Mushroom Season Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, marglitu mynstri með sveppum og berjum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-12 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN: PRJÓNIÐ KANT AÐ FRAMAN Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni. PRJÓNIÐ KANT AÐ FRAMAN Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þig langar ekki til að hafa upphækkun. Setjið 1 merkiþráð mitt í umferð. Byrjið frá réttu og prjónið 16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-34-36-38-40-42 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-51-54-57-60-63 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 64-68-72-76-80-84 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið 80-85-90-95-100-105 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 96-102-108-114-120-126 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið og prjónið 1 umferð brugðið (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 2 kantlykkjur. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð eftir að stroff í hálsmáli hefur verið prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-8-8-8½-9 cm millibili. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 111-115-119-123-129-133 lykkjur með litnum ljós beige í DROPS Karisma yfir hringprjón 3 og hringprjón 4,5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 4,5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 4 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 123-127-131-135-141-145 lykkjur. Haldið áfram með stroff með 7 lykkjur í KANTUR AÐ FRAMAN í hvorri hlið við miðju að framan – lesið útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 8 cm og prjóna á næstu umferð frá réttu, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 lykkjur í kanti að framan eins og áður, prjónið stroff eins og áður JAFNFRAMT því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti – haldið svona áfram eins langt og hægt er fram að kanti að framan í hinni hliðinni og endið með 7 lykkjur í kanti að framan eins og áður. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 27-29-31-33-37-41 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður og ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 150-156-162-168-178-186 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun umferðar mitt að framan. Berustykkið er núna mælt frá þessu prjónamerki. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, haltu áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 lykkjur í kanti að framan í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan- lesið útskýringu að ofan. Þegar 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 4-5-5-6-6-7 cm frá prjónamerki og prjóna á næstu umferð frá réttu, aukið út um 41-43-45-47-53-53 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 191-199-207-215-231-239 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu eins og áður. Nú er prjónað mynstur jafnframt því sem haldið er áfram með útaukningu eins og útskýrt er að neðan – lesið LEIÐBEININGAR og MYNSTUR í útskýringu að ofan. Allur kanturinn að framan er prjónaður með litnum ljós beige. Prjónið 7 lykkjur í kanti að framan eins og áður, prjónið A.1 alls 22-23-24-25-27-28 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt, endið með 7 lykkjur í kanti að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er aukið út frá réttu eins og útskýrt er að neðan (ekki er aukið út yfir kanta að framan): ÖR-1: Aukið út 40-48-48-48-56-56 lykkjur jafnt yfir = 231-247-255-263-287-295 lykkjur. ÖR-2: Aukið út 32-40-40-40-48-48 lykkjur jafnt yfir = 263-287-295-303-335-343 lykkjur. ÖR-3: Aukið út 24-24-32-32-32-40 lykkjur jafnt yfir = 287-311-327-335-367-383 lykkjur. ÖR-4: Aukið út 16-16-24-24-24-32 lykkjur jafnt yfir = 303-327-351-359-391-415 lykkjur. ÖR-5: Aukið út 4-4-12-4-4-12 lykkjur jafnt yfir = 307-331-363-363-395-427 lykkjur. Þegar A.1 er lokið, prjónið sléttprjón með litnum ljós beige og 7 lykkjur í kanti að framan í hvorri hlið eins og áður. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið þar til stykkið mælist 21-23-24-25-27-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 51-55-59-60-66-72 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 58-62-70-68-72-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-16-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 89-97-105-107-119-131 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 58-62-70-68-72-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-16-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 51-55-59-60-66-72 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 207-223-239-259-283-307 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð 55-59-63-68-74-80 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 97-105-113-123-135-147 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki). Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu. Merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum ljós beige og með 7 lykkjur í kanti að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 22-22-23-24-24-24 cm frá skiptingu, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki við báða merkiþræðina og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 55-59-63-68-74-80 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-14-14-17-17-19 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 67-73-77-85-91-99 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (frá hlið): 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 55-59-63-68-74-80 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-14-14-17-17-19 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 67-73-77-85-91-99 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (frá miðju að framan): 7 kantlykkjur að framan eins og áður * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru efir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af aðeins laust. BAKSTYKKI: = 97-105-113-123-135-147 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 24-26-28-32-34-38 lykkjur jafnt yfir = 121-131-141-155-169-185 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af aðeins laust. ERMI: Setjið 58-62-70-68-72-76 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-16-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi með litnum ljós beige = 66-70-78-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 8-8-8-16-16-16 lykkjur. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 5½.-4½.-3.-2½.-2.-2. hverjum cm alls 6-7-10-12-13-14 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 36-34-34-33-32-30 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-22-24-24-26 lykkjur jafnt yfir = 74-78-80-84-86-90 lykkjur. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 44-42-42-41-40-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermin á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op í kanti í hálsmáli við miðju að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Sabine wrote:
Hallo, fehlt hier das Diagramm? Kann ich das Muster aus der Pulloveranleitung verwenden? Danke und liebe Grüße
03.11.2023 - 08:06DROPS Design answered:
LiebeSabine, das Diagram finden Sie unten, nach der schriftlichen Anleitung; hier finden Sie die Anleitung von dem Pullover. Viel Spaß beim stricken!
03.11.2023 - 13:58Mina wrote:
Autumn parade
07.08.2023 - 10:08Lígia Rodrigues wrote:
Warm Forest
07.08.2023 - 10:02Valentina wrote:
Fairy tale
06.08.2023 - 14:42Flocaeymaex wrote:
Promenade d'automne
05.08.2023 - 16:56Małgorzata wrote:
I love it 🍄 Wild September
05.08.2023 - 10:56Laura wrote:
« Fun guy » cardigan
04.08.2023 - 21:25Franzi wrote:
'Cottage Dream'
04.08.2023 - 16:25Kristina wrote:
'A Walk in the Forest'
04.08.2023 - 14:25Mila wrote:
Skulle vilja välja två till. Mvh Mila
04.08.2023 - 04:13