Flowering Heart |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með hekluðum átthyrningi og gatamynstri. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Puna eða DROPS Sky.
DROPS 183-21 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.14. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 tvíbrugðinn stuðul með því að hekla 2 tvíbrugðna stuðla í sömu lykkju. ÚTAUKNING-1: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvora af næstu 2 lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þessa tvíbrugðnu stuðla, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 tvíbrugðinn stuðull færri). ÚRTAKA-2: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda tvíbrugðna stuðla í umferð (t.d. 66 tvíbrugðnir stuðlar), deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 11. Í þessu dæmi þá eru heklaðir 10. og 11. hver tvíbrugðinn stuðull saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er heklaður átthyrningur alveg eins í öllum stærðum. Síðan eru hekluð 2 horn á hyrninginn þannig að átthyrningurinn fái sex hliðar. Síðan er heklaður kantur utan um hyrninginn. Síðan eru axlirnar heklaðar og ermar. FRAMSTYKKI: HEKLAÐUR ÁTTHYRNINGUR: Byrjið með heklunál 4,5 og Puna eða Sky og heklið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 er lokið mælist hyrningurinn ca 10 cm að þvermáli, mælt frá hlið að hlið. Nú er haldið áfram hringinn þannig: Heklið A.2b alls 8 sinnum í umferð – mynsturteikning A.2a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.2b. Þegar öll mynsturteikning A.2a og A.2b hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist hyrningurinn ca 44 cm að þvermáli, mælt frá hlið að hlið. Nú eru 8 hliðar með 27 tvíbrugðnum stuðlum og 8 horn með 2 tvíbrugðnum stuðlum, 1 loftlykkja og 2 tvíbrugðnir stuðlar. Klippið frá og festið enda. HORN: Nú er heklað eitt horn meðfram hlið-2 og eitt horn meðfram hlið-8 – sjá mynsturteikningu. Byrjið með horn á hlið-2 og heklið fram og til baka eftir mynsturteikningu A.3. Fyrsta umferðin byrjar við ör – hver umferð er fest með 1 keðjulykkju í lykkjur meðfram hlið-2 eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar öll mynsturteikning A.3 er lokið er klippt frá og endi festur. Heklið í hitt hornið meðfram hlið-8 alveg eins, klippið frá og festið enda. KANTUR Í KRINGUM HEKLAÐA HYRNINGINN: Nú eru 6 hliðar á hyrningnum – sjá mynsturteikningu. Nú eru 67 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hlið-1, 47 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri hlið -2/3 og hlið- 7/8, það eru 27 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri hlið-4, hlið-5 og hlið-6 og það eru 6 horn með 2 tvíbrugðnum stuðlum, 1 loftlykkja og 2 tvíbrugðnir stuðlar. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! Byrjið í horni á hlið-2 og heklið mynstur eftir mynsturteikningu þannig: Heklið A.4a – sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót, heklið A.4b um hornið, A.5 alls 16 sinnum á breiddina, * A.6 um næsta horn, A.5 alls 9 sinnum á breiddina *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.6 um næsta horn, A.5 alls 16 sinnum á breiddina, A.7 um næsta horn, A.4b um sama horn, heklið A.5 alls 23 sinnum á breiddina, endið með A.7. Aukið er út í fyrstu umferð – LESIÐ ÚTAUKNING – þannig (ekki er aukið út yfir hornin): Hlið -1: Aukið út um 2 tvíbrugðna stuðla. Hlið-2/3: Aukið út um 1 tvíbrugðinn stuðul. Hlið-7/8: Aukið út um 1 tvíbrugðinn stuðul. Þegar öll mynsturteikning A.4 til A.7 hefur verið hekluð til loka eru 77 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hlið-1, 56 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri og einni af hlið-2/3 og hlið-7/8, það eru 35 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri og einni af hlið-4, hlið-5 og hlið-6 og það eru 6 horn með 2 tvíbrugðnum stuðlum, 1 loftlykkja og 2 tvíbrugðnir stuðlar. Klippið EKKI frá! Nú er stærð S/M lokið. Í stærð L/XL og XXL/XXXL er haldið áfram þannig: Stærð L/XL - XXL/XXXL: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! Heklið keðjulykkjur að horni og heklið síðan þannig: Heklið A.4a – sýnir hvar umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót, heklið A.4b um hornið, A.5 alls 19 sinnum á breiddina, * A.6 um næsta horn, A.5 alls 12 sinnum á breidd *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.6 um næsta horn A.5 alls 19 sinnum á breiddina, A.7 um næsta horn, A.4b um sama horn, heklið A.5 alls 26 sinnum á breiddina, endið með A.7. Aukið/fækkið lykkjum í fyrstu umferð þannig (ekki er lykkjum fækkað yfir hornum): Hlið-1: Aukið út um 1-1 tvíbrugðinn stuðul. Hlið-2/3: Aukið út um 1-1 tvíbrugðinn stuðul. Hlið-4: Fækkið um 2-2 tvíbrugðna stuðla – lesið ÚRTAKA-1. Hlið-5: Fækkið um 2-2 tvíbrugðna stuðla. Hlið-6: Fækkið um 2-2 tvíbrugðna stuðla. Hlið 7/-8: Aukið úr um 1-1 tvíbrugðinn stuðul. Þegar öll mynsturteikning A.4 til A.7 hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 86 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hlið-1, 65 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri og einni af hlið-2/3 og hlið-7/8, það eru 41 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri og einni af hlið-4, hlið-5 og hlið-6 og það eru 6 horn með 2 tvíbrugðnum stuðlum, 1 loftlykkja með 2 tvíbrugðnum stuðlum. Klippið EKKI frá! Nú er stærð L/XL lokið (L/XL hefur 4 umferðir fleiri en S/M). Í stærð XXL/XXXL er haldið áfram þannig: Stærð XXL/XXXL: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! Heklið keðjulykkjur að horni og heklið síðan þannig: Heklið A.4a – sýnir hvar umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót, heklið A.4b um hornið, A.5 alls 22 sinnum á breiddina, * A.6 um næsta horn, A.5 alls 14 sinnum á breidd *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.6 um næsta horn A.5 alls 22 sinnum á breiddina, A.7 um næsta horn, A.4b um sama horn, heklið A.5 alls 29 sinnum á breiddina, endið með A.7. Aukið út í fyrstu umferð þannig (ekki er aukið út yfir hornum): Aukið út með 1 tvíbrugðnum stuðli meðfram hverri af 6 hliðum. Þegar öll mynsturteikning A.4 til A.7 hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 95 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hlið-1, 74 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri hlið-2/3 og hlið-7/8, það eru 50 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri hlið-4, hlið-5 og hlið-6 og það eru 6 horn með 2 tvíbrugðnum stuðlum, 1 loftlykkja og 2 tvíbrugðnir stuðlar. Klippið EKKI frá! Nú er stærð XXL/XXXL lokið (XXL/XXXL hefur 8 umferðir fleiri en S/M). ALLAR STÆRÐIR – ÖXL: Nú er heklað fram og til baka einungis meðfram hlið-1. Heklið fyrri öxl með byrjun frá röngu þannig: Heklið keðjulykkjur að horni, snúið og heklið mynsturteikningu frá röngu þannig: Heklið keðjulykkjur að horni, snúið og heklið mynsturteikningu A.8 um hornbogann, A.9 alls 6-7-8 sinnum, endið með A.10 = að hálsmáli. Þegar öll mynsturteikning A.8 til A.10 er lokið á hæðina er klippt frá og endi festur. Miðju 19-22-25 tvíbrugðnu stuðlarnir í kanti á hekluðum hyrningi = hálsmál. Heklið hina öxlina með byrjun frá röngu þannig: Heklið A.11 = að hálsi, A.12 alls 6-7-8 sinnum, endið með A.13 um hornið. Þegar öll mynsturteikning A.11 til A.13 er lokið á hæðina er klippt frá og endi festur. BAKSTYKKI: Heklið alveg eins og framstykki fram þar sem byrjað er á öxlum. Í stað þess að hekla öxl er heklað fram og til baka meðfram allri hlið-1= 81-90-99 tvíbrugðnir stuðlar (meðtaldir tvíbrugðnir stuðlar í horni) + 2 hornbogar í umferð. Heklið með byrjun frá röngu þannig: Heklið A.8 um hornbogann, A.9 alls 27-30-33 sinnum á breiddina, endið með A.13 um hornbogann. Þegar öll mynsturteikning A.8/A.9/A.13 er lokið á hæðina er klippt frá og endi festur. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma – saumið í ystu lykkjubogana. Saumið hliðarsauma þannig: Byrjið í horni á milli hlið-3 og hlið-4 og saumið upp þar til eftir eru ca 19-21-23 cm að öxl = handvegur. Byrjið í horni á milli hlið-6 og hlið-7 og saumið upp þar til eftir eru ca 19-21-23 cm fyrir öxl = handvegur. HÁLSMÁL: Heklaður er kantur í kringum hálsmál. Byrjið á annarri öxlinni og heklið 1 fastalykkju, heklið * 3 loftlykkjur, hoppið ca 1½ cm frá, heklið 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* í kringum hálsmál, endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. ERMI: Stykkið er heklað í hring frá handveg, með byrjun frá miðju undir ermi á hlið. Byrjið með heklunál 4,5 og Puna eða Sky og heklið 66-75-81 tvíbrugðna stuðla jafnt yfir í kringum handveg (heklið í/um tvíbrugðinn stuðul/loftlykkjuboga). Heklið síðan þannig: Heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.14b alls 22-25-27 sinnum í umferð – mynsturteikning A.14a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.14b. Endurtakið síðan A.14 á hæðina og lykkjum er fækkað jafnt yfir í fyrstu umferð í mynsturteikningu – lesið ÚRTAAKA-2, þannig: Fækkið um 6 tvíbrugðna stuðla 3-5-2 sinnum og fækkið um 3-0-9 tvíbrugðna stuðla 2-0-2 sinnum = 42-45-51 tvíbrugðna stuðla eftir síðustu úrtöku. Þegar stykkið mælist ca 45-42-40 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) endið eftir 1. eða 4. umferð í A.14. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (36)
Summer Johnston wrote:
Where do I start A5?
19.05.2024 - 03:44DROPS Design answered:
Dear Summer, when working the EDGE AROUND THE SHAPE you work A.5 in the sections between corners; these corners will be worked in different charts. Happy crochetting!
20.05.2024 - 00:14Puri wrote:
Hola, no se cómo hacer la vuelta 5 de A.1, no entiendo qué hay que hacer en el símbolo del hexágono cuando dice 6 puntos de cadena, ¿me podéis ayudar? Gracias.
05.10.2023 - 20:59DROPS Design answered:
Hola Puri, el hexágono son 6 puntos de cadeneta. Por lo tanto, trabajas un arco de 6 cadenetas entre los 2 puntos bajos de los otros arcos.
09.10.2023 - 00:53Mikaela Söderström wrote:
Hej! Jag förstår inte hur jag ska virka diagram A.3. Var slutar det första varvet och var börjar varv nr 2? Tacksam för svar! Mvh Mikaela
04.08.2023 - 21:20DROPS Design answered:
Hej Mikaela, du starter i midten af diagrammet ved pilen med 1fm,3lm, 1fm, 4 lm, hæft med 1 km, næste række starter med 2 dobbeltst, 2 lm osv :)
10.08.2023 - 13:48Kenzie wrote:
Hi there, how do u work A4.a to 4.7 in pattern?
03.03.2022 - 00:09DROPS Design answered:
Dear Kenzie, depending on your size you will work A.4 to A.7 a different way - see written pattern. this lesson might help you to understand how to work these diagrams. Happy crocheting!
03.03.2022 - 10:18Federica wrote:
Grazie, ma non ho capito se devo iniziare diagramma A.4b dal vertice dell' angolo o dalla base dalla parte destra e poi salire e continuare sul lato con l'altro diagramma A.5 fino ad arrivare alla base dell' altro angolo del lato 8.
26.09.2021 - 21:14Federica wrote:
In che punto dell' angolo devo iniziare a lavorare? Non ho capito neanche quando devo iniziare a fare gli aumenti... Aiutoooo!
26.09.2021 - 18:14DROPS Design answered:
Buonasera Federica, deve lavorare gli angoli sui lati 2 e 8 seguendo i diagramma A.3. Buon lavoro!
26.09.2021 - 21:09Federica wrote:
Grazie mille, provo ad andare avanti....
16.08.2021 - 07:59Federica Trombetti wrote:
Buongiorno, è la prima volta che lavoro con diagramma. non ho capito come si procede per l'angolo del diagramma A3. A.3. La prima riga inizi all’altezza della freccia – ogni riga è affrancata con 1 maglia passata nelle maglie lungo il lato-2 come mostrato nel diagramma Ho iniziato dove indica la freccia con una m.b.. , 3 cat, 1 mb Poi 4 cat, 1 m. bassissima e inizio il secondo giro. e' corretto? e quindi inizio con 2 m. doppie nell'arco di catenelle ecc. ecc..
15.08.2021 - 12:16DROPS Design answered:
Buonasera Federica, si, esatto deve procedere in quel modo. Abbiamo corretto il testo, ogni riga va affrancata con 1 maglia bassissima nelle maglie del lato 2. Buon lavoro!
15.08.2021 - 23:39Luisa wrote:
Grazie
19.12.2020 - 18:49Rikke wrote:
Hej Drops, jeg har prøvet flere gange men forstår ikke hvordan jeg skal lave indtagningerne til ærme - der står både jævnt fordelt og så 6 db.stangmasker x gange og 3 db.stangmasker x gange og det er her jeg ikke kan følge med - hvordan beregner jeg hvornår disse indtagninger skal gøres? Jeg har prøvet flere gange men kan ikke få det til at passe med 42 masker når jeg er færdig (ender altid med lidt flere) Hvad gør jeg forkert? Tak
29.10.2020 - 21:24DROPS Design answered:
Hej Rikke, jo du har 66 masker, tager 6 dbl.st ind jævnt fordelt hver gang du hækler første række i diagrammet 3 gange (ialt 18 indt) og så tager du ind (stadigvæk på første række i diagrammet) jævnt fordelt 3 dbl.st 2 gange (ialt 6 indt) 66-24= 42 dbl.st tilbage :)
04.11.2020 - 12:12