Sideway Vines |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð basker / alpahúfa og vettlingar með norrænu mynstri úr DROPS Karisma.
DROPS 204-15 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Alpahúfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 112 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 28. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 27. og 28. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-2 (á við um vettlinga): Ef óskað er eftir því að gera vettling í stærra ummáli er hægt að prjóna vettlinginn með hálfu eða heilu númeri grófari prjónum. Ef prjónað er með hálfu númeri grófari prjónum þá verður 1 cm meira ummál og í heilu númeri grófari prjónum verðu ummálið 2 cm meira. LEIÐBEININGAR-3 (á við um vettlinga): Lengdin áður en opið fyrir þumal byrjar er hægt að stilla af með því að prjóna fleiri eða færri umferðir áður en merki fyrir þumal er prjónað. ÚRTAKA-1 (á við um efst á vettlingum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og alls 4 lykkjur færri í umferð). ÚRTAKA-2 (á við um þumal): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og alls 4 lykkjur færri í umferð). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- ALPAHÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. ALPAHÚFA: Fitjið upp 104-112 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum bensín. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt með bensín þar sem fækkað er um 2-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 102-108 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 17-18 mynstureiningar með 6 lykkjum). Aukið svona út eins og útskýrt er í mynsturteikningu = 170-180 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í umverð merktri með ör í A.1, fækkið lykkjum jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan: Ör-A: Fækkið um 20-20 lykkjur jafnt yfir = 150-160 lykkjur. Ör-B: Fækkið um 20-20 lykkjur jafnt yfir = 130-140 lykkjur. Ör-C: Fækkið um 30-30 lykkjur jafnt yfir = 100-110 lykkjur. Ör-D: Fækkið um 30-30 lykkjur jafnt yfir = 70-80 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið með litnum bensín JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað þannig: * Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan 1 umferð slétt og fækkið um 18-20 lykkjur jafnt yfir *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (í hverri umferð sem lykkjum er fækkað, prjónið 1 lykkju færri áður en 2 lykkjur eru prjónaðar slétt saman) = 16-20 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 1 umferð slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8-10 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 21-22 cm frá miðju á toppi og niður að uppfitjunarkanti. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Vettlingarnir hafa sama ummál í báðum stærðum, en misjafna lengd. Ummálinu er hægt að breyta – sjá LEIÐBEININGAR-2! VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 50-50 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum bensín. Prjónið 8 umferðir sléttprjón fyrir fald. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= uppábrot). Setjið 1 prjónamerki í umferð, stykkið er nú mælt frá prjónamerki. Prjónið 8 umferðir sléttprjón með litnum bensín. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.2 hringinn (= 5-5 mynstureiningar með 10 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 11-12 cm frá prjónamerki (stillið af að næsta umferð sé umferð með einum lit), prjónið að prjónamerki fyrir op fyrir þumal þannig – sjá LEIÐBEININGAR-3: Prjónið 15 lykkjur sléttprjón með litnum bensín, prjónið 8 lykkjur sléttprjón fyrir op fyrir þumal með þræði í öðrum lit sem skilur sig frá litnum bensín. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 21-23 cm frá prjónamerki, byrjið úrtöku efst á vettlingi (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 25-25 lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 11 sinnum í báðum stærðum = 6-6 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 24-26 cm ofan frá og niður að prjónamerki við uppábrot. ÞUMALL VINSTRI VETTLINGUR: Dragið út þráðinn sem prjónaður var yfir 8 lykkjur fyrir opi fyrir þumal og setjið lykkjurnar á sokkaprjón 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í annarri hlið á þumli og 2 lykkjur í hinni hliðinni á þumli (með litnum bensín) = 18 þumallykkjur á prjóni. Munið eftir LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.3 hringinn. Þegar þumallinn mælist ca 5-5½ cm, byrjar úrtaka efst á þumli (nú er eftir ca 1 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið þumalinn að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á þumli þannig að það verða 9 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í hverri umferð alls 3 sinnum = 6 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Þumallinn mælist ca 6-6½ cm ofan frá og niður. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 50-50 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum bensín. Prjónið 8 umferðir sléttprjón fyrir fald. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= uppábrot). Setjið 1 prjónamerki í umferð, stykkið er nú mælt frá prjónamerki. Prjónið 8 umferðir sléttprjón með litnum bensín. Prjónið A.2 hringinn (= 5-5 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar stykkið mælist ca 11-12 cm frá prjónamerki (stillið af lengdina við vinstra vettlingi), prjónið að prjónamerki fyrir op fyrir þumal þannig: Prjónið 27 lykkjur sléttprjón með litnum bensín, prjónið 8 lykkjur sléttprjón fyrir op fyrir þumal með þræði í öðrum lit, prjónið síðan þær 15 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni með litnum bensín. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 21-23 cm frá prjónamerki, byrjið úrtöku efst á vettlingi (stillið af lengdina eftir vinstri vettlingi). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 25-25 lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 11 sinnum í báðum stærðum = 6-6 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 24-26 cm ofan frá og niður að prjónamerki við uppábrot. ÞUMALL HÆGRI VETTLINGUR: Prjónið þumal á sama hátt og á vinstri vettlingi. FRÁGANGUR: Brjótið uppá stykkið við faldinn að röngu og saumið niður með smáu fínu spori. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (21)
Coby wrote:
Op deze manier wel gelukt! Dank je wel.
11.02.2024 - 10:59Coby wrote:
Ik brei veel drops patronen en print dan de breibeschrijving uit. Helaas ontbreekt dan regelmatig het telpatroon, zo ook bij dit patroon. Waarom ?
09.02.2024 - 09:48DROPS Design answered:
Dag Coby,
Druk je het patroon af via de knop onderaan de materialenlijst? Ik heb het ook geprobeerd en bij mij komen de afbeeldingen gewoon mee.
10.02.2024 - 18:19Sara Nättle wrote:
Baskern: Det står ”Öka enligt mönster” Vad menas med det? Ska man öka på varje sida om mönstret? Eller vad menas?
01.02.2024 - 21:31DROPS Design answered:
Hei Sara. Om du ser på diagram A.1 og på pinne 3 og 7 ser du en sort oval prikk. Den sorte ovale prikken betyr at man skal øke. Les teksten til diagramikonet over diagrammet. mvh DROPS Design
12.02.2024 - 10:41Gloria wrote:
Danke für eine Antwort, aber um auf 100 M in der Reihe Pfeil C zu gelangen, muss ich von den vorhandenen 130 M 30M gleichmäßig verteilen (= jede 4,3). Und da ist gerade mein Problem. Welche M. werden zusammen gestrickt, so das sie 1. gleichmäßig und 2. auf die Zahl 30 Abnahmen verteilt sind?
18.12.2023 - 16:57DROPS Design answered:
Liebe Gloria, in diese Lektion erklären wir, wie man regelmäßig verteilt zu- bzw abnimmt. Viel Spaß beim stricken!
19.12.2023 - 07:42Gloria wrote:
Einen schönen guten Tag, betreff Baskenmütze. Welche Kombination an M. kann ich gleichmäßig verteilt zusammenstricken bei Pfeil C wenn ich 4,3 erhalte (130:30). M 3+4 ergeben mehr als 30x. Habe mehrere Varianten auch im Wechsel probiert, auch 2+3, 3+4 und 4+5. Aber entweder habe ich zu wenig oder zuviel. Bite um Hilfe!!
18.12.2023 - 13:20DROPS Design answered:
Liebe Gloria, nach Pfeil C sollen Sie 100 oder 110 Maschen (siehe Größe) haben und das 2-Farbige-Muster wird dann über 2 Maschen wiederholt; wenn Sie mit einer verschiedenen Maschenprobe stricken, dann sollen Sie je nach Ihrer eigenen Maschenprobe umrechnen. Sicher kann Ihnen damit Ihr Wollladen auch per Telefon oder per E-Mail weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
18.12.2023 - 16:25Ann-Brith Hedlund wrote:
Basker 204-15. Stickar enl A 1. Varv 3.omslag 5 räta , omslag 5 räta osv. Men stämmer inte när jag kommer i slutet av varvet då får jag bara 2 räta mellan omslagen? Har 102 maskor från början innan omslag.
12.08.2023 - 20:04DROPS Design answered:
Hej Ann-Brith, du ökar enligt diagrammet; 1 oms, 5m, 1 oms, 1m börja om :)
16.08.2023 - 11:46Nicola Hodkinson wrote:
Please can you help regarding the thumb on the mittens. It says you have to pick up the 8 stitches that were kept on the thread and also increase 1 stitch in one side of the thumb and 2 stitches in the other side (this should make 11 stitches altogether) but the pattern says you should have 18 stitches in the needle. Where do the other 7 stitches come from? Thank you for your help and thank you for your fabulous patterns too.
04.05.2023 - 19:19DROPS Design answered:
Dear Mrs Hodkinson, in this video, we show how to work such a thumb, this means you will pick up 8 sts from each side of the thumb opening + 1 stitch on each side. Happy knitting!
05.05.2023 - 08:08Josefin Hedlund wrote:
Jag vet inte vart jag gör fel. Håller på med baskern och efter första ökningen från 108 maskor ska det bli 180 st på stickan. Hur jag än räknar får jag bara 144..? 18 rapporter med vardera 2 ökningar ger 36 ökade maskor. 108+36=144 och inte 180. Vad missar jag?
14.03.2023 - 19:11DROPS Design answered:
Hej Josefin. Du ska ha 180 maskor efter båda ökningsvarv. Du ökar 2 maskor per rapport på varv 3 i diaram A.1, sedan ökar du 2 maskor per rapport på varv 7 i diagrammet. 108+(18x4) = 180 m. Mvh DROPS Design
16.03.2023 - 10:55Annamaria Anzisi wrote:
Buongiorno sto confezionando il berretto ma alla fine non capisco cosa significa lavorare una maglia in meno prima di lavorare due maglie insieme grazie
19.10.2021 - 14:07DROPS Design answered:
Buonasera Annamaria, si intende che ad ogni giro di diminuzioni si troverà con una maglia in meno tra le diminuzioni. Buon lavoro!
19.10.2021 - 23:29Leah wrote:
Når man skal strikke brettekanten og skal følge «*_*» vil jo omgangen både starte og slutte med å strikke to masker sammen. Og da ender jeg opp med 49 masker igjen... Hva gjør jeg feil?
24.04.2021 - 23:55DROPS Design answered:
Hej Leah. Du slutar omgangen med att slå om, då får du riktigt antal masker. Mvh DROPS Design
27.04.2021 - 09:35