DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Forget-Me-Not

Hekluð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með laskalínu og gatamynstri, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL

DROPS 149-19
DROPS Design: Mynstur nr bs-048
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
400-400-450-500-550-600 gr litur nr 6235, gráblár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st á breidd og 10 umf á hæð verði 10 x 10 cm.
1 mynstureining með A.2 yfir 10 l, mælist ca 3½ cm á breiddina.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 7-7-7-8-8-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á öllum umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 st í 3. ll frá byrjun fyrri umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sömu l.

ÚRTAKA-1:
Heklið 1 fl/st, bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl/st, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/st.

ÚRTAKA-2:
Heklið 1 fl, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið næstu fl, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið næstu fl, en dragið nú síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni (= 2 l færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklið nú fram og til baka frá miðju að framan.

BERUSTYKKI:
Heklið 166-166-176-176-187-187 ll með heklunál nr 3,5 með Baby Alpaca Silk. Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af 3 næstu ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-0-2-2-1-1 ll og endið á 1 fl í hverja og eina af 0-0-2-2-1-1 síðustu ll = 124-124-132-132-140-140 fl (meðtaldar 4 fl í hvorri hlið við miðju að framan fyrir kant að framan). LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umf frá réttu þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í hverja af næstu 8-18-20-20-22-22 fl, heklið A.1 yfir næstu 5 l (þ.e.a.s. 1 st í fyrstu fl, hoppið yfir 1 fl, 1 ll, 5 st í næstu fl, hoppið yfir 1 fl, 1 ll og 1 st í næstu fl), heklið 1 st í hverja af næstu 18 fl (= ermi), A.1 yfir næstu 5 fl, 1 st í hverja af næstu 30-30-34-34-38-38 fl (= bakstykki), A.1 yfir næstu 5 fl, 1 st í hverja af næstu 18 fl (= ermi), A.1 yfir næstu 5 l og 1 st í hverja af síðustu 19-19-21-21-23-23 fl, snúið við.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM OG ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið áfram fram og til baka með st og A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
JAFNFRAMT í næstu umf (= ranga) byrjar útaukning fyrir laskalínu og aukið er út þannig – ATH: Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum:

LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út 2 st á undan/eftir A.1 á fram- og bakstykki með því að hekla 2 st í hvorn af síðustu 2 st á undan/eftir A.1 á fram- og bakstykki.
Endurtakið útaukningu með 2 st í hverri umf, 1-5-6-11-14-20 sinnum til viðbótar (= alls 2-6-7-12-15-21 sinnum).
Aukið nú út um 1 st á undan/eftir A.1 með því að hekla 2 st í síðasta st á undan/eftir A.1 á fram- og bakstykki. Endurtakið útaukningu með 1 st í hverri umf, 19-16-16-12-10-5 sinnum til viðbótar (= alls 20-17-17-13-11-6 sinnum).

LASKALÍNA Á ERMUM:
Aukið út um 2 st á undan/eftir A.1 í hvorri hlið á ermum með því að hekla 2 st í hvorn af síðustu 2 st á undan/eftir A.1 á ermum.
Endurtakið útaukningu með 2 st í hverri umf 13-14-15-16-18-19 sinnum til viðbótar (= alls 14-15-16-17-19-20 sinnum).
Aukið síðan út um 1 st á undan/eftir A.1 með því að hekla 2 st í síðasta st á undan/eftir A.1 á ermum. Endurtakið útaukningu með 1 st í hverri umf 7-7-7-7-6-6 sinnum til viðbótar (= alls 8-8-8-8-7-7 sinnum).

SKIPTING FRÁ A.1 TIL ST:
JAFNFRAMT í síðustu umf með útaukningu eru heklaðir nú 5 st yfir A.1 í stað fyrir A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.

Eftir síðustu útaukningu eru 364-392-416-448-484-520 st í umf.
Næsta umf er hekluð frá réttu þannig (ef næsta umf er hekluð frá röngu er þráðurinn klipptur frá og byrjað er frá réttu): Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 46-51-55-61-67-74 st (= vinstra framstykki), hoppið yfir næstu 94-98-102-106-112-116 st (= ermi), heklið 12 ll, heklið 1 st í hvern og einn af næstu 84-94-102-114-126-140 st (= bakstykki), hoppið yfir næstu 94-98-102-106-112-116 st (= ermi), heklið 12 ll og heklið 1 st í hvern og einn af síðustu 46-51-55-61-67-74 st = 200-220-236-260-284-312 l í umf.
Heklið nú fram- og bakstykki og ermar áfram hvort fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í umf – héðan er nú mælt!
Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið 3 ll (jafngildir 1 st), heklið 1 st í hvern af næstu 3 st (= kantur að framan), heklið 1 st í hvern st og 12 st um ll-boga undir ermi þar til 4 st eru eftir í umf JAFNFRAMT er aukið út um 49-49-63-69-75-77 st jafnt yfir þessar l, endið á 1 st í hvern og einn af 4 síðustu st (= kantur að framan)= 249-269-299-329-359-389 st í umf. Í næstu umf frá réttu er heklað mynstur eftir mynsturteikningu A.2 með 4 st í hvorri hlið fyrir kant að framan, þ.e.a.s. 1. umf er hekluð þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í hvern og einn af 3 fyrstu st (= kantur að framan), 1 st í næsta st, * 1 ll, hoppið yfir 4 st, 7 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 4 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 24-26-29-32-35-38 sinnum og endið á 1 st í hvern af síðustu 4 st í umf. Haldið svona áfram með mynstur eftir mynsturteikningu A.2 (endurtakið umf 2-5 í mynstri). Þegar stykkið mælist ca 28-29-30-31-32-33 cm frá prjónamerki – endið eftir 3. eða 5. umf í mynstri, klippið frá (stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður).

ERMI:
= 94-98-102-106-112-116 st. Stykkið er heklað fram og til baka.
Setjið 1 prjónamerki í umf – héðan er nú mælt!
Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið 6 lausar ll, heklið 1 st í hvern st á ermi og endið umf með 8 ll, snúið við. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, heklið 1 st í hverja af næstu 4 ll, 1 st í hvern st frá fyrri umf og 1 st í hverja af 6 ll frá byrjun fyrri umf = 106-110-114-118-124-128 st í umf. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í hvern af næstu 6-8-5-7-5-7 st, setjið 1 prjónamerki, heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 yfir næstu 91-91-101-101-111-111 l, setjið 1 prjónamerki og endið á 1 st í hvern og einn af síðustu 8-10-7-9-7-9 st (umf 1 í A.2 hefur nú verið heklað). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! Haldið svona áfram með mynstur fram- og til baka JAFNFRAMT er mynstrið á milli 2 prjónamerkja í næstu umf heklað eins og útskýrt er í A.3 (byrjið á umf 2 í mynstri), þ.e.a.s. að 1 mynstureining með A.2 í hvorri hlið á milli prjónamerkja er skipt út fyrir st (þessir st koma framfyrir st í ytri hlið á prjónamerkjum og prjónamerkin eru notuð sem aðstoð fyrir réttan lykkjufjölda).
JAFNFRAMT í umf 2 í A.2/A.3 er fækkað um 2 st í hvorri hlið með því að hekla 4 fyrstu st í umf saman 2 og 2 og 4 síðustu st í umf saman 2 og 2 – LESIÐ ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku með 2 st í hvorri hlið í hverri umf, 3-5-3-6-4-6 sinnum til viðbótar (= alls 4-6-4-7-5-7 sinnum). Fækkið nú um 1 st í hvorri hlið í 2.-2.- 3.- 5.- 4.- 6.- hverri umf alls 8-6-7-3-5-3 sinnum. Eftir síðustu úrtöku er 1 st öðru megin við A.2 og 2 st hinum megin við A.2 (A.2 er fyrir miðju 71-71-81-81-91-91 l.
Haldið áfram með A.2 fram og til baka með 1 og 2 st í hvorri hlið þar til ermin mælist ca 39-39-38-38-37-37 cm frá prjónamerki (ATH: Styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og víðari handvegs). Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið nú peysuna til þess að fá rétta sídd á ermum.
Heklið nú st fram og til baka yfir allar l – ATH: yfir l í A.2 á að vera 53-53-61-61-67-67 st = 56-56-64-64-70-70 st í umf. Þegar kanturinn með st mælist 5 cm og ermin mælist ca 44-44-43-43-42-42 frá handveg, klippið frá.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í (tölum er hneppt á milli st í kanti að framan).

UPPHÆKKUN AFTAN VIÐ HNAKKA:
Til þess að hálsmálið verði aðeins hærra aftan við hnakka er hægt að hekla upphækkun þannig: Setjið 1 prjónamerki í l í hvert horn á hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu. Heklið með heklunál nr 3,5 þannig: Byrjið með 1. l frá miðju að framan lengst út á kanti að framan og heklið 1 fl í hverja fl í kringum hálsmál þar til 10 fl eru eftir í umf, en 1 l á undan hverju prjónamerki er heklað þannig: Heklið 1 hst í næstu l, 1 st í næstu l (færið prjónmerki í þessa l) og 1 hst í næstu l.
Snúið við, heklið 1 fl í hverja l þar til 10 l eru eftir á annarri hliðinni, en yfir 3 l í hverju horni (þ.e.a.s. l með prjónamerki í + 1 l hvoru megin við hana), heklið 3 fl saman – LESIÐ ÚRTAKA-2. Snúið við og heklið þar til 18 fl eru eftir í umf, snúið við og heklið þar til 18 fl er eftir í umf í hinni hliðinni. Haldið svona áfram fram og til baka með fl og úrtöku í hverju horni þar til kanturinn mælist ca 2 cm þar sem hann er breiðastur fyrir miðju að aftan, heklið nú 1 umf yfir allar l með 1 fl í hverja fl. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.12.2013
FRAM- OG BAKSTYKKI: ... Í næstu umf frá réttu er heklað mynstur eftir teikningu A.2 með 4 st á hvorri hlið fyrir kant að framan, þ.e.a.s. 1. umf er hekluð þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í hvern og einn af 3 fyrstu st (= kantur að framan), 1 st í næsta st, * 1 ll, hoppið yfir 4 st, 7 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 4 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 24-26-29-32-35-38 sinnum...
Yfirfarið á vefsvæði: 20.02.2014
BERUSTYKKI (1 l vantaði á tveimur stöðum): ... 8-18-20-20-22-22 fl, heklið A.1 yfir næstu 5 l (þ.e.a.s. 1 st í fyrstu fl, hoppið yfir 1 fl, 1 ll, 5 st í næstu fl, hoppið yfir 1 fl, 1 ll og 1 st í næstu fl), heklið 1 st í hverja og eina af næstu 18 fl (= ermi),...

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 fl
symbols = 1 st
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (63)

country flag Ourd59 wrote:

Merci pour votre réponse Une dernière question sur la rehausse Faut il continuer à faire des rangs raccourcis de 18 mailles Jusqu’à obtenir 2 cm Merci

11.10.2021 - 22:01

DROPS Design answered:

Bonjour Ourd59, tout à fait, continuer ainsi: en diminuant à chaque "coin" de chaque raglan et en laissant 18 ms non travaillées à la fin de chaque rang de chaque côté jusqu'à ce que cette partie mesure 2 cm au milieu dos, terminez par 1 rang de mailles serrées tout le long de l'encolure. Bon crochet!

12.10.2021 - 08:47

country flag Ourd59 wrote:

Bonjour , J’ai du mal à comprendre la rehausse du dos Pourriez m’indiquer ce que vous appelez le début du raglan ? Merci

09.10.2021 - 01:18

DROPS Design answered:

Bonjour Ourd59, le début de chaque raglan correspond à la maille centrale de A.1 (qui forme le début d'où partent la ligne de chacun des raglans). Placez un marqueur dans cette maille et crochetez 3 m ens à l'endroit ainsi: la maille avant le marqueur + la maille avec le marqueur + la maille après le marqueur. Bon crochet!

11.10.2021 - 07:08

country flag Ourd59 wrote:

Bonjour Je ne comprends pas pour le 1 er rang prendre sur l’envers Faut il crocheter la chaînette sur l’envers ou considérer que le 1 er rang est un rang envers ? Merci

07.10.2021 - 04:24

DROPS Design answered:

Bonjour Ourd59, le tout premier rang de mailles serrées est effectivement un rang sur l'envers. Le rang suivant (= le 1er rang de brides et le 1er rang des diagrammes) se crochète sur l'endroit. Bon crochet!

07.10.2021 - 08:41

country flag Marta wrote:

Hola! tengo un problema con la tension del patron. He usado aguja de 3,5mm y me sale una muestra de 12cm de ancho por 10 de alto y usando una de 3mm me sale una muestra de 10cm de ancho por 8cm de alto. Mi talla seria la S y no se muy bien como podria adaptarlo. Muchas gracias por su respuesta.

20.06.2019 - 18:08

DROPS Design answered:

Hola Marta. Lo importante es la tensión en horizontal para poder trabajar el patrón sin tener que recalcular. Si te sale la muestra con ganchillo de 3 mm 22 puntos=10 cm, es la tensión correcta. Para alcanzar las medidas necesarias vas a tener que trabajar algunas filas extra en vertical.

20.06.2019 - 22:30

country flag Gail wrote:

On sleeve, I have decreased to the point of having 81A.2 pattern stitches in the middle of the sleeve, but have 6 dc on one side and 7 dc on other, not1 dc on one side and 2 dc on other. I decrease 4dc on each side for 7, then 1dc every 5th row times 3. Advise.

13.01.2019 - 20:45

DROPS Design answered:

Dear Gail, in 4th size you start with 1 dc, 7 dc, A.2 (=101 sts), 9 dc. You will work by and 10 sts in A.2 in dc (see M.3) so that you will have 1dc+7 dc + 10 dc (from A.2 as in A.3) before the 81 sts in A.2 and 10 dc (from A.2 as in A.3)+9 dc. YOu will dec 2 sts 7 times and 1 st 3 times = 17 sts are dec on each side. Before the 81 sts: 18 sts - 17 sts= 1 dc remain, after the 81 sts: 19 sts - 17 sts = 2 dc remain. Happy crocheting!

14.01.2019 - 12:28

Ivana wrote:

Hello! Why make 3 ch at the beginning of a row? Since it is dc, it is better to do 2 ch instead of 3 ch. Please correct me if I'm wrong. I don't see buttonholes in the pattern. Are they just a decoration or I'm missing something during reading pattern? Thanks for your help!

17.05.2018 - 09:56

DROPS Design answered:

Hello, Ivana! 3 ch at the beginning: it is adequate to 1 tr (brittish eng, 1 dc in US terminology!), 2 ch we use when crochet 1 dc (brittish eng, 1 sc in US). Butthonholes: instead of buttonholes we use space between trebles on band. Happy crocheting! Hana

17.05.2018 - 12:52

Ivana wrote:

Hello! One question. When doing raglan there is a total of four A.1. pattern repeating. If you inc 2 dc before/after A.1 on front and back piece by working 2 dc in each of the last 2 dc before/after A.1 on front and back then you have inc in ALL OF THE FOUR A.1. pattern. In that case, there are no A.1. left for raglan inc for sleeves... Could you please explain this part of the pattern? Thank you very much for your help!

17.05.2018 - 09:55

DROPS Design answered:

Dear Ivana, you will increase by working 2/1 dc in the 2/1 dc before/after A.1 and work A.1 as before => the number of dc will increase by 2 /1 (front pieces) by 4/2 (back pieces and sleeves). A.1 is the raglan line and should be worked over the same sts vertically. Happy crocheting!

17.05.2018 - 13:21

Monica wrote:

Hello, I've started this today, but I have a question. Why in the 1st row I have to skip 1 chain every 3 sc? Is this because the base chain will be more elastic? Because I usually use Single Crochet Base Chain to start (and this is very elastic), so I think I don't need to skip base chain. Thank you

17.04.2018 - 10:17

DROPS Design answered:

Dear Monica, usually when you crochet the fundation chain, it's more tighten that the first row should be, that's the reason why you have then to chain more chains and skip chains evenly on first row. If your fundation row is not that tight, make sure to cast on the number of sc requested for your size, making sure it's elastic enough. Happy crocheting!

17.04.2018 - 11:06

country flag Le Gal Valerie wrote:

Je ne trouve pas 448 mailles a la fin des augmentations et je ne comprend pas pourquoi meme après avoir recommmencer 3 fois. Pourriez-vous m'aider?

27.03.2018 - 21:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Le Gal, en taille XL on augmente pour le dos et les devants: 8 m (4 sur le dos et 2 sur chaque devant) x 12 puis 4 m (2 sur le dos et 2 sur chaque devant) x 13 soit 148 m au total - pour les manches, on augmente 8 m (4 sur chaque manche) x 17 puis 4 m (2 sur chaque manche) x 8 soit 168 m au total, soit 132 ms + 148+168= 448 m. Bon crochet!

28.03.2018 - 15:29

country flag Marjolein wrote:

Hallo, hoeveel stokjes moet ik nu vervangen bij de derde regel na LEES ALLE ONDERSTAANDE AANWIJZINGEN.. bij de mouw? Ik haak het vest met 98 steken op de mouw, de tweede maat. Een keer patroon A2 vervangen door stokjes is volgens mij dan 10 of 11 stokjes, maar op teltekening zijn het er minder. Moet dit aan beide zijden van de mouw een heel patroon vervangen, of aan beide zijden een half patroon A2? Ik zou het vest zo graag afmaken, maar loop hier op vast..

13.11.2016 - 21:05

DROPS Design answered:

Hoi Marjolein. Je hebt: 3 l (= 1 stk), 1 stk in elk van de volgende 8 stk, plaats 1 markeerder, haak in patroon volgens telpatroon A.2 over de volgende 91 st, plaats 1 markeerder en ga verder met 1 stk in elk van de laatste 10 stk (1e toer in A.2 is nu klaar)). Ik zou het dan zo haken. Je begint met tweede toer A.3 (7 stk, 1 l, (markeerder), en ga door met A.2 tweede toer in 11e stk en herhaal A.2 tot einde van de toer (10 stk over (je eindigt met 1 stk/2 l/1 stk), markeerder en 1 l, en 7 stk in de laatste 7 stk (A.3).

17.11.2016 - 15:14