Sienna Wrap |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónað sjal með gatamynstri og klukkuprjóni úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður.
DROPS 214-3 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 57 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 4 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 1,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 1. og 2. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI: UMFERÐ 1 (= rétta): 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki á prjóninn hér * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, setjið 1 prjónamerki hér, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr hér), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið (prjónamerki situr hér), prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= rétta): 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr hér), * prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman (prjónamerki situr hér), prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr hér), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið (prjónamerkið situr hér), prjónið 4 lykkjur slétt. Eftir umferð 1-4 hefur verið aukið út um 4 lykkjur alls (2 lykkjur í hvorri hlið). Nú er hægt að prjóna þessar 2 lykkjur inn í klukkuprjónsmynstrið. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Nú eru 2 lykkjur fram þar sem prjónamerkið situr, færið prjónamerkið hingað og prjónið inn 2 lykkjur í klukkuprjónsmynstri þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Nú eru 2 útauku lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjónsmynstrið. Prjónið yfir næstu lykkjur þannig: * Prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir (prjónað er fram að prjónamerki). Takið frá prjónamerkið og prjónið inn fyrstu 2 lykkjur í klukkuprjónsmynstri þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt. Nú eru 2 útauknu lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjónsmynstrið. Setjið prjónamerkið á prjóninn hér. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið síðan umferð 2-5 (= 4 lykkjur fleiri í hverri endurtekningu). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. SJAL: Fitjið upp 13 lykkjur á hringprjón 3,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. FYRSTA EINING: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, passið uppá að ysti uppslátturinn sé alltaf laus, svo hann herði ekki á kantinum á sjalinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið eins og umferð 1-2 þar til prjónaðar hafa verið 22 umferðir garðaprjón (stykkið mælist ca 5 cm fyrir miðju), nú eru 57 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 2 lykkjur eins og áður, en aukið út til viðbótar 30 lykkjur jafnt yfir í umferð með því að slá 1 sinni uppá prjóninn – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Nú eru 89 lykkjur í umferð. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 2 lykkjur eins og áður. Nú eru 91 lykkja í umferð. Prjónið áfram í garðaprjóni og aukið út eins og áður í umferð 1-2, þar til prjónaðar hafa verið að auki 22 umferðir garðaprjón. Nú eru 135 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 10-11 cm fyrir miðju. Næsta umferð er prjónuð frá réttu. ÖNNUR EINING: Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út 2 lykkjur í hverri umferð eins og áður, uppslátturinn innan við kantlykkju er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu – það eiga að myndast göt. Nú eru 143 lykkjur í umverð. Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni – aukið út í hlið eins og áður, en aukið út til viðbótar 32 lykkjur jafnt yfir = 177 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út í hlið eins og áður – MUNIÐ EFTIR að uppslátturinn sem er gerður þegar aukið er út jafnt yfir á að prjónast snúinn. Nú eru 179 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-13 cm fyrir miðju. Nú á að prjóna KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 16 umferðir klukkuprjón (þ.e.a.s. það eru 8 lykkjur slétt sýnilegar frá réttu): Klukkuprjón mælist ca 4 cm, og stykkið mælist ca 16 cm fyrir miðju. Nú hafa verið auknar út 16 lykkjur = 195 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu. ÞRIÐJA EINING: Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður frá klukkuprjónsmynstri slétt saman með lykkju sem tilheyrir henni) og aukið út 2 lykkjur í hverri umferð eins og áður, uppslátturinn innan við kantlykkju er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu – það eiga að myndast göt. Nú eru 203 lykkjur í umverð. Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni – aukið út í hlið eins og áður, en aukið út til viðbótar 32 lykkjur jafnt yfir = 177 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út í hlið eins og áður . Nú eru 237 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18 cm fyrir miðju. Nú er prjónað gatamynstur eftir mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynsturteikningu A.1 yfir 2 lykkjur, prjónið mynsturteikningu A.2 yfir næstu 224 lykkjurnar (28 sinnum á breiddina), prjónið A.3 yfir 9 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina hafa verið auknar út 32 lykkjur. Nú eru 269 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23 cm fyrir miðju. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: FJÓRÐA EINING: ATH! Nú breytist útaukning í hlið. Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á hverri umferð (= 1 lykkja fleiri í hverri umferð), uppslátturinn er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu, það eiga að myndast göt. Nú eru 273 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út 1 lykkju innan við 1 kantlykkju, en aukið út til viðbótar 32 lykkjur jafnt yfir = 306 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju. Nú eru 307 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 25 cm frá miðju. Nú á að prjóna KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI. Prjónið 16 umferðir klukkuprjón (þ.e.a.s. það eru 8 lykkjur slétt sýnilegar frá réttu). Klukkuprjónsmynstrið mælist ca 4 cm. Nú hafa verið auknar út 16 lykkjur = 323 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 29 cm fyrir miðju. Næsta umferð er frá réttu. FIMMTA EINING: Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (í fyrstu um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á hverri umferð (= 1 lykkja fleiri í hverri umferð), uppslátturinn er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu, það eiga að myndast göt. Nú eru 327 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju, en aukið út til viðbótar 36 lykkjur jafnt yfir = 364 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju innan við 1 kantlykkju. Nú eru 365 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 31 cm fyrir miðju. Prjóni nú gatamynstur eftir mynsturteikningu A.4, A.5 og A.6, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynsturteikningu A.4 yfir 2 lykkjur, prjónið mynstureiningu A.5 yfir næstu 352 lykkjurnar (= 44 sinnum á breiddina), prjónið A.6 yfir 9 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, hafa verið auknar út 16 lykkjur. Nú eru 381 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 36 fyrir miðju. Næsta umferð er prjónuð frá réttu. SJÖTTA EINING: Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á hverri umferð (= 1 lykkja fleiri í hverri umferð), uppslátturinn er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu, það eiga að myndast göt. Nú eru 385 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju, en aukið út til viðbótar 32 lykkjur jafnt yfir = 418 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju innan við 1 kantlykkju. Nú eru 419 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 38 cm fyrir miðju. Nú á að prjóna KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI. Prjónið 16 umferðir klukkuprjón (þ.e.a.s. það eru 8 lykkjur sýnilegar frá réttu). Klukkuprjóns einingin mælist ca 4 cm. Nú hafa verið auknar út 16 lykkjur = 435 lykkjur í hverri umferð og stykkið mælist ca 42 cm fyrir miðju. Næsta umferð er frá réttu. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur, fellið af á meðan prjónað er slétt þannig: Fellið af hverja lykkju og hvern uppslátt fyrir sig. Ef kanturinn er enn of stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (49)
Marit wrote:
Jeg blir forvirret av økningene og kantmaskene. Kan dere skrive her nøyaktig hvordan de to første pinnene av 2. rapport skal strikkes, maske for maske?
07.05.2024 - 20:44Zaza wrote:
Bo jour j ai commencé les côtes anglaises j ai fait les rangs 1 et 2, quand je suis arrivée à la fin du rang 3 (avant le marqueur) c est dit jusqu a ce qu il reste 4 m, et je me trouve avec 3 mailles après le marqueur. Est ce que je me suis trompée quelque part, pourtant j ai vérifié le début et la fin des rangs 1 et 2. Quelle est mon erreur. Cordialement zaza
07.05.2024 - 14:05DROPS Design answered:
Bonjour Zaza, répétez de *à* au rang 3 jusqu'à ce qu'il reste 4 mailles (soit 1 maille + son jeté, le marqueur et les 3 dernières mailles); tricotez ensemble à l'endroit la maille et son marqueur, glissez le marqueur, et tricotez 2 m end, 1 jeté, 1 m end. Au début du rang 4, vous avez 4 mailles avant le marqueur. Bon tricot!
07.05.2024 - 15:50Zaza wrote:
Bonsoir j ai les 179m de la 2ème partie. Dans quel ordre dois je tricoter les 16 rangs de cotes anglaises.cordialement zaza
07.05.2024 - 01:43DROPS Design answered:
Bonjour Zaza, vous tricotez d'abord les rangs 1 à 5 puis vous répétez les rangs 2 à 5 jusqu'à ce que vous ayez tricoté 16 rangs en côtes anglaises au total. Bon tricot!
07.05.2024 - 07:59Zaza wrote:
Rebonsoir, je suis desolée, mais j'ai mal compté les mailles, et pour les 4 rangs jersey tout est ok pour moi. Cordialement zaza
06.05.2024 - 19:32Zaza wrote:
Bonsoir je suis arrivée aux 4 rangs Jersey. Je dois faire 1 m endroit (maille lisière) 1 jeté, 1 m endroit, 1 jeté, le reste des mailles à l endroit pour le 1er rang, mais si l on compte la maille lisière on a 1 maille en trop. Ou bien on ne compte pas la maille lisière. Merci de me dire si mes explications sont bonnes. Cordialement zaza
06.05.2024 - 18:27DROPS Design answered:
Bonjour Zaza, vous aviez 135 mailles et vous augmentez maintenant 2 mailles à chacun des 4 rangs suivants, soit 8 mailles au total, vous avez ainsi 135+8=143. Vous augmentez comme avant: 1 maille au début du rang (future maille lisière), vous tricotez ensuite 1 maille lisière et vous augmentez encore 1 maille = à tricoter en jersey. Bon tricot!
07.05.2024 - 07:45Zaza wrote:
Bonsoir je suis au tout début et je suis arrivée aux 57 mailles le rang 3 j avoue ne pas comprendre on doit arriver à 89 m en insérant 30 augmentations (des jetés) + les 2jetes du début du rang. Pourriez vous m éclairer sur ce rang merci d avance cordialement zaza
04.05.2024 - 22:37DROPS Design answered:
Bonjour Zaza, vous augmentez 2 mailles au début du rang (comme au début du rang 2) et vous augmentez en même temps 30 m à intervalles réguliers (cf cette leçon), vous avez 57 mailles + 2 mailles augmentées au début du rang + 30 = 89 mailles. Bon tricot!
06.05.2024 - 08:14Dea wrote:
Buonasera, manca un pezzo dove parla della 4° sezione. Nell\'ultima frase dove dice < sono state aumentate 16 maglie ..> manca il totale ...323 maglie.
03.01.2024 - 21:59DROPS Design answered:
Buonasera Dea, grazie per la sua segnalazione: l'abbiamo inoltrata al settore design e aggiunto il numero di maglie alla traduzione italiana. Buon lavoro!
17.03.2024 - 17:38Dea wrote:
Buonasera, ho notato una mancanza. Nelle sezioni dalla seconda in poi, in tutte le frasi dove dice di aumentare " anche 32 in modo uniforme" (2 sezione) , anche 30 in modo uniforme (3 sezione) ,anche 32 in modo uniforme (4 sezione) , anche 36 in modo uniforme (5 sezione) e anche 32 in modo uniforme (6 sezione), in tutte manca la parola "maglie" dopo il numero. Ho verificato che sia in norvegese che in lingua inglese esiste.
19.10.2023 - 21:11DROPS Design answered:
Buonasera Dea, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
19.10.2023 - 23:28Dea wrote:
Buonasera, ho bisogno un chiarimento. Mi trovo alla 2° sezione e devo fare i 4 ferri a m rasata. Mi dice di fare una m di vivagno ad ogni lato, come devo comportarmi visto che devo fare anche i due aumenti ad ogni ferro? Dove rimane il vivagno? E' la maglia dopo il primo gettato e dall'altro lato? Grazie
18.10.2023 - 18:29DROPS Design answered:
Buonasera Dea, le maglie di vivagno rimangono esterne ai lati, gli aumenti sono all'interno delle maglie di vivagno. Buon lavoro!
29.10.2023 - 23:16Dea wrote:
Ciao , ne ho trovato un'altro. C'è scritto "4° FERRO (= rovescio del lavoro): lavorare 1 ferro diritto e aumentare 2 maglie come Ci sono 91 maglie sul ferro." ...tra le parole "come" e Ci" manca qualcosa....
26.09.2023 - 20:46DROPS Design answered:
Buonasera Dea, abbiamo corretto il testo: grazie per la segnalazione. Buon lavoro!
26.09.2023 - 23:24