DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Weaving Memories

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-35
DROPS Design: Mynstur ai-226
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-400-450-550 g litur 02, hveiti

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 60 cm eða 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÁFERÐAMYNSTUR:
Það eru prjónaðar rendur með áferðamynstri. Kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið er prjónuð til loka.
Prjónið þannig:
RÖND 1: Prjónið A.1.
RÖND 2: Prjónið A.2 í 7-8-8-9-9-9 cm – stillið af að endað sé eftir 1. eða 3. umferð í mynsturteikningu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
RÖND 3: Prjónið A.1.
RÖND 4: Prjónið A.3 í 8-8-8-8-10-10 cm – stillið af að endað sé eftir 4. eða 8. umferð í mynsturteikningu.
RÖND 5: Prjónið A.1.
RÖND 6: Prjónið A.2 í 7-8-8-9-9-9 cm – stillið af að endað sé eftir 1. eða 3. umferð í mynsturteikningu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
RÖND 7: Prjónið A.1.
RÖND 8: Prjónið A.3 í 6-6-8-8-8-10 cm – stillið af að endað sé eftir 4. eða 8. umferð í mynstri.
RÖND 9: Prjónið 2 umferðir sléttprjón.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), mínus kantlykkjur í hvorri hlið (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjufjölda sem eftir er með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 10,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 9. og 10. hverja lykkju og 10. og 11. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur í garðaprjóni.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 32 lykkjur) mínus kantlykkjur í hvorri hlið (= 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 3,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 88-94-108-114-120-132 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú ÁFERÐAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 80-86-98-104-110-120 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm fellið af 0-0-3-3-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 80-86-92-98-98-108 lykkjur. Í stærð S og M eru lykkjur ekki felldar af, en til að merkja handveg er sett eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki. Þegar 8. röndin hefur verið prjónuð til loka, fellið af miðju 24-24-24-26-26-26 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 27-30-33-35-35-40 lykkjur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 88-94-108-114-120-132 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, prjónið (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú áferðamynstur eins og á bakstykki með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 80-86-98-104-110-120 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm fellið af 0-0-3-3-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 80-86-92-98-98-108 lykkjur. Í stærð S og M er lykkjum ekki fækkað, en til að merkja handveg er sett eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 44-46-46-48-50-50 cm setjið miðju 14-14-14-16-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan lykkjur af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 27-30-33-35-35-40 lykkjur fyrir öxl. Þegar allar rendur með áferðamynstri hafa verið prjónaðar til loka á hæðina, prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 32-34-36-36-38-40 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff fram og til baka þannig: 1 kantlykkja garðaprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið A.1 með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, jafnframt er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING-1 = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið með A.2 og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9-11-11-11-11-7 cm aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili alls 13-14-14-16-16-17 sinnum = 66-70-72-76-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-48-46 cm fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur!
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón mitt uppi á öxl – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og saumið innan við affellingarkantinn á ermum. Í stærð S og M merkja prjónamerki sem sett voru í hvora hlið hvar handvegurinn byrjar. Í stærð L, XL, XXL og XXXL eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið. Saumið saum undir ermum og síðan niður meðfram hliðarsaum. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu með Air og stuttum hringprjón 4,5 og prjónið upp ca 76-90 lykkjur í kringum hálsmál meðtaldar lykkjur af þræði.
Prjónið kant í hálsmáli hringinn þannig: Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í umferð. Þegar stroffið mælist 4 cm prjónið 1 umferð brugðið. Fellið af með brugðnum lykkjum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Dorothy Francone wrote:

I am doing DROPS 207-35. I am about to finish the 8th stripe on the back and am confused by the following: When 8th stripe has been worked, cast off the middle 24-24-24-26-26-26 stitches for neck and finish each shoulder separately. Then cast off 1 stitch on next row from the neck = 27-30-33-35-35-40 stitches. Work 1 ridge over all stitches. Cast off. Piece measures approx. 50-52-54-56-58-60 cm from shoulder and down. Work the other shoulder the same way.

27.11.2023 - 21:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Francone, on the next row after the 8th stripe, ie on the first row of the 9th stripe, cast off the middle stitches for neck, then finish each shoulder separately. Cast off 1 stitch at the beg of next row from neck (from WS on right shoulder/from RS on left shoulder back piece). After the 2 rows stocking st of 9th stripe are done, knit 2 rows (- 1 ridge) and cast off. work the 2nd shoulder the same way. Happy knitting!

28.11.2023 - 08:46

country flag Krentner Maréka wrote:

Bonsoir, pouvez vous me confirmer si le col doit se tricoter en aller et retour, ou en Rond . Je vous remercie de votre réponse .🌼🌺

24.05.2022 - 18:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Krentner, le col se tricote effectivement en rond. Bon tricot!

25.05.2022 - 07:16

country flag Mme Krentner wrote:

Bonsoir, je fais le modèle 207 35, j’ai un petit soucis avec le diagramme, vous dites que ce diagramme montrent uniquement les rangs vus sur l’endroit donc si je comprends bien, pour la rayure. 1 il faut faire le double de rangs à chaque fois donc 24 rangs, endroits et envers. Merci de votre réponse

01.05.2022 - 17:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Krentner, les diagrammes montrent tous les rangs, mais vus sur l'endroit, autrement dit vous lisez les diagrammes de bas en haut, puis de droite à gauche sur l'endroit et de gauche à droite sur l'envers. A.1 se tricote ainsi sur 12 rangs, A.2 sur 4 et A.3 sur 8 rangs. Bon tricot!

02.05.2022 - 10:12

country flag Kp wrote:

Why is the body length from cast on to armhole so different on Weaving Memories and Rainy Day patterns even though the length looks similar for both on the models. One is around 30 cms the other is around 40 cms

27.04.2022 - 12:51

DROPS Design answered:

Dera Kp, Rainy Day is much longer: total length is 62-64-66-68-70-72 cm from cast on edge to shoulder, while this jumper is shorter: 50-52-54-56-58-60 cm from cast on edge to shoulder. You can adjust length but you will then require much yarn. Happy knitting!

27.04.2022 - 15:24

country flag Vera Van Veenendaal wrote:

Bij A 2 staat brei 9 cm en pas aan op het einde na de 1e en 3de naald in het telpatroon wat moet er worden aangepast??? zo staat dat er nog een paar keer bij voorbaat mijn grote dank Vera van Veenendaal

13.03.2022 - 21:56

DROPS Design answered:

Dag Vera,

Het is de bedoeling dat de laatste naald de 1e of 3e naald in het telpatroon is, dus het is de bedoeling dat je 9 cm breit en dat je op dat moment óf de 1e of de 3e naald in het patroon hebt gebreid.

14.03.2022 - 12:24

country flag Jacqueline Gross wrote:

I cannot use circular needles. the knitting becomes too heavy for my hands. Can I knit this using ordinary needles. Which patterns of this type use ordinary needles ?

20.09.2021 - 21:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gross, for this jumper, each piece is worked back and forth on circular needle to have enough room for all stitches, only neck edge will be worked in the round, it will be then easy to adapt; this lesson will help you to adapt patterns into straight needles. Happy knitting!

21.09.2021 - 09:03

country flag Laura wrote:

I have just finished knitting this jumper and am really excited to wear it. The yarn says not to soak it so I was wondering if anyone had any advice about blocking it. I would normally soak the item and then stretch it out to dry but I am hesitant given the label on the yarn.

31.07.2020 - 09:07

DROPS Design answered:

Dear Laura, First of all, congratulations on your finished project! We would love to see it! You can share photos with us on our Drops Gallery here on the site or on your social media using the hashtag #dropsfan, About blocking: you can wet the garment but not leave it to soak or steam block it. Use the steam of your iron to wet the entire garment and then block it. The important issue is not relax too much the fibres. Do not leave the garment to soak not use fabric conditioner. Just wet the garment until it's wet, remove all excess water and then block it. Happy Knitting!

31.07.2020 - 10:54

country flag Hild wrote:

Hei. Nettopp kjøpt garn, men lurer på om den kan strikkes rundt? Liker ikke frem og tilbake ☺️

16.07.2020 - 09:38

DROPS Design answered:

Hej Hild. Ja det kan du godt - god fornøjelse! :)

28.07.2020 - 14:05

country flag Sylvia Lindoe wrote:

Please can you tell me where to find weaving Memories hat? I’ve knitted the sweater which is lovely and would like to make the hat, but I can’t find the pattern. Thanks!

01.03.2020 - 23:16

DROPS Design answered:

Hi Sylvia, Pattern ai-227 is the set with the hat and neck warmer. Happy knitting!

02.03.2020 - 10:21

country flag Anne wrote:

Pourquoi le patron indique de faire des diminutions dès les premiers rangs points texturés alors que le diagramme montre a diminution à partir de 26 cm?

02.01.2020 - 05:52

DROPS Design answered:

Bonjour Anne, vous le faites pour les côtes d'en bas ne resserre pas votre ouvrage, ainsi la largeur du pull est le meme jusqu'a 26 cm. Bon tricot!

02.01.2020 - 09:42