Himalayan Rose |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðar tátiljur með blómum í ferningum og röndum úr DROPS Nepal. Stærð 35 - 43.
DROPS 198-19 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. HEKLAÐUR FERNINGUR: Sjá heklaður ferningur mynsturteikning A.1 og lesið LITASKIPTI í útskýringu að neðan. Uppfitjunarhringur og 1. umferð er heklað með litnum millibleikur. UMFERÐ 2: Heklið með litnum kirsuberjarauður. UMFERÐ 3: Heklið með litnum gulur. UMFERÐ 4: Heklið með litum ljós beige. UMFERÐ 5: Heklið með litnum gulur – og þessi umferð byrjar í horni á ferningi við ör og er bara hekluð í 3 af hliðunum. RENDUR-TÁ: Hversu margar rendur eru heklaðar í hverjum lit er valfrjálst. T.d: UMFERÐ 1: Heklið með litnum gulur UMFERÐ 2: Heklið með litnum gulur eða millibleikur. UMFERÐ 3: Heklið með litnum millibleikur eða ljós beige. UMFERÐ 4: Heklið með litnum ljós beige eða kirsuberjarauður. Heklið til loka með kirsuberjarauður. RENDUR-NEÐRI HLUTI: UMFERÐ 1: Heklið með litnum gulur. UMFERÐ 2: Heklið með litnum millibleikur. UMFERÐ 3: Heklið með litnum ljós beige. UMFERÐ 4 og áfram: Heklið til loka með gulur. LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er hekluð keðjulykkja í lok fyrri umferðar með nýja litnum. ÚRTAKA-1: HEKLIÐ 2 HÁLFA STUÐLA SAMAN Í 1 LYKKJU = 1 LYKKJA FÆRRI: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni. ÚRTAKA-2 (á við jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 36 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 4. Í þessu dæmi þá eru heklaðar 3. og 4. hver lykkja saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er ferningur A.1 heklaður, síðan er neðri hlutinn heklaður á tvær gagnstæðar hliðar á ferningi, síðan er táin hekluð og að lokum hælstykkið. TÁTILJA: Byrjið á að heklað ferning mitt á fæti – sjá mynsturteikningu A.1 og lesið HEKLAÐUR FERNINGUR að ofan. Tilbúinn ferningur mælist ca 10 x 10 cm. NEÐRI HLUTI: Neðri hlutinn samanstendur af 2 alveg eins stykkjum, sem eru bæði hekluð fram og til baka á viðkomandi hlið-B og hlið-D, þessar hliðar eru saumaðar saman undir fæti í lokin. Fyrri hlutinn er heklaður á fernings hlið-B, sjá mynsturteikningu A.1. Til að sjá lit sjá RENDUR-NEÐRI HLUTI í útskýringu að ofan. Heklið 1 hálfan stuðul í hverja fastalykkju = alls 17 hálfir stuðlar. Heklið hálfa stuðla fram og til baka yfir þessar lykkjur í 5-6-7 cm (snúið hverri umferð með 2 loftlykkjum). Klippið frá og festið enda. Saumið síðan saman þessi stykki mitt undir fæti – saumið í ystu lykkjubogana á síðustu umferð á lykkjum svo að saumurinn verði ekki þykkur og verði óþægilegur þegar tátiljurnar eru notaðar. TÁ: Táin er hekluð í hring meðfram hlið-E, sjá mynsturteikningu A.1. Til að sjá liti sjá RENDUR-TÁ í útskýringu að ofan, lesið LITASKIPTI í útskýringu að ofan. Heklið 1 hálfan stuðul í hverja lykkju meðfram hlið-E (= 17 hálfir stuðlar), síðan eru heklaðir 19-21-23 hálfir stuðlar í kringum neðri hluta á fæti = alls 36-38-40 hálfir stuðlar. Endið hverja umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í umferð og heklið 2 loftlykkjur. Haldið áfram hringinn með hálfa stuðla í alls 4-4-5 umferðir. Heklið síðan 3-4-5 umferðir þar sem fækkað er um 9-7-6 lykkjur jafnt yfir í hverri umferð – SJÁ ÚRTAKA-1 og 2 = 9-10-10 lykkjur. Klippið frá og þræðið þræðinum upp og niður í kringum toppinn, dragið saman og festið vel. HÆLSTYKKI: Heklið með litnum gulur. Um loftlykkjuboga í horni á hlið-C eru heklaðir 3 hálfir stuðlar og síðan eru heklaðir upp 22-24-26 hálfir stuðlar meðfram neðri hluta á fæti, að lokum eru heklaðir 3 hálfir stuðlar um loftlykkjuboga í horni á fernings hlið-C = 28-30-32 lykkjur. Heklið nú hæl áfram með hálfum stuðlum með litnum millibleikur. Snúið hverri umferð með 2 loftlykkjum. JAFNFRAMT í 2. umferð er aukið út um 1 hálfan stuðul í lok umferðar með því að hekla 2 lykkjur í síðustu lykkju. Endurtakið þessa útaukningu í lok hverrar umferðar með því að hekla 2 lykkjur í síðustu lykkju. Endurtakið þessa útaukningu í lokin á hverri umferð alls 6 sinnum (þ.e.a.s. 3 sinnum í hvorri hlið) = 34-36-38 lykkjur. Haldið áfram þar til öll tátiljan mælist ca 22-24-27 cm. Heklið aðra tátilju á sama hátt. FRÁGANGUR: Leggið tátiljuna saman tvöfalda og saumið saman kant í kant mitt aftan á hæl. Að lokum er hekluð 1 umferð með hálfum stuðlum í litnum gulur í kringum opið á tátiljunni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Jenny wrote:
Hej! Är helt ny på virkning och vet inte om jag läst konverteraren rätt- kan jag byta rakt av nepalgarnet till denna toffla och använda paris istället? Om jag vill anvönda alpaca ska jag då använda 2 trådar då? Tack på förhand 😊Mvh jenny
14.08.2023 - 10:06DROPS Design answered:
Hej Jenny, ja du förstår konverteraren helt rätt :)
16.08.2023 - 11:58Sus Leth wrote:
I would like to know when this pattern was published?
20.06.2020 - 17:08Michelle wrote:
Cute and easy to fallow making for Christmas thanks for this awesome pattern
14.08.2019 - 02:08Laura wrote:
Podrías hacer video de pantuflas? pars que sea más fácil de realizar
17.06.2019 - 16:06DROPS Design answered:
Hola Laura. Cada día publicamos nuevos vídeos. Síguenos en las redes sociales para poder ver qué vídeos se publican. Enviaremos tu sugerencia al departamento de vídeos.
20.06.2019 - 23:09Marie Josee Giangreco wrote:
Merci pour ses beaux modèles et vos vidéos bien expliquées
04.06.2019 - 17:00Marina wrote:
ORIGINALI BABBUCCE CON I QUADRATI GRANNY
12.12.2018 - 16:21