DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Princess Puff

Prjónað pils með öldumynstri, blúndum og stroffi úr DROPS Kid-Silk og DROPS Alpaca eða DROPS Safran. Stærð fyrir börn 2 - 10 ára.

DROPS Children 28-2
DROPS Design: Mynstur ks-003-bn
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Stærð í cl: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140
Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
50-75-75-75-100 g litur 03, ljós bleikur
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50-50-50-50-50 g litur 3112, dauf bleikur

Eða notið bara (sjá mynd):
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
200-200-200-250-250 g litur 02, millibleikur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
---------------------------------------------------------

PILS:
Pilsið er prjónað í hring á hringprjóna. Neðri parturinn á pilsinu samanstendur af 3 blúndum sem liggja í lögum ofan á hverri annarri og eru prjónaðar úr Kid-Silk. Síðan er prjónað stroff úr Alpaca.

1. BLÚNDA:
Fitjið upp 285-304-342-361-399 lykkjur á hringprjón 3 með Kid-Silk/Safran. Prjónið nú mynstur hringinn þannig: A.1 (= 19 lykkjur) 15-16-18-19-21 sinnum á breidd = 255-272-306-323-357 lykkjur. Haldið síðan áfram með A.2 (= 17 lykkjur) yfir allar lykkju. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.2 þar til stykkið mælist 7-7-8-9-10 cm (endið eftir eina heila mynstureiningu). Prjónið nú áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 37-38-44-47-51 lykkjur jafnt yfir = 218-234-262-276-306 lykkjur. Prjónið 6-6-7-8-9 cm sléttprjón yfir allar lykkjur, í síðustu umferð er fækkað um 28-30-42-28-44 lykkjur jafnt yfir = 190-204-220-248-262 lykkjur. Geymið stykkið.

2. BLÚNDA:
Fitjið upp 247-266-285-323-342 lykkjur á hringprjón 3 með Kid-Silk/Safran. Prjónið nú þannig: A.1 (= 19 lykkjur) 13-14-15-17-18 sinnum á breidd = 221-238-255-289-306 lykkjur. Haldið síðan áfram með A.2 (= 17 lykkjur yfir allar lykkjur. Haldið áfram með A.2 þar til stykkið mælist 7-7-8-9-10 cm (endið eftir eina heila mynstureiningu). Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 31-34-35-41-44 lykkjur jafnt yfir = 190-204-220-248-262 lykkjur.

Leggið 2. blúnduna ofan á 1. blúndu og prjónið þær saman þannig 1 lykkja frá seinni blúndu er prjónuð slétt saman við 1 lykkju frá fyrri blúndu, gerið þetta svona þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar saman = 190-204-220-248-262 lykkjur. Prjónið 6-6-7-8-9 cm sléttprjón yfir allar lykkjur, í síðustu umferð er fækkað um 50-56-60-76-78 lykkjur jafnt yfir = 140-148-160-172-184 lykkjur. Geymið stykkið.

3. BLÚNDA:
Fitjið upp 190-209-228-247-266 lykkjur á hringprjón 3 með Kid-Silk/Safran. Prjónið nú hringinn þannig: A.1 (= 19 lykkjur) 10-11-12-13-14 sinnum á breidd = 170-187-204-221-238 lykkjur. Haldið síðan áfram með A.2 (= 17 lykkjur). Haldið áfram með A.2 þar til stykkið mælist 7-7-8-9-10 cm (endið umferð eftir eina heila mynstureiningu). Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 30-39-44-49-54 lykkjur jafnt yfir = 140-148-160-172-184 lykkjur. Leggið 3. blúnduna ofan á 2. blúndu og prjónið þær saman þannig: 1 lykkja frá þriðju blúndu er prjónuð slétt saman með 1 lykkju frá annarri blúndu, gerið þetta svona þar til allar lykkjurnar hafa verið prjónaðar saman = 140-148-160-172-184 lykkjur.

Skiptið yfir í Alpaca/Safran og hringprjón 2,5. Prjónið nú stroff hringinn (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 7-8-9-10-11 cm, pilsið mælist alls 26-27-31-35-39 cm.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 lykkja
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 28-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Mamen wrote:

Hola. Me gustaría saber qué cantidad de Drops Safran necesito para tejer esta falda en la talla 5-6. Veo las cantidades para Alpaca/Kid-Silk pero no para Safran. Gracias.

04.03.2024 - 12:22

DROPS Design answered:

Hola Mamen, ya hemos actualizado el patrón en español. Necesitas 200gr para las primeras 3 tallas y 250 para las 2 tallas más grandes.

10.03.2024 - 19:56

country flag Nina wrote:

I'm a little confused on how to work the flounce together in the video you have two but only one has yarn attached to it do you cut the other one off and bind it some way so it won't unravel or do you cut it and put it in the middle?

27.09.2023 - 20:33

DROPS Design answered:

Dear Nina, each flounce is worked separately. Then, you join the second flounce to the first one and the third one to the second one (with the first one already joined) as shown in the following video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1180&lang=en. You will be working with both flounces in their own set of needles, you cut the thread of the inner flounce, leaving a tail, and leave it within the inside of the piece (you can see in min. 2:44 of the video that the thread of the inner flounce is left within the piece). Happy knitting!

30.09.2023 - 23:25

country flag Rita wrote:

Salve, se volessi lavorare con i ferri dritti come posso dividere il lavoro? Grazie per la risposta

16.10.2022 - 16:37

DROPS Design answered:

Buonasera Rita, questo modello è stato progettato per una lavorazione in tondo. Per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

17.10.2022 - 23:47

country flag Santona Aceranti wrote:

Come calcolo ogni quante maglie devo fare le diminuzioni?

12.09.2022 - 14:46

DROPS Design answered:

Buonasera Santona, le maglie vanno diminuite a intervalli regolari sul giro. Buon lavoro!

12.09.2022 - 21:42

country flag May Nergård wrote:

Hei. På første omgang på A1 skal det da strikkes 2 rett sammen, 15 r, 2 rett sammen, så og begynne på nytt med 2 rett sammen, 15 rett og 2 rett sammen slik at det blir 2rett sammen etter hverandre...

22.06.2022 - 08:50

DROPS Design answered:

Hej May, ja det stemmer, sæt gerne 1 mærke imellem hver rapport, det hjælper dig også når du strikker A.2. God fornøjelse!

22.06.2022 - 10:03

country flag Lisa Lüthje Grønqvist wrote:

Hej 😊 Jeg skal blot sikre mig, at der strikkes i kun 1 tråd Kid-Silk? Jeg kan ikke rigtig tyde det på billederne. Der står blot: Slå x-antal masker op på rundpind 3 med Kid-Silk, så jeg antager, at det er 1 tråd. Vil I bekræfte? På forhånd tak ❤️

23.03.2022 - 14:24

DROPS Design answered:

Hej Lisa. Ja det stämmer att är en tråd Kid-Silk :) Mvh DROPS Design

25.03.2022 - 10:43

country flag KJ wrote:

Hi, Thanks so much for your reply. I am still planning on knitting this pattern. I'm still a little confused. From the pattern, I assume the rib waistband in a size 5/6 is 160 stitches around. If I divide that by 2.6 stitches/cm, it seems like the finished measurement in the diagram (for the waistband section) should equal 30.8cm which is half of 61.5cm. However, in the diagram it shows the measurement as 28cm. How do the 160 stitches end up 28 cm wide instead of 30.8cm? Thanks!

04.09.2021 - 12:27

DROPS Design answered:

Dear KJ, since the gauge is in stocking stitch, the ratio stitches/cm in the rib will be different. If you work with the correct gauge for the stocking stitch, the rib will measure as much as it's indicated in the measurement diagram. Happy knitting!

05.09.2021 - 17:24

country flag KJ wrote:

Hi, I would like to knit this skirt in size 5/6 or potentially 7/8. I can't seem to find how many skeins of yarn I need to complete it. How much yarn do I need for this pattern? Thanks for your help!

22.07.2021 - 04:49

DROPS Design answered:

Hi KJ, Drops Kid Silk comes in 25g balls, so for the sizes you mention you will need 3 balls. Happy knitting!

22.07.2021 - 09:48

country flag Doro wrote:

Hallo! Ich möchte die Rüschen in verschiedenen Farben stricken. Wieviel Safran werde ich dann ungefähr pro Rüsche benötigen? Liebe Grüße

07.05.2021 - 18:48

DROPS Design answered:

Liebe Frau Doro, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne weiter, auch telefonisch oder per E-Mail. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!

10.05.2021 - 10:37

country flag Elena wrote:

Buonasera, vorrei sapere se è possibile fare questa gonna con un filato di cotone e quale usare. grazie

07.01.2021 - 17:40

DROPS Design answered:

Buonasera Elena, abbiamo messo anche le quantità di filato necessario per la lavorazione con DROPS Safran. Buon lavoro!

07.01.2021 - 21:28