DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 182-1
DROPS Design: Mynstur bm-043
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca 200-250 g DROPS Baby Merino.

HÚFA:
Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100 g litur 41, plóma

SJAL:
Mál:
Hæð: ca 40 cm.
Breidd: ca 160 cm.

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150 g litur 41, plóma

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 45 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR (á við um húfu):
UMFERÐ 1-12: Slétt frá réttu, slétt frá röngu.
UMFERÐ 13 (frá réttu): Prjónið 1 lykkju slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 14 (frá röngu): Prjónið slétt.
Endurtakið þessar 14 umferðir.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ prjónanúmeri grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna sem saumað er síðan saman við miðju að aftan og brotið er uppá kant.

HÚFA:
Fitjið upp 130-134 lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 16-14 lykkjur jafnt yfir = 114-120 lykkjur.
Prjónið nú MYNSTUR, sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 22-24 cm (stillið af að ljúka með einni gataumferð) prjónið nú áfram í garðaprjóni til loka. Prjónið nú 1 umferð þar sem fækkað er um 2-8 lykkjur jafnt yfir = 112-112 lykkjur. Setjið 10 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu lykkju, setjið síðan 9 prjónamerki til viðbótar með 11-11 lykkjur á milli (það eru 12 lykkjur eftir síðasta prjónamerkið). Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman (= 10 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð sem var prjónuð frá réttu) alls 9-9 sinnum = 22-22 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 11-11 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 30-32 cm meðtalið uppábrotið. Saumið húfuna saman í ysta lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður að horni við miðju að framan.

SJAL:
Fitjið upp 9 lykkjur á hringprjón 3,5 með Baby Merino. Prjónið og aukið út þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 13 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkju og látið prjónamerkið fylgja með til loka.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt = 15 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að miðju lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt = 4 lykkjur fleiri.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt = 2 lykkjur fleiri.
UMFERÐ 5-20: Endurtakið umferð 3 og 4 (= alls 6 lykkjur fleiri eftir aðra hverja umferð). Þegar þessar 20 umferðir hafa verið prjónaðar eru 69 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 21 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* fram að miðju lykkju (ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt = 4 lykkjur fleiri.
UMFERÐ 22 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt = 2 lykkjur fleiri.
UMFERÐ 23-24: Endurtakið umferð 3 og 4.
Endurtakið umferð 3-24.
Þegar stykkið mælist ca 40 cm mælt meðfram miðju lykkju er endað eftir 20. umferð í mynstri (haldið e.t.v. áfram alveg eins að óskuðu máli og endið eftir 20. umferð). Fellið af – lesið AFFELLING að ofan. Hnýtið hnút í hvorn enda.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Marianne wrote:

Hei, I oppskriften til luen står det at man skal strikke mønster til arbeidet måler 22-24 cm. Det må da bli en alt for kort lue? Siden vrangborden er 10 cm, skal man altså strikke 12-14 cm mønster før «strikkes det videre i riller til ferdig mål. Nå strikkes det 1 pinne der det felles 2-8 masker jevnt fordelt = 112-112 masker…» ?

22.10.2023 - 00:43

DROPS Design answered:

Hei Marianne, Du skal strikke mønster i 22 - 24 cm, etter vrangborden. God fornøyelse!

23.10.2023 - 07:33

country flag Linda wrote:

What does knit rows 24 - 3 downwards, does is mean start from row 24 then 23 etc until row 3

25.05.2022 - 05:28

DROPS Design answered:

Dear Linda, it means you now work again from row 3 to row 24 and repeat these 22 rows until piece measures approx. 40 cm along the middle stitch. Happy knitting!

25.05.2022 - 07:36

country flag Ricarda wrote:

Sorry, ich hatte wirklich einen Denkfehler und danke für die super schnelle Stellungnahme. 👍😊

03.12.2020 - 11:30

country flag Ricarda wrote:

Das Tuch wird nicht von oben nach unten sondern von unten nach oben gestrickt !!

03.12.2020 - 08:40

DROPS Design answered:

Liebe Ricarda, das Tuch wird von oben nach unten gestrickt, um das 3-Eck zu bekommen, soll mann dann am Anfang/am Ende jeder Reihe 2 Maschen zunehmen und gleichzeitig werden 2 Maschen in der Mitte (beidseitig von der mittleren Maschen) zugenommen (= es werden abwechslungsweise 4 und 2 M zugenommen). Viel Spaß beim stricken!

03.12.2020 - 09:12

country flag Tanja wrote:

Hallo, Kann ich die Mütze auch in Runden Stricken? Denke das würde dann vlt schöner aussehen ohne Naht ...? LG Tanja

26.01.2020 - 20:32

DROPS Design answered:

Liebe Tanja, um die Mütze in Runden zu stricken, sollen Sie dann das Muster bzw die Anleitung so anpassen. Viel Spaß beim stricken!

27.01.2020 - 10:00

country flag Loredana wrote:

Buongiorno, volendo realizzare uno dei lavori da voi proposti ( ad esempio lo scialle) , mi chiedevo dove posso sapere quanti gomitoli di lana occorrono ( dimensione è quella da voi proposta). grazie tante per la disponibilità. Loredana

19.01.2019 - 16:42

DROPS Design answered:

Buongiorno Loredana. Trova l’indicazione del filato occorrente nella prima parte delle spiegazioni. Nel caso dello scialle servono 150 g (corrispondenti a 3 gomitoli) di Baby Merino. Buon lavoro!

19.01.2019 - 18:37

country flag AnneChapman wrote:

Hej igen, Jeg skrev, at det var samme problem som Hege - altsâ pind 21. Har löst problemet ved at "tälle" *2 ret sammen* fra midtermasken og ud til pindens start, sâ kan man se, hvad der skal startes med :) Jeg er meget glad for jeres sider !

30.08.2018 - 12:41

country flag AnneChapman wrote:

Oplever samme problem som Hege, man kan da ikke slâ om to gange i träk. Jeg hâber, at I kan hjälper mig !

28.08.2018 - 14:54

DROPS Design answered:

Hej Anne, på pind 21 strikker du "2 ret sammen, slå om", så længe du kan frem til omslaget før midterste maske, (OBS: masker som ikke går op i mønsteret strikkes ret) det betyder at når du ikke længere får plads før omslaget, strikker du sidste maske ret. God fornøjelse!

29.08.2018 - 15:55

country flag HEGE JØRGENSEN wrote:

Er der feil på oppskriften? På pinne 21 står det at det skal økes med 4 masker. Men om må følger oppskriften, så blir det kun 2 masker som øker. Har også snakket med en annen som opplever det samme.

20.08.2018 - 01:07

DROPS Design answered:

Hei Hege, På pinne 21, man skal lage en kast på begynnelse av pinnen og en på slutten i tillegg til kastene i midten. Da blir det 4 masker økt på pinnen. God fornøyelse!

21.08.2018 - 07:29

country flag Sacré Jaël wrote:

Je suis très conte de votre site, les explications sont magnifiques. En plus on a la chance d'avoir des tutoriels. Un très grand merci.

05.03.2018 - 17:01