A Wistful Dream |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað poncho með gatamynstri og hekluðum ferningum, heklað ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-16 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. HEKLLEIÐBEININGAR-1: Fyrsta stuðli í byrjun umferðar er skipt út fyrir 3 loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. HEKLLEIÐBEININGAR-2 (mynsturteikning): Hver umferð byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. LITIR: Allt stykkið er heklað með litnum ljós beige fyrir utan 3 umferðir sem merktar eru með einum svörtum ferningi í mynsturteikningu, þessar umferðir eru heklaðar með litnum bleikfjólublár. Ferningurinn er heklaður með litnum ljós beige fyrir utan 4. umferðina (= umferð með samanhekluðum stuðlum), þessi umferð er hekluð með litnum bleikfjólublár. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í/um sömu lykkju. ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 stuðul + 1 loftlykkju með því að hekla 1 stuðul, 1 loftlykkju, 1 stuðul og 1 loftlykkju um sömu loftlykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Poncho er heklað í hring ofan frá og niður í 3 stykkjum sem eru hekluð saman. Byrjið með fyrsta stykki, síðan eru ferningarnir heklaðir hver fyrir sig sem stykki 2. Síðan eru ferningarnir settir saman og stykki 3 er heklað áfram þaðan. Lykkjur eru auknar út mitt að framan og mitt að aftan eins og útskýrt er í mynsturteikningu, annars er aukið út jafnt yfir meðfram hliðum. STYKKI EITT: Umferðin byrjar á vinstri öxl. Heklið 146-178-206 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum ljós beige og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 5-3-5 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 5-7-8 sinnum til viðbótar (= 30-36-42 stuðlar), 1 loftlykkja (= miðjubogi að framan), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4-4-4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 13-16-19 sinnum til viðbótar (= 60-72-84 stuðlar meðfram hlið), 1 loftlykkja (= miðjubogi að aftan), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 6-4-6 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 5-7-8 sinnum til viðbótar (= 30-36-42 stuðlar meðfram hálfri hlið) = alls 120-144-168 stuðlar og 2 loftlykkjur í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið síðan eftir mynsturteikningu – LESIÐ LITIR og HEKLLEIÐBEININGAR-2. Aukið út í hverri stuðlaumferð merktri með ör – LESIÐ ÚTAUKNING-1! A.1 er heklað þannig: Heklið umferð 1-3 þannig: Heklið A.1A alls 5-6-7 sinnum, A.1B yfir miðjuboga, A.1A alls 10-12-14 sinnum, A.1B yfir miðjuboga, endið með A.1A alls 5-6-7 sinnum. Heklið síðan síðustu umferð og aukið út um 23-23-23 stuðla jafnt yfir hvoru megin milli miðjuboga fram og miðjuboga að aftan. Þegar A.1 er lokið á hæðina eru 100-112-124 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 200-224-248 stuðlar og 2 loftlykkjubogar í umferð). A.2 er heklað þannig: Heklið umferð 1-3 þannig: Heklið A.2A alls 8-9-10 sinnum, A.2B, A.2A alls 16-18-20 sinnum, A.2B, endið með A.2A alls 8-9-10 sinnum. Heklið síðan síðustu umferðina og aukið út 9-9-9 stuðla jafnt yfir hvoru megin milli miðjuboga fram og miðjuboga að aftan. Þegar A.2 er lokið á hæðina eru 132-144-156 stuðlar á milli loflykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 264-288-312 stuðlar og 2 loftlykkjubogar í umferð). A.3A og A.3B er heklað þannig: Heklið A.3A alls 11-12-13 sinnum, A.3B yfir miðjuboga, A.3A alls 22-24-26 sinnum, A.3B yfir miðjuboga, endið með A.3A alls 11-12-13 sinnum. Þegar A.3B er lokið á hæðina eru 73-79-85 stuðlar með 1 loftlykkju, á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 146-158-170 stuðlar með 1 loftlykkju og 2 loftlykkjubogum í umferð). A.3A og A.3C er heklað þannig: Þegar A.3A er heklað, endurtakið einungis 2 síðustu umferðirnar uppúr. Heklið A.3A alls 12-13-14 sinnum, A.3C, A.3A alls 24-26-28 sinnum, A.3C, endið með A.3A alls 12-13-14 sinnum. Haldið áfram til og með 4.-6.8. umferð í A.3C. Nú eru 77-85-93 stuðlar með 1 loftlykkju, á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 154-170-186 stuðlar með 1 loftlykkju og 2 loftlykkjubogum í umferð). Klippið frá, byrjið næstu umferð eins og útskýrt er í A.4A, þ.e.a.s. ekki um miðjubogann, heldur nákvæmlega innan í. A.4 heklið þannig: Í 1. umferð er aukið út um 1-2-0 stuðla (með 1 loftlykkju) jafnt yfir hvoru megin milli miðjuboga fram og miðjuboga við miðju að aftan – LESIÐ ÚTAUKNING-2, heklið nú þannig: Heklið * A4.A, A.4B alls 25-28-30 sinnum *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Heklið síðan umferð 2-4. Heklið síðan umferð 5 og fækkið um 2-0-0/aukið út um 0-0-8 stuðla jafnt yfir hvoru megin milli miðjuboga fram og miðjuboga við miðju að aftan. Þegar A.4 er lokið á hæðina eru 160-180-200 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 320-360-400 stuðlar og 2 loftlykkjubogar í umferð). Klippið frá og festið enda. Geymið stykkið og heklið stykki tvö. STYKKI TVÖ: Heklið alls 18-20-22 alveg eins ferninga. Einn ferningur mælist 11 cm á breidd x 11 cm á hæð. ATH! Mikilvægt er að halda þessu máli svo að ferningarnir passið við mál á síðustu umferð á stykki eitt. FERNINGUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum ljós beige og tengið saman í hring með einni keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – Munið eftir LITIR. Haldið áfram hringinn eftir A.5 þar til ferningurinn hefur verið heklaður til loka. Klippið frá og festið enda. Heklið 17-19-21 ferninga til viðbótar alveg eins. FRÁGANGUR FERNINGAR HEKLAÐIR SAMAN: Leggið saman 10-11-12 ferningur í eina lengju (ferningur í hvorum ytri kanti = við miðju að framan og við miðju að aftan á poncho). Leggið ferninga 2 og 2 ofan á hvorn annan með röngu á móti röngu og heklið þá saman í gegnum bæði lögin þannig: 1 fastalykkja í miðju loftlykkju í horni, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, * 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 1 fastalykkju um næsta boga (= horn), 2 loftlykkjur, endið með 1 fastalykkju í miðju loftlykkju í horni. Leggið saman hina 8-9-10 ferningana í eina lengju og heklið saman alveg eins. Leggið 2 lengjurnar saman þannig að það myndist horn í hvorri hlið (þ.e.a.s. við miðju að framan og við miðju að aftan – sjá mynsturteikningu) og heklið saman alveg eins og áður. FRÁGANGUR FYRSTA OG ANNAÐ STYKKI: Leggið stykki eitt = 160-180-200 stuðlar, saman með stykki tvö (þ.e.a.s. hlið með stysta ummál á ferningum): Heklið stykkin saman í gegnum bæði lögin (passið uppá að yfir hvora hlið á hverjum ferning 5 loftlykkjubogar eru heklaðir 20 stuðlar) þannig: Heklið * 1 fastalykkju í næsta stuðul og um loftlykkjubogann á ferningi, hoppið yfir 3 stuðla *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, yfir miðjubogana er að auki heklaðar 3 loftlykkjur (= miðja að framan og miðja að aftan). Klippið frá og festið enda. STYKKI ÞRJÚ: Heklið síðan áfram hringinn á stykki tvö þ.e.a.s. þá hlið með stærsta ummálið á ferningum, nú eru 10-11-12 hliðar á ferningum hvoru megin við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 20-22-24 hliðar). Byrjið í einu horni. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-2. Heklið 4 stuðla um hvern og einn af 5 loftlykkjubogum á hverjum ferning fram að næsta horni, heklið 3 loftlykkjur (= miðjubogi), heklið 4 stuðla um hvern og einn af 5 loftlykkjubogum á hverjum ferning fram að næsta horni, endið með 3 loftlykkjur (= miðjubogi). Nú eru 200-220-240 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 400-440-480 stuðlar og 2 loftlykkjubogar í umferð). A.6 er heklað þannig: Heklið * A.6A alls 33-37-40 sinnum, A.3B yfir miðjuboga *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Þegar A.6 er lokið á hæðina eru 215-239-257 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 430-478-514 stuðlar og 2 loftlykkjubogar í umferð). Klippið frá og festið enda. SNÚRA: Klippið 2 þræði beige og 2 þræði í litnum bleikfjólublár ca 4 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda ca 5 cm frá enda. Þræðið snúruna upp og niður með byrjun frá miðju að framan í gegnum götin í 3. umferð frá hálsmáli. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (37)
Paloma wrote:
Hola, es necesario bloquear cuando esté ya terminado? Gracias.
11.04.2022 - 13:30DROPS Design answered:
Hola Paloma, si, siepre. Saludos!
11.04.2022 - 13:41Emilia wrote:
Also gehe ich davon aus, dass woanders angefangen wurde. Ich darf auch nicht bei der ersten R. von A.3A nach A.3B wieder mit einem Stb. anfangen, sondern mit einer LM, sonst habe ich ein Stb. zu viel. Wenn ich jetzt pro R. ein Stb dazugewinne ,bin ich am Ende von A.3C bei 87 Stb, soll aber laut Anleitung erst 85 haben. Oder häkel ich einfach bis 87 und muss laut A.4 dafür keine 2 Stb zunehmen? Und warum wurden bei dem Poncho (Foto) nur 11 R. Stb-LM gehäkelt, während es laut A.15 sind?
24.01.2022 - 19:23DROPS Design answered:
Liebe Emilia, wie zuvor vorgeschlagen, am besten häkeln Sie mit Markierungen zwischen allen Diagrammen, so können Sie am besten die richtige Maschenanzahl haben und behalten. Damit die Maschenanzahl die Diagramme und Anleitung passt, häkeln Sie am besten wie beschrieben, aber gerne können Sie auch Ihre eigene Änderungen machen. Viel Spaß beim häkeln!
25.01.2022 - 09:28Emilia wrote:
Hallo, ich habe A.3A /B gehäkelt und festgestellt, dass ich auf der Anfangsseite mehr Stb. hatte als auf der anderen. Laut Diagramm beginnt man jede 2. Reihe mit einer LM , gleichzeitig steht in der Häkelinfo-2 , dass mann jede Runde mit 3 M. beginnen soll. Dann habe ich nochmal angefangen und immer beim Rundenende ein Stb weniger gehäkelt. Der Übergang sah trotzdem nicht schön aus , da in diesem Muster jede Abweichung auffällt. Auf dem Foto sieht man keinen sichtbaren Übergang,
24.01.2022 - 19:00DROPS Design answered:
Liebe Emilia, schauen Sie wieviele A.3A Sie auf beiden Seiten haben, und jeweils wieviele Stäbchen, setzen Sie Markierungen zwischen jedes Diagram und so können Sie am besten immer die genaue Maschenanzahl häklen (auch in A.3B). Hoffentlich kann es Ihnen helfen.
25.01.2022 - 09:23Kitty Roeffen wrote:
Vraag Is er een filmpje omeen poncho te haken
19.11.2021 - 14:09Jessica wrote:
Al final de la primera vuelta de 120 puntos altos me sobran 24 puntos de la cadena de inicio. No me gustan las cuentas... 120 pa más 28 puntos que se saltan dan 148 y entonces me sobran los 24 puntos de la cadena. Por favor me explicas cómo hacerlo?
13.03.2021 - 00:09DROPS Design answered:
Hola Jessica, había un fallo en el inicio del patrón, había 146 puntos de cadeneta iniciales y se saltan 26.
21.03.2021 - 20:17Françoise Laplace wrote:
J' ai commencé le premier rang de mon pencho 176-17 et pour le deuxième rang je suis perdue car je ne comprends pas : CrocheterA.1 ainsi: Crocheter les tours 1-3 ainsi: 5-6-7- fois A.1A au total,1B au de dessus de l arceau du milieu Je ne comprend pas le anagramme D avance merci pour me donner des conseils
18.09.2020 - 14:55DROPS Design answered:
Bonjour Mme Laplace, vous devez crocheter les tours 1 à 3 de A.1 comme indiqué, autrement dit répéter A.1A en largeur sur les côtés avec A.1B au-dessus de l'arceau du milieu (pointe du milieu devant et du milieu dos) = le tour commence au milieu d'un des côtés, vous devrez ainsi répéter 5, 6 ou 7 fois A.1A avant la pointe du milieu où vous crochetez A.1B, puis répéter 10, 12 ou 14 fois A.1B avant la pointe du miieu = A.1B et terminer par A.1A jusqu'au début du tour (= 5, 6 ou 7 fois en largeur). Bon crochet!
18.09.2020 - 15:59Betty wrote:
Kann es sein dass im ersten Teil etwas mit der Luftmaschenanzahl nicht stimmt? Wenn ich für die Größe L XL 178 Luftmaschen anschlage komme ich mit den Stäbchen in der Anleitung nicht hin. Also es fehlen Luftmaschen
26.07.2020 - 12:17DROPS Design answered:
Liebe Betty, es müsste passen, die Maschenzahl geht auf. Vielleicht schreiben Sie sich die Zahlen für Ihre Größe gesondert auf oder markieren sie farblich, dann haben Sie einen besseren Überblick. Beachten Sie, dass Sie bei den Luftmaschenbögen (= 1 Luftmasche häkeln), die Sie an der vorderen und hinteren Mitte häkeln, keine Luftmasche überspringen. Gutes Gelingen!
27.07.2020 - 10:45Elena wrote:
I dont't understand how to reach 100 dc after increasing in pattern A1 (smaller size). In the last round I have to work 6*10 +8+8 dc, in total 68 dc each side, increasing 2*10 dc in A1.A e 2dc twice in A.1B, 24 dc in total (not 23 as written in the pattern). What am I doing wrong? Thank you.
07.07.2020 - 18:36DROPS Design answered:
Dear Elena, on last round in A.1 there are: 6 sts x 5 (A.1A) + 8+9 sts (A.1B) + 6 sts x 10 (A.1A) + 8+9 (A.1B) + 6 sts x 5 (A.1A) = 154 sts in total - you then increase 23 sts on each side of each corner: 154+ 2x23=200 sts. Happy crocheting!
08.07.2020 - 07:57Svenja wrote:
Hallo, wenn ich für Größe S, wie in der Anleitung angegeben, in A.4A die erste Runde häkle und die eine Masche zunehme komme ich wieder auf 77 Maschen. Für die zweite Runde bräuchte ich aber doch 78 Maschen, oder zumindest etwas was durch drei teilbar ist, oder nicht? Für Hilfe wäre ich sehr dankbar.
24.02.2019 - 19:12DROPS Design answered:
Liebe Svenja, bei der 1. Runde häkeln Sie 2 Stb in A.4A und 3 Stb x 25 in A.4B = 75 Stb + 1 Zunahme = 76 Stb + die 2 Stb in A.4A = 78 Stb. Viel Spaß beim häkeln!
25.02.2019 - 11:04Sue wrote:
Has this pattern been corrected and is now good to go!
13.11.2018 - 20:07