DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Line upon Line

Prjónuð basker / alpahúfa og hálsskjól úr DROPS Air með einlitu og tvílitu klukkuprjóni með uppslætti.

DROPS 204-38
DROPS Design: Mynstur ai-211
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50-50 g litur 10, þoka
100-100 g litur 17, gallabuxnablár

BASKER / ALPAHÚFA:

STÆRÐ:
S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50-50 g litur 10, þoka
50-50 g litur 17, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 34 umferðir (17 umferðir taldar í sléttri lykkju) á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ:
S/M - L/XL
Mál: Ummál að ofan: ca 60-70 cm. Ummál að neðan: ca 80-90 cm. Hæð: ca 23-27 cm.

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50-50 g litur 17, gallabuxnablár
50-50 g litur 10, þoka

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 34 umferðir (17 umferðir taldar í sléttri lykkju) á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI:
UMFERÐ 1: Prjónið með litnum þoka.
* Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið með litnum gallabuxnablár.
* Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 3: Prjónið með litnum þoka.
* Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-*.
Endurtakið umferð 2 og 3.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð í umferð með litnum þoka!
Það er aukið út í sléttri lykkju þannig: Prjónið 5 lykkjur í lykkju og uppslátt þannig: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að steypa lykkjunni yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð í klukkuprjónsmynstri er lykkjan prjónuð sem átti að prjónast saman með uppslætti, án uppsláttar.

LEIÐBEININGAR (á við um lykkjufjölda):
Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar, þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni. Slétta lykkjan og uppslátturinn er talinn saman sem 1 lykkja.

ÚRTAKA (á við um húfu):
Öll úrtaka er gerð í umferð með litnum þoka!
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, lyftið uppslættinum og lausu sléttu lykkjunni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 3 lykkjur (= 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, 1 lykkja brugðið) slétt saman og lyftir síðan uppslættinum og óprjónuðu lykkjunni yfir (= alls 2 lykkjur og 2 uppslættir færri). Fækkið lykkjum svona við hvert prjónamerki (= 12 lykkjur og 12 uppslættir færri í umferð).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.

FORMUN:
Bleytið húfuna og pressið vatnið varlega úr. Spennið húfuna yfir flatan disk með ca sama þvermáli og húfan og setjið diskinn á glas til að koma í veg fyrir að húfan komist nærri undirlaginu. Látið húfuna þorna og lyftið varlega af diskinum. Þetta er endurtekið í hvert skipti sem húfan er þvegin.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BASKER / ALPAHÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjón, ofan frá og niður.

BASKER / APLAHÚFA:
Fitjið upp 12 lykkjur á sokkaprjón 6 með litnum þoka (látið endann vera ca 30 cm langan, það á að nota hann síðar til að sauma gatið saman efst á húfunni). Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið.
Prjónið nú KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. Þegar 1. umferð í klukkuprjóns mynstrið hefur verið prjónað, eru 6 lykkjur slétt í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja og eina af þessum 6 sléttu lykkjum, prjónamerkin eru notuð fyrir útaukningu og síðar fyrir úrtöku. Í umferð 3 í mynstri, aukið út 4 lykkjur í hverja og eina af 6 lykkjum slétt – sjá ÚTAUKNING (= 24 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 12. hverri umferð (þ.e.a.s. í 6. hverri umferð með litnum þoka) alls 5 sinnum – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu eru 132 lykkjur í umferð – sjá LEIÐBEININGAR. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33-41 cm að þvermáli). Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð og látið prjónamerkið sitja hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Færið 6 prjónamerkin 8 lykkjur (þ.e.a.s. 4 lykkjur slétt) til vinstri. Í næstu umferð með litnum þoka, fækkið um 2 lykkjur við hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 12 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð með litnum þoka) alls 4 sinnum = 84 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki. Prjónið næstu umferð, en án þess að gera uppsláttinn = 84 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff hringinn með litnum gallabuxnablár (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Húfan mælist ca 10 cm frá prjónamerki (ca 27-31 cm ofan frá og niður).
Saumið nokkur spor upp og niður í uppfitjunarkantinn og herðið að gatinu að innan verðu, festið enda vel. Sjá FORMUN.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 108-126 lykkjur á hringprjón 6 með litnum gallabuxnablár. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 72-84 lykkjur.
Prjónið síðan KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI, en einungis er prjónað með litnum gallabuxnablár – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 16-18 cm, prjónið áfram með sama hætti, en nú er prjónað bæði með litnum gallabuxnablár og litnum þoka eftir útskýringu. Þegar stykkið mælist 18-20 cm er aukið út um 4 lykkjur í 6.-7. hverja slétta lykkju (þ.e.a.s. í 12.-14. hverja lykkju) – sjá ÚTAUKNING (= 24 lykkjur fleiri) = 96-108 lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni með tveimur litum þar til stykkið mælist 23-27 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð með litnum þoka. Fellið af með litnum þoka – fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja, þ.e.a.s. uppslátturinn er prjónaður eins og lykkja og síðan felldur af eins og hinar lykkjurnar.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Dorthe Bertram wrote:

Hvad betyder, at man - når man har strikke udtagningerne - skal strikke til ‘diameter…’ Mvh Dorthe Bertram

15.01.2024 - 22:01

DROPS Design answered:

Hej Dorthe, diameteren er når du måler fra den ene side og lige over til den anden side (på det bredeste) :)

16.01.2024 - 13:58

country flag Jane wrote:

I'm knitting the neck warmer and am confused about when you start knitting in English rib. After decreasing to 72 stitches and beginning the English rib pattern, round 1 actually increases the stitches. Should it be knit 2 together rather then k1?

25.01.2023 - 19:36

DROPS Design answered:

Hi Jane, With English rib the number of stitches fluctuates depending on which row in the pattern you are working. The extra stitches on round 1 will be reduced in round 2. Happy knitting!

26.01.2023 - 06:51

country flag Donna Fleischer wrote:

I figured it out - it is the name of the yarn.

14.11.2022 - 18:00

country flag Donna Fleischer wrote:

What does knitted with fog mean, please?

14.11.2022 - 17:57

DROPS Design answered:

Hi Donna, Fog is the name of colour 10 Drops Air. Happy knitting!

15.11.2022 - 07:10

country flag Sophie LACAILLE wrote:

Bonjour, je ne comprend pas bien comment faire les augmentations, est-ce tous les 2 rangs brouillard ou autrement ? Je ne connaissais pas le point des côtes anglaises et ce modèle très joli est pour moi un vrai challenge, surtout avec les 2 couleurs et le tricot en rond. J'ai des difficultés à le commencer. Je vous souhaite mes meilleurs vœux pour cette nouvelle année.

08.01.2022 - 13:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lacaille, vous augmentez au début du béret dans chacune des 6 mailles endroit indiquée avec un marqueur (on augmente 24 m au total), et répétez ces augmentations tous les 12 tours, soit tous les 6 tours tricotés en brouillard (= 1 tour tricoté en brouillard avec augmentations, tricotez comme avant les 11 tours suivants en côtes anglaises bicolores en répétant les tours 2 et 3) et répétez ces 12 tours. Bon tricot!

10.01.2022 - 07:49

country flag Marny wrote:

"fog" - slapping head causing minor concussion!!! I should have read the info more closely. TY. I think I'll do "Color A" "Color B" Great site!

17.05.2020 - 10:42

country flag Marny wrote:

What does "fog" mean??

17.05.2020 - 05:21

DROPS Design answered:

Dear Marny, it is the name for the grayish shade of the yarn. Happy Knitting!

17.05.2020 - 08:52

country flag Elena wrote:

Non capisco come si lavora il giro successivo agli aumenti. Cosa vuol dire "lavorare senza gettato la maglia che deve essere lavorata con il gettato?

06.03.2020 - 20:24

DROPS Design answered:

Buongiorno Elena. Nelle coste inglesi, dovrebbe lavorare una maglia insieme alla sua gettata. Nel giro successivo a quello con gli aumenti, quando arriva al punto in cui dovrebbe lavorare la maglia con la gettata, lavora solo la maglia. Buon lavoro!

24.03.2020 - 08:58

country flag Rigmor Bachmann wrote:

Det står om garnmengde: 50-50 g. Hva bestyr dette.? Er det 1 nøste eller mer?\r\n\r\nRigmor

22.01.2020 - 14:11

DROPS Design answered:

Hei Rigmor, De 2 tallene er for 2 forskjellige størrelser. Begge størrelsene trenger 50 g garn (1 nøste). God fornøyelse!

23.01.2020 - 07:22

country flag Zarly wrote:

Magnifiques!!! Comment puis-je avoir le modèle s’il vous plaît pour qu’il soit prêt pour Noël ? Merci!

09.11.2019 - 08:23