DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Evening Promenade

Prjónuð peysa með djúpu v-hálsmáli og vösum úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-14
DROPS Design: Mynstur ai-053
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-550-650-700 g litur 03, perlugrár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um háls):
Fækkið lykkjum innan við 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 7 kantlykkjum að framan þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum á undan 7 kantlykkjum að framan þannig: 2 lykkjur slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
S: 6, 15, 23, 31, 39, 47 og 55 cm
M: 5, 13, 22, 30, 39, 47 og 56 cm
L: 5, 14, 23, 32, 41, 50 og 59 cm.
XL: 4, 12, 20, 28, 36, 44, 52 og 60 cm.
XXL: 3, 11, 20, 28, 37, 45, 54 og 62 cm.
XXXL: 5, 13, 22, 30, 38, 46, 55 og 63 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 90-98-106-114-122-134 lykkjur á hringprjóni 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan frá réttu – þannig: 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 4 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff og garðaprjón í 4 cm, skiptið síðan yfir á hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar sem fækkað er um 8-10-10-10-8-10 lykkjur jafnt yfir, lykkjum er ekki fækkað í garðaprjóni = 82-88-96-104-114-124 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 21 cm er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið í lok næstu 2 umferða = 84-90-98-106-116-126 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-69 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, í annarri hverri umferð þannig: 2-2-3-3-3-3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-0-0-0-1-3 sinnum = 80-86-88-92-96-98 lykkjur. Þegar stykkið mælist 75-78-81-84-87-89 cm er byrjað að prjóna garðaprjón yfir hálsmál JAFNFRAMT er byrjað að fella af fyrir öxl. Prjónið þannig:

HÁLSMÁL:
Prjónið 6 umferð garðaprjón yfir miðju 30-30-32-32-34-36 lykkjur (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður), fellið síðan af miðju 16-16-18-18-20-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú um 1 lykkju innan við 7 lykkjur garðaprjón í næstu umferð frá hálsi – LESIÐ ÚRTAKA.

ÖXL:
Fellið af í annarri hverri umferð fyrir öxl þannig: 6-6-6-7-7-7 lykkjur 4 sinnum, 7-10-10-8-9-9 lykkjur 1 sinni (= alls 31-34-34-36-37-37 lykkjur felldar af fyrir öxl). Endurtakið í hinni hliðinni.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 53-57-61-65-69-73 lykkjur (meðtaldar 7 kantlykkjur að framan) á hringprjóna 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan frá réttu – þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 4 lykkjur garðaprjón.
Prjónið stroff og garðaprjón í 4 cm – MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón með garðaprjóni í hvorri hlið þar sem fækkað er um 5-6-6-6-5-4 lykkjur jafnt yfir, ekki fækka lykkjum yfir lykkjur í garðaprjóni = 48-51-55-59-64-69 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 21 cm er fitjuð upp 1 kantlykkja í lok næstu umferðar frá réttu = 49-52-56-60-65-70 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hlið.
Þegar stykkið mælist 57-58-60-62-64-65 cm fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 7 kantlykkjur að framan – Munið eftir ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð alls 3-4-4-5-5-5 sinnum og í annarri hverri umferð alls 13-12-13-12-13-14 sinnum – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-69 cm fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá röngu eins og á bakstykki. Þegar affelling fyrir handveg og hálsmáli er lokið eru 31-34-34-36-37-37 lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 75-78-81-84-87-89 cm fellið af fyrir öxl eins og á bakstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. fellið af fyrir handveg í byrjun á umferð frá réttu. Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við kantlykkjur að framan í lok umferðar frá réttu. Fellið af fyrir öxl í byrjun umferðar frá réttu. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 38-38-42-42-46-46 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið stroff í 4 cm, skiptið síðan yfir í hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 34-34-38-38-42-42 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7-7-6-6-6-7 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 5½-4-4-3-2½-2 cm millibili alls 6-8-8-10-11-12 sinnum = 46-50-54-58-64-66 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-37-36-35-34-32 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4-4-3-5-6-8 sinnum, síðan eru felldar af 3 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 42 cm í öllum stærðum. Fellið af.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermi í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju niður að garðaprjóni í hlið (= 21 cm klauf). Saumið tölur í vinstri kant að framan.

VASI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 38-38-38-40-40-40 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 18-18-18-20-20-20 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, fellið af. Prjónið annan vasa alveg eins. Saumið vasana á framstykki, ca 13-13-13-14-14-14 cm frá neðsta kanti og 7-7-8-8-9-9-cm inn frá miðju að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.08.2017
Nýtt efnismagn:DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)400-450-500-550-650-700 g litur 03, perlugrár

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (53)

country flag Jacqueline wrote:

Kan ik de parelmoeren knopen ook bestellen?

10.02.2024 - 10:52

DROPS Design answered:

Dag Jacqueline,

Het bestellen van garens en knopen e.d. gaat via een van de verkooppunten die onze artikelen verkopen; wij verkopen geen materialen via de site. Via deze link vind je een lijst met verkooppunten.

10.02.2024 - 18:14

country flag Ann Jansson wrote:

Jag håller med Gisella angående ärmarna. Jag gjorde om en gång och ökade maskorna till 64 i stl L. Om man vill ha en tröja under koftan, blir det väldigt trångt. Ni brukar ha pålitliga mönster, men här får man vara flexibel, om man har någorlunda normala armar.

22.08.2023 - 23:33

country flag Éva wrote:

Hallo, Lenne egy kérdésem. Nem értem a minta leírását. A hátánál 21 cm-nél van 82 szem, leláncolok egy szélszemet a következő 2 sorban a darab mindkét oldalán, marad 84 szem. Hogy lesz 2-vel több szem ha 4 szemet leláncolok? Köszömöm előre is a válasz.

06.01.2023 - 11:25

DROPS Design answered:

Kedves Éva! Köszönjük a kérdését. Javítottuk a mintát, azt a két szemet nem leláncolni kell, hanem a sor két szélén egy-egy szemet fel kell szedni szélszemnek. A leírást javítottuk. Sikeres kézimunkázást!

20.03.2023 - 07:13

country flag Gisella Werner wrote:

Hej, Ärmarna är alldeles för smala och korta. Jag stickar med Drops Air och har gjort enligt mönstret. Räknat maskor och centimetrar flera gånger om, men ändå blir det alldeles för litet och trångt. Nu repar jag upp. Ganska irriterande.

18.11.2022 - 21:29

DROPS Design answered:

Hei Gisella. Denne jakken har 3/4 armer og skal være ca 42 cm. Sjekk ut målskissen nederst på oppskriften. Passer din strikkefasthet med det som står i oppskriften? 17 masker og 22 pinner glattstrikk på 10 cm i bredden og 10 cm i høyden? mvh DROPS Design

21.11.2022 - 11:01

country flag Janette wrote:

Hello, I have followed the pattern to make the back and both front pieces and they are fine, however I have made a sleeve and it is too narrow. The sleeve cap will not fit the armhole opening, it's too small. I have the correct tension. I used google translate and it appears someone else has had the same problem but I wasn't able to find an answer. Could you please advise if I can fix this by adding more stitches to the sleeve width and how many should I add. Thank you

18.11.2022 - 16:35

DROPS Design answered:

Dear Janette, it's not a problem of the sleeve cap; the armhole itself for this model is quite narrow. So you would need to change the armhole's width (not just the sleeve cap). You could check out the following model: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=7129&cid=19 to try if the sleeve will fit better. We will get in touch with the design department to check that there is no problem with the measurements. Happy knitting!

20.11.2022 - 23:52

country flag Anastasia wrote:

Guten Tag, kurze Frage, muss die Jacke hängend oder liegend gemessen werden? Danke!

01.11.2022 - 11:04

DROPS Design answered:

Liebe Anastasia, mit dieser Wolle sollte es keinen Unterschied (oder so wenig) zwischen hängend/liegend sein. Viel Spaß beim stricken!

01.11.2022 - 15:31

country flag Marie Luise wrote:

Liebes DROPS-Team, es heißt "für die Armkugel am Anfang jeder Reihe, d.h. beidseitig, wie folgt abketten: 3 Maschen 1 x, 2 Maschen 4-4-3-5-6-8 x, dann je 3 Maschen beidseitig bis zu einer Länge von ca, 42cm... " Heißt das, man soll vorne und hinten je 3 M abketten (6M), danach je 2 M vorne UND hinten (z.b. bei XXL 12M)? Ist ein bisschen unklar, ob die 2 M auch beidseitig abgekettet werden sollen. Vielen Dank für Eure Hilfe!

21.10.2022 - 20:40

DROPS Design answered:

Liebe Marie Luise, die Maschen sollen Sie am Anfang jeder Reihen, dh jeder Hin- sowie jeder Rückreihen abketten, damit dieselbe Maschananzahl beidseitig abgekettet wird, dh in XXL ketten Sie 3 Maschen am Anfang der 2 ersten Reihen (3 M x 1 beiseitig) dann 2 Maschen am Anfang der 12 nächsten Reihen (dh 2 M x 6 beidseitig) ab; dann ketten Sie 3 Maschen am Anfang der 2 nächsten Reihen bis die Arbeit 42 cm misst. Viel Spaß beim stricken!

24.10.2022 - 07:41

country flag Elin wrote:

Går det att göra den med full längd på ärmarna? Hur ska jag gå tillväga då i storlek S?

10.08.2022 - 17:27

DROPS Design answered:

Hej Elin, da kan du strikke 8 cm mere (eller ønsket længde) inden du begynder med ærmkullen :)

11.08.2022 - 08:37

country flag Claudia wrote:

Vielen Dank für die schnelle Antwort. LG Claudia

23.01.2022 - 11:32

country flag Claudia wrote:

Hallo. Ich würde gern wissen,ob beim Rückenteil nach 21 cm nur noch rechte Maschen gestrickt werden, oder die 4 kraus rechts Maschen weiter gestrickt werden? LG Claudia

09.01.2022 - 23:25

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, wenn Sie die eine Randmasche beidseitig angeschlagen haben, stricken Sie glatt rechts mit je 1 Randmasche Krausrechts beidsetig weiter. Viel Spaß beim stricken!

10.01.2022 - 09:06