DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4437.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Perles du Nord

Prjónuð peysa og húfa úr DROPS Flora. Peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Húfa með marglitu norrænu mynstri.

DROPS 180-2
DROPS Design: Mynstur fl-008
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-400-450-500-550 g litur 15, grænn
50-100-100-100-100-100 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 16, pistasía

HÚFA:
Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: 54/56 - 58/60

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 01, natur
50-50 g litur 15, grænn
50-50 g litur 16, pistasía

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 2,5 fyrir stroff - eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Flora 01, 14, 10.
B) DROPS Flora 01, 07, 08.
C) DROPS Flora 03, 04, 05.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4437.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 6,6.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 5. og 6. hverja lykkju og 6. og 7. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er það gert til skiptis á eftir 6. og 7. hverja lykkju (aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt inn í mynstur svo að ekki myndist gat).

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á stykki = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum natur og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 8-8-9-10-10-11 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-16-18-20-20-22 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-27-30-30-33 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-32-36-40-40-44 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 40-40-45-50-50-55 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-48-54-60-60-66 lykkjur brugðið. Herðið á þræði og prjónið 56-56-63-70-70-77 lykkjur slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið 64-64-72-80-80-88 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan.

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.2 til A.3. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.4 og A.5.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR (á við um marglitt mynstur):
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef að það herpist saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi):
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við um húfu):
Fækkið lykkjum á eftir hverju prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 120-124-128-132-140-148 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18-16-14-12-14-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 102-108-114-120-126-132 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt. Til að flíkin passi betur er prjónuð smá UPPHÆKKUN aftan við hnakka – sjá útskýringu að ofan.
Eftir að prjónuð hefur verið upphækkun er A.1 prjónað hringinn (= 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar 6 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í umferð merktri með stjörnu í A.1 (þ.e.a.s. í næst síðustu umferð í A.1) eru 221-234-247-260-315-330 lykkjur í umferð, aukið jafnframt út 11-22-33-36-21-22 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 232-256-280-296-336-352 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er A.2 prjónað hringinn (= 29-32-35-37-42-44 mynstureiningar 8 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur, en í umferð merktri með stjörnu í A.2 (þ.e.a.s. næst síðasta umferð í A.2) er aukið út um 8-16-24-24-16-16 lykkjur jafnt yfir = 240-272-304-320-352-368 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn (= 15-17-19-20-22-23 mynstureiningar 16 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
Þegar síðasta umferð í A.3 er eftir (merkt með ör í hverri stærð) eru 315-357-399-420-462-483 lykkjur í umferð, aukið jafnframt út 11-11-1-12-0-5 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 326-368-400-432-462-488 lykkjur.
Stykkið mælist nú ca 24-26-28-30-32-34 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan. ATH: Ef stykkið er minna en þetta er prjónað sléttprjón með litnum grænn til loka.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 50-55-59-65-71-76 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 64-75-83-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 99-109-117-130-141-151 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 64-75-83-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 49-54-58-65-70-75 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 218-238-258-284-310-334 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferðina við eitt af prjónamerkjunum og prjónið sléttprjón í hring með grænn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 10. hverri umferð (ca í 3. hverjum cm) til loka (ef prjónfestan passar á hæðina þá jafngilda þær 9 útauknings umferðir í hvorri hlið).
Þegar stykkið mælist 30 cm frá skiptingu í öllum stærðum eru ca 254-274-294-320-346-370 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 82-90-98-104-114-122 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 336-364-392-424-460-492 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm.
Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 64-75-83-86-90-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-85-95-98-104-109 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur undir ermi. Byrjið umferðina hér og prjónið sléttprjón hringinn með grænn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 11-15-19-19-21-22 sinnum í S: Í 9. hverri umferð, í M: Í 6. hverri umferð, í L og XL: Í 4. hverri umferð, í XXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð og í XXXL: Í 3. hverri umferð = 52-55-57-60-62-65 lykkjur. Þegar ermin mælist 31-29-28-26-25-23 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-17-19-20-18-19 lykkjur jafnt yfir = 68-72-76-80-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 10 cm (eða að óskaðri lengd) felli af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 41-39-38-36-35-33 cm frá skiptigu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stutta hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 128-136 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 3 og prjónið 2 umferðir slétt – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 4-8 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 132-144 lykkjur. Prjónið A.4 hringinn (= 11-12 mynstureiningar 12 lykkjur). Í síðustu umferð í A.5 (merkt með stjörnu í mynsturteikningu), er fækkað um 4-8 lykkjur jafnt yfir = 128-136 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú A.5 hringinn (= 16-17 mynstureiningar 8 lykkjur). Í næst síðustu umferð í A.5 (merkt með stjörnu í mynsturteikningu), er fækkað um 8-4 lykkjur jafnt yfir = 120-132 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 16 cm á hæð. Prjónið síðan sléttprjón með grænn þar til stykkið mælist 20-23 cm. Setjið 10-11 prjónamerki í stykkið með 12 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – lesið ÚRTAKA (= 10-11 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8 sinnum og síðan í hverri umferð alls 2 sinnum = 20-22 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman tvær og tvær = 10-11 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25-28 cm ofan frá og niður.

Mynstur

symbols = natur
symbols = grænn
symbols = pistasía
symbols = Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynsturrönd, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = útaukningsumferð
symbols = affellingarumferð
symbols = endið eftir þessa umferð
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Perles du Nord

Danielle, Canada

Perles du Nord

Gillian Johnstone, Cyprus

Perles du Nord

Nikola, Czech Republic

Perles du Nord

Olga, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (106)

country flag Silke wrote:

Meine Frage hat sich erledigt, habe in Reihe 11, wie Susi vor mir immer 4 Maschen Abstand gestrickt, müsste aber 1 x nur 3 Maschen sein.

31.03.2024 - 11:38

country flag Silke wrote:

Hallo, entweder ich bin vom Kurs abgekommen, oder da ist ein Fehler. Wenn ich A3 in Größe S stricke, kommt es bei mir ab Runde 13 nicht mehr im Muster hin. Es sind einmal 8 Maschen bis zum Farb Punkt (Masche) und einmal 9 Maschen. Das im Wechsel. Bei mir müssten es immer 9 Maschen sein. Würde mich über Antwort freuen. LG Silke

31.03.2024 - 11:32

country flag Ramona wrote:

Hallo, Wie erfahre ich, welche Größe in der Anleitung steht? Ich muß für meine Größe dementsprechend die Wolle bestellen.

04.02.2024 - 03:07

DROPS Design answered:

Liebe Ramona, der Pullover ist in S bis XXXL erhältlich = alle 1. Nummer/Angaben sind für die 1. Größe, 2. für die 2. Grösse usw, genauso für die Mütze aber mit nur 2 Grössen. Viel Spaß beim stricken!

05.02.2024 - 09:14

country flag Gabriela wrote:

Ganz herzlichen Dank für diese super Anleitung! Ich habe den Pullover in 3 Wochen gestrickt, es hat mich völlig in den Bann gezogen. Die Wolle ist zwar recht dünn, aber unglaublich angenehm in der Hand und zum tragen. Die Anleitung finde ich sehr gut, es hat alles von Anfang an geklappt und ein paar Videos hatte ich mir im Vorfeld angeschaut, da ich zum ersten Mal von oben nach unten stricke. Ich bin Fan geworden von Ihrer Website und bin bereits beim 2. Pullover. Herzlichen Dank

23.01.2024 - 00:20

country flag Merete Sandanger wrote:

Kan denne strikkes nedenfra og opp?

11.11.2023 - 19:21

DROPS Design answered:

Hei Merete. Ja, det kan du. Veldig lurt å lese godt igjennom oppskriften og tilpass oppskriften, f.eks fellinger/økninger, diagrammene må snus osv. God Fornøyelse. mvh DROPS Design

13.11.2023 - 14:08

country flag Susi wrote:

Danke, ich habe alles noch einmal gecheckt und meinen Fehler nun gefunden: Nach Reihe 11 in A3 sind nicht gleichmäßig immer 4 Maschen zwischen den Stäbchen, sondern 3x4 und 1x nur 3 !!! Das wird dann weiter oben durch den Umschlag ausgeglichen, sodaß nun die Spitzen der Rhomben tatsächlich aufeinander stoßen. Dies zur Ehrenrettung Ihrer Designer und Danke. Es war mein Fehler... alles rückwärts.

12.10.2023 - 16:11

country flag Susi wrote:

Es kann geometrisch gar nicht anders sein, daß sich das Muster verschiebt wenn man am Ende in jedem Rapport eine Masche durch einen Umschlag ersetzt! Daher nochmal die Frage: Wie haben die anderen Strickerinnen das Problem gelöst da es hier vom Team trotz mehrfacher Nachfragen aus verschiedenen Ländern offenbar ignoriert wird ?

12.10.2023 - 13:21

DROPS Design answered:

Liebe Susi, ich verstehe leider nicht, wie Sie das Muster verschieben können, beachten Sie, daß das Muster immer genau gestrickt wird wie im Diagram gezeigt, helfen Sie sich mit Markierungen (siehe vorrige Antwort), es könnte vielleicht helfen?

12.10.2023 - 14:18

country flag Susi wrote:

Ach ja... noch zur Information: Ich stricke Größe L

12.10.2023 - 12:59

country flag Susi wrote:

Ich beziehe mich auf den Einwand von Nicoletta. In A3 führen 2 Zunahmen zur Verschiebung des Musters, es kann gar nicht anders sein! Da das immer wieder zurück stricken sehr mühsam und zeitaufwändig ist, lassen Sie das bitte überprüfen. Oder erklären Sie bitte genau, wie ich ohne Verschiebung der Rhomben Maschen im Muster zunehmen kann. Ich verstehe es einfach nicht. :-(

12.10.2023 - 12:55

DROPS Design answered:

Liebe Susi, es wird keine Verschiebung sein, setzen Sie Markierungen zwischen jedem A.3 und dann wiederholen Sie A.3 zwischen jede Markierungen, wenn Sie 1Umschlag am Anfang A.3 stricken, wird die Zunahmen bei der nächsten Runde als 1. Masche in A.3 gestrickt; wenn Sie 1 Umschlag am Ende A.3 stricken, wird diese Zunahme als letzte Masche in A.3 gestrickt. So wird sich jede A.3 von 16 auf 21 Maschen erweitert. Viel Spaß beim stricken!

12.10.2023 - 14:16

country flag Merete Byrøygard wrote:

Strikka denne jakka i str M for nokre år sidan, men det var fleire feil i mønsteret. Er dette retta opp nå? Etter mykje strev fann eg eg den gongen rettingane på nettet, men finn dei ikkje nå? Vart ein favoritt, så vil gjerne strikke ei til.

19.08.2023 - 22:52

DROPS Design answered:

Hei Merete. Det er ikke noterte noen rettelser/feil til denne modellen, men mange har lagt inn kommentarer / spørsmål til genseren. Mange har ikke lest/forstått oppskriften godt nok (bortsett fra en feil forklaring til et diagram ikon i den danske teksten). Det fins også en lignende jakke og i denne var det en rettelse (da vises rettelse teksten med en rød link nederst på oppskriften / over diagrammene). Les gjerne igjennom Spørsmål og Svarene, kan gi deg noe tips på veien, ellers så skriv gjerne tilbake om du finner noe du mener er feil, så hjelper vi deg så godt vi kan. mvh DROPS Design

21.08.2023 - 12:03