Easter Sun |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðir pottaleppar með röndum og áferðamynstri úr DROPS Paris. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-1379 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. RENDUR: UMFERÐ 1: Natur UMFERÐ 2: Ljós grár UMFERÐ 3: Natur UMFERÐ 4: Ljós grár UMFERÐ 5: Natur UMFERÐ 6: Sinnep UMFERÐ 7-8: Natur UMFERÐ 9: Ljós grár UMFERÐ 10: Sinnep UMFERÐ 11-12: Natur FJÓRBRUGÐINN STUÐULL: Bregðið þræðinum 4 sinnum uppá heklunálina, stingið heklunálinni niður og undir fastalykkjuna sem hekla á utan um, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar = 1 lykkja á heklunálinni. ÞRÍBRUGÐNIR STUÐLAR SAMAN: Heklið 2 þríbrugðna stuðla saman í 1 þríbrugðinn stuðul þannig: Heklið 1 þríbrugðinn stuðul í kringum fyrsta/næsta fjórbrugðna stuðul frá umferð 7, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 þríbrugðinn stuðul hringinn um næsta fjórbrugðna stuðul alveg eins, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni = 1 þríbrugðinn stuðull. TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR SAMAN: Heklið 2 tvíbrugðna stuðla saman í 1 tvíbrugðinn stuðul þannig: Hoppið yfir 1 fastalykkju frá umferð 7, heklið 1 tvíbrugðinn utan um næstu fastalykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um næstu fastalykkju, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni = 1 tvíbrugðinn stuðull. KÚLA: Heklið 2 tvíbrugðna stuðla og 1 fastalykkju saman í 1 lykkju þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins í sömu lykkju, heklið 1 fastalykkju í sömu lykkju, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni = 1 lykkja. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- POTTALEPPAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. Heklaðir eru 4 alveg eins pottaleppar sem heklaðir eru 2 og 2 saman í lokin. POTTALEPPUR: Heklið 6 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum natur í DROPS Paris og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og mynstur A.1 alls 6 sinnum hringinn í umferð (A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Umferð 7 og 9 eru heklaðar þannig: UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkju í hvorn af fyrstu 2 stuðlunum, 1 FJÓRBRUGÐINN STUÐULL – sjá útskýringu að ofan – í kringum SÍÐUSTU fastalykkjuna frá 4. umferð, * 1 fastalykkja í hvern af næstu 5 stuðlum, 1 fjórbrugðinn stuðull í kringum fyrstu fastalykkju frá 4. umferð. Heklið 1 fastalykkju í hverjn af næstu 5 stuðlum, 1 fjórbrugðinn stuðull í kringum sömu fastalykkju og fyrri fjórbrugðni stuðull, 1 fastalykkja í hvern af næstu 5 stuðlum, heklið 1 fjórbrugðinn stuðul í kringum næstu fastalykkju frá 4. umferð *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hvern af næstu 5 stuðlum, 1 fjórbrugðinn stuðull í kringum sömu fastalykkju og fyrri fjórbrugðni stuðull, 1 fastalykkja í hvern af næstu 5 stuðlum, 1 fjórbrugðinn stuðull í kringum sömu fastalykkju og FYRSTI fjórbrugðni stuðull í umferð, 1 fastalykkja í hvern af næstu 3 stuðlum, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar = 12 fjórbrugðnir stuðlar og 5 fastalykkjur á milli hverra. UMFERÐ 9: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í hvern og einn af fyrstu/næstu 7 stuðlum, 2 ÞRÍBRUGÐNIR STUÐLAR SAMAN – sjá útskýringu að ofan, 1 fastalykkja í hvern og einn af næstu 7 stuðlum, 2 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR SAMAN – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar = 6 þríbrugðnir stuðlar í 1. loftlykkju í byrjun umferðar = 6 þríbrugðnir stuðlar saman, 6 tvíbrugðnir stuðlar saman og 7 fastalykkjur á milli hverra stuðla sem heklaðir eru saman. Þegar öll mynsturteikning A.1 og A.2 hefur verið hekluð til loka mælist stykkið ca 21 cm að þvermáli. Klippið frá og festið enda. Heklið annað stykki á sama hátt. FRÁGANGUR: Leggið báða pottaleppana saman með röngu að röngu og heklið þá saman í gegnum bæði lögin með litnum ljós grár þannig: Byrjið í 8. fastalykkju frá byrjun umferðar, festið endann með 1 keðjulykkju í þessa fastalykkju. Heklið lykkju með 10 loftlykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 12 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, * 1 fastalykkja í hverja af næstu 16 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, síðan eru heklaðar 10 keðjulykkjur um bogann á 10 loftlykkjum fyrir lykkju, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju = 108 fastalykkjur í umferð. Pottaleppurinn mælist ca 22 cm að þvermáli. Klippið frá og festið enda. Heklið annan pottalepp á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Teresa Nolasco wrote:
Gostaria de saber a técnica dos aumentos quando se utilizam vários tipos de pontos. Neste modelo, por exemplo, as voltas em ponto baixo não têm aumentos…
27.11.2022 - 15:32DROPS Design answered:
Bom dia, Pode ver no fundo da página a secção de tutoriais em vídeo para a ajudar a fazer este modelo. Bons crochés!
28.11.2022 - 11:24Els wrote:
Jammer dat jullie geen aandacht besteden aan de techniek van de lussen over het haakwerk. Hij wordt in verschillende pannenlappen toegepast. Ik heb alle filmpjes van drops haken nagezocht. Niks te vinden.
29.01.2019 - 23:40Sonja Swerts wrote:
Hallo, ik ben bezig met dit patroon. ben aan Toer 7 gekomen waar het 4-dubbele stokje komt. ik krijg dit niet netjes gehaakt, ook met het bekijken van de video lukt het me niet. Wanneer ik dit haak, trek ik heel het werkje bij mekaar... dus vermoedelijk doe ik iets mis. kunnen jullie me iets meer uitleg geven? merci Sonja
13.01.2019 - 19:50DROPS Design answered:
Dag Sonja,
Het is jammer dat ik niet even mee kan kijken wat er precies gebeurt. Lees nog even rustig de uitleg door om te kijken of je niet iets over het hoofd hebt gezien, waardoor het bij elkaar trekt. Is het ook mogelijk dat je naar de winkel gaat waar je het garen hebt gekocht, zodat iemand mee kan kijken?
17.01.2019 - 11:25Maria Giovanna Mugnano wrote:
Questo filato ha lo stesso spessore del Drops You? E' un numero 8? Da lavorare con che numero di uncinetto? Grazie
09.04.2018 - 21:27DROPS Design answered:
Buongiorno Giovanna, il filato Paris appartiene al gruppo filati C ed ha lo stesso spessore del DROPS Loves You 8. Per la misura dell'uncinetto, molti dei nostri modelli prevedono l'utilizzo dell'uncinetto misura 4,5 mm o 5,5 mm, ma dipende anche da che capo vuole realizzare. Deve provare a fare un campione. Buon lavoro!
10.04.2018 - 09:10Martine Trip wrote:
Haak je met de hoeveelheid wol die is aangegeven alleen de voorkant en de achterkant van de pannenlap of kan je er ook echt 4 pannenlappen uit halen die je later aan elkaar moet haken?
31.07.2017 - 17:58DROPS Design answered:
Hoi Martine, Met de aangegeven hoeveelheid garen kun je 2 volledige, dus inderdaad dubbelzijdige pannenlappen haken.
01.08.2017 - 19:03