Lakeside Watercolour Cardigan |
||||||||||
|
|
|||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Puna og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað neðan frá og upp með röndum, v-hálsmáli, klauf í hliðum og uppábroti á ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-29 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli / fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðul með 3 loftlykkjum. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Síðasta fastalykkja í umferð er hekluð í 3. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Hver umferð með fastalykkjum er hekluð frá röngu, hver umferð með stuðlum er hekluð frá réttu. A.3 = hægri kantur að framan, A.4 = vinstri kantur að framan. ATH: Ef 4. umferð í A.2 gengur ekki jafnt upp með lykkjum í umferð þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli, heklið eins og útskýrt er í ÚRTAKA-2. RENDUR: * Heklið A.1 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla. Heklið A.2 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum malva. Heklið A.1 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum blá þoka. Heklið A.1 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum ryð. Heklið A.2 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum púður. Heklið A.1 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði i DROPS Kid-Silk í litnum blár vindur *, heklið frá *-* að loka máli. ÚRTAKA-1 (á við um handveg): Fækkið lykkjum í umferð með fastalykkjum. Fækkið lykkjum í byrjun umferðar þannig: Skiptið út þeim fjölda lykkja sem fækka á með 1 keðjulykkju í lykkjuna fyrir neðan. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir er sá fjöldi lykkja sem fækka á um (það er ekki heklað yfir þær lykkjur sem fækka á um). ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu. Fækkið um 1 stuðul í 2. eða 4. umferð í A.1 / 2. umferð í A.2 þannig: Heklið 2 stuðla saman, þ.e.a.s. heklið 1 stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. Fækkið um 1 stuðul í 4. umferð í A.2 þannig: Heklið 1 stuðul í lykkjuna sem venjulega eru heklaðar 2 lykkjur, hoppið yfir næstu lykkju eins og áður. ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp með 2 lykkjur í mynstri í 4. umferð í A.2 þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli, er skipt út fyrir 1 stuðul í lykkjuna fyrir neðan, í stað 2 lykkjur í næstu lykkju og hoppið yfir 1 lykkju. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju. Aukið út innan við 1 lykkju í hvorri hlið á stykki. HNAPPAGAT: Heklið hnappagöt í hægri kant að framan frá réttu þannig (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum): 1 stuðull í hvora af fyrstu 2 lykkjum, hoppið yfir 1 lykkju, heklið 2 stuðla í næstu lykkju, heklið síðan áfram eins og áður. Heklið hnappagöt þegar stykkið mælist: S: 10, 18, 26 og 34 cm. M: 11, 19, 27 og 35 cm. L: 12, 20, 28 og 36 cm. XL: 10, 19, 28 og 37 cm. XXL: 11, 20, 29 og 38 cm. XXXL: 12, 21, 30 og 39 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum hvert fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkin eru saumuð saman eins og útskýrt er í uppskrift. BAKSTYKKI: Heklið 70-76-84-88-98-108 LOFTLYKKJA – lesið útskýringu að ofan, með heklunál 5 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 69-75-83-87-97-107 fastalykkjur og 1 loftlykkja (loftlykkjan í þessari umferð er ekki talin með sem 1 fastalykkja, þ.e.a.s. það á ekki að hekla í þessa loftlykkju). Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið RENDUR fram og til baka – lesið útskýringu að ofan (fyrsta umferð í A.1 hefur nú þegar verið hekluð – byrjið í 2. umferð í A.1). Rendurnar eru endurteknar á hæðina að loka máli – ATH: Í 4. umferð í A.2 er heklað A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 42-43-44-45-46-47 cm, fækkið um 3-4-4-4-7-8 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-1 = 63-67-75-79-83-91 lykkjur. Haldið áfram með mynstur – munið eftir að í 4. umferð í A.2 er heklað A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm og hekla á næstu umferð frá réttu, heklið hægri öxl þannig: Heklið 22-24-28-28-30-34 stuðla, heklið 2 stuðla saman – lesið ÚRTAKA-2 = 23-25-29-29-31-35 lykkjur á öxl. Heklið fram og til baka eins og áður yfir axlalykkjur þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þræðina frá og festið. Heklið vinstri öxl frá réttu þannig: Hoppið yfir fyrstu 15-15-15-19-19-19 lykkjur eftir hægri öxl (hálsmál), heklið 2 stuðla saman, heklið 1 stuðul í hverja af 22-24-28-28-30-34 lykkjum sem eftir eru = 23-25-29-29-31-35 lykkjur á öxl. Heklið fram og til baka á sama hátt og á hægri öxl þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þræðina frá og festið. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 43-45-49-51-55-61 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 42-44-48-50-54-60 fastalykkjur og 1 loftlykkja (loftlykkjan í þessari umferð er ekki talin með sem 1 fastalykkja). Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig (fyrsta umferð í mynsturteikningu hefur nú þegar verið hekluð – byrjið í 2. umferð í mynsturteikningu): Heklið A.3 yfir fyrstu 7 lykkjur (kantur að framan), heklið A.1 yfir þær lykkjur sem eftir eru. Haldið áfram með mynstur fram og til baka í röndum á sama hátt og á bakstykki með A.3 yfir ystu 7 lykkjur við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. ATH: Í 4. umferð í A.2 er heklað A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Þegar heklað hefur verið ca 1 cm á eftir síðasta hnappagati, fellið af fyrir V-hálsmáli. Að auki á að fækka lykkjum fyrir handveg. Lestu V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú heklar áfram. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli innan við ystu 7 lykkjur við miðju að framan (fækkið lykkjum frá réttu í umferð með stuðum) – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð með stuðlum alls 9-8-8-10-9-10 sinnum. ATH: Þegar lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli er hekluð 4. umferð í A.2 eins og útskýrt er í ÚRTAKA-2. HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fækkið um 3-4-4-4-7-8 lykkjur fyrir handvegi í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmál eru 30-32-36-36-38-42 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka eins og áður yfir þessar lykkjur. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, heklið A.3 fram og til baka einungis yfir ystu 7 lykkjur við miðju að framan (ekki er heklað yfir þær 23-25-29-29-31-35 lykkjur sem eftir eru á öxl) = kantur í hálsmáli aftan í hnakka. Heklið fram og til baka í röndum þar til kantur í hálsmáli mælist ca 8-8-8-9-9-9 cm frá öxl – kantur í hálsmáli strekkist aðeins þegar sauma á við hálsmál aftan í hnakka. Klippið þræðina og festið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið 43-45-49-51-55-61 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 42-44-48-50-54-60 fastalykkjur og 1 loftlykkja (loftlykkjan í þessari umferð er ekki talin með sem 1 fastalykkja). Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig (fyrsta umferð í mynsturteikningu hefur nú þegar verið hekluð – byrjið í 2. umferð í mynsturteikningu): Heklið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð við miðju að framan, heklið A.4 yfir síðustu 7 lykkjur (kantur að framan). Haldið áfram með mynstur fram og til baka í röndum á sama hátt og á hægra framstykki með A.4 yfir ystu 7 lykkjur við miðju að framan ATH: Í 4. umferð í A.2 er heklað A.2 þar til 1 lykkja er eftir á undan kanti að framan, endið með 1 stuðul í lykkju á undan kanti að framan. Fækkið síðan lykkjum fyrir V-hálsmáli og handvegi. Lestu V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en heklað er áfram. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli innan við ystu 7 lykkjur við miðju að framan (fækkið lykkjum frá réttu í umferð með stuðlum) munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð með stuðlum alls 9-8-8-10-9-10 sinnum. HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fækkið um 3-4-4-4-7-8 lykkjur fyrir handveg í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmál eru 30-32-36-36-38-42 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka eins og áður yfir þessar lykkjur. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, heklið A.2 fram og til baka einungis yfir ystu 7 lykkjur við miðju að framan (ekki er heklað yfir þær 23-25-29-29-31-35 lykkjur sem eftir eru á öxl) = kantur í hálsmáli aftan í hnakka. Heklið fram og til baka í röndum þar til kantur í hálsmáli mælist ca 8-8-8-9-9-9 cm frá öxl – kantur í hálsmáli strekkist aðeins þegar sauma á við hálsmál aftan í hnakka. Klippið þræðina og festið. ERMI: Heklið 40-40-42-42-44-46 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 39-39-41-41-43-45 fastalykkjur og 1 loftlykkja (loftlykkjan í þessari umferð er ekki talin með sem 1 fastalykkja). Heklið A.1 fram og til baka (byrjið í 2. umferð í mynsturteikningu). Þegar stykkið mælist 10 cm, setjið 1 prjónamerki í stykkið. Héðan er nú stykkið mælt. Heklið síðan rendur á sama hátt og á bakstykki og framstykki, en byrjið með A.2 í 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum malva – ATH: Í 4. umferð í A.2 er heklað A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Þegar stykkið mælist 13-12-13-11-13-11 cm frá prjónamerki, auki út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 6-5-4-4-3-3 cm millibili alls 7-8-9-10-11-11 sinnum í hvorri hlið = 53-55-59-61-65-67 lykkjur. ATH: Þegar hekla á 4. umferð í A.2, heklið á sama hátt og áður, þ.e.a.s. A.2 er heklað þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Þegar stykkið mælist 53-51-49-49-47-44 cm frá prjónamerki, setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið. Heklið áfram þar til stykkið mælist 55-54-52-52-52-50 cm frá prjónamerki neðan á ermi (öll ermin mælist alls ca 65-64-62-62-62-60 cm frá uppfitjunarkanti). Klippið þræðina og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. Saumið hliðarsaumana frá handvegi og niður þar til ca 11 cm er eftir í hvorri lið fyrir klauf. Saumið sauma undir ermum frá uppfitjunarkanti og upp að prjónamerki sem var sett efst á ermi, saumið kant í kant þannig að saumurinn verði flatur og passið uppá að saumurinn sjáist ekki þegar brotið er uppá neðstu 10 cm. Það er klauf ca 2-3-3-3-5-6 cm efst á ermi. Strekkið létt á ermakúpunni þannig að hún passi við handveginn og saumið ermakúpuna við handveginn. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið saman kant í hálsmáli mitt að aftan og saumið kant í hálsmáli við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstra framstykki. Brjótið uppá neðstu 10 cm á ermum og festið uppábrotið með nokkrum sporum í hvora hlið. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Els Roelandt wrote:
Bij het minderen aan de V hals staat in het patroon: minder 1 steek aan de binnenkant van de 7 voorbiessteken. Haak je dan eerst de 7 biefstukken en de daaropvolgende steek minderen?
01.03.2024 - 18:15DROPS Design answered:
Dag Els,
Ja, het is de bedoeling dat je de minderingen vlak naast de biessteken maakt, dus zodat de 7 biessteken in tact blijven en mooi doorlopen.
05.03.2024 - 22:54Els Roelandt wrote:
Ik begrijp niet hoe ik verder moet met het achterpand: werk is nu 63 cm,maat L. Ik moet beginnen aan re schouder: 28 stokjes haken, dan 2 st samenhaken dus in totaal 29 stokjes. Haak ik dan heen en weer tot de gevraagde lengte of miet ik in rij 4 A2 nogmaals 1 keer minderen?
29.02.2024 - 19:40DROPS Design answered:
Dag Els,
Ja, in totaal inderdaad 29 stokjes en je haakt dan heen en weer in stokjes tot de gevraagde lengte.
01.03.2024 - 07:27Sophie Chermin wrote:
Hallo, hoeveel garen heb ik nodig van Kid Silk als ik het effen wil maken?
10.11.2023 - 17:46DROPS Design answered:
Dag Sophie,
Dat is mij helaas niet bekend. Om een idee daarvan te krijgen zou je kunnen kijken naar een vergelijkbaar werkstuk waarin Kid-Silk gecombineerd wordt met een garen uit garengroep B.
12.11.2023 - 17:40Livia wrote:
Bonjour, Fidèle cliente, j'aimerais faire ce modèle mais en 1 couleur Puna et 1 de Kid Silk Connaissez vous la juste quantité de pelotes de 25g de kid silk pour les tailes M et L ? Par avance merci !
30.10.2023 - 10:51DROPS Design answered:
Bonjour Livia, malheureusement non car le gilet a été tricoté avec des rayures, n'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS, on saura vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
30.10.2023 - 18:02Jo wrote:
Hi! I would like to know if it is possible to make this with any other yarn? I have some allergies and yarns like kid silk ( that have that halo) are not very good for me! do you think i could make it with any other alternetives? thanks!
27.10.2023 - 21:56DROPS Design answered:
Dear Jo, sure use our yarn converter to see all alternatives to Kid-Silk as well as the new matching amount of yarn. Happy knitting!
28.10.2023 - 09:08Anna wrote:
Coastal path
04.08.2023 - 21:52Vanilla wrote:
Autumnal tea
04.08.2023 - 17:38Anni wrote:
Autumn Sun
04.08.2023 - 09:34Nadia Trappeniers wrote:
Waiting for spring
04.08.2023 - 08:54Dianne wrote:
Coastal Views
04.08.2023 - 01:10