DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3630.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 211-28
DROPS Design: Mynstur l-158
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Mál: Ummál: ca 81 cm. Lengd (án axlarólar): 39 cm.
Axlarólin mælist ca 45 cm.

EFNI:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250 g litur 05, brúnn
Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300 g litur 44, brúnn

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3630.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar 3 loftlykkjur koma ekki í stað 1. stuðul í umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í eina lykkju. Aukið út um 1 stuðul í lykkjuna á undan og á eftir prjónamerki í hvorri hlið (= 4 lykkjur fleiri í umferð).

ÚTAUKNING-2:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 130 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 9,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 9. hverja lykkju.

3 STUÐLAR VERÐA 1 STUÐULL:
Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul til viðbótar alveg eins í hvora af næstu 2 lykkjum, en dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp. Að lokum er botninn heklaður saman.

TASKA:
Heklið 114 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Bomull-Lin eða Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð í umferð – sjá LOFTLYKKJA.
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 114 fastalykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki eftir 57 fastalykkjur (= 57 fastalykkjur á milli prjónamerkja).
UMFERÐ 2-5: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, JAFNFRAMT í hverri umferð er aukið út um 1 stuðul hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-1 =130 stuðlar.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 9 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og aukið út um 14 stuðla jafnt yfir í umferð – sjá ÚTAUKNING-2 = 144 stuðlar.
Nú er mynstrið heklað þannig: Heklið A.1 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), A.2 alls 36 mynstureiningar í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið 2 síðustu umferðirnar þar til stykkið mælist ca 32 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð sem er eins og síðasta umferð í A.2. Klippið frá.
Heklið nú fram og til baka í hvorri hlið á tösku þannig:
Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í stuðuð á undan síðustu 4 loftlykkjubogum í umferð og heklið mynstur frá réttu þannig: A.3, A.4 yfir næstu 7 loftlykkjuboga, A.5 yfir næstu loftlykkjuboga + stuðul á eftir loftlykkjuboga.
Haldið áfram svona fram og til baka þar til A.3 og A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina. Klippið frá og festið enda.
Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í stuðul á eftir 10. loftlykkjuboga, takið frá eftir A.5 sem var heklað í þessari hlið á stykkinu. Heklið mynstur þannig: A.3, A.4 yfir næstu 7 loftlykkjuboga, A.5 yfir næstu loftlykkjuboga + stuðul á eftir loftlykkjuboga. Nú eiga að vera 10 loftlykkjubogar á milli A.5 og A.3 mitt á töskunni á milli hliða sem voru heklaðar. Haldið áfram svona fram og til baka þar til A.3 til A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina. Klippið frá og festið enda.

BOTN HEKLAÐUR SAMAN:
Snúið stykkinu þannig að réttan liggi að réttu og heklið botninn saman neðst niðri meðfram fyrstu loftlykkjuröð sem var hekluð. Heklið í gegnum bæði lögin með byrjun frá prjónamerki í byrjun á umferð og heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju. Klippið frá og festið enda.

AXLARÓL:
Snúið aftur stykkinu þannig að heklað sé frá réttu.
UMFERÐ 1: Festið þráðinn vel með 1 keðjulykkju í annarri hliðinni, í miðju stuðulinn (= 4 loftlykkjubogar í hvorri hlið). Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 4 stuðla um hvern af næstu 4 loftlykkjubogum, heklið 72 loftlykkjur (passið uppá að loftlykkjurnar séu ekki heklaðar of fast, loftlykkjuröðin á að mælast 45 cm), hoppið yfir 10 loftlykkjuboga mitt á töskunni á milli hliða, heklið 4 stuðla um hvern af 8 loftlykkjubogum meðfram annarri hliðinni, heklið 72 loftlykkjur (passið uppá að loftlykkjurnar séu ekki heklaðar of fast, loftlykkjuröðin á að mælast 45 cm), hoppið yfir 10 loftlykkjuboga mitt á töskunni á milli hliða, heklið 4 stuðla um hvern af síðustu 4 loftlykkjubogum í umferð. Nú eru 32 stuðlar í hvorri hlið og 72 loftlykkjur fyrir axlaról í hvorri hlið = 208 lykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið * 1 stuðul í hvern stuðul þar til 2 stuðlar eru eftir á undan fyrstu loftlykkju, heklið 3 STUÐLAR VERÐA 1 STUÐULL – sjá útskýringu að ofan, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 70 loftlykkjum (þ.e.a.s. það er eftir 1 loftlykkja á undan næsta stuðli), heklið til viðbótar 3 stuðlar verða 1 stuðull, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 14 stuðlum *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 200 stuðlar í umferð.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda.

Heklið nú innanverða axlarólina um loftlykkjuröðina, kantar og 10 loftlykkjuboga þannig:
Heklið í annarri hliðinni þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju á innanverðu af annarri axlarólinni, heklið 1 stuðul í hverja og eina af 72 loftlykkjum – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 3 stuðla um hverja af næstu 3 umferðum (= meðfram hlið á A.3/A.5), heklið 2 stuðla um næstu umferð, heklið 3 STUÐLAR VERÐA 1 STUÐULL alveg eins og áður, en nú er heklaður 1 stuðull í síðustu umferð og 2 stuðlar um fyrstu af 10 loftlykkjubogum. Haldið áfram með 2 stuðla til viðbótar um þennan loftlykkjuboga og heklið 4 stuðla um hvern af næstu 8 loftlykkjubogum, heklið 2 stuðla um 10. loftlykkjuboga, heklið 3 STUÐLAR VERÐA 1 STUÐULL alveg eins og áður, en það eru heklaðir 2 stuðlar um síðasta loftlykkjubogann og 1 stuðul um næstu umferð, heklið 2 stuðla til viðbótar um þessa umferð, heklið 3 stuðla um hverja af næstu 3 umferðum.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda.
Heklið á sama hátt í kringum hitt opið á axlarólinni.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 1 stuðull í lykkjuna
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = byrjið á þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Mayra Alvarez wrote:

Buenas tardes,de casualidad hay un tuturial dónde paso a paso indiquen como hacer el bolso, gracias soy principiante y no entiendo los diagramas

05.11.2023 - 22:49

DROPS Design answered:

Hola Mayra, puedes encontrar todos los videos que te pueden ayudar a realizar la labor después de las instrucciones escritas. Para poder comprender nuestros diagramas puedes leer la siguiente lección: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=69&cid=23.

12.11.2023 - 21:10

country flag Cintia wrote:

Buenas tardes, podría detallar me como se lee el patrón A3, serían 3 cadenas de inicio un punto alto cadena y punto alto sobre el primer arco. A4, 4 puntos cadena y punto alto sobre el arco 3 puntos altos sobre el arco siguiente y repito contando 7 arcos de la vuelta anterior. A5? Muchas gracias y saludos desde Córdoba, argentina.

05.09.2023 - 20:21

DROPS Design answered:

Hola Cintia, A.3-A.4-A.5 se trabaja como sigue: 3 cadenetas, *3 puntos altos en el arco de la fila anterior, 1 cadeneta,* repetir de * a * toda la fila hasta que quede 1 arco, 3 puntos altos en el arco, 1 punto alto en el punto alto de la fila anterior.

10.09.2023 - 20:06

country flag Emma wrote:

Bonjour! D’abord merci pour vos beaux modèles. J’ai un problème au moment de passer à A3: il faut joindre une bride avant les 4 derniers arceaux de quel tour? du nouveau tour ou du précédent? Ce n’est pas très clair… Merci!

22.08.2023 - 13:03

DROPS Design answered:

Bonjour Emma, le diagramme A.3 montre comment commencer les rangs: crochetez A.3 dans la bride avant les 4 derniers arceaux du tour précédent (de A.2), puis répétez A.4 et terminez par A.5 dans l'arceau suivant + dans la bride après cet arceau, et sur l'envers, commencez par A.5, répétez A.4 et terminez par A.3. Vous crochetez ainsi les côtés du sac, qui sont un peu surélevés par rapport au reste du sac que vous venez de faire = vous aurez 4 rangs en plus en hauteur de chaque côté. Bon crochet!

22.08.2023 - 14:17

country flag Chantal LONG wrote:

Merci beaucoup de votre réponse. J'avais fini par me débrouiller en comparant le diagramme A1 A2 et votre mannequin, et mon travail correspond à vos explications. Au moment d'aborder maintenant le haut du sac, je craignais d'avoir de nouvelles difficultés, mais je vois que vous avez donné les explications correspondantes à une autre crocheteuse. Cela devrait donc répondre à mes questions. Merci encore de votre aide.

31.07.2023 - 21:04

country flag Chantal LONG wrote:

Bonjour. Cela me rassure de constater que de nombreuses crocheteuses sont aussi perdues que moi. Pourriez-vous me donner en français les explications du diagramme A2, pour les 1er, 2e et 3e tours, en supposant que ces tours se répètent alternativement, jusqu'à la hauteur souhaitée ? Je pense avoir réalisé le 1er rang correctement, et suppose qu'il faut ensuite travailler le 2e rang en quinconce, mais le résultat n'est pas satisfaisant. Merci d'avance de m'aider.

23.07.2023 - 11:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Long, au 2ème tour de A.2, crochetez: *4 mailles en l'air, sautez 3 brides, 1 bride dans la bride suivante*, répétez de *-*. Au 3ème tour de A.2, crochetez *3 brides dans l'arceau de 4 mailles en l'air, 1 maille en l'air*, répétez de *-*. Répétez les tours 2 et 3. Bon crochet!

27.07.2023 - 12:00

country flag Katarina Tornborg wrote:

Hej och Tack för svar på min fråga- Men. Sista varvet på väskdelen är ju A2, dvs fyra lm och en stolpe som upprepas varvet ut och slutar med en smygmaska i föregående varvs tre lm. Så långt är allt väl. I A3 ska man börja med tre lm, i A4 fyra lm och 4 stolpar, en lm och A5, fyra lm tre stolpar plus en stolpe i maskan. Varf inns de sju luftmaskorna annat än i början på varvet? Hur många gånger upprepas A3-A5 innan man virkar tillbaka? Vänligen Katarina

01.02.2023 - 11:27

DROPS Design answered:

Hej Katarina, jo det er bare i början på varvet du får 7 lm :)

03.02.2023 - 11:27

country flag Katarina Tornborg wrote:

Hej!\r\nNågra frågor gällande utförandet av diagrammet A3–A5. Vad betyder det att virka A3-A4 över de sju luftmaskbågarna som finns var? Hur många ggr ska A4 och A5 upprepas på varvet – dvs sidan för att det sedan ska finnas 10 luftmaskbågar i mitten? Och var kom de ifrån?\r\n Det hade varit bra med bilder på på arbetet i olika stadier – det är ju en fin modell!\r\nvänligen Katarina

30.01.2023 - 22:50

DROPS Design answered:

Hej Katarina, A.3 over første lm-bue, så A.4 i de næste 7 lm-buer og sidst A.5 i næste lm-bue :)

31.01.2023 - 12:04

country flag Paola wrote:

Mi sbaglio o la spiegazione dell’interno dei manici al 1° giro appare non simmetrica? Inoltre perché invece di scrivere “ lavorare 4 maglie alte intorno al primo dei 10 archi” , scrivete “ lavorare 2 maglie alte intorno al primo dei 10 archi di catenelle, lavorare altre 2 maglie alte intorno allo stesso arco”?!? È molto. CONFUSING! Grazie Paola

04.12.2022 - 22:40

DROPS Design answered:

Buonasera Paola, al momento non sono riportate correzioni per questo modello. Buon lavoro!

28.12.2022 - 19:36

country flag Marcelle Marie-Claude wrote:

Je suis bloquée, pour la suite du dernier tour A2. Après avoir couper le fil. Je ne comprend pas. Je dois travailler que sur 7 arceaux A3, A4..... Je fais A3, puis A4, puis A5 en aller retour sur 7 arceaux ???

06.04.2022 - 19:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marcelle, vous crochetez d'abord A.3 (début du rang sur l'endroit) dans la bride avant les 4 derniers arceaux du tour, puis vous répétez 7 fois A.4 (= au-dessus des 7 arceaux suivants), puis A.5 dans l'arceau + la bride suivante (fin de rang sur l'endroit), tournez, et crochetez: A.5 (début de rang sur l'envers), répétez 7 fois A.4 et terminez par A.3. Coupez le fil après ces 4 rangs A.3-A.5. Répétez de l'autre côté du sac. Bon crochet!

07.04.2022 - 09:37

country flag Susanne wrote:

Hallo Drops Team! Komme leider auch nicht ganz klar mit der Anleitung.. Es widerspricht sich die Häkelinformation mit dem Video.Im Video wird beschrieben das die 3 Luftmaschen am Reihenanfang als erstes Stäbchen zählt, in der Häkelinformation steht sie ersetzt nicht das 1.Stäbchen in der Runde. Verstehe ich leider nicht ganz.\r\nVielen Dank und viele Grüße aus Dresden

07.03.2022 - 13:38

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, hier sind ja 2 unterschiedliche Techniken benutzt, im Video werden die 3 Lm das 1. Stäbchen ersetzen, hier werden die 3 Lm extra gehäkelt. Viel Spaß beim häkeln!

08.03.2022 - 11:28