DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Mamma Mia

Heklað poncho með gatamynstri og kögri, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Paris.

DROPS 191-11
DROPS Design: Mynstur w-679
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650-800-950 g litur 33, millibleikur
50-50-50 g litur 17, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 stuðlar verði 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.

HEKLLEIÐBEININGAR:
A.1a, A.2a, A.3a, A.4a, A.5a, A.6a og A.7a sýna hvernig umferðirnar byrja og enda. Þessar lykkjur eru heklaðar sem viðbót við tilheyrandi mynsturteikningu og eru ekki taldar með í lykkjufjölda.

ÚTAUKNING:
Heklið 2 stuðla í sömu lykkju. Þegar aukið er út jafnt yfir, aukið út jafnt yfir meðfram hvorri langhlið þ.e.a.s. frá miðju boga að miðju boga.

MÆLING:
Öll mál á lengd er mæld frá uppfitjunarkanti – mælt lóðrétt frá öxl og niður, ekki frá miðju boga.

ÚRTAKA:
Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu lykkju og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Fyrst er aukið út hvoru megin á öxl og við miðju að framan/miðju að aftan, síðan er einungis aukið út við miðju að framan og við miðju að aftan.

PONCHO:
Heklið 146-146-146 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum millibleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur, síðan er heklaður 1 stuðull í hverja af fyrstu 2-2-2 loftlykkjurnar, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 24-24-24 sinnum í umferð, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 122-122-122 stuðlar + 3 loftlykkjur í umferð.

Nú er mynstur heklað í hring eftir mynsturteikningu – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA, þannig:

HEKLIÐ A.1 ÞANNIG:
Byrjun á umferð = mitt á öxl. Heklið A.1b, A.1c, A.1b alls 3 sinnum á breidd, A.1d (= miðja að framan), A.1b alls 3 sinnum á breidd, A.1c, A.1b alls 2 sinnum á breidd (öxl er staðsett mitt á milli þessa 2 mynstureininga), A.1c, A.1b alls 3 sinnum á breidd, A.1d (= miðja að aftan), A.1b alls 3 sinnum á breidd, A.1c, endið með A.1b – JAFNFRAMT er aukið út í hverri umferð merktri með ör í mynsturteikningu – lesið ÚTAUKNING, þannig:
ÖR-1: Aukið út 0-6-12 stuðla jafnt yfir meðfram hvorri langhlið (= alls 0-12-24 stuðlar fleiri).
ÖR-2: Aukið út 6-6-18 stuðla jafnt yfir meðfram hvorri langhlið (= alls 12-12-36 stuðlar fleiri).
ÖR-3: Aukið út 6-6-12 stuðla jafnt yfir meðfram hvorri langhlið (= alls 12-12-24 stuðlar fleiri).
Þegar A.1 er lokið á hæðina eru 108-114-138 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 216-228-276 stuðlar í umferð + 2 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 8 cm – lesið MÆLING.

HEKLIÐ A.2 ÞANNIG:
Heklið A.2b alls 9-10-12 sinnum, A.2c yfir miðju boga, A.2b alls 18-19-23 sinnum, A.2c yfir miðju boga, A.2b alls 9-9-11 sinnum á breidd. Þegar A.2 er lokið á hæðina hafa verið auknar út alls 4 mynstureiningar í umferð.

HEKLIÐ A.3 ÞANNIG:
Heklið A.3b alls 10-11-13 sinnum, A.3c yfir miðju boga, A.3b alls 20-21-25 sinnum, A.3c yfir miðju boga, A.3b alls 10-10-12 sinnum á breidd. Þegar A.3 er lokið á hæðina hafa verið auknar út alls 4 mynstureiningar í umferð. Stykkið mælist ca 24 cm.
Heklið síðan eftir A.3 í stærð L/XL og XXL/XXXL þannig:
Heklið 2-4 síðustu umferðir í A.3 þannig: Heklið A.3b alls 12-14 sinnum, A.3c yfir miðju boga, A.3b alls 23-27 sinnum, A.3c yfir miðju boga, A.3b alls 11-13 sinnum á breidd. Þegar þessar 2-4 umferðir hafa verið heklaðar til loka á hæðina hafa verið auknar út alls 4-4 mynstureiningar í umferð. Stykkið mælist ca 27-30 cm.

ALLAR STÆRÐIR:
HEKLIÐ A.4 ÞANNIG:
Heklið A.4b alls 11-13-15 sinnum, A.4c yfir miðju boga, A.4b alls 22-25-29 sinnum, A.4c yfir miðju boga, A.4b alls 11-12-14 sinnum á breidd. Þegar A.4 er lokið á hæðina hafa verið auknar út 4 mynstureiningar í umferð. Nú eru 144-162-186 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 288-324-372 stuðlar + 2 loftlykkjubogar í umferð).

HEKLIÐ A.5 ÞANNIG:
Heklið A.5b alls 12-14-16 sinnum, A.5c yfir miðju boga, A.5b alls 24-27-31 sinnum, A.5c yfir miðju boga, A.5b alls 12-13-15 sinnum á breidd – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í umferð merktri með ör í mynsturteikningu – lesið ÚRTAKA, þannig: Fækkið um 0-6-6 stuðla jafnt yfir meðfram hvorri langhlið (= alls 0-12-12 stuðlar færri).
Þegar A.5b er lokið á hæðina hafa verið auknar út alls 4-2-2 mynstureiningar (með 6 lykkjum) í umferð. Nú eru 156-168-192 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 312-336-384 stuðlar + 2 loftlykkjubogar í umferð).

HEKLIÐ A.6 ÞANNIG:
Heklið A.6b, A.6c alls 6-7-8 sinnum, A.6d yfir miðju boga, A.6c alls 13-14-16 sinnum á breidd, A.6d yfir miðju boga, A.6c alls 6-6-7 sinnum á breidd, A.6e. Þegar A.6 er lokið á hæðina hafa verið auknar út alls 2 mynstureiningar (með 12 lykkjum) í umferð. Nú eru 168-180-204 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 336-360-408 stuðlar + 2 loftlykkjubogar í umferð). Stykkið mælist ca 37-40-48 cm.

HEKLIÐ A.7 ÞANNIG:
Í stærð L/XL og XXL/XXXL er klippt frá, byrjið næstu umferð með 1 keðjulykkju í 6. stuðul (= mitt á öxl).
Heklið A.7b alls 14-15-17 sinnum, A.7c yfir miðju boga, A.7b alls 28-30-34 sinnum, A.7c yfir miðju boga, A.7b alls 14-15-17 sinnum á breidd. Þegar A.7 er lokið á hæðina hafa verið auknar út 4 mynstureiningar (með 6 lykkjum) í umferð. Nú eru 180-192-216 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 360-384-432 stuðlar + 2 loftlykkjubogar í umferð). Stykkið mælist ca 42-45-48 cm.

HEKLIÐ A.2 ÞANNIG:
Heklið A.2b alls 15-16-18 sinnum, A.2c yfir miðju boga, A.2b alls 30-32-36 sinnum, A.2c yfir miðju boga, A.2b alls 15-16-18 sinnum á breidd. Þegar A.2b er lokið á hæðina hafa verið auknar út alls 4 mynstureiningar (með 6 lykkjum) í umferð. Klippið frá og festið enda.
Stykkið mælist ca 45-48-51 cm (ca 54-57-60 cm meðfram miðjubogum).

KÖGUR:
Klippið 4 þræði í litnum millibleikur og 2 þræði í litnum natur ca 25 cm. Leggið þá saman tvöfalda, þræðið inn lykkjuna frá réttu í loftlykkjuboga í einum stuðlahóp í síðustu umferð. Þræðið síðan þræðina í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Festið eitt kögur í loftlykkjuboga í hvern stuðlahóp. Til að kögrið hangi fallega verður að bleyta það aðeins, hrissta það til og þurrka.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = þríbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um loftlykkjuboga á undan stuðlahóp, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um loftlykkjubogann á eftir stuðlahópnum og dragið að lokum uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni
symbols = heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvora af 2 næstu lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum tvíbrugðnu stuðlum, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni
symbols = 1 fastalykkja á milli 2 tvíbrugðna stuðla
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð, byrjið á næstu umferð
symbols = útaukning/úrtaka
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 5 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju í byrjun á umferð

diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Maria Jose wrote:

Gracias por tu respuesta, pero no me queda claro como seria cada vuelta. Me podias describir la primera vuelta? Muchas gracias.

29.12.2023 - 19:31

DROPS Design answered:

Hola Maria Jose, A.1a (= 1.p de cad), A.1b( = 1 p.b en el 1º p.a, 2 p.de cad, saltar 2 p.a, (2 p.a, 2 p.de cad, 2 p.a) en el siguiente p.a, 2 p.de cad, saltar 2 p.a), A.1c (= 1 p.b en el sig p.a, 2 p.de cad, saltar 2 p.a, (2 p.a, 2 p.de cad, 2 p.a) en el siguiente p.a, 2 p.de cad, saltar 2 p.a), repetir A.1b 3 veces, A.1d (trabajar en el p.a de la esquina: 1 p.b, 2 p.de cad, 1 p.a, 2 p.de cad, 1 p.a, 2 p.de cad, 1 p.b), repetir A.1b 3 veces, repetir A.1c 1 vez, repetir A.1b 2 veces, repetir A.1c 1 vez, repetir A.1b 3 veces, repetir A.1d 1 vez, repetir A.1b 3 veces, repetir A.1c 1 vez, repetir A.1b 1 vez.

07.01.2024 - 15:39

country flag MARIA JOSE GONZALEZ wrote:

Hola! No entiendo cómo realizar el patrón, si pone A1b, A1c, Ac1 tres veces en horizontal, hay que hacer primero la A1b tres veces y luego el c o se van alternando?? No lo tengo muy claro. Gracias

28.12.2023 - 21:20

DROPS Design answered:

Hola Maria José, puedes ver la respuesta debajo.

29.12.2023 - 00:23

country flag María José wrote:

Hola! He empezado el patrón del poncho pero no entiendo muy bien cómo interpretar el patrón. Pone que los esquemas A1b, A1c A1d tres veces en horizontal, pero no sé si el el A1b tres veces , después el c otras tres veces, o se van alternando! Estoy echa un lío!! Me podéis ayudar??

28.12.2023 - 21:13

DROPS Design answered:

Hola María José, como están separados por comas, 3 veces en horizontal solo se aplica al último diagrama. Es decir, en la misma vuelta, trabajas A.1b 1 vez, A.1c 1 vez, A.1b 3 veces, A.1d 1 vez, A.1b 3 veces, A.1c, A.1b 2 veces, A.1c 1 vez, A.1b 3 veces, A.1d 1 vez, A.1b 3 veces, A.1c 1 vez, A.1b 1 vez.

29.12.2023 - 00:22

country flag Michaela L wrote:

Vielen Dank! Allerdings geht meine Frage zu der Reihe 2 des Diagramms. Reihe 1 = Stäbchen ergeben 122 Maschen, korrekt? Die Reihe 2 danach mit dem ersten Muster erfordert aber mehr Maschen. Könnten Sie bitte nochmal im Detail schreiben wie die Reihe 2 sich auf die 122 Maschen verteilt? Danke sehr!

09.03.2023 - 12:46

DROPS Design answered:

Liebe Michaela, setzen Sie Markierungen nach jedem Diagram, so wird es viel einfacher, die Maschenanzahl zu prüfen (bei der 2. Reihe (vor dem 1. Pfeil) sind es 6 M in jedem A.1b/A.1c + in A.1D (3 lm, 1 fm, 4 lm, 1 fm, 2 Lm) - So können Sie bei der Reihe mit dem Pfeil-1 so prüfen daß Sie die richtige Maschenanzahl in jedem Diagram haben (5 Stb in jedem A.1b, 8 Stb in jedem A.1c und 7 Stb, 2 Lm, 6 Lm in A.1d). Viel Spaß beim häkeln!

09.03.2023 - 17:37

country flag Michaela L wrote:

Danke für die schnelle Antwort. Ich muss nur leider sagen dass ich es nicht ganz verstehe: wo bzw in welche Rd sehe ich denn die Zunahmen in 1d und 1c? ist das bereits in der Rd 2 des Diagramms der Fall, denn dort fehlen mir bereits die Maschen, wir oben beschrieben. Ich kann leider die jeweils 6 M in A1d pro Runde nicht entdecken.

08.03.2023 - 15:42

DROPS Design answered:

Liebe Michaela, die Zunahmen in c und d sind in Diagram gezeichnet: A.1c wird über 6 Maschen gehäkelt aber am Ende sind es 12 Maschen = 6 Zunahmen in jedem A.1c und A.1c wird 4 Mal gehäkelt - A.1d wird über 1 M gehäkelt und am Ende A.1d sind es: 12 Stb, 2 Lm, 12 Stb = es wurde 23 M zugenommen (ohne die Lm). Kann das Ihnen helfen?

08.03.2023 - 15:46

country flag Michaela L wrote:

Ich häkele Grösse S. Zugenommen wird doch erst ab Reihe 4 des Diagramms, dh noch nicht in den ersten Stäbchen Runden, oder? Meine erste Muster-Runde (= Runde 2 des Diagramm) endet mit 1,5 x A 1b nach A1d, dh es fehlen mir ca 1,5x A1b , 1x A1c und am Ende 1x A1b, gemäss der Beschreibung zu A1.

08.03.2023 - 15:01

DROPS Design answered:

Liebe Michaela, In S beginnen die Zunahmen bei den Pfeile, mit der 4. Reihe und dann wieder bei der letzten Reihe, aber die Maschenanzahl in jeder A.1d + in jeder A.1c wird auch zunehmen, so sind es: 122 M + (6 M in jedem A.1c x 4 Rapporter) + (23 M in jedem A.1d x 2 Rapporter) + 24 zusätzlichen Zunahmen = 216 Maschen insgesamt = 108 m beidseitig von den Luftmaschenbogen in A.1d. Viel Spaß beim häkeln!

08.03.2023 - 15:24

country flag Michaela L wrote:

Liebes Drops Team, in der ersten Reihe nach den jeweils 6 Stäbchen komme, also wenn die erste Runde mit Muster gehäkelt wird, komme ich mit der Anzahl der Stäbchen nicht aus. Obwohl ich die Stäbchen Reihe mit 122 Maschen korrekt abgeschlossen habe. Es fehlen aber für die erste Musterreihe etliche Maschen, um die erste Musterreihe komplett abzuschliessen. Wo ist mein Fehler? Danke!

08.03.2023 - 14:02

DROPS Design answered:

Liebe Michaela, können Sie uns bitte sagen, welche Größe Sie häkeln? Danke im voraus!

08.03.2023 - 14:47

country flag Maarit wrote:

Hei. En ymmärrä ohjeen lisäyskerroksia... Alussa Oli 122 pylvästä ja kolmen lisäyskerroksen jälkeen ( 6p/krs/osuus ) pylväitä onkin vain esim. 114! Missä vika?

04.07.2022 - 18:57

DROPS Design answered:

Lisäysten jälkeen keskellä edessä ja keskellä takana olevien ketjusilmukkakaarien välissä on aina 114 pylvästä, työssä on siis yhteensä 228 pylvästä.

04.10.2022 - 17:03

country flag SONIA MARIA DOS SANTOS wrote:

Vcs não poderiam me mandar um vídeo da peça,drops 191/11 , não consegui ler,ou mandar um gráfico mais específico, principalmente do início do trabalho, muito obrigada

28.07.2021 - 14:21

DROPS Design answered:

Bom dia, No fim da receita do modelo, pode encontrar 15 vídeos que mostram alguns pontos e técnicas usados em este poncho. Pode clicar no link abaixo: https://www.garnstudio.com/video.php?patternid=8579&lang=pt Bons crochés!

30.07.2021 - 09:59

country flag Sara wrote:

Inte så van med diagram, har problem med A6. Hur ska tredje och fjärde varvet virkas? Har svårt att få till 6 varv totalt. Med vänlig hälsning, Sara

26.05.2021 - 10:37

DROPS Design answered:

Hei Sara. Det er 5 omganger i diagram A.6. Første omgang, med stjerne, er allerede heklet. På 3. og 4. omgang starter du med A.6a, deretter A.6b, A.6c (gjentas flere ganger), A.6d, A.6c igjen (gjentas flere ganger), A.6d og til slutt A.6e. 3. omgang starter med 5 luftmasker, deretter hekles A.6b (3 luftmasker, 4 dbl-stav og 1 trippelstav om luftmaskebuen og 1 fastmaske om neste luftmaskebuen. Følg diagramrekkefølgen over og les diagramforklaringene i oppskriften. mvh DROPS design

26.05.2021 - 15:10