DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10450.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Silverwood

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Snow í áferðamynstri með kraga í stroffprjóni. Stærð S - XXL.

DROPS 174-23
DROPS Design: Mynstur nr ee-575
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L - XL - XXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
950-1050-1100-1250 g litur nr 23, móbrúnn

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l x 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10450.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. 1. umf í mynstri = rétta.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um handveg):
Fækkið l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á undan 1 kantlykkju þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið l á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
ATH: Í næstu umf (= frá röngu) eru l innan við kantlykkju alltaf prjónaðar br (svo að það verði 1 l sl innan við kantlykkju fyrir frágang).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í stykkjum fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 56-59-65-71 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 0-3-3-3 l br, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 7 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 55-59-65-69 l í fyrstu umf. Prjónið síðan A.1, endið með 1. l í A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út með 11 cm millibili alls 3 sinnum – útauknar l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur = 61-65-71-75 l. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44 cm fellið af 3 l í hvorri hlið fyrir handveg. Fellið síðan af fyrir handveg þannig – LESIÐ ÚRTAKA: Fækkið um 1 l í annarri hverri umf alls 2-3-5-6 sinnum = 51-53-55-57 l. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68 cm fellið af miðju 15-17-15-17 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú um 1 l í næstu umf frá hálsi = 17-17-19-19 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70 cm. Prjónið hina öxlina.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp eins og á bakstykki og prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 1-4-4-4 l, prjónið 0-3-3-3 l sl og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Jafnið síðan lykkjufjöldann út eins og á bakstykki áður en haldið er áfram með A.1 og útaukningar í hvorri hlið.
Fellið af fyrir handveg eins og á bakstykki og prjónið síðan þar til stykkið mælist 57-59-60-62 cm. Setjið nú miðju 9-11-9-11 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsi þannig: Fækkið um 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 17-17-19-19 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70 cm. Prjónið hina öxlina.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 26-26-32-32 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið stroff (= 3 l sl, 3 l br) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í 7 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 28-28-30-30 l í fyrstu umf. Prjónið síðan A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12-14-14-13 cm aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Aukið svona út með 3½-3-3-3 cm millibili alls 11-12-12-13 sinnum – útaukningar l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstri = 50-52-54-56 l. Þegar ermin mælist 50-50-50-51 cm fellið af fyrir handveg í byrjun umf í hvorri hlið þannig: 3 l 1 sinni, síðan eru felldar af 2 l í byrjun umf í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-57-59-60 cm, fellið síðan af 3 l í byrjun 2 næstu umf áður en allar l eru felldar af, stykkið mælist ca 57-58-60-61 cm.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KRAGI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.
Prjónið upp frá réttu ca 60 til 72 l í kringum hálsmál (meðtaldar l á þræði að framan) á stutta hringprjóna nr 8. Prjónið 1 umf br þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 60-66-66-72 l. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar kraginn mælist 7 cm eru allar 3 l br auknar út til 4 l br = 70-77-77-84 l. Þegar kraginn mælist 14 cm eru allar 4 l br fækkaðar í 3 l br = 60-66-66-72 l. Haldið áfram með stroff þar til kraginn mælist 21 cm. Fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br – ATH: Til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er slegið uppá prjóninn á eftir 6. hverri l JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg l).

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 174-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Sophie wrote:

Bonjours je ne comprend pas les aiguille 8 snow ses quoi et aussi je peux savoir le nom du point de fantaisie et comment on le fait je ne comprend pas et est ce que je peux tricoter le dos et le devant ensemble sans faire de couture ? Si oui quel serait les etaple a faire ? Pour 2xl svp si possible Merci

08.08.2023 - 12:42

DROPS Design answered:

Bonjour Sophie, Snow est le nom de la laine utilisée pour tricoter ce pull (cf nuancier); les aiguilles 8, la taille des aiguilles utilisées pour une tension de 11 m x 15 rangs = 10 x 10 cm; je ne connais pas le nom du point, désolée, tricotez A.1 ainsi, R1 (sur l'endroit): tout à l'endroit, R2 (sur l'envers): (1 m end, 1 m env), répétez de (à). Vous pouvez tricoter en allers et retours sur aiguilles droites - retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

08.08.2023 - 16:16

country flag Elisabeth wrote:

Har en fråga om mönstret. Är detta rätt? Sett från rätsidan, varv 1: alla maskor är räta. Sett från rätsidan , varv 2: 1 kantmaska sedan 1 maska rät, 1 maska avigt osv. Avslutning på varv 2 är en rät maska och sedan en kantmaska.

15.12.2022 - 18:10

DROPS Design answered:

Hej Elisabeth. Ja det stämmer (den första och sista rätmaskan på varv 1 är då kantmaskor). Mvh DROPS Design

16.12.2022 - 13:46

country flag Elisabeth wrote:

Hej Har en fråga om minskningen för hals på framstycket. 1. På höger sida, görs minskningen från avigsidan? 2. Görs minskningen innanför sista maskan? 3. Hur minskar man "2 maskor 1 gång" Tacksam för svar

05.12.2022 - 14:00

DROPS Design answered:

Hei Elisabeth. Vi har forandret FELLETIPS til bare å gjelde ermhull, ikke halskant. Da blir det mer riktig. mvh DROPS Design

13.12.2022 - 08:41

country flag Mehwish wrote:

There is no video for this ridge stitch . i am completly lost

27.07.2022 - 21:31

DROPS Design answered:

Dear Mehwish, ridge = work 2 knitted rows (all stitches are knitted). Where do you have problems working it? Or do you mean rib stitch?

31.07.2022 - 18:24

country flag Ghg wrote:

“ Når arb måler 41-42-43-44 cm lukkes der 3 m af i hver side til ærmegab” lukkes der af på indersiden af kantmasken eller lukkes denne af?

26.02.2022 - 11:43

country flag Terttu wrote:

Mistä löydän miesten koot? Eli rinnanympärys on 100cm, mikä on oikea koko?

14.02.2022 - 20:00

DROPS Design answered:

Hei, mitat löytyvät ohjeen alapuolella olevasta mittapiirroksesta.

16.02.2022 - 17:52

country flag Gitte Lysgaard wrote:

Kan det være rigtigt at der kun skal slås 59 masker op til ryg til en mand i str L. Det virker som om der kun er til et barn

06.09.2021 - 19:08

DROPS Design answered:

Hej Gitte, Strikker du med DROPS Snow, har du 11 masker på 10 cm i bredden, så får du målene du finder i måleskitsen nederst i opskriften :)

08.09.2021 - 15:49

country flag Nyx wrote:

Bonjour, combien de pelotes me faut-il pour chaque taille? Ce n'est indiqué nulle part...

25.03.2021 - 13:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Nyx, vous trouverez toujours la quantité nécessaire pour chaque taille au poids, dans l'en-tête, autrement dit, il faut ici en taille S/M: 950 g DROPS Snow/50g la pelote = 19 pelotes DROPS Snow en taille S/M.Bon tricot!

25.03.2021 - 15:58

country flag Mariarosa wrote:

Leggo: Quando la manica misura 50-50-50-51 cm, intrecciare per l’arrotondamento della manica all’inizio del ferro da ciascun lato, come segue: 3 m 1 volta, poi intrecciare 2 m all’inizio del ferro da ciascun lato finché la manica non misura 56-57-59-60 cm; Per lo scalfo delle maniche, la diminuzione di 2 maglie, va eseguita 1 sola volta o su tutti i giri , fino a raggiungere la misura della taglia in questione?

28.02.2021 - 09:30

DROPS Design answered:

Buonasera Mariarosa, la diminuzione di 2 maglie va eseguita fino al raggiungimento della misura indicata. Buon lavoro!

28.02.2021 - 21:07

country flag Catalina wrote:

Hola! Para la espalda en la talla L, debo montar 59 puntos, los que incluyen los puntos de borde o 61 puntos? Cómo se realiza un pliegue? Gracias! Catalina

27.06.2020 - 21:26

DROPS Design answered:

Hola Catalina. Los puntos de orillo están incluidos en el total de puntos para montar. Cuando trabajamos en punto musgo, dos filas forman un pliegue, como pone en las explicaciones encima del patrón.

29.06.2020 - 21:04