Lofoten Jacket |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Lima. Stærð S - XXXL.
DROPS 181-10 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 118 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 13) = 8,1. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kant að framan. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með litnum dökk blár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-11-12-13-13-14 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina (kantur að framan er prjónaður slétt). KANTUR AÐ FRAMAN: Til þess að allur kanturinn að framan verði litnum dökk blár þegar mynstrið er prjónað með tveimur litum, notið aðra dokku með litnum dökk blár fyrir sjálfan kantinn að framan (notið þráðinn bæði innan í og utan með dokkunni fyrir hægri og vinstri kant að framan). Kantur að framan er einungis prjónaður með þessum þráðum til loka, en til að koma í veg fyrir göt í skiptingunni á milli kants að framan og fram- og bakstykki eru þræðirnir tvinnaðir saman á innanverðum kanti að framan í hvert skipti (frá réttu og röngu). LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur fleiri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Prjónið frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 2 lykkjum slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist 1½-2 cm, síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 10-10-10-9-9-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna, ofan frá og niður. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 118-122-130-138-142-150 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum dökk blár. Prjónið 1 umferð brugðið (= hlið fyrir ermi). Í næstu umferð er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3 cm prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 13-13-17-17-17-17 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 105-109-113-121-125-133 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar slétt. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni (= 23-24-25-27-28-30 mynstureiningar 4 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið KANTUR AÐ FRAMAN, LEIÐBEININGAR-1 og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 174-181-188-202-209-223 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni og aukið jafnframt út 31-36-47-51-56-60 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (merktar með ör-1 í A.2A), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 205-217-235-253-265-283 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-2 í A.2A er aukið út um 28-36-38-40-48-50 lykkjur jafnt yfir = 233-253-273-293-313-333 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar 20 lykkjur), prjónið A.3B (= 1 lykkja) og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Á eftir síðustu útaukningu í A.3A eru 288-313-338-363-388-413 lykkjur í umferð. Í umferð merktri með ör-3 í A.3A er aukið út um 1-8-11-10-9-8 lykkjur jafnt yfir = 289-321-349-373-397-421 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.4A þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð = 69-77-84-90-96-102 mynstureiningar 4 lykkjur), prjónið A.4B (= 1 lykkja) og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Í umferð merktri með ör-4 í A.4A er aukið út um 10-8-14-8-12-16 lykkjur jafnt yfir = 299-329-363-381-409-437 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 25-25-26-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu með litnum dökk blár þannig: 49-53-57-61-66-71 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 58-64-74-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið 85-95-101-111-121-131 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 58-64-74-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 49-53-57-61-66-71 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 199-217-235-253-277-301 lykkjur. STÆRÐ S, M, L, XL og XXL: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.5B (= 1 lykkja), prjónið A.5A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 31-34-37-40-44 mynstureiningar 6 lykkjur – ATH: mynsturteikning er lesin frá vinstri að hægri þegar prjónað er frá röngu), endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-5 í A.5A er aukið út um 6-4-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 205-221-237-253-277 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.6A þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni (= 24-26-28-30-33 mynstureiningar 8 lykkjur), prjónið A.6B (= 1 lykkja) og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.6 hefur verið prjónað til loka. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XXXL = 301 lykkja. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.6B (= 1 lykkja), prjónið A.6A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 36 mynstureiningar 8 lykkjur – ATH: mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu) og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. ATH: Í þessari stærð er A.5 ekki prjónað þar sem mynstureiningin er prjónuð í A.4. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.6 hefur verið prjónað til loka. ALLAR STÆRÐIR: Það eru 205-221-237-253-277-301 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 8-8-6-6-4-3 cm frá skiptingu við handveg. Setjið 1 prjónamerki 54-58-62-66-72-78 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 97-105-113-121-133-145 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón með litnum dökk blár og 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5-5-6-4-5-5 cm millibili alls 4-4-4-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 221-237-253-277-301-325 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-29-30-31-31-31 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 49-57-65-65-73-81 lykkjur jafnt yfir (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni og ekki er aukið út yfir kant að framan) = 270-294-318-342-374-406 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir 2 cm eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út (séð frá réttu) til 3 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í hverri skiptingu á milli 2 lykkja slétt og 2 lykkja brugðna = 334-364-394-424-464-504 lykkjur. Haldið áfram þar til stroffið mælist 8 cm (í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 4 og fellið af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 58-64-74-74-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-84-84-90-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur og byrjið umferðina við prjónamerki (= mitt undir ermi). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! STÆRÐ S, M, L, XL og XXL: Prjónið A.5 hringinn (= 11-12-14-14-15 mynstureiningar 6 lykkjur). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er A.6 prjónað hringinn, en passið uppá að A.6 gengur ekki jafnt upp mitt undir ermi í öllum stærðum. Þegar A.6 byrjar hefur fækkað um 1-1-2-2-0 sinum mitt undir ermi eins og útskýrt undir ALLAR STÆRÐIR = 64-70-80-80-90 lykkjur í umferð. Þ.e.a.s. í S, L og XL byrjar A.6 með fyrstu lykkju í mynsturteikningu og prjónaðar 8-10-10 mynstureiningar 8 lykkjur. Í stærð M byrjar A.6 með 2. lykkju í mynsturteikningu og í stærð XXL byrjar A.6 með 8. lykkju í mynsturteikningu. STÆRÐ XXXL: Prjónið A.6 hringinn (= 12 mynstureiningar 8 lykkjur – ATH: Í þessari stærð er A.5 ekki prjónað þar sem mynstureiningin er prjónuð í A.4). ALLAR STÆRÐIR: Þegar A.5 og A.6 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón síðan með litnum dökk blár, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu undir ermi er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 11-13-18-18-19-21 sinnum = 44-46-48-48-52-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 32-32-32-32-31-29 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 12-10-12-12-12-14 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 40-40-40-40-39-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (19)
Carla wrote:
Hello, why do we have to increase so many stitches on the body near the end of the piece before starting on the rib? In my size, it says I have to increase 65 stitches, is that correct? Thank you!
03.12.2023 - 17:49DROPS Design answered:
Dear Carla, you increase many stitches to avoid the rib from contracting the piece. The rib is usually tighter than the rest of the pattern, so we work the rib with more stitches than the rest of the body to compensate this difference. Happy knitting!
03.12.2023 - 18:50Carla wrote:
Hi, When I am A.2a in this sweater (Lofoten sweater 181 -10) and it has an increase arrow (two times!) and it says number of stitches are 6, does that mean I start with 4 stitches and add one stitch on each row, to have a total of 6 stitches when I have finished? Or do I start with the 6 stitches and increase 2 times, to have a total of 8 stitches? Thanks!
26.10.2023 - 22:35DROPS Design answered:
Dear Carla, on the both rows with an arrow in A.2A you will increase evenly, on 1st row: 31-36-47-51-56-60 sts - then repeat the 6 sts in A.2A ending with A.2B from RS (starting with A2B from WS); on the 2nd row with an arrow increase 28-36-38-40-48-50 sts and continue repeating A.2A as before over 6 sts. Read more on increasing evenly here. Happy knitting!
27.10.2023 - 09:26Anna Karin wrote:
Hej! Mina ärmar blev alldeles för korta, inte alls som på bilden. Det står att ”Ärmen mäter ca 40-40-40-40-39-37 cm från delningen. ” Det gör mina ärmar, och det är för kort. Tittar jag på diagrammet så ser det ut som om ärmen är 40 cm från där mönstret slutar. Jag skulle behöva hjälp att förstå vilket som är rätt.
26.07.2023 - 20:44DROPS Design answered:
Hei Anna Karin Forhold deg til målene i oppskrift, målskissen er kun en skisse. Men syns du ermene ble for korte, kan du fint strikke de lengre (om du har garn igjen). Prøv jakken på deg selv og mål hvor mange cm lengre du vil strikke. mvh DROPS Design
28.07.2023 - 11:18Astrid Beuth wrote:
Nun stricke ich die Jacke mit der Original-Wolle und bin ganz begeistert vom schönen Maschenbild und der wunderbaren Anleitung. Was mich irritiert ist die Maschenzunahme am Ende vom Ärmel, bevor man das Bündchen strickt. Ich kenne es eher so, dass man vor dem Bündchen nochmal Maschen abnimmt, Was ist der Sinn dieser Zunahme?
03.06.2023 - 12:33DROPS Design answered:
Liebe Frau Beuth, das Rippenmuster ist elastischer und zieht sich z.B. im Vergleich zum Glatt-rechts-Gestrick zusammen. Wenn vor dem Rippenmuster-Rand zugenommen wird, kann man damit vermeiden, dass der Rand deutlich enger wird als der restliche Ärmel / das restliche Rumpfteil. Viel Spaß beim stricken!
05.06.2023 - 09:54Astrid Beuth wrote:
Ich möchte die Jacke gerne stricken, lese aber bei der Wolle Drops Lima, dass sie eigentlich zum Filzen gedacht ist. Da habe ich nun arge Bedenken, dass sie auch bei Handwäsche verfilzen könnte. Das wäre schade um das Matrial und die Arbeit. Gibt es eine gute Garnalternative? Wolle soll es schon sein, aber sie soll nicht kratzen und nicht zu empfindlich auf Verfilzen sein.
30.04.2023 - 21:45DROPS Design answered:
Liebe Frau Beth, DROPS Lima is nicht zum Filzen gedacht, kann aber gerne zum filzen benutzt werden. Wenn Sie die Wolle genauso wie bei den Pflegehinweisen waschen, wird sie nicht filzen; Alternative (z.B.Superwash Garne wie Karisma oder Merino Extra Fine) finden Sie in allen Fällen dank unserem Garnumrechner. Viel Spaß beim stricken!
02.05.2023 - 09:14Zina wrote:
A.4A+B diagrams for sizes S+M have 11 rows (odd number). The same diagrams for sizes L+XL have 16 rows (even number), and for size XXL have 22 rows (even number). Then the description says that the beginning of A.5A should be the right side. If we made 11 rows for sizes S+M then the beginning of A.5A for sizes S+M falls on the wrong side. So, i'm guessing, 1 row is missing on diagrams A.4A+B for sizes S+M, and it should be 12 rows instead of 11. The question is: what exactly do we knit there?
03.08.2022 - 15:31Ktistina wrote:
Kan man köpa mönstret också,hos er och i så fal,hur mycket kostar det.
03.10.2020 - 22:13DROPS Design answered:
Hej. Mönstret är helt gratis och du kan skriva ut det direkt här på denna sida. Mvh DROPS Design
06.10.2020 - 07:56Amina wrote:
Can I have the pattern of Lofoten Jacket for men ,Please? :)
24.10.2018 - 19:42DROPS Design answered:
Dear Amina, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every request, but you can take inspiration from the Lofoten Jumper for men to adjust the pattern. For any further individual assistance you are welcome to request help from your DROPS store, even per mail or telephone. Happy knitting!
25.10.2018 - 08:18Birgitte Tenstrand wrote:
Skal man strikke de 12 masker, der skal slås op i hver side af bagstykket med i bagstykket? Hvis man skal det, hvordan kan de så også blive stikket med i ærmerne?
14.10.2018 - 21:00DROPS Design answered:
Hej Birgitte, start ved halskanten og slå op ifølge den størrelse du følger. Nu er det bare at følge opskriften. De 12 masker som bliver slået op under ærmerne bliver forklaret tydeligt igen når du kommer ned til ærmerne. God fornøjelse!
29.10.2018 - 15:40Birgitte Tenstrand wrote:
Jeg er i tvivl om hvilken størrelse jeg skal strikke i når jeg måler 110 cm rundt om barmen (brystet) Mvh Birgitte Tenstrand
09.09.2018 - 15:12DROPS Design answered:
Hei Birgitte. Størrelse XL måler 57 cm over brystet (=114 cm rundt). Det er vanligvis en målskisse av plagget nederst på siden. Men akkurat for øyeblikket har vi tekniske probelmer med siden våre, som gjør at bilder og diagrammer ikke lastes ordentlig. Vi jobber med å fikse dette og siden vil være tilbake til normalt snarlig. Du kan da se på målskissen for å se alle målene til plagget. Beklager denne forsinkelsen, og god fornøyelse.
10.09.2018 - 12:58