Copper River Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni með laskalínu og v-hálsmáli. Stærð S-XXXL.
DROPS 245-21 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1 lykkju brugðið (lykkja með prjónamerki) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í perluprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli, eftir það er fellt af fyrir næstu 3-3-4-4-4-4 hnappagötum með ca 7-8-7-6-6-6 cm millibili. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman eða 2 lykkjur brugðið saman (fer eftir mynstri), prjónið lykkju með prjónamerki slétt eða brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman eða 2 lykkjur brugðið saman (fer eftir mynstri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka ofan frá og niður. Byrjið með að prjóna 2 lausa kanta að framan í garðaprjóni. Síðan eru lykkjur fitjaðar upp á milli þessa tveggja kanta að framan fyrir öxl og hálsmáli aftan í hnakka. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Á berustykki eru lykkjur auknar út fyrir laskalínu og V-hálsmáli. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit. Prjónið GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, þar til kantur að framan mælist 17-17-17-19-19-19 cm, endið eftir 1 umferð slétt frá röngu. Geymið stykkið. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit. Prjónið garðaprjón þar til kantur að framan mælist 17-17-17-19-19-19 cm, endið eftir 1 umferð slétt frá réttu, en ekki klippa þráðinn frá. Nú eru fitjaðar upp 69-69-69-75-75-75 nýjar lykkjur í lok umferðar, síðan eru prjónaðar 7 lykkjur frá hægri kanti að framan slétt = 83-83-83-89-89-89 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu yfir allar lykkjur, prjónið PERLUPRJÓN yfir nýjar 69-69-69-75-75-75 lykkjur – sjá útskýringu að ofan og haldið áfram í garðaprjóni yfir 7 lykkjur í hvorri hlið. Setjið 4 prjónamerki í stykkið, þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. Teljið 9 lykkjur, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 23-23-23-29-29-29 lykkjur, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 9 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Byrjið við miðju að framan og frá réttu. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, aukið út fyrir V-HÁLSMÁL – lesið útskýringu að neðan, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, aukið síðan út fyrir laskalínu, 1 lykkja brugðið (lykkja með prjónamerki = laskalína), aukið út fyrir laskalínu, 19 lykkjur perluprjón (byrjið og endið með einni sléttri lykkju), aukið út fyrir laskalínu, 1 lykkja brugðið (lykkja með prjónamerki = laskalína), aukið út fyrir laskalínu, 23-23-23-29-29-29 lykkjur perluprjón (byrjið og endið með einni sléttri lykkju), aukið út fyrir laskalínu, 1 lykkja brugðið (lykkja með prjónamerki = laskalína), aukið út fyrir laskalínu, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, aukið út fyrir V-hálsmáli, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka í perluprjóni, garðaprjóni í köntum að framan og 1 lykkju brugðið í hverri laskalínu, jafnframt er aukið út fyrir V-hálsmáli og laskalínu eins og útskýrt er að neðan, þetta er gert samtímis, lestu því báða kaflana áður en þú heldur áfram að prjóna. V-HÁLSMÁL: Aukið út fyrir V-hálsmáli innan við kanta að framan í 4. hverri umferð alls 5-5-5-8-8-8 sinnum, eftir það í 6. hverri umferð alls 6 sinnum, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við 1 lykkju brugðið í hverri skiptingu á milli framstykkja / bakstykkis og erma í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu = 8 lykkjur fleiri) alls 6 sinnum – lesið útskýringu að ofan. Haldið nú áfram með útaukningu fyrir laskalínu, en í hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum / bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á framstykkjum / bakstykki í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) og á ermum í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu). Aukið svona út alls 18-22-26-26-30-30 sinnum á framstykkjum / bakstykki (9-11-13-13-15-15 sinnum á ermum). STÆRÐ S, M, XL, XXL og XXXL (útaukningu í stærð L er lokið): Haldið áfram í perluprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukningu fyrir ermar er nú lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 2-1-1-1-5 sinnum. ALLAR STÆRÐIR: Nú hefur verið aukið út alls 26-29-32-33-37-41 sinnum á fram- og bakstykki og 15-17-19-19-21-21 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 269-289-309-325-349-365 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram í perluprjóni og garðaprjóni í köntum að framan án þess að auka út þar til stykkið mælist ca 20-22-25-25-29-32 cm, mælt frá uppfitjunarkanti mitt að aftan. Laskalínulykkjur eru núna prjónaðar í perluprjóni. Nú skiptist stykkið fyrir fram-/bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 47-50-53-57-61-65 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 49-53-57-57-61-61 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 9-9-9-11-13-15 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 77-83-89-97-105-113 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 49-53-57-57-61-61 á þráð fyrir ermi og fitjið upp 9-9-9-11-13-15 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 47-50-53-57-61-65 lykkjur sem eftir eru eins og áður (framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 189-201-213-233-253-273 lykkjur. Prjónið perluprjón með garðaprjóni í köntum að framan þar til stykkið mælist 22-22-21-23-21-20 cm frá skiptingu. Prjónið eina umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 35-39-43-47-51-55 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 224-240-256-280-304-328 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af. Peysan mælist 56-58-60-62-64-66 frá öxl. ERMI: Setjið 49-53-57-57-61-61 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða á sokkaprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 9-9-9-11-13-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-62-66-68-74-76 lykkjur. Setjið eitt nýtt prjónamerki mitt í nýju lykkjurnar. Prjónið perluprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fellið af 2 lykkjur undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5.-3½.-2½.-2½.-2.-1½ cm millibili alls 6-8-9-10-11-11 sinnum = 46-46-48-48-52-54 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 36-35-34-32-29-27 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-12-12-12-14 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 46-45-43-42-39-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. Saumið saman báða lausu kantana að framan mitt að aftan og saumið kanta að framan við hálsmál aftan í hnakka. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (3)
Ilona wrote:
Gibt es ein Video-Tutorial zur Aufteilung der Maschenmarkierer? 245-21
20.02.2024 - 20:35DROPS Design answered:
Liebe Ilona, für dieses Modell sollen die Markierungen in einer Masche und nicht zwischen 2 Maschen eingesetzt, so wenn Sie Markierer benutzen setzen Sie sie einfach in einer Masche (siehe Größe), in diesem Video zeigen Sie, wie man einen Markierungsfaden um eine Masche herum anbringt, so können Sie auch machen. Viel Spaß beim stricken!
21.02.2024 - 08:23Monika wrote:
Hallo, weshalb sind in der Materialangabe 2 Farben (Rost und Malve) mit jeweils 150 g für Größe L angegeben? Die Jacke sieht eher einfarbig aus. Danke für die Antwort! Liebe Grüße
20.11.2023 - 21:37DROPS Design answered:
Liebe Monika, die Jacke wird mit 2 Fäden dh 1 Faden von jeder Farbe gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
21.11.2023 - 09:02Nathalie wrote:
Bonjour, Je n'arrive pas au même nombre que vous après toutes les augmentations, avant de diviser l'ouvrage pour les manches. Habituellement, à chaque étape, vous donnez le nombre de mailles que nous devrions avoir. Or, pour ce modèle, dans les instructions. il n'est écrit qu'au début (83 mailles pour taille médium), puis 289 mailles, beaucoup plus loin. Difficile de garder le compte. Merci à l'avance pour votre réponse.
24.10.2023 - 04:43DROPS Design answered:
Bonjour Nathalie, vous augmentez pour l'encolure V 5 x tous les 4 rangs + 6 x tous les 6 rangs = 11 m pour chaque devant = 22 m au total. Vous augmentez en même temps d'abord 6 x + 22 x pour le raglan dos/devants (soit 28x 4 m = 112 m); et, en même temps vous augmentez pour les manches 6 x tous les 2 rangs + 11 x tous les 4 rangs (= 17 x 4=68m) et vous augmentez encore 1 x pour le dos/les devants soit + 4 m. Vous avez ainsi: 83+22+112+68+4=289 mailles au total. Bon tricot!
24.10.2023 - 09:14