DROPS Daisy
DROPS Daisy
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Red Sunrise Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri, klauf í hliðum og I-cord. Stærð S - XXXL.

DROPS 248-9
DROPS Design: Mynstur da-002
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-800 g litur 20, rauður

TÖLUR:
DROPS TALA NR 515: 5-5-6-6-6-6 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Daisy
DROPS Daisy
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni.
Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af þræði eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju á eftir/undan A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkja/bakstykkis og erma.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.
Á UNDAN A.1:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR A.1:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjón aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Lykkjum er fækkað í hvorri hlið á fram- og bakstykki með því að fækka lykkjum hvoru megin við einingu í sléttprjóni á milli A.1 á framstykki og A.1 á bakstykki.
Byrjið strax eftir A.1 á vinstra framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta A.1, prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Endurtakið úrtöku í hinni hliðinni á fram- og bakstykki (4 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10-11-9-9-9½-10 cm millibili. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið, síðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 125-127-133-141-143-149 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Daisy. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 8 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 8 kantlykkjur að framan með I-cord.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Setjið 1 merki innan við kant að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 8 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 8-8-10-10-10-12 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 0-0-0-1-1-2 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING, prjónið A.1 (vinstra framstykki), prjónið 21 lykkju sléttprjón og aukið jafnframt út 2-2-2-4-4-4 lykkjur jafnt yfir (ermi), prjónið A.1, prjónið 15-17-19-19-21-23 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 0-0-0-2-2-4 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.2 (bakstykki), prjónið 21 lykkju sléttprjón og aukið jafnframt út 2-2-2-4-4-4 lykkjur jafnt yfir (ermi), prjónið A.1, prjónið 8-8-10-10-10-12 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 0-0-0-1-1-2 lykkjur jafnt yfir, endið með 8 kantlykkjum að framan eins og áður (hægra framstykki) og munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – lesið útskýringu að ofan = 129-131-137-153-155-165 lykkjur.
Prjónið til baka frá röngu með 8 kantlykkjur að framan eins og áður, sléttprjón og A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn, svo ekki komi gat9.
Haldið síðan áfram með mynstur fram og til baka með þessum hætti jafnframt því sem aukið er út fyrri LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 (8 lykkjur fleiri) í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 5-6-10-13-12-11 sinnum = 169-179-217-257-251-253 lykkjur.

Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykkjum/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur). Aukið út með þessum hætti 24-26-24-22-26-30 sinnum á framstykkjum/bakstykki (12-13-12-11-13-15 sinnum á ermum).
Á eftir síðustu útaukningu eru 313-335-361-389-407-433 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-23-24-25-27-29 cm frá merki.

Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 54-57-61-65-68-74 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 57-61-67-73-75-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-16-18-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 91-99-105-113-121-131 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 57-61-67-73-75-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-16-18-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 54-57-61-65-68-74 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 219-233-251-275-293-319 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð 59-62-67-73-77-84 lykkjur inn frá hvorri hlið, það eru 101-109-117-129-139-151 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki.
Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Merkiþræðirnir eru notaðir síðar þegar skipta á stykkinu upp fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið sléttprjón með 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður og haldið áfram með A.1 eins og áður á framstykkjum og bakstykki, þær 10-10-12-16-18-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hliðum eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12 cm frá skiptingu = 211-225-243-267-285-311 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 20-20-21-21-21-21 cm frá skiptingu, endið eftir umferð frá röngu. Nú skiptist stykkið við báða merkiþræðina og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 57-60-65-71-75-82 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu eins og áður þar sem aukið er út um 7-10-8-10-9-9 lykkjur jafnt yfir á milli kant að framan og A.1 og 2-2-3-3-4-5 lykkjur jafnt yfir á milli A.1 og merkiþráðar í hlið – munið eftir ÚTAUKNING = 66-72-76-84-88-96 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, endið með 8 kantlykkjur að framan eins og áður (stroffið á að passa fallega yfir lykkjur í A.1). Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm (ystu 2 lykkjur að hlið eru prjónaðar á sama hátt og kantur að framan án sléttra lykkja). Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 57-60-65-71-75-82 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu eins og áður þar sem aukið er út um 2-2-3-3-4-5 lykkjur jafnt yfir á milli merkiþráða í hlið og A.1 og 7-10-8-10-9-9 lykkjur jafnt yfir á milli A.1 og kant að framan = 66-72-76-84-88-96 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 8 kantlykkjur að framan eins og áður, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af.

BAKSTYKKI:
= 97-105-113-125-135-147 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu eins og áður þar sem aukið er út um 2-2-3-3-4-5 lykkjur í hvorri hlið á milli merkiþráða og A.1 og 16-18-18-20-18-20 lykkjur jafn yfir mitt að aftan á milli lykkja í A.1 = 117-127-137-151-161-177 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
Haldið svona áfram fram og til baka í 6 cm (ystu 2 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar á sama hátt og kantur að framan án sléttra lykkja). Fellið af.

ERMAR:
Setjið 57-61-67-73-75-77 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-89-93-97 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-16-18-20 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 4-4-4-3-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkju mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum svona í hverjum 7-5½-3½-2½-2½-2 cm alls 5-6-9-13-14-15 sinnum = 57-59-61-63-65-67 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-37-38-37-36-34 cm frá skiptingunni. Nú eru eftir 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskuðu máli fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 11-11-13-13-13-13 lykkjur jafnt yfir = 68-70-74-76-78-80 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af.
Ermin mælist ca 45-43-44-43-42-40 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Catherine wrote:

For pattern 248-9, please clarify: 1. The buttonhole should be made at the beginning of the row when work at right side (for female), 2. For yoke, after the collar band is worked, when dividing the front (right), then sleeve, body , sleeve & front(left) when work from the right side. Thank you very much.

19.02.2024 - 08:18

DROPS Design answered:

Dear Catherine, as this jacket is worked top down you start with left front piece and end with right front piece from right side, that's why the buttonholes will be worked at the end of a row from RS. The first row on yoke including increases worked evenly and first row in A.1 is worked from the right side. Happy knitting!

19.02.2024 - 09:56

country flag Pia wrote:

Super super flot🌸

15.02.2024 - 19:45

country flag Margarete wrote:

Feuerliebe

18.01.2024 - 15:51

country flag Piroska wrote:

Piroska is a girl Christian name in Hungary.

18.01.2024 - 15:18