DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10353.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 195-39
DROPS Design: Mynstur ne-271
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

Mál: ca 95 x 123 cm.

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400 g litur, 0100 natur
350 g litur, 0501 grár
300 g litur, 0500 ljós grár

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæð = 10 x 10 cm. Einn ferningur mælist ca 28 x 28 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10353.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2, A.3, A.4 og A.5.

LITIR Á FERNINGUM:
Heklaðir eru 3 ferningar í hverri litasamsetningu, þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með þeim lit sem á að vera í næstu umferð. Leggið þráðinn sem ekki er notaður meðfram efri hlið á lykkjunum og heklið um þennan þráð smá bút í næstu umferð áður en klippt er frá.

FERNINGUR 1:
UMFERÐ 1: grár
UMFERÐ 2: ljós grár
UMFERÐ 3: natur
UMFERÐ 4: natur
UMFERÐ 5: ljós grár
UMFERÐ 6: grár
UMFERÐ 7: natur
UMFERÐ 8: ljós grár
UMFERÐ 9: ljós grár
UMFERÐ 10: natur
UMFERÐ 11: natur

FERNINGUR 2:
UMFERÐ 1: natur
UMFERÐ 2: ljós grár
UMFERÐ 3: ljós grár
UMFERÐ 4: grár
UMFERÐ 5: ljós grár
UMFERÐ 6: grár
UMFERÐ 7: ljós grár
UMFERÐ 8: natur
UMFERÐ 9: natur
UMFERÐ 10: ljós grár
UMFERÐ 11: natur

FERNINGUR 3:
UMFERÐ 1: ljós grár
UMFERÐ 2: natur
UMFERÐ 3: natur
UMFERÐ 4: natur
UMFERÐ 5: ljós grár
UMFERÐ 6: ljós grár
UMFERÐ 7: grár
UMFERÐ 8: natur
UMFERÐ 9: natur
UMFERÐ 10: ljós grár
UMFERÐ 11: natur

FERNINGUR 4:
UMFERÐ 1: natur
UMFERÐ 2: natur
UMFERÐ 3: grár
UMFERÐ 4: grár
UMFERÐ 5: ljós grár
UMFERÐ 6: grár
UMFERÐ 7: ljós grár
UMFERÐ 8: natur
UMFERÐ 9: ljós grár
UMFERÐ 10: grár
UMFERÐ 11: natur

LITUR Í KANTI:
Skipt er um lit í hverri umferð, þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með þeim lit sem á að vera í næstu umferð. Leggið þráðinn sem ekki er notaður meðfram efri hlið á lykkjunum og heklið um þennan þráð smá bút í næstu umferð áður en klippt er frá.
Umferðirnar eru heklaðar í þessum litum:
UMFERÐ 1: ljós grár
UMFERÐ 2: natur
UMFERÐ 3: ljós grár
UMFERÐ 4: grár
UMFERÐ 5: natur

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um mynsturteikningu A.5):
Í 1., 3. og 4. umferð er fyrsta tákn skipt út (3 loftlykkjur) með 6 loftlykkjum.
Þær koma í stað 3 loftlykkja og síðasta stuðul í umferð. Umferðin endar þess vegna með 1 stuðli minna en sýnt er í mynsturteikningu A.5 og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð.
Í 2. og 5. umferð er fyrsta tákn skipt út (3 loftlykkjur) með 4 loftlykkju.
Þær koma í stað 3 loftlykkja og síðustu fastalykkju í lok umferðar. Umferðin endar þess vegna með 1 fastalykkju færri en sýnt er í mynsturteikningu A.5 og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá byrjun á umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Teppið samanstendur af ferningum. Heklið ferningana í 4 mismunandi litasamsetningum, þegar allir ferningarnir hafa verið heklaðir til loka eru þeir saumaðir saman áður en kantur er heklaður í lokin í kringum allt teppið.

FERNINGUR:
Byrjið með Nepal með heklunál 5 og heklið LITIR Á FERNINGUM – sjá útskýringu að ofan og MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar allir ferningarnir hafa verið heklaðir til loka hafa verið heklaðir 12 ferningar.

FRÁGANGUR:
Leggið ferningana eins og útskýrt er á teikningu. Passið uppá að þeir liggi allir með réttuna upp. Notið litinn natur og saumið ferningana saman kant í kant með einu spori í hverja lykkju, passið uppá að saumurinn verði flatur. Klippið frá og festið enda.

KANTUR:
Heklið 1 kant í kringum allt teppið. Hver umferð er hekluð með mismunandi litum – lesið LITUR Í KANTI að ofan.
Heklið eftir mynsturteikningu A.2, A.3, A.4 og A.5 þannig:
Byrjið með litinn ljós grár og heklunál 5, byrjið í fyrsta horni á skammhlið á teppi. ** Heklið mynsturteikningu A.2 yfir fyrsta hornið og næstu 10 fastalykkjur – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið A.3 yfir næstu 30 fastalykkjur (= 5 sinnum), heklið A.4 í skiptinguna á milli ferninga og yfir 5 næstu fastalykkjur, * heklið A.3 yfir næstu 36 fastalykkjur (= 6 sinnum), heklið A.4 í skiptinguna á milli ferninga og yfir 5 næstu fastalykkjur *, heklið A.3 yfir næstu 24 fastalykkjur (= 4 sinnum), heklið A.5 yfir næstu 11 fastalykkjur og hornið, heklið A.2 yfir hornið og næstu 10 fastalykkjur, heklið A.3 yfir næstu 30 fastalykkjur (= 5 sinnum), heklið A.4 í skiptinguna á milli ferninga og yfir næstu 5 fastalykkjur, endurtakið frá *-* alls2 sinnum, heklið A.3 yfir næstu 24 fastalykkjur (= 4 sinnum), A.5 yfir næstu 11 fastalykkjur og hornið **. Nú hefur verið hekluð 1 skammhlið og 1 langhlið. Endurtakið frá **-** meðfram hinum 2 hliðunum. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð 1 sinni á hæðina er kanturinn tilbúinn. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.09.2018
Leiðrétting á umferð 4 og 5 í mynsturteikningu A.1

Mynstur

symbols = 4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér
symbols = loftlykkja
symbols = keðjulykkja í/um lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = hálfur stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = heklið í lykkjuna sem örin vísar að
symbols = 1 hálfur stuðull í toppinn á tvíbrugðna stuðlahópnum frá 3. umferð
symbols = 4 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN Í BYRJUN Á UMFERÐ: 4 loftlykkjur (jafngilda 1 tvíbrugðnum stuðli), heklið 2 tvíbrugðna stuðla í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum tvíbrugðnum stuðlum, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið þráðinn í gegn í lokin í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni.
symbols = 4 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 2 tvíbrugðna stuðla í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum tvíbrugðnu stuðlum, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið þráðinn í gegn í lokin í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 3 loftlykkjur þegar heklað er eftir mynsturteikningu A.1. Þegar hekla á kantinn í kringum teppið byrjar og endar umferðin með 6 eða 4 loftlykkjum sem koma í stað 3 loftlykkja + 1 stuðul/fastalykkju – lesið HEKLLEIÐBEININGAR
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = fastalykkja frá fyrri umferð
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, þetta er með til að sýna hvernig næsta umferð er hekluð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag XONDRA BARTON wrote:

I am about to hand write the pattern for the Ceramic Tile Blanket. Before I do I thought it best to check if there is one available.

20.06.2023 - 21:22

DROPS Design answered:

Dear Mrs Barton, there is only diagram to the square, no written pattern - but there are 2 videos for this square: Rounds 1 - 6 and Round 7 - 11. Happy crocheting!

21.06.2023 - 08:06

country flag Lena wrote:

Hej, Jag vill göra en större pläd, 4X5 rutor, hur mycket garn behöver jag?. Tänkte virka i Paris bomullsgarn, nr 17, 26 och 65.

19.06.2023 - 17:54

DROPS Design answered:

Hej Lena, skulle tro att du behöver ca 700 g till... :)

22.06.2023 - 14:05

country flag XONDRA BARTON wrote:

If I want to make more tiles for the blanket to make it bigger, what would the sequence be of the tile layout - 16 /20 or 24 tiles. Have you done a sequence with more tiles. Your help would be greatly appreciated.

18.06.2023 - 18:49

DROPS Design answered:

Dear Xondra, you can mix the sequence and join them as you prefer. If you want to increase it, you should maintain it into a multiple of 4: 16, 20, 24. 24 would be for a blanket double the size. For example, to increase one more column vertically, you should add in each row the square that was missing from that row (1,2,3,4, in that order). For the next columns, you could maintain the previous sequence or just mix them up. Happy crocheting!

18.06.2023 - 19:29

country flag XONDRA BARTON wrote:

I have tried to watch the tutorial videos - there is no sound. How do I get sound?

30.05.2023 - 15:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Barton, our videos do not have sound. We are a worldwide company and our videos are watched by people around the world, speaking different languages, many of whom do not understand English. You will have then to read the written pattern and look at the diagram to follow the video for the square. Happy crocheting!

30.05.2023 - 16:10

country flag Linda wrote:

Ik ben een beginner met haken. Ik ken een stokje en vaste steek Maar "Stokje om losse" Wat wil dit zeggen?

22.06.2022 - 19:07

DROPS Design answered:

Dag LInda,

Als je een stokje om de losse haakt, dan steek je de haaknaald niet in de losse, maar er omheen.

26.06.2022 - 10:02

country flag Christel Golay wrote:

BTW - I just love your site. I just retired and I have decided to take up crocheting again after 30 years! I have found your site very helpful and easy to find what I need. I look forward to hearing an answer to my question that I just posted before this comment. Thanks and all the best, Christel

02.08.2020 - 01:57

country flag Christel Golay wrote:

Instead of a 3 x 4 = 12 tile blanket as per this pattern, I want to make a bigger 4 x 6 = 24 tile blanket. Can I just order twice the yarn specified in the pattern, or will I need more/less of the colors to account for more border? I'd appreciate all the help I can get to make sure I order enough yarn! Thanks, Christel

02.08.2020 - 01:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Golay, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, please contact your DROPS store - even per mail or telephone - for any individual assistance. Happy crocheting!

03.08.2020 - 08:03

country flag Adela Konjarova wrote:

Ahojky hackuji tuto deku a mám pocit že spotřeba bude větší nez je psána ada

29.07.2020 - 22:31

country flag Kasia wrote:

Dzień dobry, próbowałam zrobić ze schematu i opisu ale bardzo dzowne rzeczy mi wychodziły. Sięgnęłam do filmu (na szczęście jest)! I okazyje się że to co podajecie w opisie Schematu nie zgadza się z tym co pokazane na filmie. Oczka ścisłe w oczko to półsłupki na filmie, półsłupek w oczko przerabiany jest jak słupek w którym przerabia się od razu 3 oczka po narzuceniu i przeciądnięciu. Czy możecie zweryfikować opis oznaczeń użytych w schemacie? Pozdrawiam, Kasia

27.02.2020 - 07:44

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu! W polskim nazewnictwie szydełkowym są 2 różne sposoby nazywania podstawowych ściegów, wiemy, że to mylące, ale dla przejrzystości musieliśmy wybrać i trzymamy się konsekwentnie jednego z nich: a mianowicie nasze oczko ścisłe jest również przez niektórych nazywane oczkiem zamykającym, nie mamy też rozróżnienia między półsłupkiem, a półsłupkiem nawijanym (jak piszesz słupek, w którym przerabia się od razu 3 oczka po narzuceniu i przeciągnięciu). W każdym naszym wzorze na dole znajdziesz filmiki video jak są przerabiane poszczególne ściegi (w kursach drops szczegółowo są opisane te techniki). Poza tym są nagrywane filmy do poszczególnych wzorów, tak aby maksymalnie ułatwić użytkowniczkom pracę. Cieszymy się, że korzystasz z naszych wzorów i serdecznie pozdrawiamy.

28.02.2020 - 08:36

country flag Henriette wrote:

Bonjour, merci beaucoup pour votre aide, mon plaid est très beau! En revanche, 4 pelotes entières de Népal gris foncé en trop et plus d'une de naturel....

22.12.2019 - 21:10

DROPS Design answered:

Bonjour Henriette! Merci de nous avoir informe. Cordialement

30.12.2019 - 11:52