DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Super Sale

Lavender Wash

Prjónað poncho með öldumynstri, prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 1 þræði DROPS BabyAlpaca Silk og 2 þráðum DROPS Kid-Silk.

DROPS 188-40
DROPS Design: Mynstur bs-132
Garnflokkur A + A + A eða D
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-150 g litur 0100, natur
50-50-100 g litur 3250, ljós bleikfjólublár
og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 01, natur
50-50-75 g litur 03, ljós bleikur
50-50-75 g litur 04, millibleikur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 13 lykkjur og 15 umferðir með sléttprjóni með 3 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

RENDUR:
Allar rendur eru prjónaðar með 1 þræði Alpaca + 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 6 cm af hverri rönd áður en skipt er um lit.
RÖND 1: 1 þráður BabyAlpaca Silk natur + 2 þræðir Kid-Silk natur.
RÖND 2: 1 þráður BabyAlpaca Silk natur + 1 þráður Kid-Silk ljós bleikur + 1 þráður Kid-Silk natur.
RÖND 3: 1 þráður BabyAlpaca Silk natur + 2 þræðir Kid-Silk ljós bleikur.
RÖND 4: 1 þráður BabyAlpaca Silk natur + 1 þráður Kid-Silk millibleikur + 1 þráður Kid-Silk ljós bleikur.
RÖND 5: 1 þráður BabyAlpaca Silk natur + 2 þræðir Kid-Silk millibleikur
RÖND 6: 1 þráður BabyAlpaca Silk ljós bleikfjólublár + 1 þráður Kid-Silk millibleikur + 1 þráður Kid-Silk ljós bleikur.
RÖND 7: 1 þráður BabyAlpaca Silk ljós bleikfjólublár + 2 þráður Kid-Silk millibleikur.

ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 7,5.
Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir lykkjunni og prjónið uppsláttinn snúinn í næstu umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður.

PONCHO:
Fitjið upp 90-102-114 lykkjur með 1 þræði Baby Alpaca Silk í litnum natur + 2 þráðum Kid-Silk í litnum natur (= 3 þræðir) á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 lykkju í hverri sléttri mynstureiningu = 120-136-152 lykkjur. Haldið áfram með stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 25-25-25 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-17-18 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 136-153-170 lykkjur.

Prjónið 1 umferð brugðið, prjónið síðan eftir A.1 (= 8-9-10 mynstureiningar á breidd) og prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 232-261-290 lykkjur í umferð. Nú eru endurteknar síðustu 6 umferðir í mynsturteikningu (= A.2) þar til stykkið mælist 40-42-44 cm frá stroffi (nú hafa verið prjónaðir ca 6 cm af hverri af fyrstu 6 röndum og ca 4-6-8 cm af rönd 7). Fellið af þannig: * Fellið af 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og fellið uppsláttinn af, * endurtakið frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af. Festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.03.2018
Nýtt efnismagn í DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A) 50-50-50 g litur 01, natur 50-50-75 g litur 03, ljós bleikur 50-50-75 g litur 04, millibleikur

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Lavender Wash

Karima, Iraq

Lavender Wash

Kathy, United States

Lavender Wash

Linnéa, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Beth wrote:

I’m having trouble understanding the instructions about how much of each color to buy. What does 150-150-150g color Off-white mean (50-50-100, etc)? Thank you!

27.12.2023 - 22:38

DROPS Design answered:

Dear Beth, it means that for size S/M you need the first amount, for the next size the second amount, e.t.c. For example, you need 150 grams of off white regardless of the size but you will need 50grams of Light Old pink for the first 2 sizes and 100grams for the largest size. Happy knitting!

29.12.2023 - 00:13

country flag Heidi wrote:

Hi, what yarn do you recommend to replace the discontinued Baby Alpaca Silk?

27.12.2023 - 22:26

DROPS Design answered:

Dear Heidi, you can use DROPS Baby Merino or DROPS Alpaca. Happy knitting!

29.12.2023 - 00:13

country flag Doris wrote:

Da es die Baby Alpaca Silk nicht mehr gibt, möchte ich dieses Modell in Alpaca verstricken. Welche Farbe entspricht dabei der Baby Alpaca Silk 3250 hell altrosa bei der Alpaca oder Baby Merino?

23.09.2023 - 19:47

DROPS Design answered:

Liebe Doris, bei Fragen über Farben wenden Sie sich bitte am besten direkt an Ihrem DROPS Händler,dort wird man (auch per Telefon oder per E-Mail) die besten passenden Farben empfehlen. Viel Spaß beim stricken!

25.09.2023 - 08:46

country flag Day Vaz wrote:

Hello. I love making videos knitting patterns and adjusting them to the Brazilian way of knitting. Do you allow me to record the step by step of this project and put it on my Youtube channel for everyone? Thanks for the answer. Sincerely, Day @blogbyday.

02.08.2023 - 14:15

DROPS Design answered:

Dear Day Vaz, please send your request at media@garnstudio.com - thanks for your comprehension!

02.08.2023 - 16:30

country flag Christelle R wrote:

Bonjour, la Babyalpaca silk est une qualité supprimée. J'ai regardé par quel fil remplacer mais cela va du 100% alpaca au 100% coton. Pouvez-vous me conseiller pour obtenir une finition équivalente car je ne sais que choisir ? Merci de votre aide ;-)

28.05.2023 - 17:04

DROPS Design answered:

Bonjour Christelle, choisissez votre fil (Safran, Alpaca, Baby Merino, Fabel..) en fonction de l'usage du poncho, votre magasin saura vous conseiller la meilleure alternative possible, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

30.05.2023 - 10:48

country flag Daniela Uiberlacker wrote:

Guten Tag, ich habe dieses tolle Modell soeben fertig gestrickt, auch in denselben Farben und Garn. Der Kragen ist jedoch sehr weit, bzw. "hält" nicht richtig. Haben Sie einen Tipp, wie man diesen etwas enger machen könnte? Habe schon überlegt, ob man ein Band oder einen Gummi einziehen könnte, bin aber auf diesem Gebiet nicht erfahren, wäre für einen Rat dankbar. MfG Daniela Uiberlacker

06.04.2023 - 08:49

DROPS Design answered:

Liebe Frau Uiberlacker, sowas können Sie sicher machen, gerne kann Ihnen damit Ihr DROPS Händler (auch telefonisch oder per E-Mail) weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

11.04.2023 - 11:32

country flag Nina wrote:

Hi, I'd like to make this bigger, longer and wider. How to continue? Nina

25.08.2022 - 21:10

DROPS Design answered:

Dear Nina, since you work it top down, you can lengthen the garment by simply repeating A.2 up to the desired length. If you want to work a larger size, you can add one more repeat of 17 stitches on the round. You can see a longer poncho, with a similar wave pattern, here: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=6190&cid=19. Happy knitting!

27.08.2022 - 19:57

country flag Nina Marketta Väisänen wrote:

Hei, Haluaisin jatkaa ponchon pituutta ainakin 15- 20 cm. Miten toimin? t. Nina

04.08.2022 - 18:36

DROPS Design answered:

Voit tehdä ponchosta pidemmän toistamalla piirroksen A.2 mallikertaa kuten aiemmin.

04.10.2022 - 16:59

country flag Karoliina wrote:

Sain eilen ponchon valmiiksi. Sovitin ylleni ja poncho valui yli olkapäiden, poncho tehty ohjeiden mukaan. Kaula aukko ei pysy lainkaan kohdallaan.

31.01.2022 - 10:36

country flag Deepa wrote:

Appreciate the perfect instructions. This is the first time I have tried your pattern and was apprehensive about it. But it was nothing to worry about. Reading the chart was easy, and for my convenience I wrote it in words. ☺️ Thanks again. Looking forward to more such patterns.

16.01.2022 - 04:35