DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Emily Gloves

Prjónaðir fingravettlingar úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri og smá blúndulista. Stærð S - XL.

DROPS 140-37
DROPS Design: Mynstur nr bs-028
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
100-100 gr litur nr 8465, milligrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SKELJATALA með gati, NR 525: 6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstrið séð frá réttu. Lykkjufjöldinn í mynstri A.1 er mismunandi allt frá 8 l að 10 l eftir því hvar maður er staðsettur í mynstri.
Í umf 3 og 4 í mynstri eru prjónaðar stuttar umferðir þannig: Prjónið 3 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið út umf. Sama er gert í umf 9 og 10 í mynstri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

FINGRAVETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

VINSTRI FINGRAVETTLINGUR:
Fitjið upp 56-62 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 8 l sl, setjið 1 prjónamerki, * prjónið 1 l sl, nema prjónið l í gegnum l frá fyrri umf í stað fyrir l á prjóni, prjónið 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 9 l eru eftir, prjónið 1 l sl í gegnum l frá fyrri umf, setjið 1 prjónamerki og prjónið sl yfir síðustu 8 l á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1 fram að prjónamerki (= 8 l – lesið útskýringu að ofan), prjónið sl yfir sl og br yfir br fram að næsta prjónamerki og prjónið sl yfir síðust 8 l á prjóni (= listi með garðaprjóni).
Haldið svona áfram með mynstur, þ.e.a.s. sl í hverri umf yfir þær 8 l á undan fyrsta prjónamerki (séð frá réttu), stroff að næsta prjónamerki (frá réttu: Prjónið 1 l sl í l frá fyrri umf, 2 l br, og frá röngu: Prjónið sl yfir sl og br yfir br), og A.1 (= blúndulisti) yfir l eftir síðasta prjónamerki (séð frá réttu) – Lesið MYNSTUR!.
Þegar stykkið mælist ca 8 cm – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina á A.1, eru 8 l á blúndulista. Setjið l frá blúndulista hjá þeim 8 l frá kanti í garðaprjóni af hinum hluta af stykkinu (svo að opið snúi út á ytri hlið handar). Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT þar sem 8 l af lista með blúndu er prjónaður saman með kanti í garðaprjóni þannig: Prjónið 1 l með A.1 sl saman með 1 l frá kanti í garðaprjóni, * prjónið nú næstu l frá A.1 sl saman með næstu l frá kanti í garðaprjóni *, endurtakið frá *-* þar til allar 8 l frá A.1 hafa verið prjónaðar saman með l með garðaprjóni = 48-54 á prjóni. Klippið frá. Setjið 1 prjónamerki í 7. l eftir blúndulista (þ.e.a.s. 1 l sl = ytri hlið handar) og 1 prjónamerki í 24.– 27. l á eftir fyrsta prjónamerki (þ.e.a.s. 1 l sl = byrjun umf, þ.e.a.s. á innri hlið handar). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Byrjið við prjónamerki í innri hlið handar og prjónið sléttprjón hringinn á sokkaprjóna JAFNFRAMT eru 5 miðju l á ytri hlið handar prjónaðar þannig: Prjónið 2 l br, 1 l sl sem prjónuð er í l frá fyrri umf (prjónamerkið situr í þessari l) og 2 l br.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 4 umf eftir stroff er sett 1 nýtt prjónamerki fyrir miðju á handarbaki (í stærð S/M er prjónamerki sett í 12. l í umf og í stærð L/XL er prjónamerki sett á milli 13. og 14. l í umf). Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.2 fyrir miðju á handarbaki (aðrar l eru prjónaðar eins og áður) – A.2 byrjar í l með prjónamerki í stærð S/M og í l á eftir prjónamerki í stærð L/XL.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm byrjar útaukning fyrir þumal. Aukið út um 1 l á hvoru megin við næst næst síðustu l í umf (þ.e.a.s. innan í lófa) – aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn, til þess að koma í veg fyrir göt er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umf. Aukið út hvoru megin við útauknu l í 3. hverri umf, 4-5 sinnum til viðbótar = 11-13 þumallykkjur og 58-66 l alls. Þegar stykkið mælist 6-7 cm eru þumallykkjurnar + 1 l í hvorri hlið (= 13-15 l) settar á þráð. Fitjið upp 3 nýjar l fyrir aftan þumal = 48-54 l. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og þær 5 l með stroffi á ytri hlið handar þar til stykkið mælist 10-11 cm. Setjið fyrstu 19-21 l af handarbaki á þráð, haldið eftir næstu 11-13 l á prjóni og setjið síðustu 18-20 l af lófa á annan þráð.

LITILIFINGUR:
= 11-13 l, fitjið upp 1 nýja l í vikið við l af þræði = 12-14 l. Prjónið sléttprjón hringinn með 5 l með stroffi í hlið eins og áður í ca 5½ -6½ cm. Prjónið allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að.

LÓFI:
Setjið til baka l af þræði á prjóninn, prjónið að auki upp 2-3 l í vikið við litlafingur = 39–44 l. Prjónið 2 umf hringinn í sléttprjóni. Geymið þær 2-3 l sem prjónaðar voru upp í vikið við litlafingur + 6-6 l af handarbaki og 5-5 l frá lófa á prjóni. Setjið l sem eftir eru á sitt hvorn þráðinn (= 13-15 l af handarbaki og 13-15 l úr lófa).

BAUGFINGUR:
= 13-14 l, fitjið upp 1 nýja l í vikið l af þræði = 14-15 l. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 7-8 cm, prjónið allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að.

LANGATÖNG:
Setjið til baka þær 7-8 l af hvorum þræði á prjóninn, prjónið að auki upp 2 l í vikið við baugfingur og fitjið upp 1 nýja l í vikið l af þræði = 15-17 l. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 7½-8½ cm, prjónið allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að.

VÍSIFINGUR:
Setjið til baka þær l sem eftir eru 14-16 l af þræði á prjóninn, prjónið að auki upp 2 l í vikið við löngutöng = 16-18 l. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 6½-7½ cm, prjónið allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að.

ÞUMALL:
Setjið l fyrir þumal á prjóninn og prjónið að auki upp 3 l frá lófa við þumallykkjurnar = 16-18 l. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 5½-6 cm, prjónið allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að.

HÆGRI FINGRAVETTLINGUR:
Prjónið á sama hátt og vinstri fingravettlingur, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. að A.1 er prjónað yfir fyrstu 8 l í byrjun umf (séð frá réttu)og prjónað er garðaprjón yfir 8 síðustu l í umf (séð frá réttu), í stað gagnstætt. Að auki er blúndulistinn lagður ofan á kant í garðaprjón svo að opið á stroffinu snúi í gangstæða átt, aukið út fyrir þumal hvoru megin við þriðju l í byrjun umf (í stað hvoru megin við næst, næst síðustu l í umf).

FRÁGANGUR:
Saumið 3 tölur meðfram kanti í garðaprjóni á hvorum fingravettlingi og notið götin af blúndulistanum sem hnappagöt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 1 tvöfaldur uppsláttur, þ.e.a.s. sláið tvisvar uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = fyrri uppslátturinn er prjónaður slétt og sá seinni er prjónaður snúinn slétt
symbols = fellið af þessa lykkju
symbols = 2 lykkjur snúnar slétt saman
symbols = fyrri uppslátturinn er prjónaður slétt og seinni uppslættinum er sleppt af prjóni
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Dea wrote:

Scusate non prendete in esame gli ultimi due miei commenti/domande. Ho trovato l'errore che mi impediva di lavorare normalmente. Grazie.

14.12.2018 - 18:42

country flag Dea wrote:

Buonasera, mi trovo dopo la chiusura del polsino in tondo. Nella spiegazione dice di lavorare le 5 m centrali sul lato esterno della mano in qst modo " 2 rov, , 1 dir nella m del giro precedente (come nel polsino lavorato avanti e indietro; sono le mezze coste inglesi) e poi 2 rov. " . Come è possibile fare la mezza costa inglese in tondo visto che mancherebbe un filo per ottenerla? Forse bisogna farla diventare come una costa inglese classica? Non è possibile un video di qst lavoro?

15.11.2018 - 18:43

country flag Dea wrote:

Buonasera, mi trovo dopo la chiusura del polsino in tondo. Nella spiegazione dice di lavorare le 5 m centrali sul lato esterno della mano in qst modo " 2 rov, , 1 dir nella m del giro precedente (come nel polsino lavorato avanti e indietro; sono le mezze coste inglesi) e poi 2 rov. " . Come è possibile fare la mezza costa inglese in tondo visto che mancherebbe un filo per ottenerla? Forse bisogna farla diventare come una costa inglese classica? Non è possibile un video di qst lavoro?

15.11.2018 - 18:42

country flag Dea wrote:

Scusate ho trovato dove sbagliavo e la spiegazione è giusta visto che è il guanto sinistro. Mea culpa. :)

13.11.2018 - 11:23

country flag Dea wrote:

Buongiorno. Dice di lavorare il diagramma A1 partendo col primo ferro dello schema stando sul "Rovescio del Lavoro", così facendo però il ferro 5 del diagramma (il primo dopo i due ferri accorciati) si troverebbe sul "Rovescio del Lavoro" mentre quando ho fatto la sciarpa e il cappello il "bordo di pizzo" iniziava col ferro 1 dello schema sul "Diritto del Lavoro". C'è qualcosa di strano. Grazie.

13.11.2018 - 11:15

country flag Dea wrote:

Buonasera nella spiegazione c'è una parola doppiata " Lavorato prima lavorato avanti e in...." . E' un refuso. :)

12.11.2018 - 21:29

DROPS Design answered:

Buongiorno Dea. Abbiamo corretto il testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

13.11.2018 - 09:22

country flag Catarina Adamson wrote:

Hej! Förstår inte hur jag stickar ihop spetsen med den rätstickad biten efter manshetten är klar. Kan jag få en bättre , tydligare, förklaring. Tack på förhand

20.12.2017 - 16:29

DROPS Design answered:

Hej, jo såhär skriver vi: sticka tillsammans med den rätst kanten så här: Sticka 1 m från A.1 rät tills med 1 m från den rätst kanten, * sedan stickas nästa m från A.1 rät tills med nästa m från den rätst kanten *, upprepa *-* tills alla de 8 m från A.1 har stickats ihop med de rätst m = 48-54 m på st

02.01.2018 - 10:58

country flag Catarina wrote:

Hej! Jag blir inte riktigt klar över diagram a1. Stickas mönstret bara över de aviga varven eller över alla varv? Alltså skall jag avsluta m 8 räta på de räta hela tiden eller. Om mönstret stickas över alla, vilket varv börjar det på? O vilken sida av mönstret är ytterkanten? Tacksam för snabbt svar!

19.12.2017 - 18:37

DROPS Design answered:

Hej Catarina, A.1 stickas över alla varv men bara i ena sidan. Se även MÖNSTER-info: Se diag A.1 och A.2. Diag visar alla v i mönstret sett från rätsidan. Maskantalet i diag A.1 varierar från 8 till 10 m beroende av var man är i mönstret. På v 3 och 4 i diag stickas det förkortade v så här: Sticka 3 rm, vänd arb, strama tråden och sticka v ut. Det samma görs på v 9 och 10 i diag. Lycka till!

20.12.2017 - 11:28

country flag Anna wrote:

Hallo, ich habe den linken Handschuh problemlos nach Anleitung gestrickt. Nun habe ich den rechten Handschuh begonnen, weiß aber nicht genau wie man die Bordüre hier stricken soll, da die 3 Maschen die hin- und zurück gestrickt werden nicht mehr am Anfang der Reihe, sondern am Ende der nächsten liegen. Ich müsste also immer eine extra Reihe stricken, wodurch der Handschuh aber anders aussehen würde als der linke. Wie schaffe ich es, dass beide Handschuhe gleich werden?

11.11.2015 - 10:03

DROPS Design answered:

An sich müssten die 3 M auch wieder am R-Beginn liegen, ich denke, Sie sollten das Muster beim rechten Handschuh mit der Hin-R beginnen statt mit der Rück-R, Sie stricken also einfach am Anfang eine R weniger. Ich hoffe, dass es so funktioniert.

19.11.2015 - 10:08