DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sky Feather Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-46
DROPS Design: Mynstur sk-140
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-300-350 g litur 15, vatnsblár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 06, blá þoka

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 26 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 11) = 2,4.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca hver og önnur hver lykkja og önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING-1 (á við um kant í hálsmáli):
Aukið út allar 1 lykkja brugðið til 2 lykkjur brugðið frá réttu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverri brugðinni lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúin brugðið, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar brugðið.

ÚTAUKNING-2 (frá réttu):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Síðan eru axlarsætin prjónuð fram og til baka hvort fyrir sig. Axlarsætin eru prjónuð á ½ prjónanúmer minni en sjálft stykkið til að þau verði stöðugri á öxlunum.
Síðan eru lykkjur prjónaðar upp hvoru megin við axlarsætin og prjónað er áfram í hring yfir allar lykkjur, jafnframt eru lykkjur auknar út fyrir ermar og berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 64-68-72-76-80-80 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Þegar stroffið mælist 4 cm, aukið út aðra hverja 1 lykkju brugðið til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 80-85-90-95-100-100 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8 cm, aukið út allar 1 lykkja brugðið sem eftir eru til 2 lykkjur brugðið = 96-102-108-114-120-120 lykkjur. Klippið frá.
Nú skiptist stykkið fyrir axlarsæti, framstykki og bakstykki.
Setjið fyrstu 22-22-22-26-26-26 lykkjur á prjón 5 (= axlarsæti), setjið næstu 26-29-32-31-34-34 lykkjur á þráð fyrir framstykki, setjið næstu 22-22-22-26-26-26 lykkjur á annan þráð fyrir axlarsæti og setjið síðustu 26-29-32-31-34-34 lykkjur á nýjan þráð fyrir bakstykki. Prjónið síðan axlarsætin eins og útskýrt er að neðan.

AXLARSÆTI:
= 22-22-22-26-26-26 lykkjur.Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT FRÁ!
Byrjið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í byrjun á prjón 5 (= 2 kantlykkjur), prjónið A.1 yfir 22-22-22-26-26-26 lykkjur á prjóni og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok prjóns (= 2 kantlykkjur) = 26-26-26-30-30-30 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 2 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til axlarsætið mælist 6-7-7-8-9-10 cm frá prjónamerki – endið eftir umferð frá röngu og fellið jafnframt af 2 kantlykkjur í hvorir hlið = 22-22-22-26-26-26 lykkjur eftir. Klippið þráðinn. Setjið þessar 22-22-22-26-26-26 lykkjur á þráð.
Prjónið hina öxlina á sama hátt. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

Prjónið nú axlalykkjurnar, framstykkið og bakstykkið inn á sama hringprjón 5,5, jafnframt því sem lykkjur eru prjónaðar upp meðfram hliðum á axlarsætum. Byrjun á umferð = hægri öxl að aftan. Prjónið frá réttu þannig:
Haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 22-22-22-26-26-26 axlarsætis lykkjur, prjónið upp 12-14-14-16-18-18 lykkjur innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni meðfram hlið á axlarsæti (prjónið upp innan við 2 kantlykkjur til að gera kantinn stöðugri), prjónið sléttar lykkjur yfir 26-29-32-31-34-34 lykkjur af þræði á framstykki og aukið jafnframt út 11-12-11-12-11-11 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 37-41-43-43-45-45 lykkjur), prjónið upp 12-14-14-16-18-18 lykkjur innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni meðfram hinu axlarsætinu, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 22-22-22-26-26-26 axlarsætis lykkjur, prjónið upp 12-14-14-16-18-18 lykkjur innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttar lykkjur yfir 26-29-32-31-34-34 lykkjur af þræði á bakstykki og aukið jafnframt út 11-12-11-12-11-11 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur og prjónið upp 12-14-14-16-18-18 lykkjur innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni meðfram hlið á axlarsæti.
Nú eru 166-182-186-202-214-214 lykkjur í umferð. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan jafnframt eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig:
Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki á undan fyrstu lykkju í umferð (= hægri öxl að aftan).
Annað prjónamerki: Haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 22-22-22-26-26-26 axlarsætis lykkjurnar, setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Prjónið 61-69-71-75-81-81 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 22-22-22-26-26-26 axlarsætis lykkjurnar, setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Prjónið 61-69-71-75-81-81 lykkjur sléttprjón (= bakstykki).
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Í næstu umferð byrjar mynstur á framstykki og bakstykki jafnframt því sem útaukning á ermum byrjar. Lestu þess vegna kaflann með MYNSTUR og ÚTAUKNING Á ERMUM áður en þú prjónar áfram og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

MYNSTUR:
Fyrsta umferð er prjónuð þannig: * Haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 22-22-22-26-26-26 axlarsætis lykkjurnar, prjónið 2-6-7-3-6-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 18-18-18-22-22-22 lykkjur), prjónið A.3 (= 21-21-21-25-25-25 lykkjur), prjónið A.2 (= 18-18-18-22-22-22 lykkjur), prjónið 2-6-7-3-6-6 lykkjur sléttprjón *, prjónið *-* einu sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur.

ÚTAUKNING Á ERMUM:
Prjónið mynstur eins og útskýrt er að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2:
Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 2-5-4-5-4-0 sinnum = 174-202-202-222-230-214 lykkjur. Stykkið mælist ca 8-13-12-14-14-10 cm frá prjónamerki. Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermi, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjum sitji í ystu lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Það eru 26-32-30-36-34-26 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi.
Í næstu umferð eru auknar út 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverri og einni af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-2.
Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og á báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 9-7-9-9-10-14 sinnum = 246-258-274-294-310-326 lykkjur.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 19-21-22-24-25-26 cm frá prjónamerki.
Prjónið áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-23-26-27-28 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 1-1-2-1-1-2 lykkjur á undan lykkju með 1. prjónamerki í, setjið næstu 48-50-54-58-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 75-79-83-89-97-103 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-50-54-58-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 75-79-83-89-97-103 lykkjur (= bakstykki). Klippið þráðinn. Takið frá öll eldri prjónamerki.
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 166-178-190-206-226-242 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 8-10-12-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi.
Byrjið umferð á undan öðru prjónamerkinu, haldið áfram hringinn með sléttprjón og A.2/A.3 eins og áður – að auki er prjónað GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 6 lykkjur í hvorri hlið (3 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin).
Prjónið þar til stykkið mælist 21-21-22-19-20-20 cm frá skiptingu undir ermum.
Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman, eru lykkjur núna auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-18-20-20-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 182-196-210-226-248-266 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur í 6 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-50-54-58-58-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi (með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk) = 56-60-66-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 8-10-12-14-16-18 lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki, prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með A.1 yfir miðju 22-22-22-26-26-26 lykkjur á ermi eins og áður.
Þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3-3-3-2½-2½-2½ cm millibili alls 3-3-4-6-6-6 sinnum = 50-54-58-60-62-66 lykkjur.
Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 34-33-32-30-29-28 cm frá skiptingu (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 40-44-48-50-52-56 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 40-39-38-36-35-34 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.11.2021
Leiðrétting á prjónamerki undir AXLARSÆTI - héðan er nú stykkið mælt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga að myndast göt)
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið síðan fyrstu lykkjunni sem var prjónuð (af þessum 3) yfir hinar tvær, þannig að lykkjan liggi utan um hinar tvær (= 1 lykkja færri)
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem lykkjan er ekki til eða búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu

symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt að kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt að kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur sle´tt af kaðlaprjóni framan við stykkið
symbols = prjónstefna
symbols = útaukning á ermum
symbols = útaukning á berustykki
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sky Feather Sweater

Hélène, Belgium

Sky Feather Sweater

Yuliya, Russian Federation

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-46

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Emma wrote:

Hallo liebes Drops Team! Leider ist mir eine Kleinigkeit unklar. Wenn man die Sattelschulter mit A1 strickt, hören im Diagramm in Zeilen 5 und 6 die äußeren 3 Maschen auf. Wie stricke ich das? Vielen Dank für Ihre Antwort! Mit freundlichen Grüßen Emma

19.01.2024 - 18:12

DROPS Design answered:

Liebe Emma, beide Muster werden über eine verschiedene Reihenanzahl gestrickt, dh die 3 ersten/letzten Maschen werden über 4 Reihen gestrickt aber Zopf stricken Sie über 6 Reihen, damit es immer 5 Reihen zwischen jedem Zopf gibt. Viel Spaß beim stricken!

22.01.2024 - 07:51

country flag Federica wrote:

Non capisco come eseguire i ferri 6 e 7 del diagramma A1. Come devo lavorare le due maglie dopo le due maglie a legaccio che non sono inserite nello schema? Grazie

11.01.2024 - 00:19

DROPS Design answered:

Buonasera Federica, può riprendere a lavorare le 2 maglie più esterne dal 1° ferro. Buon lavoro!

17.03.2024 - 17:50

country flag Jade wrote:

A magyar nyelvű mintában csak az egyik fonal mennyiségét adja meg a minta, a másikat csak az alcímben említi.

27.05.2023 - 21:17

country flag Ingvild wrote:

Hei, når jeg skal strikke A1 (størrelse medium) på sadelskulderen, går mønsteret plutselig fra 22 masker til 18 masker uten at det er noen fellinger i omgangen før. Hva skal man gjøre med resterende masker som ikke står i mønsteret? Altså fra 6. omg på A1.

09.04.2023 - 18:58

DROPS Design answered:

Hej Ingvild, du gentager de 3 yderste masker i hver side af A1, rapporten starter forfra efter 4 pinde i højden :)

13.04.2023 - 15:23

country flag Ingvild Svendsen wrote:

Jeg falt for denne genseren pga den knalle klare blåfargen, men garnet som står i oppskriften ligner ikke på den fargen i det hele tatt. Stemmer det at det er det garnet som har blitt brukt? Drops Kid Silk 06 Blå tåke ser lysegrå ut og Drops Sky 15 Mint fins ikke, så jeg regner med det er Drops Sky 15 Aquamarine, men den ser ut som en veldig dus turkis. Jeg går utifra bildene på Lindehobby som det lenkes til her.

25.03.2023 - 18:42

DROPS Design answered:

Hei Ingvild. Det er riktig at fargene som er brukt til denne genseren er DROPS Sky farge nr. 15, akvamarin og DROPS Kid-Silk farge nr 06, blå tåke. Men fargene du ser på skjermen kan avvike noe avhengig av skjermtype, på samme måte som garnpartier ofte avviker i noen grad fra fargebad til fargebad. Om du ønsker en mer blålig (litt mørkere) utgave, ta en titt på DROPS Sky farge nr. 13, lys jeansblå og DROPS Kid-Silk farge nr 08, lys jeansblå. Kanskje du liker de bedre? mvh DROPS Design

27.03.2023 - 14:05

country flag Monica Overvåg wrote:

Hei Jeg lurer på hvordan strikker man de maskene som ikke er påtegnet i diagrammet? Skal det vere rillestrikk der også? Eller strikkes det uten riller?

10.03.2023 - 09:23

DROPS Design answered:

Hei Monica. Det skal stå forklart i oppskriften. I denne oppskrifter står det mange steder at de 2 kantmaskene strikkes i riller, mens mange steder er det skrevet at x- antall masker skal strikkes i glattstrikk. Om du skriver hvor du er i oppskriften og hvilken str du strikker kan vi gi deg et mer nøyaktig svar. mvh DROPS Design

13.03.2023 - 10:38

country flag Monna Des Fougères wrote:

Bonjour, Est-il possible de ne faire ce pull qu'en Kid Silk, en doublant le fil ? Merci :-)

11.12.2022 - 14:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Des Fougères, 2 fils Kid-Silk risquent d'être trop peu pour obtenir la bonne tension, essayez avec 3 fils plutôt - la texture sera différente quoi qu'il en soit, il est recommandé de tricoter un échantillon au préalable (je le ferai avec 2 et 3 fils) pour bien vérifier votre échantillon mais également la texture obtenue et ainsi choisir l'alternative que vous préférez. Bon tricot!

12.12.2022 - 09:35

country flag Alicja wrote:

Nie do końca rozumiem jak zacząć przerabiać karczek. Jestem obecnie na etapie, w którym robótka jest rozdzielona na cztery (przód, tył, 2x rękawy). Wykonałam pierwszą część rękawów saddle shoulders (dotarłam do tych 8 cm odmierzanych od markera na środku rękawa). W jaki sposób i co dokładnie mam teraz nabrać na druty?

06.11.2022 - 17:57

DROPS Design answered:

Witaj Alicjo, teraz na prawej stronie robótki przerabiasz schemat A.1 ponad oczkami jednego ramienia, a następnie nabierasz oczka wzdłuż tej powstałej klapki ramienia (nabieramy oczka w odl. 2 oczek od brzegu, aby brzeg był jeszcze bardziej zwarty i sweter nie rozciągał się). To przypomina trochę nabieranie oczek wzdłuż pięty, zobacz na filmie TUTAJ. Patrz od 6-tej minuty filmu. Dalej przerabiaj jak w opisie. Pozdrawiamy!

08.11.2022 - 09:50

country flag Ket wrote:

Er staat een fout in het patroon. "Ga zo verder met de minderingen tot de mouw 34-33-32-30-29-29 cm meet vanaf de scheiding" moet "Ga zo verder ZONDER minderingen" zijn. Ik heb nu 6 keer teveel geminderd.

31.07.2022 - 14:13

country flag Dominga Dorigo wrote:

Buonasera, sto iniziando il lavoro delle spalle a sella. Non capisco però lo schema A1 (ma anche A3), perché le ultime due righe non hanno i primi e gli ultimi punti? Purtroppo non riesco a capire dove finiscono quei punti... Vi ringrazio tanto per i chiarimenti che potrete darmi. Dominga

27.07.2022 - 23:18

DROPS Design answered:

Buonasera Dominga, abbiamo inoltrato la sua richiesta al settore design: se dovesse essere necessario troverà il modello corretto direttamente sul sito. Buon lavoro!

27.09.2022 - 21:36