DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 570.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2280.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Business Ready

Prjónuð húfa, sjal og fingravettlingar úr DROPS Nord. Allt settið er prjónað með áferð og gatamynstri.

DROPS 204-55
DROPS Design: Mynstur no-031
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
HÚFA:
S/M - L/XL
Höfuðmál: 54/56 - 58/60 cm
SJAL: Ein stærð
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 43 cm.
Breidd: Mælt meðfram efstu hlið frá hlið að hlið = ca 120 cm.
FINGRAVETTLINGAR:
S/M - L/XL

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250 g litur 16, gallabuxnablár

HÚFA:

STÆRÐ:
S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 16, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni og mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

SJAL:

STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 43 cm.
Breidd: Mælt meðfram efstu hlið frá hlið að hlið = ca 120 cm.

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150 g litur 16, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni og mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

FINGRAVETTLINGAR:

STÆRÐ:
S/M - L/XL

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 16, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni og mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, NR 525: 4-4 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 570.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2280.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1.
Sjal: Sjá mynsturteikningu A.2A, A.2B og A.2C.
Fingravettlingar: Sjá mynsturteikningu A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu!

ÚRTAKA (á við um húfu):
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið fyrstu lykkju á eftir prjónamerki slétt, lyftið 1 lykkju yfir eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja færri).

AFFELLING (teygjanleg affelling – á við um sjal):
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, * stingið vinstri prjóni inn í 2 lykkjurnar á hægri prjóni frá vinstri til hægri og prjónið lykkjurnar slétt saman, prjónið síðan 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á hægri prjón.
Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Þegar fellt er svona af þá kemur affellingarkanturinn til með að verða teygjanlegri.

HNAPPAGAT (á við um vettlinga):
Vinstri fingravettlingur: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Hægri fingravettlingur: Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um op fyrir þumal á fingravettlingum):
Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Í næsta skipti þegar aukið er út er það gert alveg eins með því að auka út hvoru megin við lykkju með prjónamerki í.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 116-124 lykkjur á hringprjón 3 með Nord. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 3 cm – endið eftir slétta umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 3-7 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 55 lykkjur), prjónið 3-7 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 55 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 19-21 cm.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, * setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 29-31 lykkjur slétt *, prjónið *-* alls 3 sinnum, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju og prjónið 28-30 lykkjur sem eftir eru slétt.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4 sinnum = 20-28 lykkjur eftir.
Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman tvær og tvær = 10-14 lykkjur eftir.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25-27 cm ofan frá og niður.
-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Til að fá pláss fyrir allar lykkjur er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjón. Stykkið er prjónað ofan frá og niður.

SJAL:
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 3,5 með 2 þráðum Nord. Setjið 1 prjónamerki í 4. lykkju í umferð (= miðju lykkja) og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Prjónið þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.2A yfir 1 lykkju, A.2B yfir 1 lykkju (= miðju lykkja), A.2C yfir 1 lykkju og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 11 lykkjur í umferð. Takið frá annan þráðinn og prjónið afgang af sjalinu með 1 þræði Nord þannig:
Haldið áfram með A.2A og A.2C hvoru megin við miðju lykkju (A.2B).
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina, er 41 lykkja í umferð (20 lykkjur hvoru megin við miðju lykkju). Haldið áfram með útaukningar alveg eins og áður og í sléttprjóni á undan miðju lykkju, áferðamynstur á eftir miðju lykkju og 2 kantlykkjur í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 40 cm meðfram miðju lykkju – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið 2 umferðir sléttprjón yfir allar lykkjur, en með 2 kantlykkjur í garðaprjóni eins og áður og með útaukningum eins og áður.
Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem útaukningar í hvorri hlið og hvoru megin við miðju lykkju halda áfram eins og áður.
Þegar kantur í garðaprjóni mælist 3 cm meðfram miðju lykkju, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING!

SKÚFUR:
Saumið skúf í hvora hlið á sjali.
1 skúfur = klippið 30 þræði Nord ca 22 cm. Leggið þræðina saman tvöfalda, en leggið jafnframt 2 þræði ca 10 cm innan í uppábrotið (þeir eru notaðir til að sauma skúfinn niður í sjalið).
Vefjið síðan 1 þræði nokkrum sinnum utan um skúfinn, ca 1½ cm ofan frá og festið vel. Saumið skúfinn í aðra hliðina á sjalinu. Gerið annan skúf og saumið í hina hliðina á sjalinu.

-------------------------------------------------------

FINGRAVETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er stroffið prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Síðan skiptast lykkjurnar niður á sokkaprjóna og afgangur af fingravettlingi er prjónaður í hring á sokkaprjóna.

VINSTRI FINGRAVETTLINGUR:
Fitjið upp 52-58 lykkjur á hringprjón 2,5 með Nord. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3 og 5 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT í lok umferðar – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 6 cm, setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 28-31 lykkjur í umferð (séð frá réttu = 24-27 lykkjur í umferð eftir prjónamerki). Klippið frá.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Skiptið lykkjum niður á 4 sokkaprjóna þannig að byrjun á umferð sé við prjónamerki (= innan í hönd). Prjónið hringinn frá prjónamerki þannig: Prjónið 20-23 lykkjur slétt, setjið 4 lykkjur á prjóninn sem 4 fyrstu lykkjurnar voru þegar stroffið var prjónað fram og til baka, undir 4 næstu lykkjur á prjóni og prjónið þessar lykkjur slétt saman tvær og tvær, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 48-54 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 6-5 lykkjur slétt, prjónið A.3 (= 37-45 lykkjur), prjónið 5-4 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 1-2 cm frá prjónamerki, setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð. Í næstu umferð er aukið út fyrir opi fyrir þumal hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í 3. hverri umferð alls 5-6 sinnum = 11-13 þumallykkjur og 58-66 lykkjur alls í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 6-7 cm frá prjónamerki.
Í næstu umferð eru 11-13 þumallykkjurnar + 1 lykkja hvoru megin við þær, settar á þráð (= 13-15 lykkjur á þræði), að auki eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 48-54 lykkjur. Haldið áfram hringinn eins og áður.
Þegar stykkið mælist 11-13 cm frá prjónamerki, setjið fyrstu 19-21 lykkjur á hönd á þráð, haldið eftir næstu 11-12 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 18-21 lykkjur innan í hönd á annan þráð.

LITLI FINGUR:
= 11-12 lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju við lykkjur á þræði = 12-13 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 5½ -6½ cm (eða að óskaðri lengd), prjónið síðan allar lykkjur slétt saman tvær og tvær. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

HÖND:
Setjið til baka lykkjur af þráðum á prjóninn, prjónið að auki upp 2 lykkjur við litla fingur = 39-44 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Haldið eftir 2 nýjum lykkjum sem prjónaðar voru upp við litla fingur + 6-6 lykkjur á hönd og 5-6 lykkjur innan í hönd á prjóninn. Setjið til baka 26-30 lykkjur sem eftir eru á sitt hvorn þráðinn (= 13-15 lykkjur á hönd og 13-15 lykkjur innan í hönd).

BAUGFINGUR:
= 13-14 lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju við lykkjur á þræði = 14-15 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 7-8 cm (eða að óskaðri lengd), prjónið síðan allar lykkjur slétt saman tvær og tvær. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

LANGATÖNG:
Setjið til baka næstu 6-7 lykkjur af hvorum þræði á prjóninn, prjónið að auki upp 2 lykkjur við baugfingur og fitjið upp 1 nýja lykkju við lykkju á þræði = 15-17 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn í ca 7½-8½ cm (eða að óskaðri lengd), prjónið síðan allar lykkjur slétt saman tvær og tvær. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

VÍSIFINGUR:
Setjið til baka þær 14-16 lykkjur sem eftir eru af þráðum á prjóninn, prjónið að auki upp 2 lykkjur við löngutöng = 16-18 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 6½-7½ cm (eða að óskaðri lengd), prjónið síðan allar lykkjur slétt saman tvær og tvær. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

ÞUMALL:
Setjið til baka lykkjur frá opi fyrir þumal á prjóninn og prjónið að auki upp 3 lykkjur í kanti á bakhlið á þumli = 16-18 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 5½-6 cm (eða að óskaðri lengd), prjónið síðan allar lykkjur slétt saman tvær og tvær.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

HÆGRI FINGRAVETTLINGUR:
Fitjið upp 52-58 lykkjur á hringprjón 2,5 með Nord. Prjónið garðaprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3 og 5 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT í byrjun umferðar – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 6 cm, setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 24-27 lykkjum í umferð (séð frá réttu = 28-31 lykkjur í umferð eftir prjónamerki). Klippið frá.
Skiptið lykkjunum niður á 4 sokkaprjóna þannig að byrjun á umferð sé við prjónamerki (= innan í hönd). Prjónið hringinn frá prjónamerki þannig: Prjónið 20-23 lykkjur slétt, setjið 4 lykkjurnar á prjóninn sem 4 síðustu lykkjurnar voru þegar stroffið var prjónað fram og til baka, undir 4 næstu lykkjur á prjóni og prjónið þessar lykkjur slétt saman tvær og tvær, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 48-54 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 5-4 lykkjur slétt, prjónið A.3 (= 37-45 lykkjur), prjónið 6-5 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með mynstur.

Þegar stykkið mælist 1-2 cm frá prjónamerki, setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Í næstu umferð er aukið út fyrir opi fyrir þumal hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, alveg eins og á vinstri fingravettlingi. Aukið svona út í 3. hverri umferð alls 5-6 sinnum = 11-13 þumallykkjur og 58-66 lykkjur alls í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 6-7 cm frá prjónamerki.
Í næstu umferð eru 11-13 þumallykkjurnar + 1 lykkja hvoru megin við þær, settar á þráð (= 13-15 lykkjur á þræði), að auki eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 48-54 lykkjur. Haldið áfram hringinn eins og áður.
Þegar stykkið mælist 11-13 cm frá prjónamerki, setjið fyrstu 18-21 lykkjur á hönd á þráð, haldið eftir næstu 11-12 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 19-21 lykkjur innan í hönd á annan þráð.
Prjónið síðan fingur og hönd til loka alveg eins og á vinstri fingravettlingi.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er annar uppslátturinn látinn falla niður og hinn er prjónaður brugðið svo að það myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur svo að ekki myndist gat
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-55

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Margo wrote:

Wat is het doel/nut van een 2e draad meenemen in breipatroon omslagdoek? Alvast dank

02.12.2023 - 22:58

country flag Lidwine wrote:

Bonjour je met du taille L Combient de mail

12.09.2023 - 21:58

DROPS Design answered:

Bonjour Lidwine, si vous choisissez la taille L, vous devrez suivre la 2ème taille pour le bonnet pour un tour de tête d'environ 58/60 cm (le bonnet lui-même fera environ 52 cm pour pouvoir s'étirer joliment et bien tenir sur la tête); et, pour les gants (L/XL) pour environ 21 cm de circonférence de main. Bon tricot!

13.09.2023 - 08:28

country flag Małgorzata wrote:

Dziękuję za odpowiedź, już rozpracowałam wzór wychodzi ślicznie, pozdrawiam

24.08.2020 - 18:24

DROPS Design answered:

Super, koniecznie podziel się z nami efektem swojej pracy na facebooku, w naszej grupie Drops Workshop, albo dodaj link do galerii dropsfan. Pozdrawiamy!

25.08.2020 - 15:44

country flag Małgorzata wrote:

Przepraszam, chodzi rozpoczęcie szala, początek jest dla mnie niezrozumiale opisany, dziękuję i pozdrawiam

23.08.2020 - 17:37

DROPS Design answered:

Witaj Małgosiu! Jak odczytywać schematy w robótce na drutach znajdziesz TUTAJ. Szal ma niesymetryczny wzór z obu stron, zobacz zdjęcie. Zaczynasz go od szyi, a dodając oczka będzie się „rozkładał” na boki, ostatni rząd to rząd z największą liczbą oczek na dole (2 boki o tej samej długości w trójkącie). Mam nadzieję, że pomogłam. Jeśli nie napisz dokładnie czego nie rozumiesz (który fragment wzoru), to postaram się pomóc. Pozdrawiamy!

24.08.2020 - 14:51

country flag Małgorzata wrote:

Witam, jak dokładnie rozpocząć robótkę? Dziękuję

23.08.2020 - 17:35

DROPS Design answered:

Witaj! Na drutach z żyłką nr 3,5 nabrać 7 oczek 2 nitkami włóczki Nord. Umieścić 1 nitkę marker w 4-te oczko (= oczko środkowe) i przesuwać ją w miarę postępu robótki. Przerabiać kolejny rząd następująco: 2 o. ściegiem francuskim – patrz powyżej, schemat A.2A ponad następnym oczkiem, schemat A.2B ponad następnym oczkiem (= oczko środkowe – będzie przerabiane na prawo na prawej stronie, a na lewo na lewej stronie), schemat A.2C ponad następnym oczkiem i zakończyć przerabiając 2 oczka ściegiem francuskim = 11 o. Usunąć jedną nitkę marker i kończyć szal tylko 1 nitką Nord i dalej przerabiać schematy A.2A i A.2C z każdej strony oczka środkowego (A.2B).

24.08.2020 - 14:45

country flag Carol Lenard wrote:

Business ready 204-55. how many stitch for small s/m of chart A3 s/m.The first symbol of chart A3 s/m on line one mean.

19.01.2020 - 00:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lenard, on first row in A.3 size S/M you start with 1 YO, knit 2 together, and finish with slip 1, k1, psso, 1 YO. Happy knitting!

20.01.2020 - 10:32

country flag Carol Lenard wrote:

I can't find the pattern for drop 204.55.show the pattern

18.01.2020 - 04:35

DROPS Design answered:

Dear Carol, the pattern 204-55 is here, and you can find the diagrams for each pattern at the bottom of the page, below the written instructions. Happy Knitting!

19.01.2020 - 00:48

country flag Carol Lenard wrote:

I can't find the pattern for drop 204.55.show the pattern

18.01.2020 - 04:27

DROPS Design answered:

Dear Carol, the pattern 204-55 is here, and you can find the diagrams for each pattern at the bottom of the page, below the written instructions. Happy Knitting!

19.01.2020 - 00:48

country flag Renata wrote:

Dzień dobry, zrobiłam szal i po zakończeniu robótki okazało się, że wykończenie dołu zrobione ściegiem francuskim po stronie z dżersejem wywija się do góry. Tego problemu nie ma po stronie wykonanej ściegiem strukturalnym. Nie jest to pierwszy raz gdy tak mi się tak dzieje, taki sam problem miałam w swetrze Erendis nr bs-108. Co robię źle i jak można to naprawić?

19.12.2019 - 14:24

DROPS Design answered:

Witaj Renato! Radzę zblokować robótkę, tj. namoczyć w letniej wodzie, odcisnąć w ręczniku i rozłożyć do wysuszenia na macie, dywanie, przypinając brzegi co ok. 5 cm szpilkami. Po wysuszeniu powinno wszystko być ok. Powtarzać to samo po każdym praniu. Pozdrawiamy!

30.12.2019 - 00:42

country flag Anne BERNARD wrote:

Merci . Pouvez-vous aussi me détailler les rangs 3,4,5 comme vous me l'avez fait pour les 1 et 2.? C'est plus clair pour moi. Merci 

21.11.2019 - 14:56

DROPS Design answered:

Tricotez les rangs 3 et 4 ainsi: R3: A.2A: 1 double jeté, 1 m end, 1 jeté, 2 m end, 1 double jeté; A.2B: 1 m end; A.2C: 1 double jeté, 2 m end, 1 jeté, 1 m end, 1 double jeté. R4: A.2C: lâchez 1 jeté, tric l'autre à l'env, 1 m end, 1 m env, 2 m end, 1 m env (tric le jeté torse pour éviter un trou) (= 6 m), A.2B (= 1 m env), A.2A: lâchez le 1er jeté, tricotez l'autre à l'env, 4 m env (tric le jeté torse à l'env), lâchez le 1er jeté et tricotez le 2ème à l'envers = 6 m. Continuez de la même façon aux rangs suivants, suivez bien la légende pour vous aider. Les étoiles se tricotent au point mousse, les cases blanches en jersey. Bon tricot!

21.11.2019 - 15:06