DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 724.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5032.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Unexpected

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni og garðarpjóni. Stærð S – XXXL.

DROPS 218-21
DROPS Design: Mynstur ab-108
Garnflokkur C + A eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL – XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-200-200-200-250-250 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-75-75-75-75 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 724.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5032.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MÁL:
Öll mál á breidd eru gerð þegar stykkið liggur flatt án þess að strekkja það.
Öll mál á lengd eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur peysan til með að verða of síð þegar hún er mátuð.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 79 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 6 lykkjur) og deilið þeim 73 lykkjum sem eftir með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 4,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjum).

ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál aftan í hnakka og v-hálsmál að framan):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 5 KANTLYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI VIÐ HÁLSMÁL ÞANNIG:
Byrjið 2 lykkjur á undan 5 kantlykkjum og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 5 KANTLYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI VIÐ HÁLSMÁL ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Allt stykkið er prjónað með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, neðan frá og upp.
Bakstykkið er 10 cm lengra en framstykkið. Framstykkið og bakstykkið er saumað saman á öxlum. Að auki þá er saumað 1 spor í hvora hlið sem afmarkar handveg.

BAKSTYKKI:
Fitjið laust upp 79-83-91-99-109-119 lykkjur á hringprjóna 7 með 2 þráðum Kid-Silk og 1 þræði Alpaca Bouclé (= 3 þræðir).
Takið frá annan þráðinn með Kid-Silk (afgangur af bakstykki er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund, en fitjað er upp með 1 auka þræði til að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði stífur).
Skiptið yfir á hringprjóna 6 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 12 cm.
Skiptið til baka yfir á hringprjón 7 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1= 63-67-73-79-87-95 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón (slétt frá réttu, brugðið frá röngu) með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – sjá MÁL, á að prjóna garðaprjón yfir miðju lykkjurnar á bakstykki áður en lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli – JAFNFRAMT eru lykkjur settar á þráð fyrir öxl og fellið af fyrir hálsmáli. Þetta er gert eins og útskýrt er að neðan.

HÁLSMÁL:
Byrjið með að prjóna garðaprjón yfir miðju 21-21-21-23-23-23 lykkjurnar mitt að aftan (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður). Þetta er gert til að bakstykkið endi fallega í kringum hálsmál.
Þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir garðaprjón yfir miðju 21-21-21-23-23-23 lykkja, fellið af miðju 11-11-11-13-13-13 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Stykkið mælist nú ca 55-57-59-61-63-65 cm.
Fækkið nú 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-2.

ÖXL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – munið eftir MÁL, setjið lykkjur á 1 þráð í hvorri hlið fyrir öxl – ATH: Til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, verður að prjóna lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn.
Byrjið frá réttu, setjið 8-9-10-10-12-13 lykkjur á þráð í byrjun á hverri umferð alls 2 sinnum í hvorri hlið, síðan eru þær 9-9-10-12-12-14 lykkjur sem eftir eru settar á þráð í hvorri hlið.
Þegar allar lykkjurnar hafa verið settar á þráð fyrir öxl og fellt hefur verið af fyrir hálsmáli, mælist stykkið ca 58-60-62-64-66-68 cm frá hæsta punkti á öxl og niður.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið laust upp 79-83-91-99-109-119 lykkjur á hringprjóna 7 með 2 þráðum Kid-Silk og 1 þræði Alpaca Bouclé (= 3 þræðir).
Takið frá annan þráðinn með Kid-Silk (afgangur af bakstykki er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund).
Skiptið yfir á hringprjóna 6 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 12 cm.
Skiptið til baka yfir á hringprjón 7 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1= 63-67-73-79-87-95 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón (slétt frá réttu, brugðið frá röngu) með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 5 lykkjurnar í umferð (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður).
Eftir 4 umferðir garðaprjón, á að skipta framstykkinu fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 34-36-39-42-46-50 lykkjurnar og setjið þær 29-31-34-37-41-45 lykkjur sem eftir eru á 1 þráð eða hjálparprjón. Hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað):
Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón eins og áður með 5 kantlykkjum í garðaprjóni við háls við miðju að framan og 3 kantlykkjum í garðaprjóni að hlið.
Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-4-4-4-4 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 5-5-5-6-6-6 sinnum = 25-27-30-32-36-40 lykkjur eftir.
Prjónið síðan með 3 kantlykkjum í garðaprjóni að hlið og 5 kantlykkjum í garðaprjóni við háls.
Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm – munið eftir MÁL, setjið lykkjur á 1 þráð fyrir öxl alveg eins og á bakstykki. Þ.e.a.s. byrjið frá réttu, setjið 8-9-10-10-12-13 lykkjur á þráð í byrjun á hverri umferð alls 2 sinnum og setjið síðan þær 9-9-10-12-12-14 lykkjur sem eftir eru á þráðinn.
Eftir allar úrtöku fyrir v-hálsmáli og öxl mælist framstykkið ca 48-50-52-54-56-58 cm frá hæsta punkti á öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað):
Byrjið frá réttu á hringprjón 7 með 1 þræði af hvorri tegund og prjónið upp 1 lykkju á bakhlið í hverri og einni af 5 lykkjum garðaprjón neðst í v-hálsmáli, prjónið síðan eins og áður yfir 29-31-34-37-41-45 lykkjur frá þræði/hjálparprjóni = 34-36-39-42-46-50 lykkjur í umferð.
Prjóni sléttprjón fram og til baka með 3 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið og 5 kantlykkjum í garðaprjóni við hálsmál.
Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-4-4-4-4 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 5-5-5-6-6-6 sinnum = 25-27-30-32-36-40 lykkjur eftir.
Prjónið síðan með 5 kantlykkjum í garðaprjóni við hálsmál mitt að framan og 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hlið.
Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, setjið lykkjur á 1 þráð fyrir öxl á sama hátt og á vinstra framstykki. Þ.e.a.s. byrjið frá röngu, setjið 8-9-10-10-12-13 lykkjur á þráð í byrjun á hverri umferð alls 2 sinnum og setjið síðan þær 9-9-10-12-12-14 lykkjur sem eftir eru á þráðinn.
Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og öxl mælist framstykkið ca 48-50-52-54-56-58 cm frá hæsta punkti á öxl og niður.

FRÁGANGUR Á ÖXL:
Setjið 25-27-30-32-36-40 lykkjur af öðrum þræðinum með axlalykkjum á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu með 1 þræði í hvorri tegund, til að koma í veg fyrir göt í skiptingum þar sem lykkjur voru settar á þrá, takið upp þráðinn á undan næstu lykkju og prjónið snúið slétt saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Endurtakið meðfram hinum þremur axlastykkjunum.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana saman innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.
Saumið vestið saman í hvorri hlið með nokkrum sporum ca 17-18-19-20-21-22 cm frá lægsta punkti á öxl og niður (mátið e.t.v. vestið til aðlaga að eigin ósk).

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Inger Englund wrote:

Hej ! Jag är lite osäker på detta att välja garner kan jag använda Drops Brushed Silk i stället för det som står med i mönstret. MVH/ Inger Englund

30.08.2022 - 14:11

DROPS Design answered:

Hej Inger, ja du kan bytte ud DROPS Alpaca Boucle med DROPS Brushed Alpaca Silk og strikke den sammen med Kid-Silk for at få strikkefastheden på 13 masker på 10 cm :)

31.08.2022 - 08:03

country flag Inger wrote:

Finns det andra garner som jag kan använda till detta mönster. MVH/ Inger Englund

26.08.2022 - 08:47

DROPS Design answered:

Hei Inger. Ja, det er det. DROPS Alpaca Boucle kan byttes med andre garnkvaliteter i garngruppe C og DROPS Kid-Silk kan byttes med garnkvaliteter i garngruppe A. Klikk på de forskjellige linkene til høyre /eller under bildet for mer informasjon om garnbytte. Bare husk å overholde den oppgitte strikkefastheten og vær oppmerksom på ved garnbytte kan uttrykket du ser på bildet bli annerledes. mvh DROPS Design

29.08.2022 - 10:39

country flag Inger Englund wrote:

Hej! Jag har stickat denna väst undrar om ni har ett likvärdigt garn som man kan använda till detta mönster. MVH/ Inger

25.08.2022 - 13:50

country flag Anja M wrote:

Was sind das denn für Lappen?

06.07.2020 - 11:19