Spring Fjords |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Big Delight og DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tveggja lita áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-9 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Þegar taka á þráðinn seinna í mynstrinu ætti þráðurinn að samsvara 4 lykkjum (þ.e.a.s. 1 lykkja meira en lyft var yfir) – sjá stjörnu við hliðina á mynsturteikningu A.1. Þegar þráðurinn liggur, ætti þráðurinn að samsvara lengd sem samsvarar lykkjum sem lyft er yfir. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d.20) = 4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Stykkið er síðan prjónað með sléttum lykkjum. Nú eru lykkjur auknar út jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING, í annarri hverri umferð þannig: Aukið út 16-20-24-20-20-20 lykkjur 1 sinni, síðan 14-20-22-20-18-20 lykkjur alls 2-2-2-3-4-4 sinnum = 120-140-152-168-184-196 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 4 lykkjur), endurtakið A.2 (= 4 lykkjur) – sjá MYNSTUR, hringinn yfir þær lykkjur sem eftir eru (= 29-34-37-41-45-48 sinnum á breiddina). Aukið nú út í umferð merktri með ör í mynsturteikningu A.1 þannig: ÚTAUKNINGS UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 24-24-36-36-36-36 lykkjur jafnt yfir = 144-164-188-204-220-232 lykkjur. A.2 er núna endurtekið 35-40-46-50-54-57 sinnum á breiddina. ÚTAUKNINGS UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 24-24-24-24-24-36 lykkjur jafnt yfir = 168-188-212-228-244-268 lykkjur. A.2 er nú endurtekið 41-46-52-56-60-66 sinnum á breiddina. Þegar A.1b og A.2b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1b og A.2b á hæðina 0-0-0-0-1-1 sinni til viðbótar (= alls 1-1-1-1-2-2 sinnum á hæðina). Prjónið síðan mynstur A.1 og A.2. ÚTAUKNINGS UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 24 lykkjur jafnt yfir = 192-212-236-252-268-292 lykkjur. A.2 er nú endurtekið 47-52-58-62-66-72 sinnum á breiddina. ÚTAUKNINGS UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 24 lykkjur jafnt yfir = 216-236-260-276-292-316 lykkjur. A.2 er nú endurtekið 53-58-64-68-72-78 sinnum á breiddina. ÚTAUKNINGS UMFERÐ 5: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 0-0-0-12-24-24 lykkjur jafnt yfir = 216-236-260-288-316-340 lykkjur. A.2 er nú endurtekið 53-58-64-71-78-84 sinnum á breiddina. Nú er mynstrið prjónað og stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar, lestu allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram! Þegar A.1d og A.2d hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1d og A.2d á hæðina 1-1-2-2-2-2 sinnum til viðbótar (= alls 2-2-3-3-3-3 sinnum á hæðina). Prjónið síðan A.1c yfir A.1d og A.2c yfir A.2d. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki, stillið af að næsta umferð sé með Air, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið mynstur yfir fyrstu 31-34-37-41-46-51 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 46-50-56-62-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 62-68-74-82-92-102 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-50-56-62-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 31-34-37-41-46-51 lykkjur (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-152-164-180-200-220 lykkjur. Prjónið mynstur yfir lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. A.1 er prjónað 1 sinni og A.2 er endurtekið alls 34-37-40-44-49-54 sinnum á breiddina. Þegar A.1c og A.2c hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 2 sléttar umferðir með Air og aukið út 7-7-7-6-7-8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 147-159-171-186-207-228 lykkjur. Prjónið síðan A.3 (= 3 lykkjur) hringinn (= 49-53-57-62-69-76 sinnum á breiddina). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 2 sléttar umferðir með Air og auknar út 9-5-9-10-5-8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 156-164-180-196-212-236 lykkjur. Prjónið síðan A.1a yfir 4 lykkjur, endurtakið A.2a yfir þær lykkjur sem eftir eru (= 38-40-44-48-52-58 sinnum á breiddina). Þegar A.1a og A.2a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina prjónið 2 sléttar umferðir með Air og aukið út 0-1-0-2-1-1 lykkjur í fyrstu umferð = 156-165-180-198-213-237 lykkjur. Prjónið síðan A.3 yfir allar lykkjur (= 52-55-60-66-71-79 sinnum á breiddina). Prjónið 2 sléttar umferðir með Air og fækkið um 0-1-0-2-1-1 lykkjur í fyrstu umferð = 156-164-180-196-212-236 lykkjur. Prjónið A.1c, endurtakið A.2c yfir þær lykkjur sem eftir eru (= 38-40-44-48-52-58 sinnum á breiddina). Prjónið nú stykkið með sléttum lykkjum í Air. Þegar fram- og bakstykkið mælist 27-27-28-28-28-28 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! ERMI: Setjið 46-50-56-62-66-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn eins og á fram- og bakstykki, stillið af að mynstrið við þar sem endað var á berustykki. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar slétt með Air mitt undir ermi (í umferð með Big Delight er lykkjunum sem ekki ganga jafnt upp í mynstri, lyft yfir á hægri prjón, þ.e.a.s. þær eru ekki prjónaðar). Prjónið nú alveg eins mynstur og á fram- og bakstykki þannig: Þegar A.2c hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 2 sléttar umferðir með Air. Prjónið A.3 hringinn. Prjónið 2 sléttar umferðir með Air. Prjónið A.2a hringinn (í fyrstu og síðustu mynstureiningu af A.2a er þræðinum ekki lyft sem liggur laus yfir lykkjurnar 4 umferðir upp, hann liggur bara yfir lykkjum). Prjónið 2 sléttar umferðir með Air. Prjónið A.3 hringinn. Prjónið nú stykkið til loka með Air. Prjónið sléttar lykkjur þar til stykkið mælist 27-26-25-24-22-21 cm. Aukið nú út 10-10-8-6-6-4 lykkjur jafnt yfir = 64-68-72-76-80-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 31-30-29-28-25 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (23)
Carol McMillan wrote:
In the pictures it looks like there are 4 colours especially on the pink version (light pink, dark pink, lilac and white) but in the instructions only 2 are listed?
21.07.2022 - 18:30DROPS Design answered:
Dear Carol, yes, you need only two yarns, because DROPS Big Delight is multicoloured - so all colors you mentioned are part of this one yarn and the colours change on their own during knitting. Happy knitting!
21.07.2022 - 18:38Geoffriau wrote:
J'ai bien vu ce que vous me dites mais par rapport au motif précédent les maillesne sont pas
21.07.2021 - 10:54DROPS Design answered:
Bonjour Mme Geoffriau, cette vidéo pourrait vous aider peut-être. Bon tricot!
21.07.2021 - 14:23Geoffriau wrote:
Augmentation 4 comment faire pour augmente r d'une maille et garder le motif ( les mailles bleues sont alors disposées
21.07.2021 - 10:23DROPS Design answered:
Bonjour Mme Geoffriau, toutes les augmentations se font sur des rangs où l'on va tricoter toutes les mailles avec une seule couleur (= en Air, naturel). Bon tricot!
21.07.2021 - 10:39Mary wrote:
Boy do I feel like an idiot. Thanks for everything and so sorry to waste your time.
15.05.2021 - 21:37DROPS Design answered:
Dear Mary, don't feel like that. We are happy to help, and asnwer questions that make finishing pieces easier. Happy Knitting!
16.05.2021 - 00:00Mary Cooper wrote:
Hello, first let me thank you for your wonderful website. Now for my question. I know I’m probably just not understanding this like everyone else but I don’t know when to change the color with the big delight yarn. When do you use the second color? Is row one of A.1a in the first color and row two in the second color? Your patterns are always wonderful and clearly written so I know that this is just my misunderstanding. Thank you for any information you can provide. Kind regards, Mary
14.05.2021 - 10:28DROPS Design answered:
Dear Mary, the Big Delight is used for the pattern, which is a kind of "mozaik" pattern, that uses slipped stitches to form the pattern. Please read through the description for the diagrams, and try it in a small swatch to familiarize with the technique. Also, check THIS video. Happy Knitting!
14.05.2021 - 22:23Inger Holzmann wrote:
Jeg strikke cardigan - altså frem og tilbage. Når jeg strikker vrangsiden er jeg i tvivl om A3 er kantmasken eller om jeg skal strikke en kantmaske inden jeg strikker A3?
10.06.2020 - 10:18DROPS Design answered:
Hej Inger, klik på billedet med cardiganen, eller dette link: DROPS 210-10 så får du diagrammerne frem som passer til opskriften af samme model men som cardigan. God fornøjelse!
10.06.2020 - 13:35StrickSuzie wrote:
Hallo! Wenn ich das Muster wie angegeben mit A.1 (= 4 Maschen) 1 x und A.2 (= 4 Maschen) in der ganzen Runde über die restlichen Maschen verteile, habe ich den "Stern" für das Strukturmuster nur einmal in der hinteren Mitte, weil A1 nur einmal und ansonsten nur A2 vorkommt. Ist das so gemeint? Liebe Grüße
03.04.2020 - 16:53DROPS Design answered:
Liebe StrickSuzie, das Stern betrifft auch A.2 - vielleicht kann Ihnen das Video helfen? Viel Spaß beim stricken!
03.04.2020 - 17:13Vibeke Fauske wrote:
Spring Fjords\r\nEr det slik at en skal strikke mønster A.1a på begynnelsen av hver omgang, der etter mønster A.2a ut omgangen? Eller skal en veksle 2.hver gang?
28.01.2020 - 18:43Cathy D wrote:
Bonjour ! Merci beaucoup pour cette vidéo, maintenant je comprends où était mon erreur ! Encore merci pour votre rapidité à répondre !
28.01.2020 - 15:05Cathy D wrote:
Bonjour, J'ai un problème avec le point fantaisie, je n'arrive pas au même résultat que sur la photo. Est ce qu'il y a une vidéo qui explique comment faire ce motif ? Merci d'avance pour votre aide.
26.01.2020 - 14:21DROPS Design answered:
Bonjour Cathy D, cette toute nouvelle vidéo devrait vous aider à réaliser ce point. N'hésitez pas à vous entraîner sur un échantillon avant de commencer le pull. Bon tricot!
28.01.2020 - 10:14