato la costa del cardigan viene indicato nelle spiegazioni di chiudere 30 punti (per la taglia S) e non capisco come mai? in pratica dopo la costa si riduce da 192 a 162 punti mi sembra strano ! grazie per il vostro aiuto complimenti per i vostri magnifici modelli un caro saluto Mina Bello Mina

09.01.2024 - 11:50

DROPS Design answered:

Buongiorno Mirna, il bordo a coste tende a "tirare" il lavoro, per cui si avvia un numero di maglie maggiore per non aver un bordo contratto, e poi vengono diminuite alla fine del bordo. Buon lavoro!

09.01.2024 - 16:19

country flag Maureen wrote:

I’m struggling to understand instruction for decrease at front edge. A1 is purl 3 together making 2 stitches less , then pattern says decrease 1 stitch by using A2 at beginning of row and A3 at end of row but this shows make a stitch in between 2 stitches which surly increases by one stitch at the begging and end of row not decrease. I’m confused

08.01.2024 - 19:16

DROPS Design answered:

Dear Maureen, you first decrease 3 sts as shown in A.1, but then you will decrease only 1 stitch working 3 sts together as in A.1 but on the next row, make 1 yarn over to compensate one of the decreases, so that you decrease only 1 stitch but continue same pattern all the way. Happy knitting!

09.01.2024 - 07:36

country flag Merete wrote:

Dette er en herrejakke. Knapperne sidder til højre og knaphuller skal derfor laves i venstre forkant.

01.11.2023 - 12:23

country flag Marja-liisa wrote:

Mitkä ovat esim. miesten XL koon cm-mitat?

30.10.2023 - 19:18

DROPS Design answered:

Löydät kaikki mitat ohjeen tekstin alapuolella olevasta mittapiirroksesta.

31.10.2023 - 16:49