DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Perkins

Prjónuð peysa fyrir börn í hálfu klukkuprjóni og laskalínu. Stærð 2-12 ára. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyMerino.

DROPS Children 30-9
DROPS Design: Mynstur bm-010-bn
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 42, bensínblár

Eða notið:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-400 g litur 42, bensínblár

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur A)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 og 2 lykkjur við prjónamerki eru prjónaðar brugðið.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 19) = 5,3. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 4. og 5. hver lykkja slétt saman.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 156-168-174-186-192-204 lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino eða Safran . Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja brugðið, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-23-26-29-32-35 cm prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-76-79-85-88-94 lykkjur (= framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-76-79-85-88-94 lykkjur (= bakstykki) og fellið af síðustu 4 lykkjur í umferð fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.
Fitjið upp 42-42-42-48-48-48 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Baby Merino eða Safran. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja brugðið, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 2½-2½-2½-3-3-2½ cm millibili alls 7-9-10-9-11-13 sinnum = 56-60-62-66-70-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 23-28-31-35-39-42 cm (stillið af að endað sé í sömu umferð í A.1 og á fram- og bakstykki), fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 48-52-54-58-62-66 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi.

BERUSTYKKI.
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur) = 236-256-266-286-300-320 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki).

LASKALÍNA:
Haldið áfram með mynstur hringinn eins og áður. Prjónið hringinn yfir allar lykkjur í 2 cm. Í næstu umferð er lykkum fækkað fyrir LASKALÍNa – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur færri).
Haldið áfram með úrtöku fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til fækkað hefur verið um alls 17-19-20-22-24-26 sinnum hvoru megin við öll prjónamerkin.
Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu eru 100-104-106-110-108-112 lykkjur eftir í umferð og stykkið mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm upp að öxl.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð í garðaprjóni er fækkað um 19-17-13-11-6-7 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 81-87-93-99-102-105 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.10.2020
Leiðrétting: ÚTAUKNING: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 og 2 lykkjur við prjónamerki eru prjónaðar brugðið.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = stingið hægri prjón í gegnum lykkju frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjunni niður af prjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

s30-9 Perkins

Elly's Knitting Days, Bulgaria

Zoe's blue electric sweater

Esti Juango, Spain

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (111)

country flag Janine wrote:

Sorry, muss nochmal zu der Antwort vom 08.03.2024 - 08:34 Drops Design nachfragen: wenn die zwei Maschen links und rechts des Markierers immer links sind und ich sonst in beide Richtungen das Muster stricke, dann entstehen dabei größere Flächen rein linke Maschen, oder?! 3 Maschen links und rechts vom Markierer, bis bei der nächsten Zunahme wieder eine rechte Masche kommt. Das sieht irgendwie... Seltsam aus. Das ist doch bestimmt auch nicht richtig. Gibt es von dem Ärmel irgendwo ein Bild?

01.04.2024 - 20:18

DROPS Design answered:

Liebe Janine, ja genau, es wird manchmal mehrere linke Maschen bei der unteren Mitte sein, aber nur für wenige Reihen, bis die nächsten Zunahmen. Viel Spaß beim Stricken!

02.04.2024 - 15:48

country flag Uzma Kazmi wrote:

Hej. Jeg forstår ikke helt hvordan jeg skal lave denne patent mønster. I havde en video på den før men den kan jeg ikke finde her. I mønstret står der “strik højre pind gennem masken fra forrig omgang. Strik ret og slip masken fra pinden” men det er jo bare almindelig ret! Så jeg forstår ikke hvordan. Kan du forklar eller sende en video. På forhånd tak

29.03.2024 - 10:43

DROPS Design answered:

Hej, jeg tror det er den her du leder efter: Halvpatent Du kan også klikke på keyword patent for at se alle andre patent videoer :)

05.04.2024 - 11:09

country flag Janine wrote:

Hallo DropsDesign-Team, ich habe Schwierigkeiten bei den Ärmeln. "Die neuen Maschen fortlaufend in A.1 einarbeiten und die beiden Maschen neben dem Markierungsfaden in jeder Runde links stricken." Bedeutet das, dass man das Muster dann versetzt? Denn mit den 2 zugenommen Maschen kann man kein komplettes Muster Stricken. Oder wie ist das zu verstehen?

07.03.2024 - 22:42

DROPS Design answered:

Liebe Janine, die erste + die letzte Masche der Runde werden beide links bis zur Ende gestrickt, man wird für die Ärmel beidseitig von diesen 2 linken Maschen zunehmen. Am Anfang der Runde stricken Sie die neuen Masche wie ein neues Rapport, von links nach rechts gesehen, am Ende der Runde stricken Sie die.neuen Maschen wie ein neues Rapport von rechts nach links, so wird das Muster nicht verschoben. Viel Spaß beim stricken!

08.03.2024 - 08:34

country flag Karina wrote:

Efter endt udtagning på ærme, da ender jeg op med at skulle strikke 3 vrang, ser lidt fjollet ud? Eller skal sidste mask, inden mærke tråden ændres til 'ret' ?

09.02.2024 - 09:14

DROPS Design answered:

Hej Karina, forstår ikke helt hvad du mener... kan du ikke strikke den midterste af de 3, som den midterste i diagrammet?

22.02.2024 - 10:46

country flag Birgitta wrote:

Är Diagram 1 verkligen rätt? Här finns inget omslag. \r\nDet brukar ju vara 1 rät maska och 1 avig maska i patentstickning. Här är det 1 rät maska och 2 aviga maskor. Är det rätt?

30.10.2023 - 15:21

country flag Marita Schmidt wrote:

Guten Tag, Was bedeutet beim Diagramm die gestrichelte Linie ? Die obere Linie ist die Schulter. Was sind die 3 cm zwischen gestrichelter Linie und Schulter ? Das Bündchen kann es ja nicht sein, weil die Länge bis zur Schulter in der Anleitung genannt wird, bevor es mit den 3cm Bündchen weiter geht. (letzter Satz bei Raglanabnahmen). Liebe Grüße Marita Schmidt

08.10.2023 - 19:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schmidt, die 3 cm entsprechen die Höhe von den Schultern, da der Pullover von oben nach unten gestrickt wird, gehören ein Teil von den angeschlagenen Maschen zum Schulter. Viel Spaß beim stricken!

09.10.2023 - 09:52

country flag Sara wrote:

Hei, neulomalla resori *1 o, 2n* kuten ohjeessa lukee ei tee kaunista siirtymää valepatenttineuleeseen kuten mallin kuvassa. Ymmärtääkseni kuvatussa neuleessa on käytetty ohjeesta poiketen resoriin *1o, 1n*.

29.04.2023 - 20:13

country flag Annika wrote:

Dom två nya maskorna stickas fortlöpande in i A1 och dom två nya maskorna stickas aviga? Motsägelsefullt, hur gör man bäst?

13.03.2023 - 08:10

DROPS Design answered:

Hei Annika. De 2 maskene ved merketråden strikkes vrang, men de nye maskene strikkes fortløpende inn i diagram A.1. Så noen ganger vil de nye maskene strikkes rett og noen ganger vrang. Strikkes de vrang kan det bli flere vrangmasker etter hverandre, side de 2 maskene ved merketråden alltid strikkes vrang. mvh DROPS Design

13.03.2023 - 14:03

country flag Danielle wrote:

Bonjour, Comment fait on pour rabattre 4 mailles à la fin d’un rang sans qu’il reste une maille à la fin? Est-ce qu’il faut les rabattre à la fin du rang précédent? Merci 🙏

13.12.2022 - 01:52

DROPS Design answered:

Bonjour Danielle, vous rabattez les 4 dernières mailles du rang et passez le fil dans la dernière des mailles. Tricotez le tour des emmanchures ainsi: rabattez les 4 premières m du tour, tricotez 70-76-79-85-88-94 m (la 1ère de ces mailles est déjà sur l'aiguille droite), rabattez les 8 m suivantes, tricotez 70-76-79-85-88-94 m (la 1ère de ces mailles est déjà sur l'aiguille droite), rabattez les 4 dernières mailles, coupez le fil et passez le dans la dernière maille. Bon tricot!

13.12.2022 - 08:18

country flag Danielle wrote:

Comment faire pour rabattre 4 mailles à la fin du rang (sur le corps du chandail ) pour l’emmanchure sans qu’il reste une maille à la fin? Doit-on rabattre ces 4 mailles à la fin de l’avant-dernier rang? Merci

08.12.2022 - 00:03

DROPS Design answered:

Bonjour Danielle, vous rabattez les 4 dernières mailles et passez le fil dans la dernière maille sur l'aiguille; vérifiez que vous avez bien le bon nombre de mailles pour le devant et le dos et bien 8 mailles rabattues pour chaque emmanchure. Lorsque vous tricoterez l'empiècement, vous joindrez le fil à nouveau. Bon tricot!

08.12.2022 - 09:57