DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17732.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Celtic Comfort

Heklað teppi úr DROPS Air. Stykkið er heklað í ferningum með köðlum og stuðlakrókum.

DROPS 203-1
DROPS Design: Mynstur ai-232
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Stykkið mælist ca: Breidd = 96 cm. Lengd = 122 cm.
1 ferningur mælist ca 24 x 24 cm.

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650 g litur 03, perlugrár

HEKLFESTA:
13 stuðlar á breidd og 10 umferðir á hæðina (í mynstri) = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17732.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja (heklað sjám viðbót við fyrstu fastalykkju).
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

FERNINGAR:
Heklið 4 ferninga af hverjum og einum af eftirfarandi ferningum:

FERNINGUR 1: Sjá mynsturteikningu A.1.
FERNINGUR 2: Sjá mynsturteikningu A.2.
FERNINGUR 3: Sjá mynsturteikningu A.3.
FERNINGUR 4: Sjá mynsturteikningu A.4.
FERNINGUR 5: Sjá mynsturteikningu A.5.

FJÓRBRUGÐINN STUÐULL:
Bregðið bandinu 4 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um lykkjuna, sækið bandið, bregðið bandinu 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 5 sinnum = 1 lykkja.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Teppið samanstendur af 20 ferningum. Heklaðir eru 4 ferningar af hverjum og einum af 5 mismunandi ferningum. Heklið fyrst alla ferningana, síðan eru þeir heklaðir saman og að lokum er heklaður kantur meðfram báðum skammhliðunum á teppinu.

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Heklið 33 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 5,5 með Air – sjá LOFTLYKKJA. Snúið við og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 31 stuðlar.
Heklið síðan fram og til baka eftir mynsturteikningu – sjá FERNINGAR og FJÓRBRUGÐINN STUÐULL. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar mynsturteiknin hefur verið hekluð til loka, klippið frá og festið enda. Ferningurinn mælist ca 24 x 24 cm.

FRÁGANGUR:
Leggið ferningana út í réttu númeri á ferningum eins og útskýrt er í mynd (4 ferningar á breiddina og 5 ferningar á lengdina). Númer á ferningum á teikningu sýna fernina með sama númeri og útskýrt er undir FERNINGAR. Passið uppá að allir ferningarnir snúi með réttuna upp og í sömu heklstefnu. Ferningarnir eru heklaðir saman í lengjur á lengdina, síðan eru lengjurnar heklaðar saman á breiddina.
Heklið ferningana saman þannig:
Leggið 2 ferninga saman með röngu á móti röngu. Heklið í gegnum bæði lögin þannig: ** 1 fastalykkja í hornið, * 3 loftlykkjur, hoppið fram ca 1½-2 cm, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *. Heklið frá *-* fram til og með næsta horni og heklið 3 loftlykkjur (= í skiptinguna að næstu 2 ferningum) **. Endurtakið frá **-** meðfram allri röðinni og endið með 1 fastalykkju í síðasta hornið. Klippið frá og festið enda.
Heklið svona þar til allar lengdirnar hafa verið heklaðar saman á lengdina. Síðan eru lengdirnar heklaðar saman alveg eins á breiddina.

KANTUR:
Heklið nú kant meðfram annarri skammhliðinni þannig: Festið enda með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í hornið og heklið síðan 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 1 stuðul í hvern og einn af þeim stuðlum sem eftir eru meðfram þessari hlið (= 4 ferningar með 31 lykkjur) = 124 stuðlar. Klippið frá og festið enda. Heklið annan kant alveg eins á hinni skammhliðinni.

Mynstur

symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð! Byrjið við ör
symbols = byrjið hér
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = stuðull í lykkju
symbols = 2 fastalykkjur í sömu lykkju
symbols = 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri)
symbols = = STUÐLAKRÓKUR – ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL (heklið einungis í stuðlaumferð): Heklið 1 þríbrugðinn stuðul um 1 stuðul frá fyrri stuðlaumferð (heklið ekki í lykkjubogana, heldur utan um sjálfan stuðulinn). Byrjun á línu = umferðin þar sem þessi stuðlakrókur – þríbrugðinn stuðull byrjar. Hringurinn á enda á stuðlakrók – þríbrugðinn stuðull = sýnir hvernig stuðull frá fyrri stuðlaumferð sem á að hekla í hring.
symbols = = STUÐLAKRÓKUR – ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL (heklið einungis í stuðlaumferð): Heklið 1 þríbrugðinn stuðul um 1 þríbrugðinn stuðul/fjórbrugðinn stuðul frá fyrri stuðlaumferð (heklið ekki í lykkjubogana, heldur utan um sjálfan þríbrugðna stuðul/fjórbrugðna stuðulinn). Byrjun á línu = umferðin þar sem þessi stuðlakróka – þríbrugðinn stuðull byrjar. Punkturinn á enda á stuðlakrók = sýnir hvernig þríbrugðinn stuðull/fjórbrugðinn stuðull frá fyrri stuðlaumferð sem á að hekla í hring.
symbols = = STUÐLAKRÓKUR – ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL (heklið einungis í stuðlaumferð): Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul um 1 þríbrugðinn stuðul/fjórbrugðinn stuðul frá fyrri stuðlaumferð (heklið ekki í lykkjubogana, heldur utan um sjálfan þríbrugðna stuðul/fjórbrugðna stuðulinn). Byrjun á línu = umferðin þar sem þessi stuðlakróka – þríbrugðinn stuðull byrjar. Ferningurinn á enda á stuðlakrók – fjórbrugðinn stuðul = sýnir hvernig þríbrugðinn stuðull/fjórbrugðinn stuðull frá fyrri stuðlaumferð sem á að hekla í hring.
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Francien Veenbrink wrote:

Welk alternatief garen kan ik gebruiken in plaats van de "drops Air wol" ? Wil liever geen wol, voorkeur katoen of mix kantoe /acryl. Welke moet ik dan kiezen om op dezelfde verhouding te zitten. Heb de uitleg wel gelezen, maar die begrijp ik niet. :)

03.01.2023 - 12:40

DROPS Design answered:

Dag Francien,

DROPS Air valt in categorie C, dus voor dezelfde stekenverhouding kun je een garen uit deze categorie kiezen. Je komt dan uit op DROPS Paris, dit is 100% katoen. Houd er rekening mee dat dit het werk een stuk zwaarder maakt dan wol. Bovendien is DROPS Air een zeer licht wolgaren. Je zou ook kunnen kiezen voor DROPS Big Merino. Dit is wel een wolsoort maar geeft veelal geen allergische reacties, mocht het daar om te doen zijn.

08.01.2023 - 10:35

country flag Fiony wrote:

Goedemiddag, ik zou graag de vierkanten groter maken omdat ik Drops soft Tweed mix wil gebruiken en daar hem ik naald 4mm voor nodig. Mijn vierkanten zijn dus kleiner dan het patroon. Kom er niet uit hoe ik dat het beste kan doen in verband met de plaatsing van de kabels.

29.08.2022 - 17:07

DROPS Design answered:

Dag Fiony,

Helaas is het voor ons niet mogelijk om patronen aan te passen naar persoonlijke wensen. Een paar tips/ideeën: 1. Bij bepaalde kabels kun je meer herhalingen in de breedte doen. 2. Bij andere kabels kun je meer stokjes voor/na de kabel haken. 3. Je zou eventueel ook meer vierkanten kunnen maken zodat je op hetzelfde formaat deken uitkomt.

31.08.2022 - 13:44

country flag Françoise wrote:

Bonjour Comment commencer la 1ère ms et la 1ère mc dans le 1er coin pour démarrer l'assemblage de deux carrés. Merci de votre réponse. Cordialement.

29.04.2022 - 21:45

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, avec le fil, faites une boucle sur votre crochet, insérez le crochet dans la 1ère ms du 1er carré et en même temps dans la 1ère ms du 2ème carré et crochetez une maille serrée,, crochetez 3 ml, sautez 1,5 à 2 cm et crochetez 1 ms dans la m suivante et ainsi de suite jusqu'au coin suivant. Crochetez 3 ml et répétez le long des 2 carrés suivants. Bon crochet!

02.05.2022 - 07:59

country flag Françoise wrote:

Bonjour Ma question portait sur le tuto que j'ai regardé en entier qui va à l'encontre du diagramme : au 2ème rg il fait des triples brides au lieu de quadruples, au 5ème il fait des quadruples au lieu de triples, au 6ème il fait des triples au lieu de quadruples. La vidéo s'arrête là , j'ignore donc la suite. Ce qui pose la question : dois-je suivre la vidéo jusqu'au 6ème rg et le diagramme ensuite, ou uniquement le diagramme ? Merci de votre réponse. Cordialement

04.04.2022 - 11:47

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, je dois mal comprendre votre question, car, dans la vidéo de A.5, je vois bien des triple-brides au 2ème rang du diagramme (time code 1:23) et des triple-brides au 4ème rang (time code 09:00) et des quadruple-brides au 6ème rang (time code 14:14), autrement dit, les symboles du diagramme correspondent aux mailles crochetées. Pouvez-vous m'indiquer ce que vous avez trouvé comme erreur, peut-être en l'exprimant autrement? Merci pour votre compréhension.

04.04.2022 - 15:04

country flag Françoise wrote:

Bonjour Le diagramme 5 n'a-t-il pas subi de modification, car le tuto ne le respecte pas dans la mesure où à la 1ère ligne il faut faire des quadruples brides, lui fait des triples. Qui dois je suivre ? Merci de votre réponse Cordialement

03.04.2022 - 18:02

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, au 1er rang sur l'endroit de brides en relief, on doit faire des triple-brides - cf 7ème symbole de la légende ou bien cette vidéo. Bon crochet!

04.04.2022 - 10:03

country flag Jerriann wrote:

Is there a video for joining the squares? I'm not sure about the process for the width.

22.03.2022 - 03:55

DROPS Design answered:

Dear Jerriann, there is no specific video to this but we show in this video for another blanket how to crochet the squares together with 1 sc in both layers and 1 chain in the video (crochet 3 chain stitches here, skipping 1,5-2 cm as explained in this pattern). Maybe it can help you. Happy crocheting!

22.03.2022 - 10:27

country flag Françoise wrote:

Ma question sur la diminution est inutile, puisque la réponse est dans l'explication du diagramme. Désolée, je vais continuer mes carrés . Cordialement.

02.03.2022 - 11:40

country flag Françoise wrote:

Bonjour Merci pour votre réponse. Maintenant comment faire la diminution du dernier rang ? Cordialement

02.03.2022 - 11:01

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, en suivant le 6ème symbole, soit: 2 mailles serrées écoulées ensemble - cf symbole à gauche sur le dernier rang de A.3. Bon crochet!

02.03.2022 - 12:02

country flag Françoise wrote:

Bonjour Le diagramme A3 indique de faire 2 ms dans la même maille, hors cette maille se trouve être une bride. Pourquoi ne pas faire tout simplement 32 brides au lieu de 31 pour commencer le carré ? Merci de votre réponse. Cordialement

01.03.2022 - 16:49

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, au 1er rang de A.3 on crochète 1 maille serrée dans chaque maille et on termine le rang par 2 mailles serrées dans la même maille; au dernier rang de A.3, on fera une diminution. On conserve ainsi la largeur souhaitée pour le carré. Bon crochet!

02.03.2022 - 09:17

country flag Jerriann wrote:

I meant a written pattern as opposed to the diagrams. I can't seem to understand them.

21.02.2022 - 07:20

DROPS Design answered:

Dear Jerriann, sorry we only have a diagram to this pattern but the video linked in the previous answer might help you to understand how to read diagrams and how to crochet A.5. Happy crocheting!

21.02.2022 - 10:22