DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 140-38
DROPS Design: Mynstur nr bs-027
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

BASKER / ALPAHÚFA:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
100-150 gr litur nr 8465, milligrár

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 52 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

HÁLSKLÚTUR:
Stærð: ca 27 x 110 cm

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
200 gr litur nr 8465, milligrár

DROPS PRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN MEÐ PICOTKANTI (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið sl þar til 4 l eru eftir, þær eru prjónaðar þannig: 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, í hvora af síðustu 2 l eru prjónaðar 2 l = 2 nýjar l á prjóni.
UMFERÐ 4: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, steypið síðustu l á hægri prjóni yfir fyrstu l, nú er 2 l færri – prjónið nú sl út umf.
Endurtakið umf 1 til 4.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Lykkjufjöldinn í mynstri A.1 er mismunandi allt frá 8-10 l eftir því hvar maður er staðsettur í mynstri. Í umf 3 og 4 í mynstri eru prjónaðar styttri umf þannig: Prjónið 3 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið út umf. Sama er gert í umf 9 og 10 í mynstri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BASKER / ALPAHÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjið á uppábroti neðst á húfunni. Prjónið upp nýjar l meðfram annarri langhliðinni á kanti og húfan er prjónuð til loka áður en hún er saumuð saman við miðju að aftan.

BASKER / ALPAHÚFA:
Fitjið upp 30-30 l á prjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk.
Prjónið GARÐAPRJÓN MEÐ PICOTKANTI – lesið útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið 244-264 umf í garðaprjóni (stykkið mælist ca 47-51 cm), er fellt af. Prjónið upp 1 l yst í aðrar hvora umf í garðaprjóni meðfram hlið sem ekki hefur oddlaga kant = 122-134 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið). Setjið 5 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta er sett eftir 1 l, þau 4 næstu eru sett með 24-26 l millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 25-27 l. Prjónið nú GARÐAPRJÓN fram og til baka - lesið útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l vinstra megin við öll prjónamerki þannig: Aukið út í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), alls 4 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 7 sinnum = 177-187 l – ATH: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl svo ekki myndist gat. Þegar stykkið mælist 9-10 cm frá því sem l voru prjónaðar upp, fækkið um 1 l vinstra megin við öll prjónamerki þannig: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), alls 31-33 sinnum = 22-22 l eftir á prjóni – ATH: Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l sl saman. Í næstu umf eru allar l prjónaðar sl saman 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. Saumið saman húfuna við miðju að aftan innan við 1 kantlykkju. Brjótið uppá kant neðst niðri á húfunni.

-------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

HÁLSKLÚTUR:
Fitjið laust upp 48 l á prjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN – lesið úrskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 9 cm eru fitjaðar upp 8 nýjar l í lok 2 næstu umf = 64 l. Setjið 1 prjónamerki innan við þær 8 nýju l í hvorri hlið (= 48 l milli prjónamerkja). Prjónið nú garðaprjón með mynstri eftir A.1 yfir síðustu l í hvorri hlið þannig: Prjónið umf 1 í A.1 (= 8 l – sjá útskýringu að ofan), prjónið sl út umf og snúið við. Næsta umf byrjar með umf 1 í A.1 yfir fyrstu 8 l, prjónið sl fram að næsta prjónamerki og prjónið umf 2 í A.1. Haldið áfram með mynstur þannig – ATH: Sjá MYNSTUR að ofan. Þegar stykkið mælist ca 110 cm (mælt þegar stykkið liggur flatt) – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina – prjónið 1 umf brugðið yfir allar l áður en fellt er laust af.

FRÁGANGUR:
Leggið hálsklútinn tvöfaldan á lengdina og saumið neðstu eininguna á hálsklútnum (sú 9 cm langa einingin í garðaprjóni án oddlaga kanta í hvorri hlið), saman meðfram hliðinni – saumið kant í kant yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Þegar hálsklúturinn er notaður er gagnstæði endinn á hálsklútnum stungið niður í gegnum opið sem myndaðist og endinn á hálsklútnum er dreginn í gegnum opið.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 1 tvöfaldur uppsláttur, þ.e.a.s. sláið tvisvar uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = fyrri uppslátturinn er prjónaður slétt og sá seinni er prjónaður snúinn slétt
symbols = fellið af þessa lykkju
symbols = 2 lykkjur snúnar slétt saman
symbols = fyrri uppslátturinn er prjónaður slétt og seinni uppslættinum er sleppt af prjóni
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (64)

country flag Gisèle DAVID wrote:

Bonjour, Par quelle qualité peut on remplacer le fil BabyAlpaca Silk car il semblerait qu'il soit supprimé? Merci

26.12.2022 - 17:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme David, vous pouvez le remplacer par une autre laine du groupe de fils A - utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives et les nouvelles quantités correspondantes. Bon tricot!

02.01.2023 - 09:24

country flag Rokky wrote:

Sorry in the scarf pattern how many cast off is it one or two //

11.06.2020 - 16:14

DROPS Design answered:

Dear Rokky, you cast off 2 sts at the beg of row 5 and 11. Happy knitting!

12.06.2020 - 07:21

country flag Lelletta wrote:

Buonasera! Non riesco a capire come lavorare il ferro n. 4, nel punto in cui dite di "accavallare l’ultima m. sul f. destro sulla prima m" . Devo accavallare sulla maglia appena lavorata? Cioè quella appena lavorata a diritto? ? Spero abbiate capito il mio problema! Grazie mille!

04.01.2020 - 15:19

DROPS Design answered:

Buongiorno Lelletta, deve accavallare l'ultima maglia sulla prima maglia lavorata. Buon lavoro!

05.01.2020 - 14:39

country flag Susanne Wenngren wrote:

I vanliga fall brukar man ju sticka enbart efter diagram, så jag förstår inte de 4 varven man ska upprepa, vilka varv är det o när ska man sticka efter diagrammet. Vill gärna ha svar för vill väldigt gärna göra denna sjal för den är jättesnygg. Med vänlig hälsning Susanne

17.09.2019 - 11:53

DROPS Design answered:

Hej Susanne, A.1 stickas ytterst på varje varv. På varv 3 och 4 stickar du bara de 3 maskor fram och tillbaka, varv 5-8 stickar du hela varvet (men yttersta m enligt diagrammet), sedan var 9 och 10 igen bara över de 3 maskor i kanten. Se mer förklaring under MÖNSTER. Lycka till !

17.09.2019 - 15:37

country flag Dea wrote:

Buongiorno, sto facendo il cappello ed a un certo punto vi è scritto " Inserire il primo dopo 1 m., inserire il successivo con 4 24-26 m. in mezzo, dopo l’ultimo segnapunti ci sono 25-27 m." , secondo me dove dice "inserire il successivo con 4 ..." si dovrebbe scrivere "inserire i successivi 4 con 24-26 m tra ciascuno, dopo l'ultimo segnapunti ci sono 25-27 m" ..." altrimenti sembra si parli solo di un segnapunti.

07.11.2018 - 14:59

DROPS Design answered:

Buonasera Dea. Abbiamo modificato il testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

07.11.2018 - 16:10

country flag Valérie P. wrote:

Bonjour, Concernant le béret , une fois les 122 mailles récupérées sur la bordure, on peut le tricoter en rond, la finition est beaucoup plus jolie !!

20.08.2018 - 15:01

country flag Larissa wrote:

Hallo, auf was bezieht sich dieser Satz: Nach 9-10 cm ab Aufnahme der M je 1M auf der li Seite aller Markierer abn: Heißt das, ich zähle ab der letzten Aufnahme die 9 oder 10 cm? Oder ab der allerersten Aufnahme, nachdem ich die 122 Maschen aufgenommen habe? Vielen Dank und liebe Grüße!

04.01.2018 - 19:58

DROPS Design answered:

Liebe Larissa, die Abnahmen beginnen 9 cm nach dem Sie die 122 Maschen aufgenommen haben. Viel Spaß beim stricken!

05.01.2018 - 08:40

country flag Susanna wrote:

Non mi è molto chiaro come si ottiene il bordo picot, cioé proprio la spiegazione dei punti.

29.09.2017 - 23:54

DROPS Design answered:

Buongiorno Susanna. Deve lavorare due ferri su tutte le maglie, poi al terzo ferro lavora finché non rimangono 4 m. Lavora queste maglie così: 2 m insieme a diritto, 1 m gettata, poi in ognuna delle ultime 2 maglie, lavora sia nel filo davanti della maglia che in quello dietro (aumenta quindi 2 m). Gira il lavoro, passa la prima maglia a diritto senza lavorarla, 1 m diritto, accavalla la m passata sulla maglia lavorata, 1 m diritto , accavalla l’ultima m sul ferro di destra sulla prima m (2 m diminuite). Lavora poi le altre maglie a diritto. Ripete questi 4 ferri. Buon lavoro!

30.09.2017 - 10:46

country flag Claude Bouvard wrote:

Même en m'appliquant.... je n'arrive à RIEN !! de plus il n'y a aucune ressemblance entre le résultat et le dessin obtenu sur la photo.... Je vous demandais aussi si nous avions des augmentations ou si à la fin de l'écharpe nous aurions 64 mailles?? Elle me parait bien étroite alors!

01.03.2016 - 07:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bouvard, comme je vous l'indiquais, vous tricotez A.1, 48 m point mousse, A.1 - le nbe de mailles dans A.1 va changer, mais le nbe de mailles n'augmente pas autrement. Pour toute assistance complémentaire, vous pouvez vous adresser à votre magasin DROPS ou voir le tuto de ce diagramme sur le forum DROPS. Bon tricot!

01.03.2016 - 09:31

country flag Claude BOUVARD wrote:

Irréalisable !! pourtant je je suis pas une bleue § Même ma super copine n'a pas compris le point fantaisie !Il semblerait que l'écharpe soit plus large au fil du travail, sur la photo: dites moi quel est le nombre maxi de mailles et je me débrouillerai.Jamais vu pareille difficulté !aidez moi !! merci

29.02.2016 - 13:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bouvard, on commence l'écharpe par 48 m que l'on tricote au point mousse pendant 9 cm (on ferme ensuite cette partie en un petit tube pour y glisser l'autre extrémité, voir ici. On monte ensuite 8 m de chaque côté (soit 64 m au total) et on tricote ainsi sur l'end: rang 1 de A.1 (= 8 m), 56 m point mousse. Rang 2: Rang 1 de A.1 (= 8 m), 48 m point mousse, rang 2 de A.1 (= 8 m). Et ainsi de suite jusqu'à la fin. Les rangs 3+4 et 9+10 sont des rangs raccourcis (= 2 rangs sur les 3 premières m). Bon tricot!

29.02.2016 - 13:35