DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 924.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Warm Smiles

Prjónuð balaclava / lambhúshetta / húfa fyrir börn með gatamynstri úr DROPS Baby Merino. Stærð fyrirburar – 2 ára.

DROPS Baby 33-10
DROPS Design: Mynstur bm-092-by
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2) ára
Höfuðmál: 34/38 - 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50) cm

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-100-100 (100) g litur 43, ljós sægrænn

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir sléttprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 924.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Í fyrsta skipti sem aukið er út, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan brugðnum lykkjum. Í næsta skipti sem aukið er út, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir brugðnum lykkjum. Haldið svona áfram með því að auka út til skiptist í byrjun og á eftir brugðnum umferðum.

----------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

LAMBHÚSHETTA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju á höfði og niður að hálsi, síðan er prjónað í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

LAMBHÚSHETTA:
Fitjið upp 29-29-34-34 (39) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með Baby Merino. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (= 5-5-6-6-7 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið A.1B (= 2 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 9-10-11-12 (13) cm og fellið af 1 lykkju í byrjun og í lokin á þessari umferð, en passið uppá að endað sé eftir 2. umferð í A.1, þannig að síðasta umferðin sé frá röngu = 33-33-39-39-45 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í stykkið til að mæla frá. Miðju einingin á húfunni hefur nú verið prjónuð til loka. Klippið frá og setjið lykkjur á hjálparprjón.

Byrjið frá réttu og prjónið upp 26-31-31-36-41 lykkjur meðfram hægri kanti á miðju einingunni (séð frá réttu), passið uppá að prjónað sé upp innanvið kantlykkju í garðaprjóni, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir lykkjur af hjálparprjóni og prjónið upp 26-31-31-36-41 lykkjur meðfram vinstri hlið á miðju einingu (séð frá réttu) = 79-89-94-104-119 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1B (= lykkjur – byrjið á 4. umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið passið áfram yfir miðju einingu), prjónið A.1A yfir næstu 75-85-90-100-115 lykkjurnar (= 15-17-18-20-23 mynstureiningar með 5 lykkjum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist ca 10-11-12-13 (14) cm frá prjónamerki, þ.e.a.s. endið eftir 2. umferð í A.1. Haldið áfram með mynstur í næstu umferð, en í lok þessarar umferðar eru fitjaðar upp 6 nýjar lykkjur (mitt framan undir höku) = 85-95-100-110 (125) lykkjur í umferð. Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú hringinn á sokkaprjóna, en skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur. Haldið áfram með mynstur hringinn yfir allar lykkjur.

Þegar stykkið mælist 2½-2½-2½ (3) cm frá nýjum lykkjum, aukið út allar 3 lykkjur brugðið til 4 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING = ca 102-114-120-132 (150) lykkjur (ef það er umferð með uppslætti í A.1, þá kemur uppslátturinn sem viðbót við uppgefinn lykkjufjölda).
Aukið svona út með 2 cm millibili alls 3 sinnum (= 6 lykkjur brugðið í hverri einingu með brugðnum lykkjum) = ca 136-152-160-176 (200) lykkjur. Þegar stykkið mælist 9-10-11-12 (13) cm frá nýja prjónamerkinu (eða e.t.v. að óskuðu máli), prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – hringinn yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með picot eins og útskýrt er að neðan.

AFFELLING MEÐ PICOT:
Fellið af frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, (* stingið inn hægri prjóni á milli 2 fyrstu lykkja á vinstra prjóni, þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, þannig að það verði 3 nýjar lykkjur á vinstra prjóni. ** Prjónið fyrstu lykkjuna á vinstra prjóni slétt, lyftið fyrstu lykkjunni á hægri prjón yfir síðustu lykkjuna sem var prjónuð **), prjónið frá **-** alls 5 sinnum og endurtakið frá (-) meðfram öllum kantinum þar til 1 lykkja er eftir á vinstra prjóni. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna.

KANTUR Í KRINGUM OP AÐ FRAMAN:
Prjónið upp ca 80 til 90 lykkjur í kringum opið framan á húfu, þ.e.a.s. í kringum andlitið (notið e.t.v. heklunál þegar lykkjur eru prjónaður upp, þannig að kanturinn verði fallegur). Skiptið lykkjunum niður á sokkaprjóna. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 90-110 lykkjur. Prjónið stroff hringinn = 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.10.2020
Nýtt efnismagn í stærð 6/9 - 12/18 mánaða (2) ára. DROPS BABY MERINO frá Garnstudio 50-50-100-100 (100) g litur 43, ljós sægrænn

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar, þannig að lyfta lykkjan liggi utan um hinar tvær lykkjurnar
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu og prjónið næstu rúðu eins og útskýrt er að ofan
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Kaija wrote:

I used 75g for size 1/3 - 50g was most definitely not enough for that size either!

03.12.2023 - 22:00

country flag Ulrika wrote:

Hej! Jag förstår inte instruktionen kring den svarta rutan i mönstret. Det står " ingen maska" men hur gör jag då?

18.09.2023 - 14:49

DROPS Design answered:

Hej Ulrika. Du går bara direkt till nästa ruta i diagrammet och stickar kommande maska enligt den rutan istället. Mvh DROPS Design

19.09.2023 - 12:22

country flag Gabriele wrote:

Inzwischen habe ich es verstanden. :-)

09.09.2023 - 21:32

country flag Gabriele wrote:

Guten Tag, ich stricke gerade das Mittelstück und habe dafür 34 Maschen angeschlagen. Ich verstehe nicht, warum es nach 11cm Länge nun plötzlich 39 Maschen sein sollen - es werden ja in der Anleitung keinerlei Zunahmen erwähnt? Danke im voraus und beste Grüße

09.09.2023 - 18:10

DROPS Design answered:

Liebe Gabriele, über 34 Maschen haben Sie die kleine Zöpfe insgesamt 7 Mal gestrickt, es wird 1 Masche beidseitig abgekettet und bei der 1. Reihe A.1 je 1 Umschlag gemacht, so haben Sie nach der 2. Reihe A.1 = 34-2+7=39 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

11.09.2023 - 09:13

country flag Maja wrote:

Hej med jer. Jeg skal til at strikke udtagning omkring hullet til hovedet i det sidste trin. Jeg skal lave udtagninger efter at jeg har samlet masker op. Hvordan skal jeg lave dem, når jeg ikke har nogen lænker at lave udtagninger i? Mvh. Maja

30.08.2023 - 20:10

DROPS Design answered:

Hei Maja. Ta en titt på denne videoen: Slå nye masker op i kanten af arbejdet mvh DROPS Design

11.09.2023 - 13:08

country flag Berbett wrote:

Bonjour, Merci pour votre dernière réponse. Je bloque au niveau des augmentations : s'agit-il d'augmenter avant puis après les mailles envers sur le même tour, ou faire toutes les augmentations avant les mailles envers sur un tour puis 2 cm plus haut faire les augmentations après. Merci beaucoup.

17.01.2022 - 20:59

DROPS Design answered:

Bonjour Berbett, vous augmentez d'abord en faisant 1 jeté au début de chaque section en mailles envers (= avant ces mailles) = soit 4 mailles envers partout, puis 2 cm plus loin, vous allez augmenter en faisant 1 jeté après chaque section en mailles envers (= à la fin de chacune de ces sections) = 5 mailles envers dans chaque section; et enfin encore 1 fois au début de chaque section = 6 mailles envers dans chaque section en mailles envers. Bon tricot!

18.01.2022 - 09:00

country flag Berbett wrote:

Bonjour, Sur le diagramme : après la ligne avec le jeté faut-il tricoter le jeté pour former un trou ou le tricoter à l'envers pour qu'il n'y ait pas de trou ? En montant 29 m et en suivant le diagramme comment arrivé aux 33 m alors qu'il n'y a pas d'augmentations ? Rabattre 1 m au début de et à la fin de ce rang signifie bien : que sur le dernier rang ? Merci d'avance pour votre aide. Pia.

13.01.2022 - 00:15

DROPS Design answered:

Bonjour Berbett, ce jeté doit former un trou, cette vidéo montre comment réaliser ce type de torsades. On monte 29 mailles mais on fait des jetés dans le point fantaisie, donc le nombre de mailles va augmenter à chaque fois que l'on tricote les rangs 1 et 2, puis aux rangs 3 et 4, le nombre de mailles sera de nouveau comme avant. Et tout à fait, au dernier rang, rabattez la 1ère maille, tricotez jusqu'à la fin du rang, rabattez la dernière maille, coupez le fil. Bon tricot!

13.01.2022 - 08:45

country flag Gitte Brusgaard wrote:

Jeg kan simpelthen ikke finde ud af de picoter som huen skal afsluttes med. Er der en video som viser det? På forhånd tak

26.10.2021 - 11:21

DROPS Design answered:

Hej Gitte. I denna video kan du ser hur man ska göra. Mvh DROPS Design

26.10.2021 - 11:35

country flag Maikki wrote:

Huomasin, että heitto silmukkamäärissä johtuu siitä, että mallineuleen toisella kerroksella on jokaisessa oikein neulotussa raidassa yksi silmukka vähemmän.

18.09.2021 - 15:18

country flag Margaret Tigchelaar wrote:

Thank you so much! It was the first time I was ever instructed to change from back and forth to round, and I understand now what to do. Thank you also for answering so quickly! I will continue to use and cherish yourdesigns. Enjoy your day! Margaret Tigchelaar

09.09.2021 - 14:46