My Love |
|
|
|
Hekluð diskamotta og servéttuhringur úr DROPS Safran eða DROPS ♥ You #7 og DROPS Glitter.
DROPS Extra 0-747 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR-1: Í byrjun umferðar þar sem einungis eru heklaðar fastalykkjur er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. HEKLLEIÐBEININGAR-2: Í byrjun hverrar umferðar er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Hver umferð endar með 1 keðjulykkju í byrjun umferðar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- DISKAMOTTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. LÍTIL DISKAMOTTA: Heklið 8 loftlykkjur með heklunál 3 með 1 þræði DROPS Safran eða 1 þræði DROPS ♥ You #7 + 2 þræði DROPS Glitter og formið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1. UMFERÐ 1: Heklið 24 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 5 loftlykkjur (= 1 stuðull + 2 loftlykkjur), * hoppið yfir 1 fastalykkju , 1 stuðull í næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 12 stuðlar með 2 loftlykkjur á mill hverra stuðla. UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, heklið síðan um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn: 1 fastalykkja + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja + 1 loftlykkja, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 24 fastalykkjur með 1 loftlykkju á milli hverra fastalykkja. UMFERÐ 4: 1 keðjulykkja í fyrstu fastalykkju, 1 keðjulykkja um fyrstu loftlykkju, 5 loftlykkjur, 1 þríbrugðinn stuðull um sömu loftlykkju, * 7 loftlykkjur, nú eru heklaðir 4 þríbrugðnir stuðlar saman þannig: Heklið 2 þríbrugðna stuðla í sömu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þríbrugðnu stuðlana í lokin, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 þríbrugðinn stuðul um næstu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan síðasta þríbrugðna stuðulinn um sömu loftlykkju og síðasti uppslátturinn er dreginn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum, 7 loftlykkjur, heklið 2 þríbrugðna stuðla saman um sömu loftlykkju (en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin), heklið 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju í byrjun umferðar og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. UMFERÐ 5: 1 keðjulykkja um fyrsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur (= tvíbrugðinn stuðull), 7 tvíbrugðnir stuðlar um sama loftlykkjuboga, síðan eru heklaðir 8 tvíbrugðnir stuðlar um hvern loftlykkjuboga, endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar = 12 tvíbrugðnir stuðlahópar með 8 tvíbrugðnum stuðlum í hverjum hópi. UMFERÐ 6: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hvern tvíbrugðinn stuðul og 1 fastalykkja á milli hverra tvíbrugðnu stuðlahópa umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 108 fastalykkjur. UMFERÐ 7: 4 loftlykkjur (= 1 stuðull + 1 loftlykkja), hoppið yfir 1 fastalykkju, * 1 stuðull í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja (passið uppá að loftlykkjur séu heklaðar jafn langt og hæð á 1 fastalykkju, annars verður umferðin stíf), hoppið yfir 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 54 stuðlar með 1 loftlykkju á milli hverra stuðla. UMFERÐ 8: 1 loftlykkja, heklið síðan til skiptis 2 og 3 fastalykkju um hverja loftlykkju umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 135 fastalykkjur. UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 135 fastalykkjur. UMFERÐ 10 (= blúndukantur): 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, * 5 loftlykkjur, 1 stuðull í 2. loftlykkju sem var hekluð, 1 tvíbrugðinn stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 4 fastalykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fastalykkju frá byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju í næstu lykkju) = 27 bogar. Klippið og festið þráðinn. STÓR DISKAMOTTA: Heklið á sama hátt og lítil diskamotta til og með umferð 9. UMFERÐ 10-12: Heklið á sama hátt og umferð 9 = 135 fastalykkjur. UMFERÐ 13: * Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 8 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 150 fastalykkjur. UMFERÐ 14-15: Heklið 1 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 150 fastalykkjur. UMFERÐ 16: * Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 5 fastalykkjum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 165 fastalykkjur. UMFERÐ 17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 165 fastalykkjur. UMFERÐ 18: * Heklið fastalykkju í hverja af fyrstu 14 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 176 fastalykkjur. UMFERÐ 19: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 176 fastalykkjur. ATH: Ef óskað er eftir að hafa diskamottuna aðeins stærri þá er hægt að endurtakið umferð 18 og 19, en í hvert skipti sem umferð 18 er hekluð er hekluð 1 fastalykkja fleiri á milli útaukninga. Passið einnig uppá að fjöldi lykkja sé deilanlegur með 2 áður en umferð 20 er hekluð (ef diskamottan er hekluð stærri þá kemur fjöldi stuðla og fastalykkja samkvæmt neðan ekki til með að passa): UMFERÐ 20: Heklið á sama hátt og umferð 7 = 88 stuðlar með 1 loftlykkju á milli hverra. UMFERÐ 21: Heklið á sama hátt og umferð 8 = 220 fastalykkjur. UMFERÐ 22: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 220 fastalykkjur. UMFERÐ 23: Heklið blúndukant á sama hátt og í umferð 10 á litlu diskamottunni = 44 bogar. Klippið þráðinn og festið. ------------------------------------------------------- SERVÉTTUHRINGUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. SERVÉTTUHRINGUR: Heklið 38 loftlykkjur með heklunál 3 og með 1 þræði DROPS Safran eða 1 þræði DROPS ♥ You #7 + 2 þræði DROPS Glitter og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 2: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju. UMFERÐ 3: 4 loftlykkjur (= 1 stuðull + 1 loftlykkja), * hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 15 stuðlar með 1 loftlykkju á milli hverra stuðla. UMFERÐ 4: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, heklið síðan 1 fastalykkju um hverja loftlykkju og 1 fastalykkju í hvern stuðul, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 30 fastalykkjur. Heklið síðan fastalykkjur hringinn með 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til stykkið mælist 5 cm. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: 2 loftlykkjur, * hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar (= uppábrot). NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, heklið síðan 1 fastalykkju um hverja loftlykkju og 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 30 fastalykkjur. Heklið 2 umferðir til og með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Brjótið efsta hlutann á servéttuhringnum út að réttu í uppábroti og heklið næstu umferð frá réttu (= blúndukantur): * 5 loftlykkjur, 1 stuðull í 2. loftlykkju sem var hekluð, 1 tvíbrugðinn stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 1½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju í næstu lykkju). Klippið þráðinn og festið. Heklið á sama hátt blúndukant í hinum endanum á servéttuhringnum. Klippið þráðinn og festið. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (26)
Irene Van Vuure wrote:
Goedemiddag, Heeft u voor mij een tip hoe ik de kleine placemet van 20cm groter kan haken?
08.05.2023 - 16:42DROPS Design answered:
Dag Irene,
Een hele eenvoudig manier is door een dikker garen te kiezen, bijvoorbeeld DROPS Muskat (categorie B) of DROPS Paris (categorie C) en ook een bijbehorende dikkere haaknaald.
08.05.2023 - 21:16Rika wrote:
Hi Kann ich den Glitterfaden einfach weglassen? Danke! VG Rika
12.09.2022 - 21:33DROPS Design answered:
Liebe Rika, ja, Glitter bringt nur etwas Glänzen zu der Arbeit, der Faden ist aber zu dünn um die Maschenprobe zu ändern. Viel Spaß beim häkeln!
13.09.2022 - 09:34Astrid Wappes wrote:
Gäbe es die Möglichkeit eines Diagrammes?? Bei einem Diagramm kann ich besser "abhäkeln"!
10.10.2021 - 10:37DROPS Design answered:
Liebe Frau Wappes, bei diesem Modell haben wir aber leider nur schriftliche Anleitung. Viel Spaß beim häkeln!
11.10.2021 - 07:37Meeuwes Linda wrote:
Zijn er van de onderleggers ook patronen ,ik kan er dan beter aanuit en voor mij is het makkelijker, hoe kan ik ze bekomen,grtjs Linda
16.05.2020 - 18:35DROPS Design answered:
Dag Linda,
Je kan het patroon gratis afdrukken met de knop afdrukken, die te vinden is onderaan de lijst met materialen. Zowel de kleine als de grote placemat is opgenomen in het patroon. Er zijn helaas geen telpatronen van.
19.05.2020 - 13:33Mónica Fernandez wrote:
Buenas tardes, seria posible tener el diagrama del patrón? Me resultaría más sencillo que seguir las explicaciones.
24.04.2020 - 23:44DROPS Design answered:
Hola Monica. Lamentamos, pero este patrón solo tiene explicaciones en formato texto.
28.04.2020 - 18:03Hilda Sobh wrote:
Het is duidelijk voor iemand die bijna geen patroon kan lezen
04.08.2019 - 10:37Anna wrote:
Sto eseguendo la tovaglietta ma non riesco a capire come si fa il 4 giro. È possibile avere delle spiegazioni più precise?
16.05.2019 - 23:30Uli wrote:
Hallo, Eine Frage zu Reihe 4, kl Tischset,da heisst es "jetzt die 4 Dreifach-Stb zusammenhäkeln", ich hab aber erst ein Stäbchen gemacht? Wie soll ich das verstehen? Vielen Dank für ihre Hilfe Grüße
09.05.2019 - 11:44DROPS Design answered:
Liebe Uli, Sie sollen jetzt die 4 Dreifach-Stb zusammenhäkeln, wie es dann erklärt ist, dh: 2 Dreifach-Stb in die selbe Lm jedoch mit dem letzten Durchziehen warten, 1 fM + 1 Lm + 1 fM überspringen, 1 Dreifach-Stb in die nächste Lm, jedoch mit dem letzten Durchziehen warten, danach das letzte Dreifach-Stb in die gleiche Lm und die letzte Schlaufe durch alle M. ziehen. Viel Spaß beim häkeln!
09.05.2019 - 14:05De Boer wrote:
Ik wil het wel na haken
26.04.2019 - 19:26Lili wrote:
Hallo! Darf ich anhand Ihres Musters Topflappen (doppelt gehäkelt, d.h. Rückseite besteht aus Stäbchen) häkeln und verkaufen? Muss ich dafür lt. Ihren Bestimmungen die von Ihnen angebotene Wolle nutzen?
14.11.2018 - 15:06