DROPS Extra 0-1012 |
|
|
|
Heklað OS - eyrnaband úr DROPS Nepal.
DROPS Extra 0-1012 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR 1: Fyrsta fl í byrjun umf er skipt út fyrir 1 ll. HEKLLEIÐBEININGAR 2: Við litaskipti: Þegar síðasta l er hekluð með ákveðnum lit , bíðið með að draga þráðinn í gegn og dragið bandið í gegn með næsta lit sem á að nota. HEKLLEIÐBEININGAR 3: Til þess að sleppa við að hafa marga þræði sem þarf að festa í lokin, heklið í kringum þráðinn sem ekki á að nota lengur til þess að hann komi réttu megin á stykkinu. HEKLLEIÐBEININGAR 4: Snúið nýja litnum í kringum þann gamla, þannig að þráðurinn fylgi með upp meðfram hlið á stykkinu þar til nota á hann aftur. HEKLLEIÐBEININGAR (einungis fyrir Portúgal): Til þess að fá fallega skiptingu í byrjun á hverri umf með 1 ll. Hver umf endar á 1 kl í fyrstu fl. RENDUR (einungis USA): 3/5 - 6/9 ára: * Heklið 2 umf fl natur, 2 umf fl rauður *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum. 10/12 ára: * Heklið 2 fl natur, 2 umf fl rauður *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum og heklið 2 umf fl með natur. Dömu - herra: * Heklið 2 umf fl natur, 2 umf fl rauður *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum. FRANSKUR HNÚTUR (USA): Notið nál til þess að stinga í gegnum stykkið neðan frá og upp. Leggið nálina flata við stykkið, snúið þræðinum sem er neðst við stykkið fast í kringum nálina 2 sinnum. Dragið síðan nálina með þræðinum í gegnum þráðinn sem snúið var í kringum nálina, nú myndast lítill hnútur. Stingið niður nálinni í stykkið með smá bili frá því þar sem nálin kom upp, haldið síðan áfram að gera hnúta alveg eins. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND (öll nema USA): Heklið 13-13-16-19-19 ll (inniheldur 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með litnum natur. Heklið 1 fl í aðra ll frá heklunálinni. Heklið nú 1 fl í hverja ll = 12-12-15-18-18 fl. Heklið nú 1 fl í hverja fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 1 – þar til stykkið mælist ca 22-22-23-24-24 cm og nú er 1 l eftir í umf. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2 og sjá FÁNI neðan við mynstur og fánalitinn þinn. FÁNI: NOREGUR/ÍSLAND: Heklið 3 umf fl með litnum rauður (Noregur) / kóngablár (Ísland) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 3 og 4 – í fyrstu umf með litnum rauður (Noregur / kóngablár (Ísland) heklið í kringum natur litaða þráðinn þannig að hann fylgi með á hina hliðina. Skiptið yfir í litinn natur (Noregur/Ísland og heklið 2 umf fl (í fyrstu umf með litnum natur er heklað í kring með litnum rauður/kóngablár þráður þannig að það fylgi með á hina hliðina). Skiptið yfir í litinn kóngablár (Noregur/ rauður (Ísland) og heklið 1 umf fl, heklið í kringum natur litinn þannig að hann fylgi með á hina hliðina, skiptið yfir í litinn natur (Noregur/Ísland) og heklið 2 umf fl, skiptið yfir í litinn rauður (Noregur) / kóngablár (Ísland) og heklið 3 umf fl (í fyrstu umf með rauður/kóngablár er heklað í kringum natur þráðinn þannig að það fylgi með á hina hliðina) = 11 umf. Skiptið yfir í litinn natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan. SVÍÞJÓÐ / DANMÖRK / FINNLAND: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 4. Heklið 4 umf með litnum kóngablár (Svíþjóð) / rauður (Danmörk) / kóngablár (Finnland), skiptið yfir í litinn skærgulur (Svíþjóð) / natur (Danmörk) / natur (Finnland) og heklið 2 umf fl, skiptið yfir í litinn kóngablár (Svíþjóð) / rauður (Danmörk) / kóngablár (Finnland) og heklið 4 umf fl = 10 umf. Skiptið yfir í litinn natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan. ÞÝSKALAND / HOLLAND / EISTLAND / UNGVERJALAND: Heklið nú með fleiri litum í sömu umf: Heklið 4-4-5-6-6 fl með litnum svartur (Þýskaland) / rauður (Holland) / kóngablár (Eistland) / rauður (Ungverjaland), skiptið lit – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2, í rauður (Þýskaland) / natur (Holland) /svartur (Eistland) / natur (Ungverjaland) og heklið 4-4-5-6-6 fl, skiptið umf lit yfir í litinn skærgulur (Þýskaland) / kóngablár (Holland) / natur (Eistland) / grænn (Ungverjaland) og heklið út umf, snúið við og heklið fl í umf með alveg eins litum yfir hvern annan alls 12 umf. Skiptið yfir í litinn natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan. SPÁNN: Heklið nú með fleiri litum í sömu umf. Heklið 3-3-4-5-5 fl með litnum rauður og skiptið yfir í litinn skærgulur – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2 og 3 og heklið 6-6-7-8-8 fl, skiptið yfir í litinn rauður og heklið 3-3-4-5-5 fl, snúið við og heklið fl umf með alveg eins litum yfir hvern annan þar til heklað hefur verið yfir alls 12 umf. Skiptið yfir í litinn natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan. FRAKKLAND / ÍTALÍA: Heklið 4 umf fl með litnum kóngablár (Frakkland) / ólífa (Ítalía), skiptið yfir í litinn natur (Frakkland /Ítalía) og heklið 4 umf fl, skiptið yfir í rauður (Frakkland) / rauður (Ítalía) og heklið 4 umf fl = 12 umf. Skiptið yfir í natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan. PÓLLAND: Heklið 6-6-7-9-9 fl með litnum natur, - LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2, skiptið yfir í litinn rauður (látið endann vera ca 30 cm langan í byrjun) og heklið 6-6-8-9-9 fl, snúið við og heklið fl umf með alveg eins lit yfir hvern annan í alls 12 umf. Látið rauða endann einnig vera ca 30 cm langan áður en klippt er frá. Þegar eyrnabandið er lokið er saumað með smáu spori með endunum meðfram natur lita einingunni til þess að ramma fánann inn. Haldið síðan áfram með litnum natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan. PORTÚGAL: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR 4 (látið natur litinn fylgja með öllum kantinum þar til hann er notaður aftur). Skiptið yfir í litinn ólífa, heklið 5 umf fl, klippið frá, skiptið yfir í litinn rauður og heklið 7 umf fl. Klippið frá og skiptið yfir í litinn natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan. Heklið hring sem saumaður er síðan á fánann í lokin þannig: Heklið 4 ll með heklunál nr 4,5 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, heklið síðan 6 fl um hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl. – Lesið HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn rauður og heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl, endið á 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn skærgulur og heklið * 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl = 18 l. Klippið frá og festið enda. Saumið hringinn niður á fánann rétt yfir litaskiptin fyrir miðju á fánanum. TÉKKLAND: Heklið 1 umf með fl með litnum kóngablár, snúið við og heklið 11-11-14-17-17 fl, skiptið yfir í litinn natur og heklið 1 fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2, snúið við og heklið 2 fl, skiptið yfir í litinn kóngablár, heklið þar til 2 fl eru eftir í umf, skiptið yfir í litinn rauður og heklið 2 fl, snúið við og heklið 3 fl, skiptið yfir í litinn kóngablár (passið uppá að leggja þræðina á sömu hlið), heklið þar til 3 l eru eftir og skiptið yfir í litinn natur. Heklið út umf. Haldið áfram að hekla fl umf með 1 fl fleiri af rauður og natur þar til rauður og natur mætast fyrir miðju. Klippið frá litinn kóngablár. Haldið áfram að hekla fl umf með litnum rauður og natur með alveg eins litum yfir hvern annan þar til heklað hefur verið alls 12 umf. Látið rauða þráðinn vera ca 30 cm lanan áður en klippt er frá. Þegar eyrnabandið er lokið eru saumuð lítil spor með endunum sem liggja meðfram natur lituðu einingunni til þess að ramma inn fánann. Skiptið yfir í litinn natur og lesið áfram undir HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND að neðan. BRETLAND: Heklið 5-5-6-7-7 fl með litnum kóngablár, skiptið yfir í litinn rauður og heklið 2-2-3-4-4 fl, JAFNFRAMT er heklað í kring með litnum kóngablár, skiptið til baka yfir í litinn kóngablár og heklið 5-5-6-7-7 fl, snúið við. Heklið í sömu litum yfir hvern annan 3 umf til viðbótar = alls 4 umf, en látið rauða þráðinn fylgja með við kantinn fyrir síðustu umf. Heklið 2 umf með fl með litnum rauður, heklið síðan 5-5-6-7-7 fl með litnum kóngablár (látið rauða þráðinn fylgja með), skiptið yfir í litinn rauður og heklið 2-2-3-4-4 fl, JAFNFRAMT er heklað í kring með litnum kóngablár, skiptið til baka yfir í litinn kóngablár og heklið 5-5-6-7-7 fl, snúið við. Heklið með sama lit yfir hvern annan í 3 umf fl til viðbótar = alls 4 umf. Skiptið yfir í litinn natur. Fáninn er skreyttur með kl sem eru heklaðar í gegnum eyrnabandið í lokin þannig: Stingið heklunálinni í stykkið yst í l í horninu á einni af bláu einingunni, sækið rauða þráðinn neðanfrá og dragið hann upp í gegnum stykkið, hoppið frá um eina l. * Stingið heklunálinni í gegnum stykkið, sækið þráðinn neðanfrá og dragið hann upp í gegnum l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* þversum fram að rauða krossinum. Heklið svona í öll fjögur hornin og heklið alveg eins með natur til vinstri innan við rauðu kl. Klippið frá og festið enda. HALDIÐ ÁFRAM MEÐ EYRNABAND (Á við um öll eyrnaböndin fyrir utan USA): Haldið áfram fram og til baka með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist ca 42-44-46-48-50 cm eða að óskaðri lengd. Klippið frá og notið endann til þess að sauma saman eyrnabandið við miðju að aftan, saumið kant í kant til þess að saumurinn verði ekki of þykkur. EYRNABAND USA: Byrjið með að hekla fánann, heklið síðan afgang af eyrnabandinu. FÁNI: Heklið 10 ll (heklið 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með litnum rauður. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni. Heklið nú 1 fl í hverja ll út umf = 9 fl. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2, 3 og 4, skiptið yfir í litinn natur og heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Nú hafa verið heklaðar 9-9-11-13-13 umf. Skiptið yfir í litinn kóngablár, heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl – Passið uppá að hekla í kringum bæði rauða og natur þráðinn. Heklið nú með litnum natur eða rauður yfir síðustu 5 fl (stillið af að mynstrið verði alltaf 2 umf með hvorum lit á eftir hvor öðrum). Heklið svona í 4-4-6-8-8 umf til viðbótar. Nú eru 14-14-18-22-22 umf í fána. Saumið út litla FRANSKUR HNÚTUR með litnum natur – sjá útskýringu að ofan, á kóngabláu eininguna. Klippið frá og festið enda. EYRNABAND: Heklið 13-13-16-19-19 fl meðfram hægri hlið og heklið fram og til baka með fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 1, þar til stykkið (fáni meðtalinn) mælist ca 22-22-23-24-24 cm. Takið upp 13-13-16-19-19 l í vinstri hlið og heklið fram og til baka með fl þar til allt stykkið mælist ca 42-44-46-48-50 cm eða að óskaðri lengd. Klippið frá og notið endann til þess að sauma saman eyrnabandið við miðju að aftan, saumið kant í kant til þess að saumurinn verði ekki of þykkur. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Diamond Debbie wrote:
Country Pride headband or Around the World headband. I see there isn't one for Canada. :(
09.08.2017 - 01:48Barb Dowdy wrote:
How about Patriot or Patriotic Headgear?
10.05.2017 - 20:31Paola wrote:
Buongiorno devo realizzare ai ferri una sciarpa con inserto bandiera dell'Inghilterra. Mi può dare istruzioni dettagliate?
01.03.2014 - 16:17DROPS Design answered:
Buongiorno Paola, i modelli DROPS sono quelli che trova sul sito, non possiamo fare modelli su misura; in questo caso può prendere spunto dalla fascia e utilizzare il motivo della bandiera dell'Inghilterra per realizzare la sciarpa. Buon lavoro!!
02.03.2014 - 13:32Catlady wrote:
Not all countries are represented... :(
11.02.2014 - 16:52Judy wrote:
Do you have any knit patterns for theOlympics. I love the headbands with the flags but would like to knit them.
11.02.2014 - 01:54DROPS Design answered:
Dear Judy, you will find here some knitted patterns that could inspire you. Happy knitting!
11.02.2014 - 09:32