DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Summer Ride

Heklaður bikinítoppur með marglitu mynstri og snúru. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Safran.

DROPS 190-4
DROPS Design: Mynstur e-269
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 18, natur
50-50-50 g litur 53, ljós fjólublár eða notið lit 05, ljós bláfjólublár
50-50-50 g litur 01, ljós bleikur
50-50-50 g litur 28, appelsínugulur
50-50-50 g litur 15, dökk vínrauður
50-50-50 g litur 51, bensínblár

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 28 stuðlar verði 10 cm á breidd.

FYLGIHLUTIR: Tréperlur ca 1 cm að þvermáli: 14 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
A.3 sýnir hvernig nota á bikiníið. A.4 sýnir hvernig á að gera snúru. A.5 sýnir hvernig maður festið lykkjurnar.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Heklað er til skiptis frá réttu og frá röngu.
Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum (kemur í stað fyrsta stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, snúið stykkinu.

LITAMYNSTUR:
Þegar skipt er um lit í byrjun á nýrri umferð er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul með fyrsta lit, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin. Skiptið yfir í nýjan lit, dragið þráðinn í gegn með nýja litnum. Snúið stykkinu og heklið 3 loftlykkjur (= byrjun á nýrri umferð).
Þegar skipt er um lit í umferð er heklað þannig: Heklið 1 stuðul með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin. Skiptið yfir í nýjan lit, dragið þráðinn í gegn með nýja litnum.
Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki innan í lykkjunum, þráðurinn fylgir þar með áfram hringinn. Passið uppá að fylgiþræðirnir herði ekki á stykkinu og að þráðurinn verði ekki stífur þegar hann er sóttur upp frá fyrri umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BIKINITOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru heklaðar 2 lausar brjóstaskálar. Þær eru festar saman við miðju að framan með snúru. Það er gerð lykkja í hvorri hlið og band fyrir öxl er þrætt í gegnum þær og hnýttur í kross á baki.

BRJÓSTASKÁL:
Heklið 30-30-36 loftlykkjur með heklunál 2,5 með litnum natur. Heklið síðan fyrstu umferð í A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LITAMYNSTUR og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA, þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 24-24-30 loftlykkjur (= 4-4-5 mynstureiningar), A.1b yfir næstu 4 loftlykkjur, heklið fyrstu 3 stuðla í A.1c yfir síðustu 2 loftlykkjur, haldið síðan áfram hringinn í gagnstæðri hlið við loftlykkjur (= 29-29-35 loftlykkjur) og heklið síðustu 2 stuðla í A.1c í aðra af þessum loftlykkjum (sjá ör í mynsturteikningu), heklið síðan A.1d yfir næstu 4 loftlykkjur og A.1e yfir síðustu 24-24-30 loftlykkjur (= 4-4-5 mynstureiningar).
STÆRÐ S/M:
Haldið svona áfram með mynstur þar til A.1c er lokið á hæðina = 85 stuðlar í síðustu umferð.
STÆRÐ L/XL:
Endurtakið fyrstu umferð í A.1a/b/d/e 1 sinni til viðbótar á hæðina (þ.e.a.s. 1 umferð með natur) áður en heklað er áfram í þessu mynstri JAFNFRAMT er haldið áfram í 2. umferð í A.1c. Haldið svona áfram þar til mynstur A.1c er lokið á hæðina = 91 stuðull í síðustu umferð.
STÆRÐ XXL/XXXL:
Endurtakið fyrstu umferð í A.1a/b/d/e 3 sinnum til viðbótar á hæðina (þ.e.a.s. 1 umferð með natur) áður en heklað er áfram í þessu mynstri JAFNFRAMT er haldið áfram í 2. umferð í A.1c. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.1c er lokið á hæðina = 113 stuðlar í síðustu umferð.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið A.2a yfir fyrstu 24-24-30 stuðlana (= 4-4-5 mynstureiningar), A.2b yfir næstu 4 stuðlana, heklið A.2c yfir næstu 10-15-15 stuðla, A.2d yfir næstu 9-5-15 stuðla, A.2e yfir næstu 10-15-15 stuðla, A.2f yfir næstu 4 stuðla, A.2g yfir síðustu 24-24-30 stuðla (= 4-4-5 mynstureiningar). Haldið svona áfram með mynstur þar til A.2 er lokið á hæðina = 91-97-121 stuðlar í síðustu umferð.
Heklið næstu umferð með natur þannig: 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, * 1 fastalykkja í næsta stuðul, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sama stuðul, hoppið yfir 1 stuðul *, heklið frá *-* þar til 2 stuðlar eru eftir, heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í síðasta stuðul. Klippið frá og festið enda. Heklið aðra brjóstaskál til viðbótar alveg eins.

BAND FYRIR ÖXL:
Sjá mynsturteikningu A.3.
Klippið 4 þræði í litnum natur ca 6 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda, ca 10 cm frá enda. Leggið snúruna saman, þræðið lykkjuna frá réttu á milli 2 stuðla í efsta hornið á annarri brjóstaskálinni. Þræðið síðan þræðina í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Gerið aðra snúru alveg eins og þræðið á milli 2 stuðla ca 5-5-6 cm frá horni.
Gerið annað band fyrir öxl alveg eins og setjið á hina brjóstaskálina.
Þræðið hvorn enda í gegnum 1 trékúlu og hnýtið hnút – sjá mynsturteikningu A.4a. Klippið 8 þræði natur ca 10 cm og hnýtið hnút til viðbótar með þræðinum frá hnút – hnýtið hann í miðju á þessum þráðum. Þetta er gert til að kögrið verði meira um sig. Hnýtið 1 þráð natur ca 1 cm niður frá kúlu. Klippið frá.

LYKKJA:
Klippið 4 þræði í litnum natur ca 1 meter. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda, ca 10 cm frá enda. Leggið snúruna saman tvöfalda, þræðið lykkjuna frá réttu á milli 2 stuðla í neðsta hornið á brjóstaskálinni. Þræðið síðan þræðina í gegnum lykkjuna á framhlið – látið eina lykkju hanga eftir ca 10 cm – mynsturteikning A.5. Herðið varlega á bakhlið og hnýtið hnút.
Þræðið annan endann í gegnum 1 trékúlu og gerið hnút – sjá mynsturteikningu A.4b.
Klippið 8 þræði í litnum natur ca 10 cm og hnýtið hnút til viðbótar með þræði frá hnút - hnýtið hann í miðju á þessum þráðum. Þetta er gert til að kögrið verði meira um sig. Vefjið einum þræði í litnum dökk vínrauður ca 8 sinnum hringinn, ca 1 cm að neðan frá kúlu (sjá svartan ferning). Klippið enda. Gerið það saman á hinum endanum, en meðlitnum appelsínugulur. Gerið lykkjur á sama hátt á hinni brjóstaskálinni.

SNÚRA VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN:
Klippið 4 þræði í litnum natur ca 4 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda, ca 10 cm frá enda. Þræðið bandið (neðan frá og upp) á milli 2 stuðla frá annarri brjóstaskálinni að hinni, í sikk sakk, alls 3 sinnum, síðan er endinn þræddur upp og niður alveg eins á hinni brjóstaskálinni. Hnýtið slaufu að framan.
Þræðið annan endann í gegnum 1 trékúlu og hnýtið hnút – sjá mynsturteikningu A.4c. Klippið 20 þræði í litnum natur ca 15 cm og hnýtið hnút til viðbótar með enda frá hnút – hnýtið hann í miðju á þessum þráðum. Þetta er gert til að kögrið verði meira um sig. Vefjið einum þræði dökk vínrauður ca 16 sinnum hringinn, ca 1 cm að neðan frá kúlu (sjá svartan ferning). Vefjið þræði í litnum appelsínugulur ca 8 sinnum hringinn, á efri hlið á trékúlu (sjá efsta svarta ferning). Klippið enda. Gerið alveg eins á hinum endanum.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja með natur
symbols = 1 stuðull í lykkju með natur
symbols = 1 stuðull í lykkju með ljós bleikur
symbols = 1 stuðull í lykkju með ljós fjólublár eða ljós bláfjólublár
symbols = 1 stuðull í lykkju með appelsínugulur
symbols = 1 stuðull í lykkju með dökk vínrauður
symbols = 1 stuðull í lykkju með bensínblár
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð - byrjið á næstu umferð!
symbols = heklið í þá loftlykkju sem örin vísar að
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Ana61 wrote:

I just bought the cotton fir that pattern but the pattern in french is not understandable. i am very disappointed

07.09.2019 - 17:36

country flag Sharan Stanwood wrote:

Well, the answer to my previous comment stating there are problems with this pattern was only defense. I have made some suggestions for this pattern on my R account, which is my 1st name with 555, if anyone else is confused. To begin with, start with 33-33-39 chain stitches, and dc in the 4th ch from hook.

28.08.2019 - 23:43

country flag Sharan Stanwood wrote:

Your diagrams A.1a thru A.etc, along with the written explanations, are impossible to understand. The A charts are not numbered, so there is confusion as to where to start; the * makes no sense, it does not say which size is relevant; and more, make this pattern utterly impossible! And I am an Advanced crocheter!! I could create the bikini top just by looking at it; however a pattern should make sense in ALL languages it\'s translated into, with internationally recognized symbols.

12.08.2019 - 21:01

DROPS Design answered:

Der Mrs Stanwood, The DROPS patterns are knitted and crocheted by thousands and thousands of people  around the world. We understand however that in certain countries, with different knitting/crochet traditions than Scandinavia, our patterns might be written in a way that differs from what some are used to. But of course we want everyone to understand our patterns, so that’s why we have created an extensive library of tutorial videos as well as step by step lessons that explain how to follow the techniques we use and how to read the diagrams in our patterns. Give them a try!

13.08.2019 - 08:45

country flag Cristina wrote:

Se realiza con aguja de 2.5mm o de 35mm? no me queda claro

07.08.2018 - 20:16

DROPS Design answered:

Hola Cristina, el patrón se realiza con aguja de 2.5 mm. Se trataba de una errata, ya está corregido.

07.08.2018 - 21:24

Toby wrote:

This is very confusing. Plus it says there’s not a USA translation.

29.06.2018 - 23:11

DROPS Design answered:

Dear Toby, our translators work continiously to get the patterns in every language as fast as possible. This pattern is already available in US version. Happy Crafting!

01.07.2018 - 03:32

Jing wrote:

Dear, I really love the above bikini pattern, but I can't understand the diagram and the words explanation. they confused me. Would you please write to me more details, like how to start with, and where's the beginning etc? And does this bra cup crochet directly or need to crochet different parts and then sew them together to make one piece of bra? Appreciate if more information, thank you. Sincerely, Jing

27.06.2018 - 06:46

DROPS Design answered:

Dear Jing, each bra cup will be worked separately starting in the middle of piece and crocheting back and forth on each side of the fundation chain, and increasing on one end of the chain to create the rounded edge towards mid front (the side where you will turn at the end of each row will be straight - see measurement chart. Follow then diagrams starting on row after the one with the star and reading from RS right to left and from WS left to right. Happy crocheting!

27.06.2018 - 08:29