Pink Paradise |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Flora eða DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-14 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um mynsturteikningu A.2 og A.5). Lykkjufjöldinn er mismunandi í A.1, A.2 og A.3 þar sem lykkjufjöldi í köðlum skiptist á milli þess að vera 2 og 3 lykkjur, lykkjufjöldi í mynstri gengur út frá að það séu 3 lykkjur í köðlum. LASKALÍNA: Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – svo það myndist gat. Á bakstykki og ermum eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni, á framstykki eru nýjar lykkjur prjónaðar eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1 og A.3. Þegar prjónað hefur verið að ör í mynsturteikningu, prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Það eru auknar út 4 lykkjur í umferð með því að auka út hvoru megin við merkiþræði þannig: Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið síðan útaukningu við merkiþráðinn í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri). ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 2 lykkjur í umferð með því að fækka um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður og allt stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Þegar kantur í hálsmáli og berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Eftir fram- og bakstykki eru ermar prjónaðar niður á við í hring á hringprjón / sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 124-128-132-136-148-148 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Flora eða DROPS Baby Merino. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan jafnframt því sem í umferð 1 er aukið út um 4-0-6-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 128-128-138-138-148-148 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= mitt að aftan), berustykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Setjið 4 merkiþræði í stykkið þannig: Merkiþræðirnir eru settir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar og þeir eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu og eru settir á milli 2 lykkja þannig: Teljið 22-22-25-25-27-27 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 45-45-50-50-55-55 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð. Það eru 23-23-25-25-28-28 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= hálft bakstykki). Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið frá merkiþræði mitt að aftan þannig: Notið hringprjón 3,5, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði (= hálft bakstykki), aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, 2 lykkjur sléttprjón, aukið út fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði (= ermi), aukið út fyrir laskalínu, 2 lykkjur sléttprjón, aukið út fyrir laskalínu, prjónið A.1, A.2 yfir 17-17-22-22-27-27 lykkjur, A.3, þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði (= framstykki), aukið út fyrir laskalínu, 2 lykkjur sléttprjón, aukið út fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði (= ermi), aukið út fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, aukið út fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, aukið út fyrir laskalínu, 2 lykkjur sléttprjón, aukið út fyrir laskalínu og prjónið sléttprjón út umferðina (= hálft bakstykki). Síðan heldur mynstrið áfram hringinn með þessum hætti, jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma í annarri hverri umferð alls 19-18-26-29-27-24 sinnum = 280-272-346-370-364-340 lykkjur – munið eftir að lykkjufjöldinn gengur út frá því að það séu 3 lykkjur í köðlum í A.1, A.2 og A.3 (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Síðan heldur útaukningin áfram þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki eins og áður, en á ermum er nú einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptist 4 og 8 lykkjur fleiri), endurtakið þessa útaukningu alls 8-14-6-10-16-24 sinnum á framstykki og bakstykki og 4-7-3-5-8-12 sinnum á ermum. Eftir síðustu útaukningu eru 328-356-382-430-460-484 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-20-20-24-27-30 cm frá merki eftir kant í hálsmáli. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-20-22-24-27-30 cm frá merki – stillið af að síðasta umferð sem prjónuð er sé 3. eða 4. umferð í A.2 (2 lykkjur og 1 uppsláttur eða 3 lykkjur í hverjum kaðli). SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 49-54-57-64-70-75 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 65-69-77-87-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-14-14-16-20 lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 99-109-114-128-141-151 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 65-69-77-87-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-14-14-16-20 lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 50-55-57-64-71-76 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 222-242-256-284-314-342 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 12-12-14-14-16-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, Merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Byrjið umferð við merkiþráð, prjónið hringinn í sléttprjóni / mynstri eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverjum 8-8-8-8-7-7 cm alls 3 sinnum = 234-254-268-296-326-354 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 26-27-27-27-25-25 cm – stillið af að síðasta umferð sem var prjónuð sé umferð merktri með svartri stjörnu í A.2, setjið eitt merki hvoru megin við miðju 76-76-80-80-84-84 lykkjur í mynstri A.1 til A.3 (ATH! Nú eru 14-14-18-18-22-22 lykkjur í A.2). Nú er næsta umferð frá merkiþræði prjónuð þannig (í hlið á undan framstykki): Notið hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT því sem aukið er út um 5-4-7-8-7-8 lykkjur jafnt yfir næstu 17-22-23-30-35-42 lykkjur (= 22-26-30-38-42-50 lykkjur í stroffi sem endar með 2 lykkjur slétt), merkiþráðurinn situr hér, yfir 76-76-80-80-84-84 lykkjur á milli merkja er prjónað A.4, A.5, A.6 (= 2 lykkjur færri og stroffið passar fallega yfir mynstur), hin merkin sitja hér. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) fram að merkiþræði í hlið, jafnframt er aukið út um 5-4-7-8-7-8 lykkjur jafnt yfir næstu 17-22-23-30-35-42 lykkjur (= 22-26-30-38-42-50 lykkjur í stroffi sem endar með 2 lykkjur slétt), merkiþráðurinn situr hér. Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkju slétt), jafnframt því sem aukið er út um 37-39-40-42-47-49 lykkjur jafnt yfir síðustu 117-127-134-148-163-177 lykkjur (154-166-174-190-210-226 lykkjur í stroffi sem endar með 2 lykkjur brugðið) = 272-292-312-344-376-408 lykkjur. Stroffið passar nú yfir allar lykkjur (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið), haldið svona áfram með stroff hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af aðeins laust. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 65-69-77-87-89-91 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-12-14-14-16-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-81-91-101-105-111 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 12-12-14-14-16-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-4½-3-4½-4 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4½-4½-2½-2-1½-1½ cm alls 7-7-10-13-13-13 sinnum = 63-67-71-75-79-85 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 34-34-32-31-28-26 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 9-9-9-9-9-11 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-76-80-84-88-96 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af aðeins laust. Ermin mælist ca 37-37-35-34-31-29 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (28)
Ewa wrote:
Na początku schematu A3 w rzędach od 1 do 7 jest sporo błędów, albo brakuje narzutów, albo są nie w tych miejscach , albo są 2 zamiast 1. Schemat A3 powinien być lustrzanym odbiciem schematu A1 a dopiero od rzędu 9 jest tak jak powinno być.
02.03.2024 - 10:22Katie B wrote:
Which of the 2 yarn options is the sweater in the photos knitted with?
27.02.2024 - 17:15DROPS Design answered:
Dear Katie, the sweater in the photos was worked with DROPS Flora. Happy knitting!
28.02.2024 - 09:08Magali C wrote:
Where sunset begins
21.01.2024 - 08:50Lynda Kuit wrote:
Tracks in the sand
19.01.2024 - 09:59Angelique wrote:
Beauty without beast
19.01.2024 - 04:05Karin wrote:
Coral Summer
18.01.2024 - 21:12Dominika wrote:
Coral love
18.01.2024 - 18:23Heike wrote:
Aprikosensoufflé
18.01.2024 - 17:41