DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

December Carnival Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.

DROPS 245-6
DROPS Design: Mynstur u-961
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-150-200-200-200 g litur 50, sægrænn
50-50-50-50-100-100 g litur 80, bleikur
50-50-50-50-100-100 g litur 84, eyðimerkurrós
50-50-50-50-100-100 g litur 55, ljós brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 04, súkkulaðibrúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 11, appelsína
50-50-50-50-50-50 g litur 21, milligrár
50-50-50-50-50-50 g litur 37, dökk blágrænn
50-50-50-50-50-50 litur 39, dökk antikbleikur
50-50-50-50-50-50 g litur 45, ljós ólífa
50-50-50-50-50-50 g litur 48, vínrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 52, sinnepsgulur
50-50-50-50-50-50 g litur 69, ljós grágrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 73, bensín
50-50-50-50-50-50 g litur 76, dökk fjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 82, rauðbrúnn

TÖLUR:
DROPS TALA NR 628: 6-6-7-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri= 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT (á við um hægri kanti að framan, séð þegar flíkin er mátuð):
Fellið af fyrir 6-6-7-7-7-7 hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – ATH: Fallegast er að fella af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í einingu með 2 lykkjum brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt þannig að það myndist gat.
Efsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli tvöfalda kanti í hálsmáli og berustykkis, neðsta hnappagatið er ca 1 cm frá kanti neðst. Þau 4-4-5-5-5-5 hnappagöt sem eru eftir eru staðsett með ca 9-9½-8-8½-9-9½ cm millibili .

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Síðan eru kantar að framan prjónaðir. Í lokin er stroff prjónað neðst.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-100-104-108-112-116 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Karisma í litnum sægrænn. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið 1 umferð brugðið.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan *, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 10 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Stroffið er síðan brotið saman tvöfalt og þá verðu kantur í hálsmáli ca 5 cm.

BERUSTYKKI:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út 25-29-33-37-37-37 lykkjur jafnt yfir = 121-129-137-145-149-153 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Setjið 1 prjónamerki í stykkið, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð (29-31-33-35-36-37 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 (3 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Lesið LEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan.
Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan:
Ör-1: Aukið út 44-44-44-52-52-56 lykkjur jafnt yfir = 165-173-181-197-201-209 lykkjur (nú er pláss fyrir 40-42-44-48-49-51 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Ör-2: Aukið út 40-40-44-48-52-52 lykkjur jafnt yfir = 205-213-225-245-253-261 lykkjur (nú er pláss fyrir 50-52-55-60-62-64 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum).
Ör-3: Aukið út 35-39-43-47-51-51 lykkjur jafnt yfir = 240-252-268-292-304-312 lykkjur (nú er pláss fyrir 59-62-66-72-75-77 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum og A.2 nær nú yfir 2 lykkjur).
Ör-4: Aukið út 3-7-7-15-19-27 lykkjur jafnt yfir = 243-259-275-307-323-339 lykkjur (nú er pláss fyrir 15-16-17-19-20-21 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum og A.2 nær nú yfir 1 lykkju).
Ör-5: Aukið út 25-29-29-25-29-33 lykkjur jafnt yfir = 268-288-304-332-352-372 lykkjur (nú er pláss fyrir 66-71-75-82-87-92 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum og A.2 nær nú yfir 2 lykkjur).
Ör-6: Aukið út 13-13-17-17-17-21 lykkjur jafnt yfir = 281-301-321-349-369-393 lykkjur (nú er pláss fyrir 69-74-79-86-91-97 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum og A.2 nær nú yfir 3 lykkjur).
Ör-7: Aukið út 12-12-12-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 293-313-333-365-385-413 lykkjur (nú er pláss fyrir 72-77-82-90-95-102 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum).
Ör-8: Aukið út 8-12-8-12-12-16 lykkjur jafnt yfir = 301-325-341-377-397-429 lykkjur (nú er pláss fyrir 74-80-84-93-98-106 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum).

Þegar stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan, JAFNFRAMT því sem mynstur er prjónaða. Þegar A.1 er lokið, prjónið A.3 og síðan A.4 (lykkjur sem prjónaðar voru í A.2 eru prjónaðar eins og fyrstu 3 lykkjur í A.3).
Skiptið síðan berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:

Prjónið 46-50-52-57-62-68 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 89-97-101-111-121-133 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 46-50-52-57-62-68 lykkjur sem eftir eru eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 197-213-229-249-277-301 lykkjur. Haldið áfram með A.3 eins og áður með kantlykkju í hvorri hlið. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.4 þar til stykkið mælist ca 27 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli) – endið eftir heila rönd. Ef réttu máli hefur ekki verið náð, er hægt að endurtaka A.X að óskaðri lengd. Setjið lykkjur á þráð.
Stroff neðst á fram- og bakstykki er prjónað til loka eftir að kantar að framan hafa verið prjónaðir til loka.

ERMI:
Setjið 60-64-68-76-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur undir ermi og látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónað er í hring, byrjið umferð við merkiþráðinn. Haldið áfram með A.3 (passið uppá að byrja í réttri umferð miðað við hvar berustykkið endaði).
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram!
Eftir A.3 er A.5 prjónað að loka máli. JAFNFRAMT þegar ermin mælist ca 4-4-4-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 12-12-16-18-20-20 sinnum = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 40-39-37-36-34-33 cm, en stillið af að endað sé eftir heila rönd (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli).
Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-60-60-64 lykkjur. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Notið hringprjón 3 og litinn sægrænn. Byrjið neðst meðfram opi á peysu og prjónið upp ca 124-128-132-136-144-148 lykkjur innan við 1 kantlykkju þar til 5 cm eru eftir efst í kanti í hálsmáli (síðar á að brjóta uppá síðustu 5 cm í kanti í hálsmáli) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið svona fram og til baka (fyrsta umferð er frá röngu): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kantur að framan mælist 1-1½ cm. Nú er fellt af fyrir 6-6-7-7-7-7 hnappagötum – lesið HNAPPAGAT að ofan – jafnt yfir. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Notið hringprjón 3 og litinn sægrænn. Byrjið efst meðfram opi á peysu og prjónið, 5 cm niður frá uppfitjunarkanti í kanti í hálsmáli (síðar á að brjóta uppá efstu 5 cm í kanti í hálsmáli) og prjónið upp ca 124-128-132-136-144-148 lykkjur innan við 1 kantlykkju niður að enda á fram- og bakstykki – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið á sama hátt og á vinstra framstykki, en ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan.

STROFF FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 197-213-229-249-277-301 lykkjur af þræði neðst á fram- og bakstykki á hringprjón 3. Notið litinn sægrænn, byrjið frá réttu og prjónið upp 7 lykkjur innan við 1 kantlykkju í neðri kanti í vinstri kanti að framan, prjónið sléttar lykkjur og aukið út jafnt yfir 37-41-45-51-53-57 lykkjur yfir lykkjur á prjóni, prjónið upp 7 lykkjur innan við 1 kantlykkju í neðri kanti í hægri kanti að framan = 248-268-288-314-344-372 lykkjur.
Prjónið stroff þannig (fyrsta umferð er frá röngu): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kanturinn mælist 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.
Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = bleikur
symbols = eyðimerkurrós
symbols = appelsína
symbols = sægrænn
symbols = dökk fjólublár
symbols = dökk antikbleikur
symbols = ljós brúnn
symbols = ljós ólífa
symbols = sinnepsgulur
symbols = ljós grágrænn
symbols = súkkulaðibrúnn
symbols = milligrár
symbols = vínrauður
symbols = dökk blágrænn
symbols = bensín
symbols = rauðbrúnn
symbols = útauknings umferð
symbols = örin á við um ermi. Þegar prjónað hefur verið til og með umferð merkt með ör á að prjóna eftir mynsturteikningu A.5 að loka máli
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Lucia Battisti wrote:

Buongiorno sto realizzando la taglia L sono arrivata con lo sprone a 26 cm. Ma non ho ancora terminato A 2 e mi mancano 2 freccie vado avanti oppure divido comunque le maniche calcolando la divisione delle maglie? Grazie lucia

08.12.2023 - 12:53

DROPS Design answered:

Buongiorno Lucia, il suo campione corrispondeva a quello indicato? Buon lavoro!

30.12.2023 - 11:34

country flag Christine wrote:

Den här blir man glad av och ett bra restgarns projekt..

10.10.2023 - 11:59

country flag Flocaeymaex wrote:

Colibri

05.08.2023 - 16:54

country flag HK wrote:

Jellybeam

04.08.2023 - 23:41

country flag Astrid Rohacek wrote:

Astrid

04.08.2023 - 18:08

country flag Marina wrote:

Prideparad. En färglek, perfekt för restgarnen

04.08.2023 - 11:24

country flag Prideparad wrote:

En färglek, perfekt för restgarnen

04.08.2023 - 11:23

country flag Jeannine wrote:

Scandinavian skies

04.08.2023 - 08:39

country flag Ould Oufella Marie-Claire wrote:

J'adore, très beau pull jacquard, j'aimerais bien avoir le modèle

04.08.2023 - 07:16

country flag Mila wrote:

Hermosisima.

04.08.2023 - 04:15