Hidden Forest Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 5 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma, miðjulykkjan af þessum 5 lykkjum er lykkja með prjónamerki (8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING: Auki út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 1 cm eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 3-3-4-4-4-4 næstu hnappagötum með 8-9-7-7-7-7 cm millibili. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Byrjið með að prjóna 2 lausa kanta að framan í garðaprjóni. Síðan eru lykkjur fitjaðar upp á milli þessa tveggja kanta í garðaprjóni fyrir öxl og hálsmáli aftan í hnakka. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir laskalínu og V-hálsmáli. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, þar til kantur að framan mælist 17-18-18-18-19-20 cm, endið eftir 1 umferð slétt frá röngu. Geymið stykkið. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (2 þræðir). Prjónið garðaprjón þar til kantur að framan mælist 17-18-18-18-19-20 cm, endið umferð eftir 1 umferð slétt frá réttu, en ekki klippa þráðinn. Nú eru fitjaðar upp 54-56-56-58-60-62 nýjar lykkjur í lok umferðar, síðan eru prjónaðar 7 lykkjur frá hægri kanti að framan slétt = 68-70-70-72-74-76 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu yfir allar lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur yfir nýjar 54-56-56-58-60-62 lykkjur og haldið áfram í garðaprjóni yfir 7 lykkjur í hvorri hlið. Setjið 4 prjónamerki í stykkið, þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar. Það á að nota prjónamerkin þegar aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. Teljið 9 lykkjur, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 18-20-20-22-24-26 lykkjur, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 9 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. Byrjið mitt að framan og frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Lesið ÚTAUKNING – á við um bæði v-hálsmál og laskalínu. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, aukið út fyrir v-hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út fyrir laskalínu, 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í fyrstu af þessum lykkjum), aukið út fyrir laskalínu, prjónið fram að 2 lykkjum á undan næsta prjónamerki, aukið út fyrir laskalínu, 5 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju af þessum lykkjum), aukið út fyrir laskalínu, prjónið fram að 2 lykkjum á undan næsta prjónamerki, aukið út fyrir laskalínu, 5 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju af þessum lykkjum), aukið út fyrir laskalínu, prjónið fram að 2 lykkjum á undan næsta prjónamerki, aukið út fyrir laskalínu, 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í síðustu af þessum lykkjum), aukið út fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt, aukið út fyrir v-hálsmáli, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (10 lykkjur fleiri) = 78-80-80-82-84-86 lykkjur). UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (kantar að framan halda áfram í garðaprjóni). UMFERÐ 3: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 3 lykkjur slétt, aukið út fyrir laskalínu, 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr í annarri af þessum lykkjum), aukið út fyrir laskalínu, prjónið fram að 2 lykkjum á undan næsta prjónamerki, aukið út fyrir laskalínu, 5 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju af þessum lykkjum), aukið út fyrir laskalínu, prjónið fram að 2 lykkjum á undan næsta prjónamerki, aukið út fyrir laskalínu, 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr í þriðju af þessum lykkjum), aukið út fyrir laskalínu, 3 lykkjur slétt, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 8 lykkjur fleiri = 86-88-88-90-92-94 lykkjur). UMFERÐ 4: Prjónið brugðið (kantar að framan halda áfram í garðaprjóni). Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og garðaprjóni í köntum að framan, jafnframt því sem aukið er út fyrir v-hálsmáli og LASKALÍNA eins og útskýrt er að neðan, þetta er gert samtímis, lestu því báða kaflana áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Aukið út fyrir V-hálsmáli innan við kanta að framan í 4. hverri umferð alls 0-2-2-3-4-5 sinnum, síðan í 6. hverri umferð alls 7-6-6-6-6-6 sinnum (ásamt útaukningu fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að ofan), aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli, byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við 5 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma í hverri umferð frá réttu. Aukið út 8 lykkjur fyrir laskalínu alls 5-6-7-10-9-7 sinnum (ásamt útaukningu eins og útskýrt er að ofan). Síðan heldur útaukning áfram fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum / bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er einungis aukið út á framstykkjum / bakstykki í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) og á ermum í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu). Aukið svona út alls 18-18-20-18-22-26 sinnum á framstykkjum / bakstykki (9-9-10-9-11-13 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 23-24-27-28-31-33 sinnum á framstykkjum / bakstykki og 14-15-17-19-20-20 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 230-242-262-278-298-310 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón og garðaprjón í köntum að framan þar til stykkið mælist ca 26-27-28-31-35-38 cm, mælt frá uppfitjunarkanti mitt að aftan. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 40-42-45-47-51-54 lykkjur (framstykki), setjið næstu 42-44-48-52-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 66-70-76-80-88-94 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 42-44-48-52-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 40-42-45-47-51-54 lykkjur sem eftir eru (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-178-190-202-222-238 lykkjur. Prjónið sléttprjón með garðaprjóni í köntum að framan þar til stykkið mælist 21-22-23-22-20-19 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 38-42-46-50-54-58 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 204-220-236-252-276-296 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI. Setjið 42-44-48-52-54-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-12-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 10-12-12-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6½-5-4-2½-2-1½ cm millibili alls 5-6-7-10-11-11 sinnum = 42-44-46-46-48-50 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 35-35-34-31-28-25 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 41-41-40-37-34-31 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið saman þessa tvo lausu kanta að framan mitt að aftan og saumið þá niður við hálsmál aftan í hnakka. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (3)
Joasia wrote:
Które oczka na reglan to "oczka na przody i tył", a które to "oczka na rękawy"?
15.12.2023 - 14:11DROPS Design answered:
Witaj Joasiu, zobacz kurs TUTAJ i video TUTAJ. W razie dalszych pytań pisz. Pozdrawiamy!
18.12.2023 - 08:13Sandrine wrote:
Bonjour,\r\nJe rencontre un probleme de comptage de maille lors de la mise en place des marqueurs( taille M). Si je suis ce qu\'il y a d\'écrit 9m+14m+20m+14m+9m=66m. Il me reste 4 m.... pourriez vous m\'aider? \r\nPassez une bonne journée
25.11.2023 - 03:59Kathi S wrote:
Would be a great everyday cardi
03.08.2023 - 19:15