DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Love Links Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð XS - XXL.

DROPS 217-18
DROPS Design: Mynstur me-205
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-450-500-550-600 g litur 42, ceder
250-250-300-300-350-350 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA, Eik NR 503: 8-8-8-9-9-9 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, þá kemur flíkin til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum.
Ef prjónað er of laust, þá verður flíkin of löng og handvegur of stór, þá er hægt að prjóna færri umferðir með jöfnu millibili í einlitu einingunum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 102 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 27) = 3,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2, A.3 og A.4). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu í hægri kanti að framan. Neðsta hnappagatið á að staðsetja ca 2 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að staðsetja í skiptingunni á milli kants í hálsi og berustykki. Stillið staðsetninguna af þannig að fellt er af í brugðnu einingunum (séð frá réttu).
1 HNAPPAGAT = prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka, fellið af kantlykkjur að framan og prjónið síðan með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Kantar að framan eru prjónaðar í lokin.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 116-120-124-132-136-144 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 3 með litnum ceder. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 9 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Fellið af fyrstu 6 lykkjur (= kantur að framan), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 104-108-112-120-124-132 lykkjur og aukið jafnframt út 27-31-35-35-39-47 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING, prjónið síðan stroff eins og áður yfir þær 6 lykkjur sem eftir eru. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 6 lykkjur (= kantur að framan) og prjónið brugðið út umferðina (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið) = 131-139-147-155-163-179 lykkjur í umferð meðtalin 1 kantlykkja í hvorir hlið.
Setjið 1 prjónamerki innan við kantlykkju mitt að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Lesið allt berustykki áður en prjónað er og lesið LEIÐBEININGAR! Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 32-34-36-38-40-44 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi eins í hvorri hlið við miðju að framan og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan (kantlykkjur eru prjónaðar með litnum ceder).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 alveg eins. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 og A.2, eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING:
Ör-1: Aukið út 32-32-32-32-40-40 lykkjur jafnt yfir = 163-171-179-187-203-219 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-21-22-23-25-27 mynstureiningar með A.1 með 8 lykkjum).
Ör-2: Aukið út 32-40-40-40-40-48 lykkjur jafnt yfir = 195-211-219-227-243-267 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-26-27-28-30-33 mynstureiningar með A.1 með 8 lykkjum).
Ör-3: Aukið út 32-32-40-48-48-40 lykkjur jafnt yfir = 227-243-259-275-291-307 lykkjur (nú er pláss fyrir 14-15-16-17-18-19 mynstureiningar með A.1 með 16 lykkjum).
Ör-4: Aukið út 32-32-32-32-40-48 lykkjur jafnt yfir = 259-275-291-307-331-355 lykkjur (nú er pláss fyrir 32-34-36-38-41-44 mynstureiningar með A.2 með 8 lykkjum).
Ör-5: Aukið út 32-32-32-24-32-32 lykkjur jafnt yfir = 291-307-323-331-363-387 lykkjur (nú er pláss fyrir 36-38-40-41-45-48 mynstureiningar með A.2 með 8 lykkjum).
Útaukningum er nú lokið í stærð XS, S og M.
Ör-6: Aukið út 24-24-32 lykkjur jafnt yfir (á einungis við um stærð L, XL og XXL) = 291-307-323-355-387-419 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-24-26 mynstureiningar með A.2 með 16 lykkjum í 3 stærstu stærðunum).
Útaukningu er nú lokið í stærð L, XL og XXL.
Prjónið áfram þar til síðasta umferð í A.2 er eftir í þinni stærð. Stykkið mælist ca 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki mitt að framan.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 40-44-46-50-56-64 lykkjur í sléttprjóni eins og síðasta umferð í A.2 sýnir (= framstykki), setjið næstu 64-64-68-76-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 81-89-93-101-113-129 lykkjur í sléttprjóni eins og síðasta umferð í A.2 sýnir (= bakstykki), setjið næstu 64-64-68-76-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 40-44-46-50-56-64 lykkjur í sléttprjóni eins og síðasta umferð í A.2 sýnir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 179-195-211-227-259-291 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:

XS, S, L og XL:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.3 (séð frá réttu), prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (= 22-24-14-16 mynstureiningar með 8-8-16-16 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATH: Mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Haldið áfram með mynstrið fram og til baka svo að mynsturbekkurinn frá berustykki er prjónaður til loka
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkjuna í A.4 (séð frá réttu), prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (= 11-12-14-16 mynstureiningar með 16 lykkjum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.

M og XXL:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.4 (séð frá réttu), prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (= 13-18 mynstureiningar með 16 lykkjum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATH: Mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið áfram með A.4 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. A.4 er endurtekið svona á hæðina eins langt og hægt er áður en stroffið byrjar neðst á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.4 er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 195-211-227-243-275-307 lykkjur (þessi útaukning er einungis gerð í fyrsta skipti sem A.4 er prjónað á hæðina og það er nú pláss fyrir 12-13-14-15-17-19 mynstureiningar A.4 með 16 lykkjum).
Prjónið þar til stykkið mælist ca 31 cm frá skiptingu í öllum stærðum – endið mynstrið fallega eftir heilan mynsturbekk.
Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu með litnum ceder þar sem aukið er út um 57-61-65-73-81-93 lykkjur jafnt yfir = 252-272-292-316-356-400 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 64-64-68-76-80-80 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-72-80-88-96-96 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi, þ.e.a.s. setjið prjónamerki í fyrstu lykkju á eftir miðju, teljið 35-35-39-43-47-47 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= miðjulykkja). Það eru 35-35-39-43-47-47 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið mitt undir ermi er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi og prjónamerkið mitt á ermi er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja.
Prjónið síðustu umferð í A.2 þannig að A.2 endar á sama stað og á fram- og bakstykki – passið uppá að mynstrið passi yfir lykkjurnar frá berustykki. Lestu allan kaflann um ermi áður en þú prjónaðar áfram!

XS, S, L og XL:
Prjónið A.3 hringinn þannig að mynstureining frá berustykki er prjónuð til loka á hæðina, en passið uppá að mynstrið haldi fallega áfram yfir lykkjur frá berustykki.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.4 hringinn alveg eins – teljið frá miðju þannig að miðjulykkja í A.4 passi við lykkju með prjónamerki í mitt á ermi. A.4 er endurtekið á hæðina. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan undir ALLAR STÆRÐIR.

M og XXL:
Þegar síðasta umferðin í A.2 hefur verið prjónuð til loka, prjónið A.4 hringinn – teljið frá miðju þannig að miðjulykkja í A.4 passið við lykkju með prjónamerki í mitt á ermi. A.4 er endurtekið á hæðina. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 14-12-16-18-20-20 sinnum = 44-48-48-52-56-56 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 41-40-38-36-35-33 cm frá skiptingu – endið mynstrið fallega eftir heilan mynsturbekk. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt með litnum ceder þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 48-52-52-56-60-60 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 45-44-42-40-39-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 3 með litnum ceder, þ.e.a.s. byrjið beint fyrir neðan kant í hálsmáli og prjóniði upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið upp ca 120-124-128-136-140-144 lykkjur (þetta jafngildir ca 25 lykkjum per 10 cm meðfram kanti – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4).
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2½ til 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið kant að framan alveg eins meðfram hægra framstykki, en byrjið neðst á framstykki og haldið áfram upp yfir kant í hálsmáli. Þegar kantur að framan mælist ca 1 til 1½ cm, fellið af fyrir 8-8-8-9-9-9 HNAPPAGÖTUM jafnt yfir – sjá útskýringu að ofan. Haldið síðan áfram með kant að framan þar til hann mælist með sama máli og vinstri kantur að framan. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið kant að framan við kant í hálsmáli innan við 1 kantlykkju með sauminn inn að röngu á stykki.
Brjótið inn stroffið efst í hálsmáli tvöfalt að röngu á stykki. Saumið stroffið niður, en til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði of stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = ceder
symbols = natur
symbols = útauknings umferð
symbols = miðjulykkja á ermi
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Trude Dahle wrote:

Strikker jakka,men skjønner ikke når jeg begynner på mønstre.A1 1.omgang hvit ,så brun,så hvit.Må jeg ha 4 nøster i bruk,da det strikkes frem og tilbake?

03.05.2023 - 16:15

DROPS Design answered:

Hei Trude, Det er bare de 3 første radene i A.1 som ikke bruker begge fargene. Du kan begynne med natur, strikke tilbake med rust, begynne igjen fra vrangen og strikke tilbake med natur. Da har du begge garn klare til å begynne mønsteret på rad 4. God fornøyelse!

04.05.2023 - 06:42

country flag Anita Strandberg wrote:

Jag stickar st M och har gjort halskanten. Men mönstret med 179m stämmer inte! 22 rapporter x 8m plus 2 kantmaskor blir 178. Hur ska jag göra för att mönstret ska stämma mitt fram?

03.01.2023 - 16:26

DROPS Design answered:

Hej Anita, Når du har 2 masker tilbage: sticka första maskan i A.1 så att mönstret börjar och slutar likadant i varje sida mot mitt fram, och avsluta med 1 kantmaska i rätstickning :)

05.01.2023 - 10:34

country flag Amanda Karlsson wrote:

Could you do a video on blocking? both wet and dry, people mention it everywhere in other forums but i cant find a good video on it. And i think this cardigan needs it for the white pattern to look right

06.09.2022 - 12:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Karlsson, you can simply wash the garment following care instructions on the label/shadecard + extra tips and let dry flat to the finished measurements on a flat surface. Your DROPS Store might have even more tips for you and will share them with you even per mail or telephone. Happy knitting!

07.09.2022 - 08:03

country flag Georgina wrote:

Gracias por la respuesta. Pero en la chaqueta al seguir las instrucciones de ida y vuelta no sale el dibujo al menos en A1, que es el que he probado. En el jersey sí sale en circular. ¿Puede haber alguna errata en el patrón de la chaqueta y sus diagramas? UN SALUDO

17.11.2021 - 11:11

DROPS Design answered:

Hola Georgina, tienes que tener en cuenta que el diagrama muestra todas las filas del patrón. Por lo tanto, el dibujo se trabaja por el lado derecho y por el lado revés (por el que tienes que trabajar los puntos al contrario de como se presentan (derecho en vez de revés...)). El jersey se trabaja siempre por el lado derecho y por eso el dibujo solo se trabaja por el lado derecho.

21.11.2021 - 19:03

country flag Georgina wrote:

Sigo en este otro mensaje con mi otra duda 3. Es viable tejer siempre del lado en que tocaría el punto derecho, posible con agujas circulares? Mejoran los problemas anteriores. Saludo

16.11.2021 - 12:39

DROPS Design answered:

Hola Georgina, no entiendo tu pregunta, puedes explicar mas?

17.11.2021 - 08:29

country flag Georgina wrote:

Hola, precioso patrón 1. En la chaqueta abierta se lee cada línea del patrón siempre desde la derecha?, no como creo suele hacerse en ida y vuelta de forma alternada 2. ¿Hay alguna solución para no generar tantos cabos sueltos al cambiar los hilos de color, en especial en aquellas hileras en que solo se da una vuelta y queda el hilo en el lado contrario.

16.11.2021 - 12:38

DROPS Design answered:

Hola Georgina, 1. Cuando se teje de ida y vuelta, se teje una hilera por el lado derecho de la labor y una hilera por el lado revés de la labor. Como los diagramas muestran todos los puntos vistos por el lado derecho, tendrás que tejer en el sentido contrario cuando se teje por el lado revés: lees la hilera de izquierda a derecha, los puntos derechos se tejen de revés, y los puntos reveses se tejen de derecho, etc (esto frecuentemente va a estar especificado en la definición de los símbolos: “derecho por el lado derecho, revés por el lado revés”). Mira la leccion drops AQUI. 2. no se puede. Saludos!

17.11.2021 - 08:26

country flag Alexandra wrote:

Hi, can I just check that the neckband in rib should be 9cm? this seems a really large band (larger than the model in the picture- and the diagram appears to show that the neckband would be 4cm. thanks!

18.10.2021 - 18:59

DROPS Design answered:

Dear Alexandra, neckband should be 9 cm, you will fold it double afterwards to get a folded edge (= approx. 4 cm) - see under ASSEMBLY and last picture. Happy knitting!

19.10.2021 - 08:19

country flag Evelin Goldmann wrote:

Habe dieses Muster gestrickt. Es sieht einfach traumhaft aus. Bei einer Jacke haut es leider nicht immer mit den Reihen in einer Farbe hin, dass diese Farbe wieder aufgenommen werden kann. Man müsste hier abschneiden und den Faden wieder neu beginnen. Aber man kann ja improvisieren.

08.02.2021 - 15:13

country flag Cindy wrote:

Kann man diese Jacke auch in Runden mit einem steek stricken? Wenn ja was muss ich beachten? Vielen Dank!

12.01.2021 - 14:28

DROPS Design answered:

Liebe Cindy, ja wahrscheinlich können Sie nach dem Bündchen/Hals mit Steek stricken - dieses Video kann Ihnen sicher mithelfen. Viel Spaß beim stricken!

12.01.2021 - 16:06

country flag Maria Estrella wrote:

Spain Preciosa! Me encanta!

17.06.2020 - 19:33