Dandelion Heart |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-19 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar i mynstri á framstykki/bakstykki og í sléttprjóni á ermum: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til hann til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann, það á ekki að myndast gat. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur sléttprjón (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-112-120-120-128-128 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Belle. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Setjið 1 merki í þessa umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Í næstu umferð eru sett 4 merkiþræðir í stykkið, þetta er gert samtímis sem prjónað er þannig: Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar, prjónið 20-20-20-20-24-24 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 0-0-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (ermi), prjónið 36-36-40-40-40-40 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 1-1-1-1-3-3 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (framstykki), prjónið 20-20-20-20-24-24 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 0-0-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (ermi), prjónið 36-36-40-40-40-40 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 1-1-1-1-3-3 lykkjur jafnt yfir (bakstykki) = 114-114-126-126-138-138 lykkjur. Hver merkiþráður situr á milli 2 lykkja slétt frá stroffi. Nú á að prjóna MYNSTUR jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja í sléttprjóni, aukið út fyrir laskalínu, prjónið 18-18-20-20-24-24 lykkjur sléttprjón (ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 lykkjur í sléttprjóni (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið A.1, prjónið A.2, prjónið A.3, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 18-18-20-20-24-24 lykkjur sléttprjón (ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1, prjónið A.2, prjónið A.3, aukið út fyrir laskalínu, prjónið 1 lykkju sléttprjón = 122-122-134-134-146-146 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur, þ.e.a.s. prjónið A.1/A.2/ A.3 á framstykki og bakstykki og sléttprjón á ermum. Að auki heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 20-23-26-27-21-17 sinnum ásamt útaukningu í fyrstu umferð = 274-298-334-342-306-274 lykkjur. ATH: Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina, heldur mynstrið áfram á sama hátt, passið uppá að mynstrið passi yfir hvert annað á hæðina. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (það er aukið út til skiptis 4 og 8 lykkjur). Aukið út með þessum hætti 4-4-2-4-14-22 sinnum á framstykki/bakstykki (2-2-1-2-7-11 sinnum á ermum). Á eftir síðustu útaukningu eru 298-322-346-366-390-406 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-19-20-22-25-28 cm frá merki. Í stærð XXL og XXXL hefur berustykkið náð réttu máli fyrir skiptingu. Í stærð S, M, L og XL er prjónað áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 19-20-21-23 cm frá merki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju í sléttprjóni, setjið næstu 62-68-74-78-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-14-16-20 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi), prjónið 87-93-99-105-115-123 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 62-68-74-78-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-14-16-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 86-92-98-104-114-122 lykkjur eins og áður (bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-202-218-238-262-286 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvorri hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-8-10-14-16-20 lykkjur undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Prjónið fram að fyrri merkiþræðinum, umferðin byrjar núna hér. Haldið síðan áfram með mynstur, þ.e.a.s. prjónið mynstur frá framstykki og bakstykki eins langt og hægt er inn að hvorri hlið undir ermum, lykkjur undir hvorri ermi sem ekki ganga jafnt upp í mynstur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-1! Fækkið lykkjum svona í 4. hverjum cm alls 3 sinnum = 189-205-221-241-267-291 lykkjur (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í 4. hverjum cm alls 3 sinnum = 174-190-206-226-250-274 Prjónið þar til stykkið mælist 17-18-18-18-17-16 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-18-22-26-26-26 lykkjur jafnt yfir = 192-208-228-252-276-300 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 62-68-74-78-80-80 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-14-16-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-10-14-16-20 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu = 64-72-80-88-92-96 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 15-15-15-14-12-10 cm frá skiptingunni. Það eru 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-4-4-4-0-0 lykkjur jafnt yfir = 64-68-76-84-92-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 19-19-19-18-16-14 cm frá skiptingunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Ellen Thomsen wrote:
Jeg forstår ikke .strik m vrang sammen uden at slippe og strik de samme 3 ret sammen og derefter vrang sammen en gang til. Når man strikker tre sammen har man da kun en på pinden og så kan jeg ikke strikke tre igen og igen
12.04.2024 - 22:01DROPS Design answered:
Hei Ellen. Ta en titt på hjelpevideoen: Hvordan strikkes en knude over 3 masker. Du finner oversikten over VIDEOER til høyre / eller under bildet. mvh DROPS Design
15.04.2024 - 13:17Asia wrote:
Cornfield picnic
22.01.2024 - 11:43Dominika Mielcarek wrote:
Sunbeam sweater
20.01.2024 - 12:55Andreea wrote:
Delicate
18.01.2024 - 21:24Andreea wrote:
Honey
18.01.2024 - 21:24