Blushing Birches |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa og hálsskjól með axlarsæti úr DROPS Karisma. Settið er prjónað með gatamynstri, köðlum og stroffprjóni.
DROPS 214-11 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR (á við um húfu): Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA-1 (á við um efst á húfu): Fækkið um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman. ÚRTAKA-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 3,7. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir axlarsæti á hálsskjóli): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 108-120 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 9-10 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar stykkið mælist 5-5 cm frá uppfitjunarkanti, skiptið til baka yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 9-10 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstrið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-21 cm, setjið 9-10 prjónamerki í stykkið þannig: Teljið 6 lykkjur, * setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 12 lykkjur *, endurtakið frá *-* alls 8-9 sinnum, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 6 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umferð fækkar um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1 (= 9-10 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-8 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-2 sinnum = 18-20 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9-10 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25-27 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar útaukningu fyrir axlarsæti er lokið, fellið af lykkjur á hvorri öxl. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig til loka. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 138-156 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Karisma. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroffprjón hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) – byrjun á umferð er hægi öxl að aftan, séð þegar hálsskjólið er mátað. Þegar stykkið mælist 7-8 cm frá uppfitjunarkanti, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Hvert prjónamerki er sett í slétta lykkju og prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar: Setjið 1. prjónamerki í fyrstu sléttu lykkjuna í umferð, hoppið yfir 23-29 lykkjur (= öxl), setjið 2. prjónamerki í næstu sléttu lykkju, hoppið yfir 44-47 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu sléttu lykkju, hoppið yfir 23-29 lykkjur (= öxl) og setjið 4. Prjónamerki í næstu sléttu lykkju. Það eru 44-47 lykkjur eftir á bakstykki eftir 4. prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið lykkjuna með 1. prjónamerki slétt, prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 23-29 lykkjur, prjónið lykkju með 2. prjónamerki slétt, prjónið sléttprjón yfir næstu 44-47 lykkjur og fækkið jafnframt um 12-13 lykkjur jafnt yfir þessar 44-47 lykkjur – sjá ÚRTAKA-2, prjónið lykkju með 3. prjónamerki slétt, prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 23-29 lykkjur, prjónið lykkju með 4. prjónamerki slétt og prjónið sléttprjón yfir þær 44-47 lykkjur sem eftir eru og fækkið jafnframt um 12-13 lykkjur jafnt yfir þessar 44-47 lykkjur = 114-130 lykkjur eftir. Aukið síðan út fyrir öxl eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið stroffprjón eins og áður yfir 23-29 lykkjur á hvorri öxl og sléttprjón yfir aðrar lykkjur á framstykki og bakstykki (meðtaldar lykkjur með prjónamerki í). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur í hverri umferð fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri – útauknar lykkjur teljast með í framstykki og bakstykki og eru prjónaðar í sléttprjóni, lykkjufjöldinn á hvorri öxl + 4 lykkjur með prjónamerki verður sá sami). Aukið út svona í hverri umferð alls 12-14 sinnum = 162-186 lykkjur. Í næstu umferð eru lykkjur felldar af mitt í hverri einingu á öxl, þannig að stykkið skiptist fyrir framstykki á bakstykki. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið lykkjuna með 1. prjónamerki slétt, prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 6-6 lykkjur, prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið af næstu 9-15 lykkjur (= mitt á öxl – fellið af með sléttum lykkjum og passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur), prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 6-6 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 58-64 lykkjur (= framstykkið ásamt lykkjum með 2. og 3. prjónamerki), prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 6-6 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt í garðaprjóni, fellið af næstu 9-15 lykkjur (= mitt á öxl), prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið stroff eins og áður yfir næstu 6-6 lykkjur og prjónið sléttprjón yfir þær 57-63 lykkjur sem eftir eru (= bakstykki meðtalin lykkja með 4. prjónamerki). Klippið frá. Setjið 72-78 lykkjur frá bakstykki á þráð eða hjálparprjón. Prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: = 72-78 lykkjur. Prjónið fram og til baka á hringprjón 3,5 þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 6-6 lykkjur (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) , prjónið sléttprjón þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 6 lykkjur (= 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 22-24 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Nú eru eftir ca 3 cm til loka, mátið e.t.v. kragann og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið alls 8 umferðir stroffprjón fram og til baka svona. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Klippið frá og festið enda. Framstykkið mælist ca 25-27 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. BAKSTYKKI: Setjið til baka 72-78 lykkjur frá þræði/hjálparprjóni á hringprjón 3,5 og prjónið á sama hátt og framstykki þar til stykkið mælist 24-26 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan (þ.e.a.s. 2 cm lengra en framstykki). Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroffprjón á sama hátt og á framstykki. Bakstykkið mælist ca 27-29 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Andrea wrote:
Bei der Trennung in Vorder- und Rückenteil ist ein Fehler in der Anleitung. Ich bitte dringend um Korrektur, da die Strickerin aus Norwegen das bereits vor 1 Jahr angegeben hat. Ich möchte den Kragen nächsten Mittwoch verschenken 😳
20.11.2022 - 18:42DROPS Design answered:
Liebe Andrea, was für ein Fehler haben Sie bei der Verteilung? Können Sie uns bitte mehr sagen, ich habe die Maschenanzahl bei beiden Größen richtig. Danke im voraus.
21.11.2022 - 10:16Else wrote:
Hej Hvor meget garn skal jeg købe når jeg kun vil lave halsedissen og ikke huen? tak for svar
17.09.2021 - 17:01DROPS Design answered:
Hej Else. Då ska du ha 150 g DROPS Karisma. Mvh DROPS Design
22.09.2021 - 09:35Ronja Joensuu wrote:
Hej! Jag har upptäckt att det finns ett fel i mönstret, strax innan man ska klippa av garnet och lägga bakstycket på en tråd så saknas det att man även ska sticka resår stickning dem sista 6-6 maskorna. Tack för ett övrigt fint och toppenbra mönster!
11.02.2021 - 21:33Jy Min wrote:
So useful project it is. I've been searching for this kind of warmer . Thank you so much.
07.01.2021 - 08:37Lise Kilganon wrote:
Je suis incapable d imprimer la photo du modèle choisie , très important pour suivre les instructions, pouvez vous m aider, merci,,,,
08.10.2020 - 15:52DROPS Design answered:
Bonjour Mme Kilganon, vérifiez bien les paramètres de votre imprimante, nous avons pu lancer l'impression des photos sans soucis. Bon tricot!
08.10.2020 - 16:20