DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Blueberry Fizz Jacket

Peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Alpaca. Stærð S - XXXL.

DROPS 180-8
DROPS Design: Mynstur z-795
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-400-400 g litur 6736, blár/fjólublár
50-50-50-100-100-100 g litur 3800, bleikfjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 2020, ljós camel
50-50-50-50-50-50 g litur 6309, turkos/grár
50-50-50-50-50-50 g litur 7233, gulgrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 7238, dökk ólífa
50-50-50-50-50-50 g litur 7240, bensínblár
50-50-50-50-50-50 g litur 7323, vatnagrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 + 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 7-7-7-8-8-8 st.

Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Alpaca 607, 618, 2020, 7139, 2915, 2925, 6309, 2923

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 132 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 7,1.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur svo að ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 prjónamerki við miðju að aftan. Byrjið frá réttu með litnum bleikvínrauður og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 8-8-8-9-9-10 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-16-16-18-18-20 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-24-27-27-30 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-32-32-36-36-40 lykkjur brugðið. Haldið áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 8-8-8-9-9-10 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við (munið eftir að herða á þræði í hvert skipti sem snúið er við) þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir alls 64-64-64-72-72-80 lykkjur og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt út umferðina, snúið, herðið á þræði og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður slétt).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan):
Þegar mynsturbekkur er prjónaður með tveimur litum á berustykki, prjónið grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið.

LEIÐBEININGAR-2:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm.
Fellið síðan af 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 132-136-140-148-152-160 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3 cm prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 17 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 115-119-123-131-135-143 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR-1 og 2!
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 sléttum kantlykkjum að framan í hvorri hlið. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 26-27-28-30-31-33 mynstureiningar 4 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnframt út í hverri umferð merktri með ör í A.1A eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING (alltaf er aukið út í umferð frá réttu) og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Ör-1: aukið út 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 151-159-167-179-187-199 lykkjur.
Ör-2: aukið út 36-38-40-44-48-50 lykkjur jafnt yfir = 187-197-207-223-235-249 lykkjur.
Ör-3: aukið út 28-34-36-40-48-50 lykkjur jafnt yfir = 215-231-243-263-283-299 lykkjur.
Ör-4: aukið út 28-34-40-40-44-48 lykkjur jafnt yfir = 243-265-283-303-327-347 lykkjur.
Ör-5: aukið út 26-34-34-38-44-48 lykkjur jafnt yfir = 269-299-317-341-371-295 lykkjur.
Ör-6: aukið út 26-32-34-38-40-40 lykkjur jafnt yfir = 295-331-351-379-411-435 lykkjur.
Ör-7: aukið út 24-28-32-36-40-40 lykkjur jafnt yfir = 319-359-383-415-451-475 lykkjur.
Ör-8: aukið út 20-20-28-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 33-379-411-443-483-507 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 24-24-24-28-28-28 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið síðan sléttprjón með litnum blár/fjólublár og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar till stykkið mælist 24-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (ef prjónfestan passar á hæðina þá hefur þetta mál náð S og XL þegar A.1 hefur verið prjónað til loka).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 54-59-63-69-76-82 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 67-77-85-89-95-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 97-107-115-127-141-153 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 67-77-85-89-95-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 54-59-63-69-76-82 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 221-241-261-285-317-345 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 58-63-68-74-82-89 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 105-115-125-137-153-167 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka með blár/fjólublár og 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 1-1-2-2-2-2 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 8. hverri umferð (með ca 2½ cm millibili) til loka (ef prjónfestan passar á hæðina er aukið út 13 sinnum í hvorri hlið).
Þegar stykkið mælist 32-33-34-34-34-34 cm frá skiptingu eru ca 273-293-313-337-369-397 lykkjur í umferð. Prjónið 8 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverri lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 67-77-85-89-95-95 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum blár/fjólublár = 75-85-95-99-107-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Byrjið umferðina hér og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi- lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 12-16-19-20-23-23 sinnum = 51-53-57-59-61-63 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 34-34-33-32-30-28 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 17-19-19-21-19-21 lykkjur jafnt yfir = 68-72-76-80-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 8 cm (eða að óskaðri lengd) er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 42-42-41-40-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.06.2022
UPPHÆKKUN:...Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt út umferðina, snúið, herðið á þræði og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður slétt).

Mynstur

symbols = gulgrænn
symbols = dökk ólífa
symbols = ljós camel
symbols = vatnablár
symbols = turkos/grár
symbols = blár/fjólublár
symbols = bensínblár
symbols = bleikfjólublár
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Debbie Anderson wrote:

Hello, I just wanted to check if you don’t mind, I can’t seem to find measurements for the sizes we can knit the jacket in. Not really sure which size I would need to knit. Thank you for your help.

17.07.2021 - 11:21

DROPS Design answered:

Dear Debbie, you can always find the measurements of the finished piece on the scematic drawing at the pottom of the page. We always suggest that you tale a sweater that fits and compare the numbers. Happy Stitching!

17.07.2021 - 12:01

country flag Kaarel Kalatraaler wrote:

Hello, I think that there is a little mistake in description of making elevation. Knitting of te elevation begins on the right side, is in total 8 rows and is finished on wrong side. The description says to continue with purl till the end of the row. But on this way the left front part will have 2 extra rows. Should it not be correct to turn after the last short row and knit till the end of the row to make it equal?

19.04.2021 - 10:51

country flag Marie Provencher wrote:

Je veux tricoter Drops Blueberry Fizz Jacquet et je ne vois pas les coordonnées pour l’échantillon pouvez-vous me le faire parvenir.Merci

23.03.2021 - 23:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Provencher, vous trouverez toutes les infos sur l'échantillon sous la liste des fournitures nécessaires, avec la taille des aiguilles proposées. Bon tricot!

24.03.2021 - 08:51

country flag Mary wrote:

Thanks for helping.I’ve one more question .from wrong side should i follow as A.1B=1 stitch,then 6 stitches,then 1 stitch and then 6 sts and repeat it?

21.01.2019 - 22:11

DROPS Design answered:

Dear Mary, yes that's correct, from WS work 5 sts in garter st, A.1B = 1 st, repeat the sts in A.1A (reading from the left towards the right), and finish with 5 sts in garter st. Happy knitting!

22.01.2019 - 08:33

country flag Mary wrote:

Hi,i’m working on M size,inc 5 row although numb of stitches are correct but design dont come correct. i follow design from right side to left and purl design from left side to right.what im doing wrong dont know 😩

20.01.2019 - 19:42

DROPS Design answered:

Dear Mary, on 5th increase row repeat is now worked over 6 sts, you have now 299 sts and work as follows: 5 front band sts, repeat A.1A a total of times, work A.1B and 5 front band sts = 5+ (6 sts x 48) + 1 +5 = 299 sts. Happy knitting!

21.01.2019 - 12:16

Maryyam wrote:

Hello,i am very much intressted to know about the diagram A.1Afor M size.After elivation should i repeat from left side of diagram with A.1B (1 stitch)and continue with 4 stitched of A.1,mean total 5 stitches on this round? and on next line continue with 4 stitches A.1A from right side of the diagram?

15.12.2018 - 23:10

DROPS Design answered:

Dear Maryyam, you will work A.1 from RS like this: 5 front band sts, repeat A.1A a total of 26 times, then work A.1B (= 1 st) and finish with 5 front band sts. From WS, work then A.1B and A.1A reading diagram from the left towards theh right. Happy knitting!

17.12.2018 - 09:58

country flag Pata Corine wrote:

Bonjour, je ne comprends pas comment relever les 8 mailles sous la manche.

20.11.2018 - 09:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pata, quand vous reprenez les mailles de la manche, relevez 1 maille dans chacune des 8 mailles que vous avez monté lors de la division de l'ouvrage pour séparer le dos/les devants et les manches. Cette vidéo montre (à partir du time code 9:37) comment procéder. Bon tricot!

20.11.2018 - 11:30

country flag DROPS Design wrote:

Colour combinations shown are: A) DROPS Alpaca 607, 618, 2020, 7139, 2915, 2925, 6309, 2923

06.02.2018 - 10:25

country flag Grethe Netland Dypvik wrote:

Hei,Hvilket garn kan jeg bytte i for å strikke BlackBerry fizz jakka.Vil gjerne strikke i pinne 3-4 men ikke i det alpakkagarnet som er i oppskriften.mvh Grethe

16.01.2018 - 14:28

DROPS Design answered:

Hei Grethe. Du kan bytte ut Alpaca med andre kvaliteter vi har i garngruppe A, bare husk at du må ha samme strikkefasthet som er oppgitt i oppskriften. God Fornøyelse!

17.01.2018 - 08:03

Maria wrote:

Was bedeuten die (24M) oder +(17M) an den Bildern.Ich kann das nicht verstehen da doch die Maschenanzahl in der Anleitung sind?

15.11.2017 - 12:18

DROPS Design answered:

Liebe Maria, die Maschenanzahl an den Bildern ist die Maschenanzahl für 10 cm (meistens glatt oder kraus rechts gestrickt), "+" ist wenn mehr als 1 Wolle/Qualität gestrickt wird. Viel Spaß beim stricken!

15.11.2017 - 13:20