To the Rescue! |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með leðurblöku úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 34-16 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 5,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Öll mynsturteikningin er prjónuð í sléttprjóni. Prjónaðu með 3 dokkum í umferð svo að þú sleppir við að hafa hoppin með þræðinum of löng á bakhlið á stykkinu. Þ.e.a.s. prjónið með 1 dokku ljós sægrænn hvoru megin á peysunni og 1 dokku svartur mitt í peysunni. ATH: Til að koma í veg fyrir göt þegar skipt er um lit verður að tvinna þræðina saman um hvorn annan á bakhlið á stykki. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Þ.e.a.s. aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki og alls 8 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist til fram- og bakstykki og ermar. Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með ljós sægrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING = 90-94-98-102-106-110 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar aukið er út fyrir laskalínu. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 32-34-36-38-40-42 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 32-34-36-38-40-42 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á bakstykki. Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 16-17-18-19-20-21 sinnum hvoru megin við öll prjónamerkin (meðtaldar útaukningar sem útskýrðar eru í fyrstu umferð) = 218-230-242-254-266-278 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni án útaukningar þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist berustykkið til fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki í byrjun á umferð (lyftið fyrstu lykkju á hægri prjón yfir á vinstri prjón), setjið fyrstu 47-49-51-53-55-57 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 62-66-70-74-78-82 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 47-49-51-53-55-57 lykkjurnar á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið 3 síðust lykkjur af þessum 6 sem fitjaðar voru upp á þráði fyrir bakstykki, setjið næstu 62-66-70-74-78-82 lykkjur á sama þráð fyrir bakstykki og setjið 3 fyrstu lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir ermi á hinni hlið á stykki á sama þráð fyrir bakstykki. Framstykki, bakstykki og ermar er síðan prjóna hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAMSTYKKI: = 68-72-76-80-84-88 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með ljós sægrænn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja í hvorri hlið (kantlykkjur fyrir saum – kantlykkjur er prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan) = 70-74-78-82-86-90 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 1-2-3-3-4-5 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 13-15-17-16-18-20 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 42-42-42-48-48-48 lykkjur – sjá MYNSTUR), prjónið 13-15-17-16-18-20 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 18-19-20-23-24-25 cm frá skiptingu. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, svart yfir miðju 42-42-42-48-48-48 lykkjur og ljós sægrænn í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 18-21-24-27-30-33 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú er eftir ca 1 cm til loka). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur (haldið áfram með svartur yfir miðju 42-42-42-48-48-48 lykkjur og ljós sægrænn í hvorri hlið). Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu (fellið af með ljós sægrænn yfir ljós sægrænn og svartur yfir svartur). Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Setjið 68-72-76-80-84-88 lykkjur af þræði á bakstykki á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón fram og til baka með ljós sægrænn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja í hvorri hlið (kantlykkjur fyrir saum – kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) = 70-74-78-82-86-90 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 1-2-3-3-4-5 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 13-15-17-16-18-20 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 42-42-42-48-48-48 lykkjur – sjá MYNSTUR), prjónið 13-15-17-16-18-20 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 18-19-20-23-24-25 cm frá skiptingu. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, svartur yfir miðju 42-42-42-48-48-48 lykkjurnar og ljós sægrænn í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 18-21-24-27-30-33 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, það eru ca 1 cm til loka). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar (haldið áfram með svartur yfir miðju 42-42-42-48-48-48 lykkjurnar og ljós sægrænn í hvorri hlið). Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu (fellið af með ljós sægrænn yfir ljós sægrænn og svartur yfir svartur). FRÁGANGUR: Saumið út augu á framstykki með lykkjuspori í perlugrár – sjá A.1. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ERMI: Setjið til baka 47-49-51-53-55-57 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með ljós sægrænn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2½-3-3½-4-4½ cm millibili alls 8 sinnum í öllum stærðum = 37-39-41-43-45-47 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 20-24-27-31-34-38 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-5-3-5-3-5 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-27-30-35-38-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Ewa Stjernqvist wrote:
Ang fram o bakstycke undrar jag om det bara ska stickas rakt ner ingen utökning förutom kantmaskan på första varvet? Är det så borde man väl kunna sticka ihop både fram o bak på rundsticka?
28.04.2024 - 18:16DROPS Design answered:
Hei Ewa. Det er ingen økninger/fellinger, men på forstykket strikkes det mønster. For å ikke få lange trådsprang, strikkes forstykket frem og tilbake med 3 nøster. Les forklaringen under MØNSTER. mvh DROPS Design
29.04.2024 - 11:50Mirella Curcio wrote:
Buon giorno , ho fatto i calcoli con carta e matita , non mi trovo conil numero di maglie da voi descritte sopra , perchè arrivando a 66 maglie per il dav. e diet. le maniche del reglan sono 45 . grazie per una vs risposta
20.11.2022 - 09:42DROPS Design answered:
Buonasera Mirella, se sta lavorando 3/4 anni arriva alla divisione con 230 maglie: 66 per il davanti e dietro e 49 per ogni manica. Buon lavoro!
24.11.2022 - 22:12Mirella Curcio wrote:
Buongiorno , sto eseguendo questo maglioncino per mio nipotino , ora arrivata alla suddivisione delle varie parti : e cioè dietro davanti maniche, non mi trovo con le maglie da voi scritte per la suddivisione, sono sempre 230 maglie ma non come da voi suggerito , però mi trovo con 68 m per il davanti e il dietro ,e di 47 m per le maniche, e non49 per le maniche e 66 per il davanti e il dietro .Come mai ?
19.11.2022 - 08:20DROPS Design answered:
Buonasera Mirella, deve procedere con la divisione come riportato. Buon lavoro!
28.12.2022 - 19:45De Man wrote:
Volgens mij klopt het niet met die raglans 275 steken
14.07.2022 - 20:38DROPS Design answered:
Dag De Man,
Als je klaar bent met de raglan heb je, afhankelijk van de maat die je breit, 218-230-242-254-266-278 steken. Geen 275 steken.
17.07.2022 - 11:33De Man wrote:
Volgens mij klopt het niet met de steken raglan niet
14.07.2022 - 20:36Hélène wrote:
Bonjour, pour le jacquard A.1 il ne faudrait pas plutôt 5 pelotes, vert-noir-vert-noir-vert ? Je n'arrive pas à comprendre comment éviter les croisements de fil derrière avec 3 pelotes seulement, au début du motif avec les deux pointes de batman. Merci pour votre aide
20.04.2022 - 10:24DROPS Design answered:
Bonjour Hélène, tout à fait, vous devez bien tricoter avec 5 couleurs/pelotes en même temps lorsque vous faites les yeux, vous allez procéder comme dans la vidéo avec 3 couleurs, mais à chaque fois avec une couleur différente, soit 5 au total au lieu de 3 pour les 2 oreilles puis pour les yeux. Bon tricot!
21.04.2022 - 13:25Louison wrote:
Dans les explications, je ne comprends pas pourquoi vous ne dites pas simplement que le dos se tricote comme le devant ? C'est la 1ère fois que je tricote un pull en circulaire et j'ai bien compris en regardant votre vidéo, donc merci!
27.12.2020 - 18:06Inmaculada wrote:
No consigo acabar delantero y espalda porque no sé cómo se trabaja los dos pliegues de ida y vuelta que indica. No encuentro tutorías para ese remate. ¿Podríais indicármelo por favor? Gracias
13.11.2020 - 16:23DROPS Design answered:
Hola Inmaculada, la forma de trabajar los pliegues se encuentra indicada al inicio del patrón. 1 pliegue son dos filas trabajadas de derecho, por lo que para trabajar 2 pliegues tienes que trabajar 4 filas de derecho. Estas filas, después de trabajarlas, obtendrán esa forma de pliegues.
19.11.2020 - 11:02Inmaculada wrote:
No entiendo como terminar delantero y espalda con dos pliegues de ida y vuelta. No he encontrado explicaciones de: Pliegue/punto musgo (trabajado de ida y vuelta) Trabajar todas las filas de derecho 1 pliegue en vertical = 2 filas de derecho No entiendo como se hace y es el remate de delantero y espalda
12.11.2020 - 13:40DROPS Design answered:
Hola Inmaculada. Tienes que trabajar 4 filas de derecho para terminar la espalda o el delantero. ( cada dos filas de derecho forman un pliegue).
15.11.2020 - 18:13Catherine wrote:
Hallo, warum werden Vorder- und Rückenteil nicht gemeinsam in Runden weiter gestrickt? Also nur die Ärmel stilllegen und den Rest in in Einem? Danke, liebe Grüße, Catherine
14.05.2020 - 22:12DROPS Design answered:
Liebe Catherine, Vorder- und Rückenteil werden separat gestrickt, weil das Muster nicht in der Runde gestrickt werden kann. Viel Spaß beim stricken!
15.05.2020 - 08:48