Plum Love Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-30 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Lykkjum er ekki aukið út yfir ystu 12 lykkjur í hvorri hlið. Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 125 lykkjur), mínus lykkjur sem ekki á að auka út yfir (t.d. 24 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 3,3. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Byrjið 4 lykkjum á undan merkiþræði, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), prjónið 2 lykkjur slétt saman (2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir næstu 5-5-5-5-6-6 hnappagötum með 8-8-8½-9-8-8 cm millibili. Neðsta hnappagatið á að vera staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. I-CORD AFFELLING: Í lok umferðer og eftir að síðasta lykkjan í umferð hefur verið prjónuð: Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftir þessum 3 nýju lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndast lítil snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kantinn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og er prjónað ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður í hring á sokkaprjóna. Kantur í hálsmáli er brotin tvöfalt að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 111-115-119-123-127-135 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Muskat. Skiptið yfir á hringprjón 3 (lykkjur eru fitjaðar upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegri). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar kantur í hálsmáli mælist 4 cm, fitjið upp 7 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 125-129-133-137-141-149 lykkjur. Haldið áfram með stroff eins og áður, en ystu 8 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 9 cm – endið eftir umferð frá röngu. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli saman þannig að hann verði tvöfaldur og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 30-32-36-40-42-44 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING og munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – lesið útskýringu að ofan (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) = 155-161-169-177-183-193 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón fram og til baka með 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar berustykkið mælist 3-3-4-4-5-6 cm frá prjónamerki, aukið út 33-36-40-44-47-52 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 188-197-209-221-230-245 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður þar til berustykkið mælist 4-4-5-5-6-7 cm frá merki. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu: Prjónið 8 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 8 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING. Ör-1: Aukið út 39-40-48-56-57-62 lykkjur jafnt yfir = 227-237-257-277-287-307 lykkjur. Ör-2: Aukið út 42-47-51-55-66-70 lykkjur jafnt yfir = 269-284-308-332-353-377 lykkjur. Ör-3: Aukið út 44-53-53-61-64-72 lykkjur jafnt yfir = 313-337-361-393-417-449 lykkjur. Ör-4: Aukið út 3-7-7-11-11-15 lykkjur jafnt yfir = 316-344-368-404-428-464 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykkið ca 18-18-19-19-22-23 cm frá merki. Prjónið síðan sléttprjón með 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður þar til berustykkið mælist 19-20-22-23-25-27 cm frá merki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 54-59-62-67-72-79 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 92-102-108-118-128-142 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 54-59-62-67-72-79 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er núna stykkið mælt frá! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 216-236-252-272-296-324 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð 58-63-67-72-78-85 lykkjur inn frá hvorri hlið. Það eru 100-110-118-128-140-154 lykkjur á milli merkiþráð á bakstykki. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu – merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 5-5-5-7-7-7 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 5-5-5-7-7-7 cm alls 3-3-3-2-2-2 sinnum = 204-224-240-264-288-316 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 20-21-21-22-22-22 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 39-45-45-51-57-59 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 243-269-285-315-345-375 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Nú er prjónað stroff frá röngu þannig: 8 kantlykkjur að framan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 8 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 58-62-68-76-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4. Prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-70-78-86-90-94 lykkjur. Setjið 1 merki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkið og prjónið sléttprjón hringinn í 6-5-4-3-3-2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-6-6-2-0 lykkjur jafnt yfir = 58-62-72-80-88-94 lykkjur. Fellið af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í köntum að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (1)
Rodica wrote:
Note of grapes
21.01.2024 - 22:06