After Midnight |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-26 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð. Byrjið frá réttu með litnum ljós beige og prjónið 14-15-16-16-17-18 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 29-31-33-33-35-37 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 43-46-49-49-52-55 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 57-61-65-65-69-73 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 71-76-81-81-86-91 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 85-91-97-97-103-109 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið og prjónið 1 umferð brugðið til baka (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum 90 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 43) = 2,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca aðra hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Á fram- og bakstykki er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð (ranga) svo að ekki myndist gat. Á ermum er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 9-9½-8-8½-7½-8 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með tvöföldum þræði. Eða hægt er að fella af með grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til aka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-104-108-112-116-120 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með litnum karrí. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Skiptið yfir í litinn ljós beige. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 43-45-47-49-51-53 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjón og ekki er aukið út yfir kanta að framan = 143-149-155-161-167-173 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð á eftir kanti að framan, það á að mæla berustykki frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka - sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 22-23-24-25-26-27 mynstureiningar A.1A með 6 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚTAUKNING-1! Ör-1: Aukið út um 42-48-48-54-60-60 lykkjur jafnt yfir = 185-197-203-215-227-233 lykkjur (nú er pláss fyrir 29-31-32-34-36-37 mynstureiningar með A.1A með 6 lykkjum). Ör-2: Aukið út um 38-42-48-52-52-58 lykkjur jafnt yfir = 223-239-251-267-279-291 lykkjur (nú er pláss fyrir 53-57-60-64-67-70 mynstureiningar A.1A með 6 lykkjum). Ör-3: Aukið út um 28-30-36-44-50-50 lykkjur jafnt yfir = 251-269-287-311-329-341 lykkjur (nú er pláss fyrir 40-43-46-50-53-55 mynstureiningar A.1A með 6 lykkjum). Ör-4: Aukið út um 18-24-30-30-36-42 lykkjur jafnt yfir = 269-293-317-341-365-383 lykkjur (nú er pláss fyrir 43-47-51-55-59-62 mynstureiningar A.1A með 6 lykkjum). Ör-5: Aukið út um 12-18-18-24-24-36 lykkjur jafnt yfir = 281-311-335-365-389-419 lykkjur (nú er pláss fyrir 45-50-54-59-63-68 mynstureiningar A.1A með 6 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 19-19-19-25-25-25 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið síðan sléttprjón með litnum svartur og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð með litnum svartur þannig: Prjónið 46-50-53-58-63-69 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 54-61-67-72-74-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 81-89-95-105-115-127 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 54-61-67-72-74-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 46-50-53-58-63-69 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 185-201-217-237-261-285 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 49-53-57-62-68-74 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 87-95-103-113-125-137 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum svartur og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir hnappagat í hægri kanti að framan. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm millibili alls 6 sinnum í hvorri hlið = 209-225-241-261-285-309 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 32 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 75-83-87-99-107-115 lykkjur jafnt yfir = 308-336-356-396-432-468 lykkjur (það er aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykkið saman). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 54-61-67-72-74-77 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-67-75-80-84-87 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum svartur. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 4-6-7-8-9-8 sinnum = 52-55-61-64-66-71 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 16-16-16-13-13-12 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 1 cm millibili alls 18-16-17-20-20-20 sinnum = 88-87-95-104-106-111 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 39-38-36-35-33-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-0-0-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 88-87-95-104-104-111 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-1-1-0-0-1 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 44-44-48-52-52-56 lykkjur eftir. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 46-45-43-42-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Tina Östin wrote:
After midnight kofta: framkanten, stickas den i svart först när mönstret är färdigstickat? I vitt mönstergården?
09.12.2022 - 09:35DROPS Design answered:
Hei Tine. Litt usikker på hva du mener med " I vitt mönstergården?", men når diagram A.1 er ferdig strikket, strikkes det videre med fargen sort. Slik står det under FRAM- OCH BAKSTYCKE: ..... Sticka slätstickning fram och tillbaka med svart och 5 framkantsmaskor i rätstickning i varje sida mot mitt fram – kom ihåg knapphål på höger framkant. mvh DROPS Design
12.12.2022 - 12:59Sara wrote:
Hi, what cast-on method would you suggest for this?
03.06.2022 - 15:41DROPS Design answered:
Dear Sara, we usually use the continental method - see this video. But feel free to use your favorite cast on edge, just make sure your cast-on edge is not too tight - Happy knitting!
03.06.2022 - 16:09Josie wrote:
Bonjour, j'ai reçu ma laine Sky pour réaliser le cardigan 205-26. Lorsque j'ai regardé la photo des modèles Sky, c'était écrit 23m, j C'était parfait pour mon échantillon. Mais pour les explications de ce modèle, l'échantillon est de 20m. Qu'est ce que je ne comprends pas svp ? Merci et bonne journée.
26.01.2022 - 10:12DROPS Design answered:
Bonjour Josie, le nombre de mailles varie en fonction de l'effet et de la texture souhaitée, par ex. 23 m pour un bonnet, mais l'échantillon de "base" est de 21 mailles pour 10 cm (cf nuancier), on va tricoter ici un peu plus souplement avec 20 mailles pour 10 cm. Pensez à bien adapter la taille des aiguilles si besoin pour que votre échantillon corresponde. Bon tricot!
26.01.2022 - 13:11Rosemarie Olivebring wrote:
Stickar jag framstycke, 8 nya uppläggningsmaskor bakstycke 8 uppläggningsmaskor plus framstycke i ett enda stycke?
17.01.2022 - 19:19DROPS Design answered:
Hei Rosemarie. Om du mener når du skal dele bærestykket til bol og ermer, strikkes dette i et stykke. Maskene du setter på tråder, strikkes når bolen er ferdig. mvh DROPS Design
18.01.2022 - 12:52Rosemarie Olivebring wrote:
Jag undrar på diagrammet för XXL vid pil 2 och 3 är det bara 4 maskor. 2 av maskorna har tagits bort.?
08.01.2022 - 20:03April Anderson wrote:
The picture of the woman wearing the sweater shows a sweater that is not a cardigan! She is wearing a pullover. Is this pattern for a cardigan or a pullover?
21.11.2019 - 21:18DROPS Design answered:
Dear Mrs Anderson, you will find the After Midnight jacket/cardigan pattern here and the After Midnight Sweater pattern here. Happy knitting!
22.11.2019 - 08:54Anne wrote:
Wunderschön! Auch die Farbzusammenstellung gefällt mir. Und ich finde die Ärmel klasse, machen die Jacke peppig.
24.09.2019 - 21:57Kirsten wrote:
Schönes Modell, außer die Ärmel, sie sind ja total ausgebeult.
13.07.2019 - 12:19