Winter's Night Enchantment Jacket |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 219-13 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kantlykkjur og kantlykkjur að framan (t.d. 2 kantlykkjur og 10 kantlykkjur að framan) og deilið þeim 92 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 29) = 3,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 3. hverja lykkju (lykkjum er ekki aukið út yfir kantlykkjur). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur). UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, þá er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna í umferð. Byrjið frá réttu með litinn koksgrár og prjónið 12-13-14-15-15-16 sléttar lykkjur framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 25-27-29-31-31-33 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 37-40-43-46-46-49 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 49-53-57-61-61-65 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 61-66-71-76-76-81 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 73-79-85-91-91-97 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar út umferðina (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, þá kemur flíkin til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum. Ef prjónað er of laust, þá verður flíkin of löng og handvegur of stór, þá er hægt að prjóna færri umferðir með jöfnu millibili í einlitu einingunum. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi þannig: S: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki mitt undir ermi, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum koksgrár, prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum koksgrár (= 2 lykkjur færri). M, L, XL, XXL og XXXL: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum koksgrár, prjónið lykkjuna með prjónamerki í slétt með litnum koksgrár og prjónið síðan 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum koksgrár (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT Í KANTI Í HÁLSMÁLI: Þegar kantur í hálsmáli mælist ca 3 cm, fellið af fyrir 1 hnappagati í hægri hlið í kanti í hálsmáli (séð þegar stykkið er mátað). Fellið af frá fréttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum eru kantar að framan prjónaðir. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum koksgrár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur (hér á að sauma kant að framan síðar), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 92-96-100-104-108-112 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 29-29-33-33-37-41 lykkjur jafnt yfir þessar 92-96-100-104-108-112 lykkjur – sjá ÚTAUKNING, prjónið síðan stroff eins og áður yfir næstu 5 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 6 lykkjurnar, sláið 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, svo ekki myndist gat), prjónið brugðið til baka yfir allar lykkjur, en kantlykkjur (ysta lykkjan í hvorri hlið á stykki) er prjónuð í garðaprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat = 123-127-135-139-147-155 lykkjur á prjóni. Setjið 1 prjónamerki á eftir kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef ekki er óskað eftir upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Prjónið 0-0-2-2-4-6 umferðir sléttprjón með litnum koksgrár og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 30-31-33-34-36-38 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 alveg eins. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 og A.2 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING: STÆRÐ S, M og L: Ör-1: Aukið út 36-38-42 lykkjur jafnt yfir = 159-165-177 lykkjur (nú er pláss fyrir 26-27-29 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-2: Aukið út 64-58-66 lykkjur jafnt yfir = 223-223-243 lykkjur (nú er pláss fyrir 11-11-12 mynstureiningar með 20 lykkjum). Ör-3: Aukið út 32-40-36 lykkjur jafnt yfir = 255-263-279 lykkjur (nú er pláss fyrir 63-65-69 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-4: Aukið út 30-34-36 lykkjur jafnt yfir = 285-297-315 lykkjur (nú er pláss fyrir 47-49-52 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-5: Aukið út 24-30-36 lykkjur jafnt yfir = 309-327-351 lykkjur (nú er pláss fyrir 51-54-58 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-6 (á einungis við um M og L, þar sem í S skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar áður en þessi mynsturbekkur byrjar): Aukið út um 4-4 lykkjur jafnt yfir = 309-331-355 lykkjur (nú er pláss fyrir 41-44 mynstureiningar með 8 lykkjum í M og L). STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Ör-1: Aukið út 44-48-52 lykkjur jafnt yfir = 183-195-207 lykkjur (nú er pláss fyrir 30-32-34 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-2: Aukið út 42-48-54 lykkjur jafnt yfir = 225-243-261 lykkjur (nú er pláss fyrir 37-40-43 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-3: Aukið út 18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 243-263-283 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-13-14 mynstureiningar með 20 lykkjum). Ör-4: Aukið út 60-64-68 lykkjur jafnt yfir = 303-327-351 lykkjur (nú er pláss fyrir 75-81-87 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-5: Aukið út 54-54-60 lykkjur jafnt yfir = 357-381-411 lykkjur (nú er pláss fyrir 59-63-68 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-6: Aukið út 30-30-30 lykkjur jafnt yfir = 387-411-441 lykkjur (nú er pláss fyrir 64-68-73 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-7: Aukið út 8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 395-419-451 lykkjur (nú er pláss fyrir 49-52-56 mynstureiningar með 8 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki í hálsmáli. ATH: Í sumum stærðum kemur til með að standa eftir nokkrar umferðir í A.2 þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar – afgangur af A.2 er þá prjónað til loka á fram- og bakstykki og ermum. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 46-50-53-58-64-70 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 63-66-72-82-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 91-99-105-115-127-139 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 63-66-72-82-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 46-50-53-58-64-70 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 195-211-227-247-275-299 lykkjur. Prjónið A.2 til loka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – passið uppá að mynstrið passi fallega yfir A.2 á berustykki, en hafið í huga að mynstrið gengur ekki jafnt upp undir ermum í öllum stærðu þegar síðasta umferð í A.2 er prjónuð til loka. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og aukið jafnframt út um 0-2-4-2-4-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3 (þannig að mynstrið byrjið og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 195-213-231-249-279-303 lykkjur í umferð. Nú er pláss fyrir 32-35-38-41-46-50 mynstureiningar A.3 með 6 lykkjum. Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist ca 27 cm frá skiptingu í öllum stærðum, en endið eftir umferð með «doppum». Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að A.3 að loka máli. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.4 (séð frá réttu), prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu) og fækkið jafnframt um 0-2-4-2-4-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 195-211-227-247-275-299 lykkjur í umferð. Nú er pláss fyrir 48-52-56-61-68-74 mynstureiningar A.4 með 4 lykkjum. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 33 cm frá skiptingu. Afgangur af fram- og bakstykki er prjónaður með litnum koksgrár. Prjónið 1 umferð brugðið þar sem aukið er út um 41-45-45-49-57-61 lykkjur jafnt yfir = 236-256-272-296-332-360. Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragið stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 63-66-72-82-82-86 lykkjur frá þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-10 lykkjum undir ermi = 69-72-80-90-92-96 lykkjur. Setjið nú 2 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): S: Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi á milli miðju 6 lykkja, teljið 34 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju = 34 lykkjur eftir í umferð á eftir lykkju með prjónamerki í. M, L, XL, XXL og XXXL: Byrjið mitt undir ermi í miðju á 6-8-8-10-10 lykkjum, setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju á eftir miðju, teljið 35-39-44-45-47 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju = 35-39-44-45-47 lykkjur eftir í umferð á eftir lykkju með prjónamerki í. ALLAR STÆRÐIR: Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið mitt undir ermi er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónamerkið mitt á ermi er notað þegar telja á út hvar mynstrið á að byrja. Prjónið síðan MYNSTUR jafnframt því sem prjónuð er ÚRTAKA mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan – lestu allan kaflann um ermi áður en þú prjónar áfram: MYNSTUR: Byrjið umferð mitt undir ermi og prjónið A.2 til loka alveg eins og á fram- og bakstykki, en teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja – lykkjan með prjónamerki mitt á ermi á að passa með lykkju merktri með stjörnu í A.2 (lykkjum er fækkað undir ermi jafnframt því sem mynstrið er prjónað). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 hringinn alveg eins. A.3 er endurtekið á hæðina þar til ermin mælist ca 35-34-32-31-29-28 cm frá skiptingu, en endið eftir umferð með “doppum”. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið A.3 síðan að óskaðri lengd. Prjónið síðan A.4 hringinn. ÚRTAKA: Jafnframt þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 9-10-13-17-18-19 sinnum = 51-52-54-56-56-58 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka og úrtaka hefur verið gerð til loka mælist ermin 41-40-38-37-35-34 cm frá skiptingu. Afgangur af ermi er prjónaður með litnum koksgrár. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-8-10-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-64-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 45-44-42-41-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (þegar stykkið er mátað): Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni ca 148-156-160-164-168-172 lykkjur meðfram miðju að framan á hringprjón 3 með litnum koksgrár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 3 cm – stillið af að kantur að framan er jafn breiður og breiddin á 6 lykkjum sem felldar voru af í kanti í hálsmáli. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið alveg eins og vinstri kantur að framan, en eftir ca 1 til 1½ cm er fellt af fyrir 6-6-7-7-8-8 hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að staðsetja ca 8 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið ca 7-7-7-8-8-8 cm frá hnappagati í kanti í hálsmáli. ATH: Það er fallegast að fella af fyrir hnappagötum í brugðinni einingu (séð frá réttu) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og síðan að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. FRÁGANGUR: Saumið kant efst á kanti að framan fallega í kant í hálsmáli innan við 1 kantlykkju með sauminn inn að röngu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Adrie Verdaasdonk wrote:
Hoe kan je van halsdeelmarkeerder tot 30cm komen als je op die hoogte nog niet de juiste aantal steken voor je indeling armen en lijf komt? Je bent over de 30cm als je ter hoogte van de pijl 7 van A.2 patroon als je de juiste aantal steken hebt. Ik zie op de foto dat de indeling veel eerder zit dan wat uitgelegd is.
15.08.2023 - 12:23DROPS Design answered:
Dag Adrie,
Het model op de afbeelding heeft maat S aan. Als je een andere maat breit, kan de indeling ietsje anders zijn. Heb je de stekenverhouding gecontroleerd en kan het zijn dat je minder steken in de hoogte hebt op 10 cm, dan aangegeven bij de stekenverhouding in het patroon?
16.08.2023 - 19:23Evie wrote:
Hoe brei je patroon A3 heen en terug zonder elke keer een witte draad te moeten afknippen. De naturel steek zit nu steeds in de averechtse naald. Het begin van de natureldraad staat dan klaar voor de rechte naald, maar in het patroon staat de naturelsteek voor de averechtse naald. Dan moet je dus steeds de draad afknippen om verder te kunnen, of lees ik het verkeerd?
11.01.2023 - 09:51DROPS Design answered:
Dag Evie,
De draad die je niet gebruikt kun je inderdaad meenemen, ook op een averechte naald. Dit kun je doen door afwisselen de rechter naald boven en onder de niet gebruikte draad te steken. In deze video kun je ook een beetje zien hoe dat werkt (hoewel er in deze video ook gebreid wordt met de andere draad.
12.01.2023 - 20:08Andreas wrote:
Hello. I am making the XL size, but I made it longer. From the end of neck until the end down measures 80cm. Is there a specific formula to count the stitches I have to pick up for the side bands? For example , 1 stitch for every horizontal row? or something else?
14.11.2022 - 09:28DROPS Design answered:
Dear Andreas, this video shows how to pick up sts along the sides - but since you will work here ribbing K2, P2, you might require more sts - it might be wise to make first a small swatch with ribbing edge and then calculate how many stitches you require to avoid rib to tighten piece. Happy knitting!
14.11.2022 - 10:29Yvonne Havelaar wrote:
Hallo, ik ben de Scandinavische vest voor mijn aan het breien. Ik heb de hals en de pas nu gebreid en kom nu op het punt van de mouwgaten, maar ik kom veelste veel steken te kort. Dus mijn vraag is nu zijn de patronen alleen heen gaan getekend of ook teruggaan? Nu brei ik ze alleen heengaand en dan terug zoals ze zich voordoen.
01.06.2022 - 12:24DROPS Design answered:
Dag Yvonne,
In de telpatronen zijn alle steken aangegeven, dus zowel van de heengaande als de teruggaande naald.
04.06.2022 - 21:56Connie Enghoff wrote:
Hej, Jeg har strikket hele cardigan 219-13 og skal til forkanter. Min mand prøver den da det er en herretrøje. Men knaphuller er i den forkerte side. Dette kan jeg ikke ændre da der er lavet et knaphul i halskanten. Det står meget tydeligt at knaphuller skal være i højre side. ??? Er det ikke en fejl? Meget ærgerligt da det er en model til min forretning!
26.11.2021 - 09:01DROPS Design answered:
Hej Connie, det kan jeg godt se. Knaphullet er også på højre side på billedet. Det er samme model som 217-9 til dame, så det må være derfor.
29.11.2021 - 14:53Anita wrote:
Auf den Bildern ist der Kragen länger als 3 cm, wie in der Beschreibung angeben. Scheint auch eine Reihe dazwischen gestrickt zu sein. Jedenfalls passt die Beschreibung nicht zum Bild.können Sue mir da helfen. Danke.
17.10.2021 - 13:54DROPS Design answered:
Liebe Anita, oh ja stimmt, es git ein Typo in die deutsche Anleitung, Rippenmuser beim kragen soll 5 cm sein - Korrektur erfolgt. Danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!
18.10.2021 - 09:11Martin wrote:
Bei "Material" ist von 8 Knöpfen für XL-XXL-XXXL die Rede. Nun soll in der Halsblende ein Knopfloch gemacht werden, in der rechten Blende sollen noch 8 Knopflöcher gemacht werden, insgesamt also 9 Knopflöcher. Auf den Fotos (vmtl Größe M) sehe ich nur 7 Knöpfe. Ich vermute, dass die Anleitung im Bereich "rechte Blende" fehlerhaft ist (ein Knopfloch zu viel) - können Sie dies bestätigen, bzw. mir die korrekte Anzahl an Knöpfen für Größe XXL nennen? Vielen Dank!
09.10.2021 - 15:56DROPS Design answered:
Lieber Martin, danke für den Hinweis, unser Designteam wird die Knopflöcher mal prüfen.
11.10.2021 - 07:24Karin Verland wrote:
Jeg har bestilt garnet hos jer i dag, og vil gerne have opskriften med i print, da jeg ikke har en printer. Drops 219-13
06.07.2021 - 23:47DROPS Design answered:
Hej Karin, du har fået en bekræftelse-mail fra butikken som tager sig af din ordre. Skriv direkte til butikken, så kan du sikkert få opskriften med :)
07.07.2021 - 08:00Christina Kuronen wrote:
Im Diagramm A2 Größe XL ist ein Stern = Mittelmasche zu sehen. Ich weiß nicht, was dieser bedeutet.Vielen Dank für Ihre Hilfe
28.02.2021 - 13:49DROPS Design answered:
Liebe Frau Kuronen, dieser Stern wird für die Ärmel benutzt, siehe ÄRMEL, MUSTER - diese Lektion erklärt, wie man ein Muster/Diagram in der Mitte (Stern) platziert. Viel Spaß beim stricken!
01.03.2021 - 09:32