DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Super Sale

Spinning Ribbons

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í stroffprjóni og gatamynstri. Stærð XS - XXL.

DROPS 212-22
DROPS Design: Mynstur z-885
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S/M - L/XL - XXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-300 g litur 3112, daufbleikur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-100-100 g litur 03, ljós bleikur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

ÚTAUKNING-1 (á við um ermi):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Við fyrstu útaukningu, aukið út á eftir fyrstu brugðnu lykkjunni í hverri brugðinni einingu. Í annarri útaukningu, aukið út á undan síðustu brugðnu lykkjunni í hverri brugðinni einingu. Í þriðju útaukningu, aukið út á eftir fyrstu brugðnu lykkjunni í hverri brugðinni einingu o.s.frv.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út í hverri sléttri einingu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þær 4 lykkjur sem eftir eru slétt = 6 lykkjur.

ÚRTAKA:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri), prjónamerkið situr hér, prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hin prjónamerkin.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Síðan eru ermar settar á sama hringprjón og fram- og bakstykki áður en berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 132-154-176-198 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroffprjón (= 5 lykkjur brugðið, 6 lykkjur slétt) hringinn í umferð. Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið mynstur þannig: * 5 lykkjur brugðið, A.1 yfir næstu 6 lykkjur *, prjónið frá *-* hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram þar til stykkið mælist 27-29-28-31 cm – stillið af að endað sé eftir næst síðustu umferð í A.1. Næsta umferð (þ.e.a.s. síðasta umferð í A.1) er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur (= 5 lykkjur brugðið og 1 lykkja slétt), prjónið næstu 59-70-81-92 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 7 lykkjur (= 1 lykkja slétt, 5 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt), prjónið næstu 59-70-81-92 lykkjur (= bakstykki), fellið af síðustu lykkjuna (= 1 lykkja slétt). Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 45-45-54-54 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroffprjón (= 4 lykkjur brugðið, 5 lykkjur slétt) hringinn í 3 cm.
Prjónið nú A.2 yfir 5 sléttar lykkjur og haldið áfram með brugðið yfir brugðnar lykkjur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað og aukið út þannig:
Þegar stykkið mælist 6 cm, fækkið allar 4 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 fyrstu lykkjur í brugðnu einingunni brugðið saman = 40-40-48-48 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 12 cm, fækkið allar 3 lykkjur brugðið til 2 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 síðustu lykkjur í hverri brugðinni einingu brugðið saman = 35-35-42-42 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 18-18-17-16 cm, aukið allar 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 40-40-48-48 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 24-24-23-22 cm, aukið allar 3 lykkjur brugðið til 4 lykkjur brugðið = 45-45-54-54 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 29-29-28-27 cm – stillið af að það sé heil mynstureining A.2 sem hefur verið prjónuð til loka á hæðina, aukið út allar 5 lykkjur slétt til 6 lykkjur slétt – sjá ÚTAUKNING-2 = 50-50-60-60 lykkjur. Prjónið síðan A.1 yfir hverja einingu A.2.
Þegar stykkið mælist 35-35-33-33 cm, aukið út allar 4 lykkjur brugðið til 5 lykkjur brugðið = 55-55-66-66 lykkjur.
Haldið áfram hringinn með A.1 og 5 lykkjur brugðið í hverri brugðinni einingu þar til ermin mælist 39-41-38-38 cm – stillið af að endað sé eftir næst síðustu umferð í A.1. Næsta umferð (þ.e.a.s. síðasta umferð í A.1) er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur (= 5 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt), prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir, fellið síðan af síðustu lykkjuna (= 1 lykkja slétt) = 48-48-59-59 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg í hvorri hlið = 214-236-280-302 lykkjur. Í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma eru nú 10 lykkjur slétt. Byrjið umferð eftir 10 lykkjur slétt, þ.e.a.s. eftir 5 lykkjur slétt eftir skiptinguna á milli hægri ermi og bakstykkis.
Prjónið mynstur A.3 yfir A.1, A.4 yfir 5 lykkjur brugðið og A.5 yfir 10 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina (hafa verið prjónaðar 8 umferðir á berustykki) hefur fækkað um 4 lykkjur í hverri einingu A.5 (= 16 lykkjur færri) = 198-220-264-286 lykkjur.
Prjónið nú áfram mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð XS og S/M:
Haldið áfram með A.3 og A.4 eins og áður yfir 6 lykkjur í A.5 er prjónað A.3 (passið uppá að byrjað sé í sömu umferð í öllum mynstureiningum í umferð). Þegar mynstureining hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 72-80 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4. Haldið síðan áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 52-54 cm frá öxl og niður.

Stærð L/XL, XXL:
Endurtakið fyrstu 8 umferðir í A.3 og A.4 og yfir A.5 er prjónað A.3 (passið uppá að byrjað sé í sömu umferð í öllum mynstureiningum í umferð). Þegar 8 umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar alls 2-2 sinnum á hæðina (þ.e.a.s. prjónaðar hafa verið alls 16 umferðir í berustykki), prjónið þær umferðir sem eftir eru í mynsturteikningu. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, eru 96-104 lykkjur í umferð. Setjið nú eitt prjónamerki mitt á milli 2 lykkja slétt mitt ofan á öxl í hvorri hlið. Í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og hvoru megin við prjónamerki á hvorri öxl er fækkað um 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA = 88-96 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 57-60 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt - það eiga að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri)
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri)
symbols = 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Nanny wrote:

Dag, bij het telpatroon merkte ik een foutje: Leeg vierkantje = recht Vierkantje met - erin = recht Dit laatste moet averecht zijn. Prachtige trui.

27.10.2022 - 16:42

country flag Grillaert Jenny wrote:

Bij de naalden die nodig zijn voor dit model, staat rondbreinaald nr 4 voor de boordsteek, maar toch staat bij de uitleg voor het patroon : opzetten met rondbreinaald 5,5. Graag had ik geweten met welke naald nu echt moet opgezet worden. Met dank

02.04.2022 - 02:49

DROPS Design answered:

Dag Jenny,

De dunnere naald wordt alleen gebruikt bij de boordsteek langs de halslijn. Voor de boord aan het begin van de mouwen en het lijf wordt de dikkere naald gebruikt om te voorkomen dat de boordsteek samentrekt. Als je toch wilt dat de boord een beetje samentrekt, kun je natuurlijk ook daar een dunnere naald gebruiken.

04.04.2022 - 11:44

country flag Kirsi Hemanus wrote:

Please, the pattern (drawing) has disappeared, can you add it or send to me via email.

08.10.2021 - 15:37

DROPS Design answered:

Dear Kirsi, that was caused by a technical problem, that is solved since. You should see the diagrams now. Happy Stitching!

08.10.2021 - 17:39

country flag Joan Lægg Willumsen wrote:

Hej - jeg vil så gerne igang med denne bluse, men jeg kan ikke se diagrambeskrivelserne når jeg henter opskriften på nettet. vh Joan

05.10.2021 - 15:13

DROPS Design answered:

Hej Joan. Diagrammen/diagrambeskrivningar finns längst ner på opskriften. prova att uppdatera sidan (ev. testa en annan webläsare) om du inte kan se dem. Mvh DROPS Design

06.10.2021 - 09:29

country flag Rene Giuld wrote:

I can't use double pointed needles for this pattern is there another way to do sleeves for this pattern thank you

07.08.2021 - 23:50

DROPS Design answered:

Dear Renee, you can knit the sleeves with shorter circulars or a long one using the magic circle method. Happy Stitching.

08.08.2021 - 23:02

country flag Debora wrote:

Buongiorno, vorrei lavorare questo modello con un filato che richiede ferri 2,5 - 3,5 (anche 4). Mi basta seguire le istruzioni per la taglia più grande o potete aiutarmi diversamente? Per me ci vuole almeno una taglia M. Grazie. Debora

12.05.2021 - 07:09

DROPS Design answered:

Buongiorno Debora, deve lavorare con un ferro che le permette di ottenere il campione indicato. Buon lavoro!

14.05.2021 - 18:00

country flag Joelle wrote:

Bonjour Avez-vous des modèles de pulls simples réalisés avec un seul fil alpaca ?

22.01.2021 - 20:21

DROPS Design answered:

Bonjour Joelle, vous trouverez les modèles de pulls tricotés avec 1 fil Alpaca et 24 m pour 10 cm ici; et tous ceux du groupe A (même que Alpaca) - vous pouvez également faire une autre recherche avec un nombre de mailles différent. Bon tricot!

25.01.2021 - 08:21

country flag Florence wrote:

Bonjour en faisant ce modèle j'ai cru remarquer une erreur au niveau de l’empiècement "Commencer le tour après 10 mailles endroit, c'est-à-dire après 5 mailles endroit après la transition entre la manche droite et le dos ..." Il me semble que c'est après 5MAILLES envers. J'avoue que j'ai bloqué un petit moment sur ce passage.

22.10.2020 - 22:38

DROPS Design answered:

Bonjour Florence, c'est juste en fait, vous commencez par les 5 mailles envers, après les 5 m end du dos et les 5 m end de la manche, donc si vous avez commencez par les 5 m env, c'est tout à fait juste, si vous avez commencez après les 5 m env, ça tombait fort probablement juste aussi. Bonne continuation!

23.10.2020 - 09:23

country flag Jette Olsen wrote:

Kan jeg sortere opskrifter så der kun vises dem der strikkes nedefra og op? Jeg synes det er svært at strikke oppefra og ned.

16.10.2020 - 10:25

DROPS Design answered:

Hej Jette. Ja du kan sortera på detta. Under teknik/søgeord kan du välja "nedefra og op", då får du detta resultat. Sedan kan du sortera vidare på tex dam osv. Mvh DROPS Design

16.10.2020 - 10:38

country flag Claudia wrote:

Hallo, Bin gerade an der Passe in Größe L/XL . Nach den 16 Runden steht in der Anleitung, die restlichen Runden der Diagramme stricken. Beinhaltet das Diagramm nun die 16 Runden oder beginne ich an Anfang der Diagramme? Das komplette Diagram weißt 44 Runden auf. Muss nun die 16 Runden abziehen als noch 28 Runden stricken oder die kompletten 44 Runden in der Größe? Vielen Dank im Voraus für Ihre Hilfe.

01.10.2020 - 10:17

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, nachdem Sie die 8 Reihen von A.5 gestrickt haben, wiederholen Sie A.3 und A.4 über A.3 und A.4 von der 1. Reihe und gleichzeitig stricken Sie A3 über die restlichen Maschen von A.5 (die 8 ersten Reihen in A.3/A.4 werden 2 Mal in der Höhe über diese Maschen gestrickt und 1 Mal über A.5 gestrickt). Dann stricken Sie die Diagramme bis zur Ende. Viel Spaß beim stricken!

01.10.2020 - 10:35