Sky Feather Sweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-46 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 26 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 11) = 2,4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca hver og önnur hver lykkja og önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-1 (á við um kant í hálsmáli): Aukið út allar 1 lykkja brugðið til 2 lykkjur brugðið frá réttu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverri brugðinni lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúin brugðið, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar brugðið. ÚTAUKNING-2 (frá réttu): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Síðan eru axlarsætin prjónuð fram og til baka hvort fyrir sig. Axlarsætin eru prjónuð á ½ prjónanúmer minni en sjálft stykkið til að þau verði stöðugri á öxlunum. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp hvoru megin við axlarsætin og prjónað er áfram í hring yfir allar lykkjur, jafnframt eru lykkjur auknar út fyrir ermar og berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-68-72-76-80-80 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, aukið út aðra hverja 1 lykkju brugðið til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 80-85-90-95-100-100 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8 cm, aukið út allar 1 lykkja brugðið sem eftir eru til 2 lykkjur brugðið = 96-102-108-114-120-120 lykkjur. Klippið frá. Nú skiptist stykkið fyrir axlarsæti, framstykki og bakstykki. Setjið fyrstu 22-22-22-26-26-26 lykkjur á prjón 5 (= axlarsæti), setjið næstu 26-29-32-31-34-34 lykkjur á þráð fyrir framstykki, setjið næstu 22-22-22-26-26-26 lykkjur á annan þráð fyrir axlarsæti og setjið síðustu 26-29-32-31-34-34 lykkjur á nýjan þráð fyrir bakstykki. Prjónið síðan axlarsætin eins og útskýrt er að neðan. AXLARSÆTI: = 22-22-22-26-26-26 lykkjur.Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT FRÁ! Byrjið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í byrjun á prjón 5 (= 2 kantlykkjur), prjónið A.1 yfir 22-22-22-26-26-26 lykkjur á prjóni og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok prjóns (= 2 kantlykkjur) = 26-26-26-30-30-30 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 2 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til axlarsætið mælist 6-7-7-8-9-10 cm frá prjónamerki – endið eftir umferð frá röngu og fellið jafnframt af 2 kantlykkjur í hvorir hlið = 22-22-22-26-26-26 lykkjur eftir. Klippið þráðinn. Setjið þessar 22-22-22-26-26-26 lykkjur á þráð. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Prjónið nú axlalykkjurnar, framstykkið og bakstykkið inn á sama hringprjón 5,5, jafnframt því sem lykkjur eru prjónaðar upp meðfram hliðum á axlarsætum. Byrjun á umferð = hægri öxl að aftan. Prjónið frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 22-22-22-26-26-26 axlarsætis lykkjur, prjónið upp 12-14-14-16-18-18 lykkjur innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni meðfram hlið á axlarsæti (prjónið upp innan við 2 kantlykkjur til að gera kantinn stöðugri), prjónið sléttar lykkjur yfir 26-29-32-31-34-34 lykkjur af þræði á framstykki og aukið jafnframt út 11-12-11-12-11-11 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 37-41-43-43-45-45 lykkjur), prjónið upp 12-14-14-16-18-18 lykkjur innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni meðfram hinu axlarsætinu, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 22-22-22-26-26-26 axlarsætis lykkjur, prjónið upp 12-14-14-16-18-18 lykkjur innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttar lykkjur yfir 26-29-32-31-34-34 lykkjur af þræði á bakstykki og aukið jafnframt út 11-12-11-12-11-11 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur og prjónið upp 12-14-14-16-18-18 lykkjur innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni meðfram hlið á axlarsæti. Nú eru 166-182-186-202-214-214 lykkjur í umferð. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan jafnframt eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki á undan fyrstu lykkju í umferð (= hægri öxl að aftan). Annað prjónamerki: Haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 22-22-22-26-26-26 axlarsætis lykkjurnar, setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Prjónið 61-69-71-75-81-81 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 22-22-22-26-26-26 axlarsætis lykkjurnar, setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Prjónið 61-69-71-75-81-81 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Í næstu umferð byrjar mynstur á framstykki og bakstykki jafnframt því sem útaukning á ermum byrjar. Lestu þess vegna kaflann með MYNSTUR og ÚTAUKNING Á ERMUM áður en þú prjónar áfram og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! MYNSTUR: Fyrsta umferð er prjónuð þannig: * Haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 22-22-22-26-26-26 axlarsætis lykkjurnar, prjónið 2-6-7-3-6-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 18-18-18-22-22-22 lykkjur), prjónið A.3 (= 21-21-21-25-25-25 lykkjur), prjónið A.2 (= 18-18-18-22-22-22 lykkjur), prjónið 2-6-7-3-6-6 lykkjur sléttprjón *, prjónið *-* einu sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. ÚTAUKNING Á ERMUM: Prjónið mynstur eins og útskýrt er að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2: Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 2-5-4-5-4-0 sinnum = 174-202-202-222-230-214 lykkjur. Stykkið mælist ca 8-13-12-14-14-10 cm frá prjónamerki. Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermi, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjum sitji í ystu lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Það eru 26-32-30-36-34-26 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð eru auknar út 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverri og einni af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-2. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og á báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 9-7-9-9-10-14 sinnum = 246-258-274-294-310-326 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 19-21-22-24-25-26 cm frá prjónamerki. Prjónið áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-23-26-27-28 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 1-1-2-1-1-2 lykkjur á undan lykkju með 1. prjónamerki í, setjið næstu 48-50-54-58-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 75-79-83-89-97-103 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-50-54-58-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 75-79-83-89-97-103 lykkjur (= bakstykki). Klippið þráðinn. Takið frá öll eldri prjónamerki. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-178-190-206-226-242 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 8-10-12-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Byrjið umferð á undan öðru prjónamerkinu, haldið áfram hringinn með sléttprjón og A.2/A.3 eins og áður – að auki er prjónað GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 6 lykkjur í hvorri hlið (3 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin). Prjónið þar til stykkið mælist 21-21-22-19-20-20 cm frá skiptingu undir ermum. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman, eru lykkjur núna auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-18-20-20-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 182-196-210-226-248-266 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-50-54-58-58-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi (með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk) = 56-60-66-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 8-10-12-14-16-18 lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki, prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með A.1 yfir miðju 22-22-22-26-26-26 lykkjur á ermi eins og áður. Þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-3-2½-2½-2½ cm millibili alls 3-3-4-6-6-6 sinnum = 50-54-58-60-62-66 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 34-33-32-30-29-28 cm frá skiptingu (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 40-44-48-50-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 40-39-38-36-35-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Nathalie H wrote:
Bonjour, je tricote ce pull en taille 2 et je viens de terminer les augmentations des manches. Les explications indiquent que, depuis le fil marqueur servant à mesurer, je devrais avoir 13 cm, mais je n’ai tricoté que 10 tours (5 aug. tous les 2 tours) depuis ce marqueur et il en faut 17 pour 10 cm. Dois-je continuer droit jusqu’à 13 cm avant de commencer les augmentations manches/empiècement ? Ai-je fait une erreur quelque part ? Merci d’avance pour votre aide !
04.11.2021 - 11:17DROPS Design answered:
Bonjour Nathalie, vous avez juste effectivement, une correction a été faite pour décaler le fil marqueur, ainsi les mesures sont correctes. Merci pour votre retour, bonne continuation!
09.11.2021 - 09:38Thibaud Marjolaine wrote:
Bonjour, je viens de réaliser l'échantillon (avec les fils recommandés) et en 5,5 j'ai bien 15 mailles mais pour 20 rangs. Quand j'essaie avec des aiguilles 6 je n'ai plus assez de mailles mais toujours 19 rangs et l'ouvrage devient trop lâche je trouve. Pour une équivalence de fils C je trouve le nombre de rangs indiqué pour l'échantillon petit. Pouvez vous m'éclairer ? Merci d'avance !
18.10.2021 - 23:08DROPS Design answered:
Bonjour Mme Thibaud, vous pouvez conserver les aiguilles qui vous donnent la bonne largeur, mais n'hésitez pas à vérifier/recalculer si besoin la hauteur pour bien conserver les bonnes proportions conformes au modèle/schéma. Notez également que, comme il vous faut plus de rangs en hauteur, vous risquez d'avoir besoin de davantage de fil - cf FAQ. Bon tricot!
19.10.2021 - 08:50Ula Sabak wrote:
Czy w schemacie A1 w 5i 6 rzędzie, który ma o 2 oczka mniej z każdej strony te 2 pierwsze oczka bez przerabiania należy przełożyć na prawy drut ? Jaki to ma cel takie skrócone rzędy ?
11.10.2021 - 12:18DROPS Design answered:
Witaj Ulu, w tych miejscach co nie ma oczek (5-ty i 6-ty rząd schematu), de facto są oczka. Dalej przerabiasz boczne części schematu (te małe warkoczyki), czyli w 5-tym rzędzie zaczynasz od: 1 oczko prawe, narzut, 1 oczko prawe i kończysz rząd tak samo. Tzn. cały czas przerabiasz schemat A.1 na 22 oczkach. Pozdrawiamy!
11.10.2021 - 21:20Tanya Marquette wrote:
This is a design that would be enjoyable to knit. Like its looseness and wide neck
26.08.2021 - 04:29Ket wrote:
Ik ben al een tijdje op zoek naar een patroon voor een leuke kabeltrui en deze is echt perfect!!
06.08.2021 - 17:59Julie wrote:
Blue songbird
05.08.2021 - 09:01HERENS wrote:
Ciel bleu
03.08.2021 - 18:02