Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja | |
= brugðin lykkja | |
= setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni | |
= setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni | |
= 2 lykkjur brugðið saman | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat | |
= setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni | |
= setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= KÚLA: Prjónið 1 lykkju slétt aftan í og framan í sömu lykkju þar til 5 lykkjur eru á prjóni, snúið við og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu yfir þessar 5 lykkjur, snúið og prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Notið vinstri prjón og steypið annarri lykkju á hægri prjóni yfir fyrstu lykkju á prjóninum, steypið þriðju lykkju yfir fyrstu lykkju, steypið fjórðu lykkju yfir fyrstu lykkju og eftir það fimmtu lykkju yfir fyrstu lykkju (= 1 lykkja eftir) | |
= þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Happy Day |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar með köðlum úr DROPS Lima. Stærð 35 - 43.
DROPS 193-4 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR (á við um hæl): Til að styrkja hælin er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 12-14-14 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA-2: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 60-64-66 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Lima. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1A (= 3-5-6 lykkjur), A.2A (= 8 lykkjur), A.3A (= 15 lykkjur), A.2A (= 8 lykkjur), A.4A (= 15 lykkjur), A.2A (= 8 lykkjur) og endið með A.5A (= 3-5-6 lykkjur). Endurtakið A.1A til A.5A á hæðina þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið A.1B yfir A.1A, A.2B yfir A.2A, A.3B yfir A.3A, A.4B yfir A.4A og A.5B yfir A.5A. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1B til A.5B hefur verið prjónað til loka eru 53-57-59 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þannig: Prjónið A.1C yfir A.1B, A.2C yfir A.2B, A.3C yfir A.3B, A.4C yfir A.4B og A.5C yfir A.5B. Prjónið A.1C til A.5C alls 2-2-3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 20-20-23 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-2-2 lykkjur slétt, 1-1-2 lykkjur brugðið, 9 lykkjur slétt, prjónið A.3C (= 12 lykkjur), A.2C (= 9 lykkjur) og A.4C (= 12 lykkjur) eins og áður, 9 lykkjur slétt, 1-1-2 lykkjur brugðið og 0-2-2 lykkjur slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 5-7-8 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 6-5-5 lykkjur slétt, prjónið A.6A (= 27-29-29 lykkjur) – haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu, prjónið 6-5-5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og 5-7-8 lykkjur slétt = 51-55-57 lykkjur. Endurtakið síðan A.6A (= 27-29-29 lykkjur), aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið nú eftir fyrstu 12-13-14 lykkjunum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 27-29-29 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir 24-26-28 hællykkjurnar í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 11-12-13 lykkjur hvoru megin við hæl og 27-29-29 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 61-67-69 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 27-29-29 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón og A.6A eins og áður og fækkið lykkjum hvoru megin við 27-29-29 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur Á UNDAN fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur Á EFTIR seinna prjónamerki snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-8-7 sinnum = 47-51-55 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 17-19-21 cm frá prjónamerki á hæl – stillið af að ekki sé endað í 3. til 5. umferð í A.6A. Prjónið nú A.6B yfir A.6A, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar A.6B hefur verið lokið á hæðina eru 44-48-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4-4-5 cm til loka, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 22-24-26 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 4-4-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-6-6 sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6939 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (13)
Ron wrote:
Zucht, vind het verwarrend... Zoals ik het interpreteer, vanaf: "Brei de volgende naald als volgt: Brei 0-2-2 recht, 1-1-2 averecht, 9 recht, brei A.3C (= 12 steken), A.2C (= 9 steken) ...........". Maar je moet A.3C/A.2C/A.4C volledig afmaken, 8 nld, want anders klopt het patroon niet meer. Dan 2 minderingen en A.6A, A.6A afmaken 8 nld. Dan A.6A herhalen, 8 nld. Dus brei je A.6A twee keer voordat je aan de hiel begint.
29.03.2024 - 09:55Ron wrote:
Bij de 1st keer A.6A in het patroon, de naald waarin 2 steken geminderd wordt, staat “ga verder op de juiste naald in telpatroon”. Wat wordt hier mee bedoeld? En dan daarna “herhaal A.6A, overige steken in tricosteek”. Maar zou “herhaal A.6A” niet “ga verder met A.6A” moeten zijn? Dus 1 nld met 2 minderingen en de overige 7 nld met de overige steken in tricosteek. En dus 1 x A.6A voor de hiel? Of is het anders?
24.03.2024 - 18:19DROPS Design answered:
Dag Ron,
Met de juiste naald in het telpatroon wordt bedoeld dat je gewoon verder met het telpatroon gaat waar je was gebleven, zodat het telpatroon mooi doorloopt. A.6 brei je inderdaad maar 1 keer in de breedte, dus dat er 'herhaal' staat is een beetje verwarrend.
27.03.2024 - 13:50Helena wrote:
Hei, Ohjeesta nayttaa puuttuvan palmikkokuvio pohkeen puolelta. Ohjeesa toistetaan A2 (A,B,C) kolmesti, muodostaen kolme "nypyllista" palmikkoa, mutta kuvissa on selkeasti "nypyton" palmikko pohkeen puolella ja vain yksi nypyllinen palmikko edessa/jalkapoydan puolella. Kuvien perusteella ohjeen ensimmainen A.2 olisi 8n (tai 6n) silmukan silea palmikko, ei 9n silmukan nypyllinen palmikko, kuten ohjepirroksissa? Vai ovatko kuvat jostain muusta ohjeesta?
14.11.2022 - 11:48DROPS Design answered:
Hei, ohje tarkistetaan parhaillaan ja tarvittaessa siihen tehdään korjaus.
16.01.2023 - 17:57Jannina wrote:
Hej! Jag stickar storlek 35-37, och får inte varvet efter bubblan att gå ihop. Enligt diagrammet ska det stickas 8 räta maskor i diagram A2, men med den maska som blir kvar efter bubblan på varvet innan finns det 9 maskor som ska rymmas inom A2. Är det fel eller har jag missupfattat något? Undrar även om bilden av sockorna stämmer - med detta mönster blir det tre bubblor, men på bilden ser det ut som bara en bubbla mitt på foten. Tack på förhand!
22.01.2022 - 13:26DROPS Design answered:
Hei Jannina. Når du strikker A.2A diagrammet er det 8 masker, diagrammet viser 9 masker men en helt sort rute viser at det ikke er noen maske. Når du strikker 1. omgang av A.2B øker du med 1 maske = 9 masker. Slik at når du skal strikke flettene og boblen er det over 9 masker. Når det gjelder diagrammet med 3 bobler er det oversendt design avd. slik at de kan ta en dobbeltsjekk. mvh DROPS Design
25.01.2022 - 11:32Sólveig wrote:
"setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni" , á þetta ekki að vera fyrir framan stykkið?
08.06.2021 - 11:21DROPS Design answered:
Takk fyrir Sólveig, það er búið að laga þetta.
09.06.2021 - 10:02Louise wrote:
Jeg lurer på om det mangler et diagram i oppskriften? Jeg har lagt opp 60 masker i størrelse 35-37, men mønsteret fra A.1A - A.5A er kun 44 masker. Hva med resten?
24.05.2021 - 08:23DROPS Design answered:
Hej Louise. Du stickar vissa av diagrammen flera gånger. Första pinne i storlek 35-37 stickar du såhär: 3 (=A.1A)+ 8 (=A.2A) + 15 (=A.3A) +8 (=A.2A)+15 (=A.4A)+ 8 (=A.2A) +3 (=A.5A) = 60m. Mvh DROPS Design
24.05.2021 - 09:00Anna wrote:
Hei, lurer på om det mangler et diagram? Når jeg følger mønsteret får jeg ikke flyttingen man ser bakerst på bilde 2
12.04.2021 - 11:36DROPS Design answered:
Hei Anna. Det er 6 diagrammer til sokken (A.1, A.2, A.3, A.4, A.5 og A.6). Disse diagrammene er også delt inn i A, B og C (bortsett fra A.6 som bare har A og B). (Usikker på hva du mener med flyttingen bakerst på bilde 2, ser vrangmasker og flette). mvh DROPS design
12.04.2021 - 15:24Britany wrote:
Bonjour. Je tente de faire se modèle j’ai alors monté 66mailles pour la plus grande version. Ensuite j’ai suivie le diagramme A1A,A2A,A3A, A2A, A4A, A2A,A5A. J’ai fait sur 4cm mais maintenant je doit faire A1B,A2B,A3B,A2B...?? Car cela donnera 3NOPE non??
16.01.2020 - 19:18DROPS Design answered:
Bonjour Brittany, tout à fait, comme vous tricotez 3 fois A.2A en largeur, vous aurez 3 nopes. Bon tricot!
17.01.2020 - 08:27Heidrun Ruff wrote:
Zu drops 193-4, Socken happy Die Anleitung lässt sich nicht komplett ausdrucken (nur die erste Seite) auch beim Speichern als Datei ist im pdf nur die erste Seite. Dann tritt eine Fehlermeldung auf. Andere Anleitungen gehen ohne Probleme. Kann es sein, dass in der Datei ein technischer Fehler ist? Danke und liebe Grüße
16.01.2020 - 11:55DROPS Design answered:
Liebe Frau Ruff, Bei Google Chrome ist ein Problem bekannt. Wenn Sie versuchen, über Google Chrome zu drucken, deakativieren Sie die Option zum Drucken von Kopf- und Fußzeilen im Druckdialog. Viel Spaß beim stricken!
16.01.2020 - 12:21Elis wrote:
Dobrý deň, neukazuje mi k tomuto návodu schémy. Nie sú k dispozícii, alebo mám nejaký problém u seba? Pri iných návodoch mi ale schémy ukazuje. Ďakujem. Pekný deň.
19.10.2019 - 10:27DROPS Design answered:
Dobrý den, Elis, díky za upozornění - schéma už je opraveno a mělo by se zobrazovat bez problémů. Hodně zdaru! Hana
21.10.2019 - 09:55